Morgunblaðið - 15.11.1990, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
—'(21. mars - 19. apríl)
Þú færð ráðleggingar úr óvæntri
átt í dag. Nýjungar sem þú ert
með á pijónunum eiga eftir að
færa þér ávinning. Notaðu krítar-
kortið þitt af hófsemi í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí) trfó
Hjón fara saman út að skemmta
sér á nýstárlegan hátt í dag. Þér
berst óvænt ferðatilboð. Peninga-
málin geta valdið sundurþykkju
í kvöld.
^Tviburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þér launast nú fyrir frábærlega
vel unnið starf. Sumir fá spenn-
andi verkefni upp í hendurnar í
> dag. Eirðarleysi sem grípur þig
um miðjan dag gerir þér erfitt
um vik að einbeita þér í kvöld.
Hafðu gát á skapsmununum.
Krabbi
(21. júní - 22.' júií)
Þú ákveður að fara út með börn-
unum þínum síðdegis. Hjón vinna
saman að því að gera ferðaáætlun
fyrir næsta sumar. Stutt náttúru-
skoðunarferð tekst með afbrigð-
um vel.
Ljón
.^►(23. júlí - 22. ágúsl)
Þér dettur allt í einu í hug að
ráðast í endurbætur heima fyrir.
Það ríkir jafnvægi hjá þér í vinn-
unni núna. Eitthvað verður þó til
þess að áætlanir þínar raskast
og þér sinnast við vin þinn.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Fljótfærni þín getur komið í veg
fyrir að þú náir árangri í dag.
Fyrirvaralaus skemmtiferð veitir
þér mikla ánægju. Þú finnur eitt-
hvað sem þú hefur leitað lengi
*“^»að þegar þú ferð í verslunarleið-
angur.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Eítthvað óvenjulegt vekur áhuga
þinn í dag. Þú heyrir frá ætt-
ingja þínum sem ])ú hefur ekki
haft samband við lengi. Það get-
ur orðið einhver rimma úl af |>en-
ingum í kvöld.
Sþoródreki
(23. okt. -21. nóvcmber)
Þú færð margar góðar hugmynd-
ir í dag. Farðu samt ekki of geyst
við úi'vinnslu úr þeim og gefðu
þér níman tíma. Forðastu óþarfa
- peningaeyðslu í kvöld.
'Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) Sfif’)
Þú stundar innhverfa íhugun í
dag meira en venjulega. Ix»itaðu
ekki langt yfir skammt. Einhver
fer í taugarnar á þér í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vinur þinn sýnir þér sérstakan
trúnað í dag. Taktu þátt í hóp-
starfi núna. Þú hringir í eihfivern
sem þú hefur ekki talað við lengi.
Þú kýst fremur að vinna í kvöld
en fara út tíl að hitta fólk.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þér gefst gott næði og árangur-
inn lætur ekki á sér standa. Hug-
myndirnar streyma til þín. Þú
færð hollráð varðandi starf þitt.
Forðastu að blanda saman leik
og starfi í kvöld.
Fiskar
(19. febmar - 20. mars)
Þú ferð út að skemmta þér með
vinnufélögunum í kvöld. Frétlir
sem þú fa?rð af vini þínum vekja
undrun þína. Heimilisáhyggjur
raska ró þinni í kvöld.
AFMÆLISBARNIÐ er metnað-
argjarnt og vill gjarna takast á
- við umfangsmikil verkefni. Fjár-
öflun liggur vel fyrir því og það
hefur góða stjórnunarhæfileika.
Það festir ráð sitt snemma, en
hefur mikla þörf fyrir pei'sónulegt
frelsi. í listum getur það auðveld-
lega gert sér mat úr hæfíleikurri
sinum og náð langt. Fastheldni
getur samt sett því ákveðnar
skorður.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradv'ól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindálegra staóreynda.
DÝRAGLENS
ii J
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
1 6UE55 IT 5 60ING
TO BE A NICE DAV
AFTER ALL..
-----zr
Það verður líklega gott
veður í dag, eftir allt sam-
an ...
Hérna, Snati... skólabíllinn En þú þarft ekki að gera mikið veður út af því!
er að koma . .. af hverju
ferðu ekki heim með húfuna
og regnhlífina mína fyrir
mig?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Skyhjunin er vanaföst. Við
lærum að sjá hlutina á ákveðinn
hátt og höldum okkur fast við
þá túlkun. En þessi formfesta
skynjunarinnar byrgir okkur að
vissu leyti sýn. Við sjáum ekki
hið augljósa þótt það blasi við.
í skák heitir það skákblinda, í
brids bridsblinda, nema hvað!
Suður gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ 542
VG1096
♦ D95
♦ K102
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 2 tíglar Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 4 spaðar
Pass Pass 6 spaðar Pass Pass
Útspil: Hjartagosi.
Setjum okkur í spor suðurs.
Á hvað horfir hann fyrst og
fremst? Lauflitinn, er það ekki?
Hvernig eigi að vinna úr honum
án þess að gefa nema einn slag?
En lesandinn hugsar kannski
dýpra. Hvað með að fríspila
tígulinn?
Til þess verður hann að liggja
4-3, svo mikið er víst, en er
samgangurinn nægur? Hér gætu
menn blindast og haldið að eina
innkomu vanti. Tígli er spilað
ákóng, spaða á tíu, tígulás tek-
inn og tígull trompaður. Ef
hjartakóngurinn heima væri
bara óbreyttur hundur myndi
blasa við að trompa hjarta (sem
þarf hvort eð er að gera) og
nota innkomuna til að fría 5.
tígulinn. Laufásinn er þá enn í
borðinu. En af því að kóngurinn
er nú einu sinni kóngur í ríki
sínu þegar ásinn er farinn, þá
er erfitt að hugsa sér að trompa
hann. Við erum ekki vön því og
þess vegna gæti okkur yfirsést
möguleikinn. Að lesandanum
undanskildum, að sjálfsögðu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson -
Á heimsmeistaramóti stúdenta
í Oddessa í Sovétríkjunum í októ-
ber kom þessi staða upp í skák
alþjóðlega meistarans Jiirgen
Graf (2.425), V-Þýzkalandi, sem
hafði hvítt og átti leik, og J. Adl-
er (2.280), Sviss. Svartur lék
síðast 32. - He8-f8?
♦ 107
¥Á
♦ Á8743
♦ Á9853
Austur
♦ 63
V875432
♦ G1062
♦ D
Suður
♦ ÁKDG98
¥KD
♦ K
♦ G764
33. Bxd6+! - Dxd6, 34. Dg7 og
svartur gafst upp, því hann fann
ekki viðunandi vörn við máthótun-
inni á b7. 34. — Kc8 dugir auðvit-
að skammt vegna 35. a7!
Þetta var í fyrsta skipti sem
stúdentamótið er teflt í formi ein-
staklingskeppni. Sigurvegari og
þar með heimsmeistari stúdenta
varð Búlgarinn Trifunov sem
hlaut 7 v. af 9 mögulegum. Björg-
vin Jónsson stóð sig mjög vel og
varð í öðru sæti með 6 ‘A vinning,
en stigahæsti keppandinn, Nev-
erov frá Sovétríkjunum (2.480),
varð í þriðja sæti með 6 v. ásamt
fjórum öðrum.