Morgunblaðið - 30.01.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANUAR 1991
5
Á árinu 1990 sýndi Sjóður 1 - Vaxtarbréf
hvað í honum býr!
Hann óx úr 1,3 milljörðum í um 3 milljarða króna
og er nú í eigu yfir 5.100 Islendinga.
Ætlar þú ekki að bætast í hópinn?
Sjóður 1-Vaxtarbréf sameinar
eiginleika langtíma- og
skammtímaverðbréfa.
Sjóður 1 hentar því þeim sem vilja ávaxta
sparifé sitt vel en vilja líka geta gripið til þess á
auðveldan hátt ef þörf krefur.
Það sérkenni Sjóðs 1 að þrjá fyrstu virka daga
hvers mánaðar er möguleiki á innlausn án
innlausnargjalds hefur mælst mjög vel fyrir hjá
bæði gömlum og nýjum viðskiptavinum VIB.
Þessir kostir Sjóðs 1 - Vaxtarbréfa hafa gert
hann að vinsælasta verðbréfasjóði íslenska
markaðsins.
7,5% raunávöxtun
án þess öryggi sé fórnað
Ávöxtun Sjóðs 1 - Vaxtarbréfa hefur ávallt
veriðjöfn oggóð. Þriggja mánaða ávöxtun sjóðsins
var þannig 7,5% yfir verðbólgu á ársgrundvelli
þann 1. janúar sl.
Sjóðurinn er mjög traustur, því skuldabréf
ríkis, sveitarfélaga og banka eru um 70% af þeim
eignum sem standa að baki sjóðnum.
Sparifjáreigendur hafa kunnað vel að meta
kosti Sjóðs 1 - Vaxtarbréfa, því á síðasta ári stækk-
aði hann mest allra innlendra verðbréfasjóða, úr
1,3 milljörðum í um 3 milljarða.
Ríki, bankar og sveitarfélög
70%
Fasteignaveð Sjálfskuldaráb
8% Traust fyrirtæki Hlutabréf 2%
15% 5%
Ársávöxtun sl. 3 mán: 7,5% yfir verðbólgu
Viltu geyrna spariféð
í 2-12 mánuði?
Sjóðsbréf 3 henta þér vel.
Bréfin má innleysa með skömmum fyrirvara
og innlausnargjald fellur niður þegar liðið hafa
50 dagar frá kaupum. Ársávöxtun sl. 3 mánuði
var 6,5% yfir verðbólgu.
Viltu tryggja þér
eignarskattsfrelsi?
Sjóður 5 er eignarskattsfrjáls
án skilyrða.
Bréfin henta því vel þeim sem eiga talsverðar
eignir fyrir. Þau má innleysa með skömmum
fyrirvara líkt og önnur Sjóðsbréf VÍB, en henta
best til lengri tíma sparnaðar. Ársávöxtun sl. 3
mánuði var 6,9% yfir verðbólgu.
Viltu háa ávöxtun?
Sjóðir 4 og 6 eru ávaxtaðir í hluta-
bréfum og geta gefið háa ávöxtun.
Sjóður 4 gaf 8,9% ávöxtun yfir verðbólgu á
árinu 1990 sem var hæst allra innlendra verð-
bréfasjóða. Sjóður 6 er nýr vísitölusjóður sem
fylgir hlutabréfavísitölu HMARKS.
Viltu hafa reglulegar tekjur?
Sjóðsbréf 2 eru tekjubréf.
Vextir af þeim umfram verðbólgu eru greidd-
ir út fjórum sinnum á ári, og þannig fást regluleg-
ar, skattfrjálsar tekjur af sparifénu. Ársávöxtun
sl. 3 mánuði var 7,4% yfir verðbólgu.
Viltu kaupa erlend hlutabréf?
Þýskalandssjóður og Evrópusjóður
eru öruggir kostir.
Eignir þeirra eru fjárfestar í hlutabréfum
fjölda erlendra stórfyrirtækja, í því sem næst
sömu hlutföllum og í hlutabréfavísitölum
viðkomandi landa.
Viltu vita meira? Hafðu samband við VIB.
Starfsfólk og ráðgjafar VIB leggja metnað sinn í að bjóða trausfverðbréf og lipra þjónustu. Nú þegar eiga
þúsundir Islendinga á öllum aldri verðbréf hjá VÍB. Ströng fjárfestingarstefna og öryggi verðbréfasjóðanna
hefur ávallt setið f fyrirrúmi. Mörgum viðskiptavinum VÍB hefur þannig reynst vel að leggja reglulega fyrir
nokkra upphæð tíl að tryggja fjárhagslegt öryggi sitt og fjölskyldu sinnar.
Ráðgjafar VIB íylgjast vel með því sem gerist. á fjármálamarkaðmim og veita allar upplýsingar um leiðir
til ávöxtunar sparifjár.
Verið velkomin!
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26