Morgunblaðið - 15.11.1990, Side 42
‘42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
s
Z)
3
2
I
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
Kæliskápar
Philips-Whirlpool kæliskápar enn glæsilegri en fyrr. Það besta sem þú getur
hugsað þér. Heldur matnum ferskum mun lengur.
PHIUPS | Whirlpool
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SIMI691515 ■ KRINGIUNNISÍMI6915 20
í scututÍKgiwc —
AUGLÝSING FRÁ
STARFSLAUNASJÓÐI MYNDLISTARMANNA
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 36/1987 um listmunauppboð o.fl. svo og reglu-
gerð nr. 97/1988 um fylgiréttargjald og Starfslaunasjóð myndllstarmanna
ber að greiða höfundum 10% af andvirði seldra hnálverka, mynda og list-
muna á listmunauppboðum.
Starfslaunasjóður myndlistaimanna annast innheimtu og skil gjaldsins til
höfunda. Stjórn Starfslaunasjóðsins lýsir hér með eftir þvi að handhafar
höfundaréttar eftirtalinna myndlistarmanna gefi sig fram við stjórn sjóðs-
ins, fyrir 15. desember 1990, til að taka við innheimtu fylgiréttargjaldi.
Alexander Vassiliev Gunnar L. H. Valdimarsson Magnús Jónsson
Anna Woodward Gunnlougur Blöndol Magnús Kristjánsson
Antonio Virduzzo Gurry Magnús Þórarinsson
Axel Einarsson H. Holland Matthías Sigfússon
Álfhildur Ó. Harry Sigurjónsson Molander
Ásgeir Bjarnoson Haye V. Hansen Nikulás Sigfússon
Ásgeir Bjornþórsson Helen M. Lloyd Nína Sæmundsdótfir
Ásmundur Sveinsson Helgi Bergmann Níno Tryggvadóttir
Bellin Helgi Jósteinsson 0. E. Sandsfröm
.Benedikt Gröndal Helgi Vilberg Hermannsson Otto Meisíer
Benedikt Guðmundsson Hjálmor Þorsteinsson Ófeigur Ófeigsson
Bjarni Guðjónsson Hjörvar K. Ólafur Túbals
Bjorni Guðmundsson Hörður Karlsson Óskar Jóhannesson
Bjarni Sæmundssen Höskuldur Björnsson Peter J. Mönning
Björn Ragnar Ingi Hrafn Péfur Már
Brynjólfur Þóróorson Ingunn Ágústsdóttir Ríkharður Jónsson
E. Ditlevsen J. Magnússon Rudolf Sörensen *
Eggert Magnússon J. 1. Viva Rudolf Welssauer
Einar Jónsson Jakob Hafstein S. Killend Brandt
Einar Karl Sigvoldason Jakob V. Hafstein Selma Jónsdóftir
Eiríkur K. Jónsson Jón Ágúst Sigríður Sigurðardóttir
Eleonor Oltean Jón E. Gunnarsson Sigurður Benediktsson
Elfar Guðni Jón Gunnarsson Snorri Einarsson
Elinborg Luízen Jón Haraldsson Sólveig Eggerts
Emanuel Lorsen Jón Helgoson Steingrímur Guðmundsson
Emil Thoroddsen Jón Hróbjortsson Sveinbjörn Þór Einarsson
Engilberf Gísíoson Jón Stefónsson Sveinn Kaaber
Erling Aspelund Jón Þorleifsson Sveinn Þórarinsson
Eyjólfur lllugason Jón Þór Gíslason Sverrir Einarsson
Fr. Guðjónsson Jónas Guðmundsson Tarnús
Freymóður Jóhannesson Jósef Felzmonn Taylor
Fríðrik Guðjónsson Júlíana Sveínsdóttir Tryggvi Magnússon
G. Leonbionchi Jörundur Pálsson Unnur Friðriksdótfir
Geir Birgir Karl Einarsson Valtýr Pétursson
Gíslí Jónsson Karl Guðmundsson Vilborg Emilsdóttir
Grímo Kafrín H. Ágústsdótfir Vilhjólmur G. Vilhjálmsson
Guðmundur Magnússon Krisfján Magnússon Willem Blaeu
Guðmundur Másson Logi Eldon Þorlerfur Þorláksson
Guðmundur Þorsteinsson , Lovin Þorvaldur Skúlason
Guðni Hermannssori Luis Þórður Sveinbjörnsson
Gunnar Dúi Mackenzie Þórhallur Filippusson
Vakin er athygli á að verði innheimtu fylgiréttargjaldi ekki ráðstafað til
handhafa höfundaréttar, þá rennur fylgiréttargjaldið í Starfslaunasjóð
myndlistarmanna og verður síðar ráðstafað til starfslauna handa listamönn-
^um skv. nánari ákvörðun stjórnar.
Þeim eindregnu tilmælum er beint til erfingja listamanna, sem fara með
höfundarétt, að skila inn umboði til sjóðsins svo unnt sé að skila þegar
innheimtu fylgiréttargjaldi.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sambands íslenskra myndlistar-
manna, Freyjugötu 41, sími 11346.
Opnunartími skrifstofunnar er kl. 10.00-14.00.
Reykjavik, 15. nóvember 1990.
_________________________Stjórn Starfslaunasjóðs myndlistarmanna._______________
Hljómdiskur með íslenskum verkum
HVAÐ hafa þeir gert við klar-
ínettuna hans Guðna? er heiti á
nýútkomnum hljómdiski sem gef-
inn er úr af íslenskri tónverka-
miðstöð í samvinnu við Ríkisút-
varpið.
A þessum hljómdiski flytja þau
Guðni Franzson, klarínettuleikari,
og Anna Guðný Guðmundsdóttir,
pínaóleikari, tónverk eftir níu tón-
skáld. Ung tónskáld í rigningu
nefnir Guðni þau í bæklingi sem
fylgir diskinum, en þar segir m.a.:
í lok áttunda áratugarins tók að
bera á tónsmíðaáhuga hjá nokkrum
unglingum á íslandi. Þeir komu
saman og ræddu sameiginlegt
áhugamál sitt og spáðu í verk stóru
meistaranna af miklum áhuga. Það
varð úr að efnt var til tónleika vor-
ið 1981 þar sem fluttar voru ýmsar
af frumtónsmíðum þeirra sem eiga
verk á þessum hljómdiski, undir
yfirskriftinni Ung tónskáld í rign-
ingu.
Höfundur verkanna sem nú eru
gefin úr eru: Atli Ingólfsson, Guðni
Franzson, Haukur Tómasson, Há-
kon Leifsson, Hilmar Þórðarson,
Hróðmar I. Sigurbjörnsson, Kjartan
Ólafsson, Lárus H. Grímsson og
Þórólfur Eiríksson.
Diskurinn Hvað hafa þeir gert
við klarínettuna hans Guðna?
Doris Lessing.
Skáldsaga
eftir Doris
Lessing
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér skáldsöguna Mörtu
Quest eftir Doris Lessing. Birgir
Sigurðsson rithöfundur þýddi.
Sagan segir frá Mörtu, uppreisn-
argjarni sveitastúlku af breskum
ættum í Afríku.
í kynningu Forlagsins segir
m.a.: „Doris Lessipg á stóran les-
endahóp meðal Islendinga. Með
útgáfu Möitu Quest á íslensku
kynnast þeir fyrstu bókinni í þeim
meistaralega sagnabálki sem
seinna hlaut nafnið Börn ofbeldis-
ins. Verkið er þroskasaga og bygg-
ir að miklu leyti á lífi skáldkonunn-
ar — saga nútímakonu í átökum
við samvisku sína og samtíð."
Marta Quest er 352 bls. og gefin
út samtímis í kilju og bandi. Auk
hf./Elísabet Cochran hannaði kápu.
Bókin er prentuð í Danmörku.
Platan Rammís-
lensk er komin út
ÚT ER komin hljómplatan
Rammíslensk með þjóðlagasveit-
inni Islandicu. Þar er að finna
gömul íslensk þjóðlög ásamt öðr-
um alþýðuperlum. Einnig er eitt
frumsamið lag.
Hljómsveitina skipa þau Ingi
Gunnar Jóhannsson, Gísli Helga-
son, Herdís Hallvarðsdóttir og Egg-
ert Pálsson, en hann kemur í stað
Guðmundar Benediktssonar sem nú
er erlendis. Islandicá er.tveggja ára
gömul og hefur gert víðreist utan
landsins og er gjarnan fengin til
að koma fram á stórum sem smáum
ráðstefnum hér heima.
Með plötunni sem tók rúmt ár
að vinna fylgja allir söngtextar og
vandaðar skýringar á íslensku,
ensku og þýsku.
Útgefandi er Fimmund en dreif-
ingu annast Steinar hf.
Dagana 19. og 25. nóvember
mun hljómsveitin leika á tónlistar-
barnum Púlsinum og bætist þá
ÍSIANDICA
Hljómplatan Rammíslensk.
trommarinn Ásgeir Óskarsson í
hópinn. (Fréttatilkynning)
Kári Sigurðsson myndlistarmaður.
Morgunblaðið/Silli
Kári sýnir á Húsavík
VINKLAR Á TRÉ
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
ÁRMÚLA 29, sImI 38640
HÚSAVÍK nefnir Kári Sigurðs-
son myndlistarmaður sýningu
sem hann opnaði síðastliðinn
fimintudag, 8. þessa mánaðar.
Á sýningunni eru 62 myndverk,
flest unnin með pastelkrít. Mynd-
efnið er allt frá Húsavík, að mestu
leyti unnið á þessu ári, eftir gömlum
skissum allt frá árinu 1960.
Tilefni sýningarinnar segir lista-
maðurinn vera 40 ára afmæli Húsa-
víkurbæjar á þessu ári og einnig
25 ára búsetu hans hér í bæ.
Kári hefur haldið margar einka-
sýningar víða um land og tekið
þátt í samsýningum, en þessi sýning
hans er opin kl. 14-22 til 12. þessa
mánaðar.
- Fréttaritari
14 daga, 6 stöðva upptökuminni, þráð-
laus fjarstýring, 21 pinna ,,Euro Scart"
samtengi „Long play" 6 tíma upptaka
á 3 tíma spólu, sjálfvirkur stöðvaleit-
ari, klukka + teljari, ísl. leiðarvísir.
SértiJboð
29.950.- w.
Rétt verð 36.950,- stgr.
Afborgu n a rsk ihn ála r