Morgunblaðið - 15.11.1990, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990
Sölumiðstöðin opnar
útibú í Japan í dag
Forseti íslands viðstaddur opnunina
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna opnar í dag útibú í Japan, en fyrir-
tækið var áður með umboðsskrifstofu þar í landi. Vigdís Finnboga-
dóttir forseti íslands verður viðstödd opnunina í Japan, en hún er
stödd þar í landi vegna viðamikillar íslandskynningar.
Helgi Þórhallsson framkvæmda-
stjóri SH í Japan sagði við Morgun-
blaðið að aðstæður breyttust til hins
betra með opnun útibúsins. Sölu-
miðstöðin færðist með þessu nær
markaðnum því útibúið gæti gert
samninga beint við Japani, en það
gat umboðsskrifstofan ekki. Þar af
leiðandi ætti að vera hægt að ná
fram hærra verði og bregðast hrað-
ar við markaðssveiflum.
Helstu fisktegundir, sem SH sel-
ur til Japan, eru grálúða, loðna,
karfi og síld, rækja, humar og
ýmsar flatfisktegundir. Helgi sagði
að ekki væru fynrsjáanlegar miklar
breytingar í náinni framtíð á um-
fangi viðskipta SH við Japani, en
árlega væru seldar sjávarafurðir til
Japan fyrir um 40 milljónir dala,
eða um 2,3 milljarða króna.
Tveir menn starfa hjá útibúi SH
í Japan og er búist við að sá þriðji
bætist við á næsta ári.
Tillaga gerð um sölu á
Hótelinu í Borgarnesi
STJÓRN Hótels Borgarness hf.
hefur gert samkomulag við Pét-
ur Geirsson veitingamann í
Hreðavatnsskála og Botnsskála
um sölu á hótelinu. Tillaga um
söluna verður lögð fyrir hlut-
hafafund í Hótel Borgarnesi hf.
næstkomandi mánudag, að sögn
Óla Jóns Gunnarssonar stjórn-
arformanns.
Aðaleigendur hótelsins eru
Ferðamálasjóður, Kaupfélag Borg-
firðinga og Borgamesbær og eiga
þeir samtals um 80-90% hlutafjár.
Hótelið hefur átt í rekstrarerfið-
leikum undanfarin ár, m.a. vegna
viðbyggingar sem reist var við
hótelið fyrir.nokkrum árum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Vilja aðstoð við að eignast Reiðhöllina
Börn úr unglingadeild hestamannafélagsins Fáks
gengu í gær á fund Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra og afhentu honum bréf þar sem þau óska
eftir aðstoð hans við að eignast Reiðhöllina. í
bréfinu benda þau á að Reiðhöllin sé til mikils
gagns í starfr unglingadeildar Fáks,. og slæmt
yrði ef halda þyrfti öll námskeið úti. Á myndinni
sést Ásta Kristín Briem afhenda Davíð Oddssyni
bréfið, sem hann sagðist ætla að kynna fyrir borg-
arráði.
Kom suður
með hálft
annað hross
LÖGREGLUMENN á eftirlits-
ferð stöðvuðu bíl á leið til
Reykjavíkur á Vesturlands-
vegi við Korpúlfsstaði um
klukkan hálfþrjú í fyrrinótt
og fundu þar um borð hálfan
annan skrokk af heimaslátr-
uðu, óstimpluðu hrossakjöti.
Ökumaðurinn sem var að
koma frá Akureyri, kvaðst hafa
tekið að sér að flytja kjötið frá
bæ í Skagafirði til manns í
Kópavogi. Lögregla lagði haid á
kjötið og gerði heilbrigðisyfir-
völdum viðvart um málið.
Tilboð ríkisstjórnarinnar í GATT-viðræðunum:
Magniniiflutningiir mun
rýra innlenda framleiðslu
- segir Hákon Sigurgrímsson framkvæmdastj óri Stéttarsambandsins
HÁKON Sigurgrímsson, framkvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda, segir að ef leyfður verði innflutningur á unnum landbúnað-
arvörum í einhverju magni muni það óhjákvæmilega rýra innlenda
framleiðslu. Hann segir ýmislegt vera óljóst í tilboði ríkissljórnar-
innar í GATT-viðræðunum um landbúnaðarmál, og það hafi ekki
verið kynnt fyrir forystumönnum Stéttarsambandsins.
„Við munum óska eftir nánari
skýringum á ýmsu sem í þessu til-
boði felst, en við höfum ekki verið
með í ráðum um endanlega gerð
þess, og fengum það fyrst í hendur
eftir að það var lagt fram. Land-
búnaðarráðherra kynnti okkur fyr-
ir um það bil mánuði þær hug-
myndir sem hann þá lagði fram í
ríkisstjóminni, en það er lengra
gengið í þessu tilboði sem nú hefur
verið lagt fram, og þá sérstaklega
hvað varðar rýmkaðar heimildir til
innflutnings á unnum vörum. Hins
vegar er það jákvætt að gert er
ráð fyrir því að halda fast við heil-
brigðiskröfur og að tekin verði
breytileg jöfnunargjöld til að jafna
verðmismun á erlendri og inn-
lendri framleiðslu, þannig að sam-
keppnin verði fyrst og fremst á
gæðagrunni," sagði Hákon.
Hann sagði að ekki kæmi nógu
skýrt fram í tilboði ríkisstjómar-
Verktakar telja þokkalegt
útlit um atvinnu í vetur
Ástand þó slæmt varðandi íbúðabyggingar
ÞOKKALEGA horfir um verkefni hjá verktökum í vetur, þegar
á heildina er litið, að sögn Gunnars Birgissonar formanns Verk-
takasambands íslands. Ástandið er nokkuð mismunandi eftir
greinum, hann segir slæmar horfur vera í íbúðabyggingum, eink-
um á meðan húsbréfakerfið er ekki komið að fullu í gang varð-
andi nýbyggingar. Ingvar Guðmundsson formaður Meistara- og
verktakasambands byggingamanna tekur í sama streng, en hann
telur að stærri byggingafyrirtæki hafi þó ærin verkefni framund-
an.
Gunnar Birgisson segir illa
horfa í byggingariðnaðinum eins
og stendur, einkum hjá þeim fyrir-
tækjum sem byggja og selja íbúð-
ir, þar sem lán til nýþygginga
hafi varla fengist í heílt ár og
húsbréfakerfi er ekki komið í
gagnið.
Gunnar segir að í öðrum grein-
um verktaka sé ástandið svipað
og allajafnan á þessum árstíma,
nokkuð mismunandi eftir fyrir-
tækjum, sujn hafi getað tryggt
sér verkefni en önnur ekki. „Þeg-
ar á heildina er litið eru horfur
sæmilegar miðað við árstíma.
Menn horfa svo auðvitað vongóðir
til þess, að álversframkvæmdir
hefjist,“ segir Gunnar Birgisson.
Ingvar Guðmundsson segir at-
vinnuástandið misjafnt eftir stærð
fyrirtækjanna. Útlit sé fyrir að
hin stærri byggingafyrirtæki hafí
ærið nóg verkefni eins og málin
standa í dag. „En, svo aftur á
móti þegar um minni umsvif er
að ræða er þetta óljósara, sérstak-
lega hjá þeim sem eru að byggja
og selja íbúðir á fijálsum markaði
og eru með tiltölulega litlar ein-
ingar. Þeir eru í svolítilli óvissu
sem tengist meira úrvinnslu hús-
bréfafyrirkomulagsins heldur en
beinlínis ástandi markaðarins
sjálfs. Það hefur ríkt óvissa í
kringum þessi lánakerfi Hús-
næðisstofnunar, bæði hið gamla
sem er nú eiginlega alveg í andar-
slitrunum, og svo húsbréfakerfis-
ins. Það hefur skapað sölutregðu
hjá mjög mörgum og við sjáum
ekki alveg fram úr því máli enn-
þá. Við sjáum ekki nákvæmlega
hver viðbrögðin verða þegar hús-
bréfakerfið tekur gildi fyrir ný-
byggingarnar 15. nóvember,"
segir Ingvar Guðmundsson.
innar hvað hugmyndir um rýmkað-
ar innflutningsheimildir fælu í sér,
1 og um hvaða magn væri þar verið
að ræða. „Einhver örfá prósent
skipta kannski ekki meginmáli, en
ef verið er að tala um meira þá er
í raun og veru verið að tala um
að rýra þá framleiðslu sem er í
landinu. I heildina skiptir það meg-
inmáli hvemig staðið verður að
framkvæmdinni héma heima og
með hvaða hugarfari þær tak-
markanir og jöfnunargjöld sem
þarna er gert ráð fyrir verða fram-
kvæmdar. Það gerir okkur óneitan-
lega tortryggna að þær heimildir
til töku jöfnunargjalda, sem hafa
verið í gildi allt frá 1972, hafa
hingað til aðeins verið notaðar í
einu tilviki. Það er varðandi inn-
flutning á kökum, en heimilt hefði
verið að nota jöfr.unargjöld til
dæmis á pizzur og pastarétti en
það hefur ekki verið gert. Það er
því í höndum íslenskra stjómvalda
á hveijum tíma hvernig þetta er
notað,“ sagði Hákon.
Egill Jónsson þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins sagði í gær að til-
boð ríkisstjórnarinnar þarfnist
nánari skýringa við og nauðsynlegt
sé að taka málið fyrir á Alþingi.
Egill sagði að menn ættu sérstak-
lega erfítt með að átta sig á þeim
þætti sem lyti að væntanlegum
innflutningsheimildum.
Deila FFSÍ og LÍÚ:
Sáttafmid-
ur í dag
RÍKISSÁTTASEMJARI hefur
boðað samningsaðila i kjaradeilu
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins og Landssambands
íslenskra útvegsmanna til sátta-
fundar klukkan 13.30 í dag.
Formannafundi FFSÍ lauk á
ísafirði á þriðjudag. Þar var fellt
að bera tilboð útvegsmanna undir
atkvæði í þeim 15 félögum sem eru
innan sambandsins. Eftir fundinn
er ljóst að félagar í FFSÍ halda
þeirri kröfu til streitu, að þeir muni
ekki sætta sig við að fá minna út
úr sínum samningum en yfirmenn
í Bylgjunni sömdu um á Vestfjörð-
um. Boðað verkfall farmanna hefst
á þriðjudag, semjist ekki fyrir þann
tíma.
Áfengi og annar smygl-
varningur í Skógafossi
UM 130 lítrar af vodka, 29 lengjur af sígarettum, 2 talstöðvar og
einn radarvari fuhdust um borð í Skógafossi við leit tollvarða í
gær. Skipið var að koma frá Bandaríkjunum og var varningurinn
falinn í lest þess. Fjórir skipverjar áttu varninginn, en leit stóð enn
yfir í skipinu í gærkvöldi.
Um klukkan 6.30 í gærmorgun
kom Skógafoss til Njarðvíkur. Þar
fóru tveir tollverðir um borð í skip-
ið og fóru með því til Reykjavíkur,
þar sem fleiri tollverðir bættust í
hópinn. Stærsti hluti varningsins
var falinn bak við syllu í lest skips-
ins. 111 lítrar af vodka voru í
þriggja pela flöskum og einnig
fundust 24 plastbrúsar með sar
drykk og innihélt hver þeirra 1,‘
lítra. Alls fundust því um 130 lítr
af vodka, auk sígarettulengnanr
talstöðvanna og radarvarans. Fjó
skipveijar áttu varninginn.
Leit stóð enn yfir í Skógafoss
gærkvöldi.