Morgunblaðið - 30.01.1991, Blaðsíða 21
MQRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAK 1991
21
Barre flúinn til Keníu:
Wirstehen
zu Amerika
amSonntag
^Z^rHeirPráskient,
! cu>hrgeehrterHerr!'
\ \
i saddamHussein.
! inVevbundenhert
fi>;f,4!tíMWri, Abe>
•:m V<’rti! s*s ViiMit* etimá* »Sfi» •Mt'Mm t. Wc nmi i *»«•.{ K«vn«<s! hiw ot Ov.ítsehfc
íHí'wSc.áwe'ttt NWífiíOvvftvAeR! j d,SWr Ktl*ö *-u-.!fc jfcr Vt*it w/.
I-. 8«OJA.-< «*vt»rr-. alii'Aft* PríCiVh! rjeWlirrt - m t)*.;,/. j (iAHtot 'jrtt Oífc Vrtw-WÍrlWBMffc MfchriWHI
V'Wrn !;t’'".v.v,«l''*ri'.«h '•.** ««!,s'wnfcfcihtv’ifcr, SVfwn t»i i jfc< f'fcu(*t,.hfci'.i,!rrhiiiníiOfc'rfívhw»r»rt!Jiii'.siiicui Vi!ii<etaí.
ristStíí'.fcí. i-., <ri Ar-rjwtfiiuoftn ít„iii»u(W.iifc'liílífl fcu*t>«rtw«s j míi!íi.-,r>s.«, w A*nt'ri)t«. ftsi «'rs»er. !rc/v„!rern <!i« H*hiptií»i
WHfcifcinf.rtih' !-.(ior"v'.!»i,,isn4,fcr.p-.';!,iein.'-..fc),ael-y-z.l. J r.«,i
llltfcrVW!*’v5^*^ÍW" | H'^05WM*r*ÖÍI,li*rS*rlwM',i'„0"Mt.SfcO^,Ui-,iO/V..r( .
!*.,><! »„ <•■!>.,I'rcl'ev WirMC* •'.■* [ .'o^rn i>r» **r Wfl, wt> Ósu,.*fch"f>JWírkHcA Itfth'
SMupfcfc'rS w.o '!■* mti'm'-vww (in!*vwiv.f,ftr <!iv l Uniflr.rfhro,|.s;, s;* aw'ron Vt*--<!,.rrii •vh,.:».fc.i Sre ihii fcul
ii'-.on 1'H>!|| vnr! Jfcnr 7/w ror.ot'S*ft? St-ftoWos • •n'e m'.wr'* j fc.ne--i''oa(V.*rt*a'i;i)i(.0orníiONSTAA.8>roivr.ft« .AiT'Oi'.V.o',
P';"t'A?.-..-Jr*!!'.ite-'&imrm;Wí!?.wa>w?;!',.mKií!'v''i".7<sh>n> jMO'.VlUrnts.iö r1?? jíWW l';tBr.rr<-J/,»»oii’,4ði W)-i«ff<Hi "tro
Kí-.htlfl, vyrot'fc-tonnr'. tt.mtl U'V.Ur,«M' i.nrl fcfllhntrV-ntfc) V I Sh'ry.m* an í’rtswl»r,i Pofch »yr,w
Þýska dagblaðið Bild virðist hafa fengið nóg af umfjöllun um slæ-
lega frammistöðu Þjóðveija í Persaflóastríðinu og uppljóstrunum
um hernaðaraðstoð þeirra við íraka undanfarin ár. í sunnudagsút-
gáfu sinni birti þetta útbreiddasta dagblað Evrópu stuðningsyfirlýs-
ingu við Bandaríkjameim sem Iesendum er ráðlagt að klippa út séu
þeir sama sinnis, undirrita og senda til blaðsins og það muni svo
koma henni rétta boðleið til George Bush Bandaríkjaforseta.
byijar kemur í ljós hversu þýsk
fýrirtæki hafa liðsinnt Saddam
Hussein. írakar ráða nefnilega
yfir eldflaugavörpu af gerðinni
BM-21. Nokkrar saman í hnapp
eru þær ógnvekjandi vopn sem
getur skotið 500 eldflaugum í einu.
Margar eru með eiturgashleðslu
sem þýsk fyrirtæki aðstoðuðu ír-
aka við að framleiða og setja í
skothylkin. Efnavopn sín hafa ír-
akar að mestu leyti framleitt í
Samarra með aðstoð Þjóðveija.
Fýrirtækið Karl Kolb er grunað
um að hafa í þijú ár a.m.k. sent
írökum tilbúnar verksmiðjueining-
ar til framleiðslu á sinnepsgasi,
blásýru og fleiri eiturefnum. Der
Spiegel heldur því fram og vitnar
þar í lögreglurannsókn þýskra
yfirvalda að Irakar séu svo háðir
aðstoð Þjóðveija við efnavopna-
framleiðslu sína að skýringin á því
að þeir hafi_ hingað til ekki sent
eiturgas á ísrael sé sú að þýsk
fyrirtæki hafi einungis látið þeim
í té tækjabúnað til að fylla minni
skothylki en þau sem passa í Scud-
flaugarnar.
Útflutningur af þessu tagi er
bannaður með þýskum lögum.
Hins vegar virðist ljóst að nokkur
hundruð þýskir aðilar tóku þátt í
honum. En ekki hafa nema á ann-
an tug fyrirtækja verið kærð.
Skýringin er meðal annars.sú að
það getur verið erfitt að sanna að
lögin hafi verið brotin. í fyrsta
lagi þarf að leiða í ljós að búnaður-
inn sem fluttur var úr landi hafi
í raun verið notaður í hernaðarleg-
um tilgangi og annað skilyrði er
að útflytjandanum megi hafa verið
ljóst að búnaðinn hafi átt að nota
á þann hátt.
Útflutningsskýrslunum breytt
Sem dæmi um hversu auðvelt
var að fara í kringum lögin birtir
Der Spiegel bréf frá þýska fyrir-
tækinu Gildemeister-Projecta frá
árinu 1985. Þar er viðskiptavinin-
um í írak tjáð að því miður hafi
Þýska útflutningseftirlitið stöðvað
útflutning á vindgöngum sem ír-
akamir ætluðu að nota í hernaðar-
rannsóknarstöð sína í Mosul sem
er hin stærsta í Austurlöndum
nær. En í bréfinu segir að útflutn-
ingsskýrslunum verði einfaldlega
breytt en sendingin verði sú sem
samið var um. Það virðist dæmi-
gert fyrir viðskipti þýskra fyrir-
tækja við íraka að smærri fyrir-
tæki keyptu tæknibúnað hjá stór-
um og þekktum fyrirtækjum og
seldu írökum. Til dæmis var hið
kunna fyrirtæki Messerschmitt-
Bölkow-Blohm (MBB) undirverk-
taki hjá Gildemeister-Projecta
sem hér var nefnt og þarf því
ekki að hafa áhyggjur af opin-
berri rannsókn.
Mikill hluti aðstoðarinnar
löglegur
Mikill hluti aðstoðar vestur-
þýsku fyrirtækjanna var í sam-
ræmi við landslög. Frá árinu 1972
keypti-Saddam til dæmis 5.000
skriðdrekavarnaeldflaugar auk
annarra vopna af þýsk-franska
fyrirtækinu Euromissile (þar sem
MBB átti 50% hlut). Vestur-þýsk
fyrirtæki hafa líka getað aðstoð
íraka við að framleiða sýklavopn
á fullkomlega löglegan hátt. Til
dæmis hafa þau selt írökum bún-
að til að framleiða svartadauða-
bakteríu og kólerusýkil. Það ér.
heldur ekki nema ár síðan farið
var að takmarka útflutning á
mykotoxíni í litlum skömmtum
en það efni er krabbameinsvald-
andi.
Edzard Reuter, forstjóri Daiml-
er-Benz, sem er eitt þeirra fyr-
irtækja sem legið hafa undir
ámæli fyrir aðstoð við íraka,
skellir skuldinni á þýska stjórn-
málamenn. Hann segir að á með-
an stríðið milli íraka og írana
geisaði hafi það verið eindreginn
vilji ráðamanna að vestur-þýsk
fyrirtæki aðstoðuðu Iraka. Orð
Ötto Lambsdorffs greifa, fyrrum
viðskiptaráðherra, þegar hann
fyrir tveimur árum svaraði gagn-
rýni á viðskipti Þjóðveija og ír-
aka, eru að mati Der Spiegel
dæmigerð fyrir viðhorf vestur-
þýskra stjórnmálamanna; „Eld-
flaugar má nota í friðsamlegum
tilgangi, t.d. er unnt að nota þær
til að skjóta gervitunglum á loft.“
Heimild: Der Spiegel
Uppreisnar-
menn skipa
nýjan forseta
í Sómalíu
Mombasa. Reuter.
MOHAMED Siad Barre Só-
malíuforseti kom í gærmorgun
til Keníu ásamt um 70 stuðn-
ingsmönnum eftir að hafa hra-
kist frá völdum eftir fjögurra
vikna bardaga í Mogadishu,
höfuðborg Sómalíu, milli
stjórnarhersins og uppreisnar-
manna.
Uppreisnarmenn í Sómalíu hétu
því í gær að sameina þjóðina og
í því skyni sögðust þeir hafa útn-
efnt Ali Mahdi Mohamed, kaup-
sýslumann og fyrrum þingmann,
sem arftaka Barre. Hefði honum
verið falið allt framkvæmdavald.
Heimildarmenn úr röðum upp-
reisnarmanna sögðu að útnefning
Mohameds væri þó aðeins til
bráðabirgða meðan samningar
stæðu yfir um myndun nýrrar
stjórnar sem allar fylkingar
stjórnarandstæðinga ættu aðild
að, einnig þær sem hefðu flutt
miðstöðvar sínar utan landsins.
Barre fór úr forsetahöllinni í
Mogadishu á sunnudag og hélt
irieð skriðdreka út úr borginni
enda uppreisnarmenn búnir að fá
yfirhöndina í bardögum við stjórn-
arherinn. Kenískir embættismenn
sögðu að skotið yrði skjólshúsi
yfir Barre. Fulltrúar uppreisnar-
manna sögðu að hann hefði hald-
ið sjóleiðis til borgarinnar Lamu
í Kenía en embættismenn í Na-
irobí sögðust í gær ekki vita hvar
hann var niðurkominn í landinu.
^ ©
Irakar breyta Kú-
veit í eitt stórt jarð-
sprengjubelti
Saudi-Arabíu. Reuter.
ÍRAKAR hafa lagt hálfa milljón jarðsprengna í Kúveit og eru á
góðri leið með að breyta landinu í eitt stórt jarðsprengjubelti að
sögn liðsforingja í bandaríska sjóhernum.
Jarðsprengjurnar eru hluti af
vömum þeim sem írakar hafa
komið upp í Kúveit. Einnig hefur
verið reist fjögurra metra hátt
bijóstvirki, skotgrafir fylltar olíu
verið grafnar og geymar fylltir
bútangasi verið grafnir í jörðu.
George Cutchall, majór í land-
gönguliði Bandaríkjanna, segir að
ERLENT
jarðsprengjurnar hafi verið lagðar
á tveimur beltum rétt fyrir norðan
landamæri Saudi-Arabíu og Kú-
veit. Talið er að írakar hafi átt
20 milljón jarðsprengjur við upp-
haf stríðsins og segir Cutchall það
varlega áætlað að 500.000 hafi
verið komið fyrir í Kúveit.
Jarðsprengjurnar eru misjafn-
lega öflugar; allt frá því að vera
til þess fallnar að sprengja fæ-
turna undan ógætnum hermanni
upp í það að geta sprengt 60 tonna
MlAl skriðdreka í loft upp. Sum-
ar eru tækniundur og innihalda
örtölvur sem stjórna því hvenær
og hvernig þær springa. Aðrar em
með þeim ósköpum gerðar, líkt og
„Hoppandi Beta“, að skjótast 1,2
metra upp í loft, þegar á þær er
stigið, áður en þær springa. Land-
gönguliðar segja að vopn þetta
sneiði fórnarlömb sín í tvennt.
Cutchall segir að gervihnatta-
Varnarlína íraka
írakar hafa grafið skotgrofir meðfram suðurlandamærum Kúveit, upp með ströndinni og ó 60 km
hluta landamæra Íraks og Sódí-Arabíu. Talið er að við varnarlinuna séu um 600-650 skriðdrekar og
150 til 200.000 hermenn. írakor geto kvatt liðsauka til flestra hluta varnorlínunnar með skömmum
fyrirvara.
2-4 m hóir sandbingir.
Hollinn veldur þvl að
óvinoskriðdrekar verðo
ouðveldori skotmörk.
Goddovír.
3-7 m djúp og 7-20 m breið skriðdrekagryfjo. Ofon f
henni eru fullar olíutunnur. Við óvinoórós er kveikt í
olíunni þannig oð reyktjald byrgir andstæðingnum sýn.
Skriðdrekar eru grafnir niðui
og þeim beitt sem follslykkjum.
Að baki þeim er annað jarð
sprengjusvæði, en þurfi herinr
að hörfa, er skriðdrekunum bakkaí
út eftir merktri leið, en merkingarnai
eru sfðan færðar, þannig aí
óvinurinn hefur aðeins unnií
nokkur hundruð metro
myndir bendi til þess að íraski
innrásarherinn hafi lagt 60 km
langt jarðsprengjubelti í austur-
hluta Kúveit á tímabilinu frá 19.
desember til 5 janúar. Vísbending-
ar séu um að annað belti hafi ver-
ið lagt í Kúveitborg. Einnig er
búist við því að írakar dreifi jarð-
sprengjum um Kúveit með þyrlum
og fallbyssum.
Jarðsprengjurnar gera það að
verkum að innrásarher banda-
manna þarf að fara hægt yfir.
Cutchall spáir því í ljósi reynslu
Bandaríkjamanna af Víetnamst-
ríðinu að jarðsprengjurnar eigi
eftir að orsaka mestan hluta
mannfalls í liði bandamanna.
Nýr flokkur
býður fram
í Grænlandi
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen
Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
NÝR stjórnmálaflokkur,
Miðflokkurinn, hefur verið
stofnaður í Grænlandi og
mun hann bjóða fram í
landsþingskosningunum 5.
mars næstkomandi.
Aðal hvatamaðurinn að
stofnun flokksins er Bjarne
Kreutzmann fyrrum borgar-
stjóri í Nuuk, höfuðborg
Grænlands, sem á sínum tíma
sat á landsþinginu fyrir Atass-
ut-flokkinn og er fulltrúi
óháðra borgafa í borgarstjórn
Nuuk.
Kreutzmann segir að Mið-
flokkurinn muni höfða til óán-
ægðra stuðningsmanna Sium-
uts og Atassuts sem telji nýja
valkosti í grænlenskum
stjórnmálum nauðsynlega.
Pláss sé fyrir nýjan stjórnmál-
aflokk til þess að ná tökum á
efnahagsmálum þjóðarinnar í
stað þess að kalla yfir sig
vantraust með misnotkun rík-
isfjármuna.
Whut HEWLETT
lfc/ÍJ PACKARD
PRENTARAR SEM
L I K J A EFTIR
Hágæöa geislaprentari
Hljóðlaus
Fjöldi leturgerða
Grafískur
PostScript möguleiki
Hewlett Packard LaserJet II P hágædaprentari
EINSTAKT TILBOÐ
25% afsláttur - kr. 105.000, með VSK.
Góð greiðslukjör 105.000 stgr. m/VSK eða t.d.
Tilbúinn fyrir Windows 3 MUnXláN
. , 25% útborgun og 7.365,-á mánuði í 12 mánuði.
Mikið rekstraroryggi
Gerðu verðsamanburð.
m ÖRTÖLVUTÆKNI B
TÖLVUKAUP HF ■ SKEIFUNNI 17 ■ SÍMI: 68 72 20
HÍ8SNÚ AUGLÝSINCASTOFA