Morgunblaðið - 15.11.1990, Side 43

Morgunblaðið - 15.11.1990, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990 43 Eitt atriða úr myndinni Ruglukollar. Háskólabíó sýnir mynd- ina „Ruglukollar“ HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga myndina „Ruglukollar“. Með aðalhlutverkin fara þau Dudley Moore, Daryl Hannah og Paul Reiser. Leikstjóri er Tony Bill. Emory hefur það fyrir atvinnu að semja auglýsingatexta og er afar vansæll bæði í einkalífinu og starfi. Hann er á eftir með öll sín verkefni og er fresturinn til að skila útrunninn. Dettur hann þá ofan á það snjallræði að segja satt í nokkrum auglýsingatextum sem hann er að skrifa. Þegar hann sýn- ir yfirboðurum sínum árangurinn dettur mönnum ekkert skárra í hug en að senda hann á geðveikrahæli um stundarsakir meðan hann jafnar sig og snýst sagan um togstreitu hans að velja á milli vistmanna hælisins og yfirboðara sinna sem ólmir vilja fá hann aftur þegar í Ijós kemur að textar hans slógu í gegn. Eitt atriða úr myndinni Fóstran sem Laugarásbíó hefur tekið til sýninga. Laugarásbíó sýnir myndina „Fóstran“ LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til sýningar myndina „Fóstran". Með aðalhlutverkin fara Jenny Seagrove, Dwier Brown og Car- ey Lowell. í sinni fyrstu hryllingsmynd síð- an „The Exorcist" lýsir leikstjórinn William Friedkin martröð ungra foreldra þegar þeir ráða til sín fóstru sem reynist vera allt önnur en hún lítur út fyrir að vera. í Lóninu Hótel Loftleiðum Um næstu tvær helgar, dagana 9. og 10. og 16. og 17. nóvember, verðum við með okkar vinsæla villibráðarhlaðborð í Lóninu á Hótel Loftleiðum. Við stöndumst ekki freistinguna og birtum matseðilinn í allri sinni mynd: Þar sem búast má við mikilli aðsókn borgar sig að panta borð strax í síma 2 23 21. Verið velkomin. HÖTEL LOFTLEIBIR FORRÉTTUR: Villibráðarseyói Hreindýrapaté Sjáva rréttapa té Grafinn silungur AÐALRÉTTUR: Heilsteiktur hreindýravöóvi Ofnsteikt villigæs Pönnusteikt lundabringa Smjörsteikt rjúpubringa Ofnsteikt önd Hreindýrapottréttur EFTIRRÉTTIR: Heit eplakaka Ferskirávextir Ostar Veitum 20% staðgreiðsluafslátt af ofangreindu verði á öllum borðstofustólum til jóla OP/Ð LAUGARDAGA FRÁ KL 10—14 SUNNUDAGA FRÁ KL. 14—17 Borgartún 29, sími 20640

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.