Morgunblaðið - 06.10.1990, Síða 48
‘48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 6. ÖKTÓBER 1990
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ
~ Morgunblaðið/KGA
Islandsmeistarar Fram
Framarar urðu íslandsmeistarar í knattspyrnu á dögunum; urðu hlutskarpastir eftir æsispennandi lokabaráttu þar sem fjögur lið áttu möguieika á meistaratitlinum fyrir síðustu umferðina,
eins og knattspyrnuáhugamönnum er eflaust enn í fersku minni. Á myndinni eru meistararnir kampakátir eftir að hafa tekið við íslandsbikarnum. í aftari röð frá vinstri: Ólafur Orrason
ritari knattspyrnudeildar, Albert Sævar Guðmundsson gjaldkeri, Ásgeir Elíasson þjálfari, Ágúst Ólafsson, Ríkharður Daðason, Jón Erling Ragnarsson, Viðar Þorkelsson, Baldur Bjarnason,
Jón Sveinsson, Anton Björn Markússon, Kristinn R. Jónsson, Eyjólfur Bergþórsson varaformaður knattspyrnudeildar, Jóhann Kristinsson framkvæmdastjóri og Halldór B. Jónsson formaður.
í fremri röð frá vinstri: Haukur Pálmason, Guðmundur Gfslason, Guðmundur Steinsson, Pétur. Arnþórsson, Vilberg Sverrisson, Pétur Ormslev, Birkir Kristinsson, Steinar Guðgeirsson og
Kristján Jónsson.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Víðir-sigur-
vegari í 2. deild
Víðir, Garði, sigraði örugglega í
2. deild karla í knattspyrnu á ný-
liðnu keppnistímabili. Á myndinni
eru meistararnir í aftari röð frá
vinstri: Óskar Ingimundarson þjálf-
ari, Víðir Finnbogason, Einar Jón
Pálsson, Ólafur Róbertsson, Klem-
enz Sæmundsson, Hlynur Jóhanns-
son, Karl Finnbogason, Ásbjörn
Ásbjörnsson, Gísli Heiðarsson, Vil-
hjálmur Einarsson, Þorsteinn Ey-
jólfsson, Ingvar Ásmundsson,
Magnús Þór Magnússon og Sigurð-
ur Gústafsson, formaður Víðis.
Fremri röð frá vinstri: Jónas Andr-
ésson, Grétar Einarsson, Steinar
Ingimundarson, Daníel Einarsson,
Sævar Leifsson, Björn Vilhelmsson,
Guðjón Guðmundsson, Guðmundur
Einarsson og Atli Vilhelmsson.
IMámskeið fyrir
barna- og ungl-
ingaþjálfara
Grunnstigsnámskeið ÍSÍ fyr-
ir bama- og unglingaþjálf-
ara fer fram á vegum ÍSÍ dag-
ana 13. til 15. október. Kennslu-
stundir verða alls 26.
Þátttökutilkynningar berist
til ÍSÍ fyrir þriðjudagskvöld, 9.
október.
Fréttatilkynning frá ÍSÍ.
VB . :
r\.-Æ i 1 'Smm * %
t
. - Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Kvennaliði Þróttar fagnað við heimkomuna frá úrslitakeppninni, f.v.: Helga Gísladóttir, Sigrún 'Haraldsdóttir, Guðlaug Sigfúsdóttir, Anna Jónsdóttir, Þor-
björg Jónsdóttir, Sesselja Jónsdóttir, Harpa Hermannsdóttir, Halldóra Sigurðardóttir liðsstjóri, Jóna Lind Sævarsdóttir, Inga Birna Hákonardóttir þjálfari, Þór-
veig Hákonardóttir, Ásta Lilja Björnsdóttir og Hlín Jensdóttir.
Deildarmeistarar ifyrstu tilraun
Guð læknor
Heilun með hjálp
Guðs anda án lyfja
eða lækningajurta.
Bókaverð 7,80 DM.
Upplýsingar:
Universal Life,
Postfach 5643,
D-8700 Wiirzburg,
W-Germany.
Stúlkunum í meistaraflokki
Þróttar í knattspyrnu, sem
unnu sér sæti í fyrstu deild íslands-
mótsins, var vel fagnað þegar þær
komu heim frá úrslitakeppninni í
haust. Þær sigruðu í báðum leikjum
sínum í úrslitunum og urðU þar
með sigurvegarar í annarri deild.
Er þetta í fyrsta skipti sem kvenna-
lið frá Þrótti tekur þátt í íslands-
móti í knattspyrnu.
Við heimkomuna voru þeim færð
blóm frá Þrótti og bæjarstjórn. Þá
ávarpaði Ásgeir Magnússon bæjar-
stjóri þær. Talsverður mannfjöldi
var á flugvellinum við heimkomu
liðsins.
Þjálfari er Inga Birna Hákonar-
dóttir og leikur hún jafnframt með
liðinu. Þess má geta að í liðinu eru
tvennar systur, Inga Birna og Þór-
veig Hákonardætur og tvíburasyst-
urnar Anna og Sesselja Jónsdætur.
í lokahófi Þróttar var Anna Jóns-
dóttir kjörin besti leikmaður
kvennaliðsins á keppnistímabilinu.
Ágúst Blöndal