Morgunblaðið - 15.11.1990, Side 22
22
KONIAKSHRINGIR
Ijúfir til
hátíðabrigða
eða á rólegum I
síðkvöldum. 1
SKÍMNDIJ
* . am m
Y.
il
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990
h
Nýtt tónverk eftir Guðmund Hafsteinsson:
Tónverk í samþjöppuðu formi ljóðsins
Jan Krenz, hljómsveitarstjóri á æfingu með Sinfóníuhljómsveit
íslands í síðustu viku.
eftir Rafn Jónsson
Á fyrri tónleikum bláu tónleika-
raðarinnar í Háskólabíói laugar-
daginn 17. nóvemberverður frum-
flutt nýtt tónverk eftir Guðmund
Hafsteinsson, Ljóðskap. Tónleik-
arnir hefjast kl. 15.00. Auk þessa
verks verða fluttir Fimm þættir
op. 16 eftir Amold Schönberg og
að lokum Bók fýrir hljómsveit eða
Livre pour orchestre eftir Witold
Lútóslavskí. Hljómsveitarstjóri
verður Pólveijinn Jan Krenz.
Það sem einkennir bláa tónleik-
aröð er nútímatónlist eftir íslenska
og erlenda höfunda. Segja má að
bláa tónleikaröðin sé fyrir þá, sem
leita eftir nýjum straumum í tón-
listinni og hlusta með opnum huga
á það sem er að gerast á sviði
tónlistar í nútímanum, bæði hér
heima og erlendis.
Nýtt íslenskt verk
Guðmundur Hafsteinsson tón-
skáld, er doktor í tónsmíðum frá
Juilliard-tónlistarháskólánum í
New York. Hann hóf nám í píanó-
Ieik 1970 og 1972 hóf hann nám
í Tónlistarskólanum í Reykjavík
og lærði píanóleik hjá Halldóri
Haraldssyni, hljómfræði hjá Jóni
Ásgeirssyni og kontrapunkt hjá
Þorkeli Sigurbjömssyni til ársins
1975. Haustið 1977 hélt hann til
Bandaríkjanna og stundaði nám í
Juilliard-skólanum haustið 1979.
Hann lauk þaðan doktorsprófi eins
og áður segir 1986. Jafnframt
stundaði hann nám í hljómáveitar-
stjóm hjá David Gilbert. Guð-
mundur stundar nú kennslu við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
sinnir tónsmíðum í frístundum.
Einu sinni áður hefur verk eftir
Guðmund verið flutt hjá Sinfóníu-
hljómsveitinni, það var konsert-
kantata, sem hann skrifaði 1978.
Ljóðskap tekur um 20 mínútur
í flutningi og skiptist í 8 ólíka
kafla.
Guðmundur sagði í stuttu sam-
tali að hver kafli væri með sínum
sérkennum.
— Tæknileg úrlausn var að
hafa svona margar hugmyndir og
margs konar efni og fella það
saman í eina heild, sagði Guð-
mundur. Ég var búsettur í Banda-
ríkjunum, þegar ég skrifaði þetta
verk og á þessum tíma var ísland
mér mjög hugleikið. Kveikjan að
verkinu var því_ íslensk nattúra,
séð í huganum. Á sama tíma urðu
fomir, íslenskir bragarhættir mér
leiðarljós. Þetta er því verk með
sköpulagi ljóðs, þar sem það ber
keim af samþjöppuðu formi ljóðs-
ins. Nafnið bendir til þessa, því
skap merkir ekki einungis geð-
Guðmundur Hafsteinsson, tón-
skáld.
slag, heldur einnig háttur eða
hlutfall. Nafnið gæti því verið
ljóðháttur eða ljóðahlutfall, sagði
Guðmundur að lokum.
Þrjú ólík verk
Tónskáldið og hljómsveitarstjór-
inn Jan Krenz er einn litríkasti
tónlistarmaður Pólveija. Hann
sagði um verk Guðmundar að það
virtist við fyrstu sýn erfitt í flutn-
ingi, en hann hlakkaði til að ta-
kast á við það. Hann sagði einnig
að þessi þijú verk á efnisskránni
væru hvert öðru ólík og það yrði
mikil reynsla fyrir stjórnandann
og hljómsveitina að túlka þessa
ólíku tónlist. Hann sagði að nú í
haust hefði honum loksins gefist
tækifæri til að koma hingað til
íslands og stjóma Sinfóníuhljóm-
sveitinni, en hann hefði langað til
þess í mörg ár, eftir að hafa hlust-
að á vin sin og kollega Bodan
Wodiczko, sem var aðalstjómandi
hljómsveitarinnar árin
1960-1970, tala um árin sín hér.
Jan Krenz hóf hljómsveitar-
stjórn tvítugur að aldri, 1946, og
er einn leiðtoga Pólveija í tónlist-
inni. Hann hefur verð aðalstjóm-
andi nokkurra hljómsveita í Póll-
andi og einnig dönsku útvarps-
hljómsveitarinnar og Borgar-
hljómsveitarinnar í Bonn í Þýska-
landi. Hann hefur hlotið marg-
háttaðar viðurkenningar fyrir
störf sín. Síðustu árin hefur hann
stjómað hljómsveitum víða um
lönd auk þess að semja tónlist;
sinfóníur, kammertónlist, sönglög
og tónlist fyrir leikrit og kvik-
myndir.
Eins og áður segir verða tón-
leikamir á laugardaginn og hefj-
ast kl. 15.00. Miðasala er á skrif-
stofu hljómsveitarinnar í Háskóla-
bíói á skrifstofutíma og við inn-
ganginn við upphaf tónleikanna.
Höfundur er kynningarfulltrúi
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Bókmenntakynning á ísafirði
VEGLEG bókmenntakynning verður haldin í sal Menntaskólans á
ísafirði laugardaginn 17. nóvember. Þar verður flutt erindi um sagna-
gerð samtímans og kynnt fjögur ný íslensk verk; frumsamdar skáld-
sögur, þýðingar og sagnfræðirit.
Ástráður Eysteinsson, bók-
menntafræðingur, mun flytja erindi
sem hann nefnir Skáldsaganá ís-
landi. Þar fjallar hann bæði um-
frumsamin skáldverk og þýðingar.
Ingibjörg Haraldsdóttir, þýð-
andi og ljóðskáld, mun kynna fyrsta
SÆTUNI8 SIMI691515 ■ KRINGLUNNISIMI6915 20
!/á) etu/KSv&gfOKHegtÁ, í sanouttífuiw
bindi þýðingar sinnar á Kar-
amazov-bræðrunum eftir
Dostojevski.
Þorsteinn Antonsson, rithöf-
undur, mun kynna bók sína Vax-
andi vængir, en þar eru dregnar
fram í dagsljósið ýmsar sögur sem
legið hafa utangarðs í bókmenn-
taumræðunni.
Rúnar Helgi Vignisson les úr
nýútkominni skáldsögu sinni,
Nautnastuldi. Rúnar Helgi hefur
áður sent frá sér skáldsöguna Ekk-
ert slor.
Fjórða og síðasta hefti Sögu Isa-
fjarðar ér í þann mund að koma
út og mun Hlynur Þór Magnús-
son, ritstjóri, kynna það.
Milli atriða mun Kristján Bjarna-
son, gítarleikari, flytja nokkur lög
á klassískan gítar.
Boðið verður upp á veitingar í
hléi. Gestum gefst einnig kostur á
að fá bækur viðkomandi höfunda
áritaðar í lok dagskrárinnar. Það
er Menningarráð ísafjarðar sem
stendur að kynningu þessari í sam-
vinnu við Menntaskólann á ísafirði
og Bókaverslun Jonasar Tómasson-
ar.
m SLEIPNER MOTOR A.S
fl>oro*
Það tilkynnist hér með að MERKÚR hf. hefur tekið að sér einkaumboð
á íslandi fyrir SLEIPNER MOTOR A.S. í Noregi.
Við getum nú með örskömmum fyrirvara útvegað af lager
SLEIPNER í Noregi: Skrúfuása, stefnisrör, ástengi, bátaskrúfur,
stýrisbúnað, rafknúnar bógskrúfur 12 eða 24 volt og
vökvaknúnar bógskrúfur, 20,40 og 60 hö.
Saia — Ráðgjöf—Þjónusta
Ml 11 KÚ 1 H I
Skútuvogi 12A • 104 Reykjavík • o 82530
t