Morgunblaðið - 27.03.1991, Side 35
MORGÚNBLAÐIÐ lÁÍÓWM)tíA!GLTR?2^ MÍARÍZ Mí
35
GEIGVÆNLEGAR
SPURNINGAR -
GRUGGUGSVÖR
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin:
Lögreglurannsóknin - „Q & A“
Leikstjóri og handritshöfundur
Sidney Lumet. Byggt á skáld-
sögu e. Edwin Torres. Tónlist
Rubén Blades. Kvikmyndataka
Andrzej Bartkowiak. Aðalleik-
endur Nick Nolte, Timothy Hutt-
on, Armand Assante, Patrick
O’Neal, Lee Richardson, Joanna
Lumet. Bandarísk. Tri-Star
1990.
Lumet á gamalkunnum slóðum
og efnið hefur hann fengist við
áður, flytur okkur á fund spilltra
lögregluyfirvalda í New York.
Hutton fer með hlutverk nýútskrif-
aðs lögfræðings sem gerist sak-
sóknari og hans fyrsta mál er að
hreinsa hrottafenginn lögreglu-
mann (Nolte) af grun um að hafa
myrt smábófa. Þetta lítur ekkert
illa út en þegar Hutton fer að kafa
ofaní málið verður honum ljós
hrikaleg spilling innan lögreglunn-
ar sem teygir sig til efsta manns.
Inní rannsóknina, sem verður æ
umsvifameiri, blandast gömul kær-
asta hans (Lumet), því sambýlis-
maður hennar (Assante), útsmog-
inn stórbófi, er lykilvitnið í morð-
málinu.
Að venju fer Lumet ekki meðal-
veginn, myndir hans eru annað-
hvort góðar eða vondar. Hann
sleppur fyrir horn að þessu sinni
þrátt fyrir nokkra bága þætti ein-
sog leiðinda ástarvellu sem er al-
gjörlega óþörf. Þá er tónlist Blades
lítið til bóta, lagið undir titlunum
er ágætt en oftar en ekki er hún
truflandi og söngl undir harðvítug-
um átakaatriðum fer illa saman.
Þá er myndin í lengsta lagi og
hefðu sum atriðin gjarnan mátt
missa sig, þó aldrei langdregin.
En það prýða líka margir þættir
Lögreglurannsóknina. Þetta er
hörkumynd á köflum með velgerð-
um og spennandi átakaatriðum og
manngerðirnar margar og ólíkar
og vel leiknar. Þeir Assante og
Hutton hafa aldrei verið hátt skrif-
aðir á þessum bæ en hér er Ass-
ante í essinu sínu sem lúmskt og
hált illmenni. Og Hutton vinnur á.
Nolte bregst ekki að venju og bæt-
ir enn einum ofstopamanninum í
safnið. Það stormar af honum í
hlutverki gjörspillts lögreglumanns
og hann bjargar meira að segja
ólánlegasta kafla myndarinnar,
skytteríi inná lögreglustöð, með
aðsúgsmiklum tilburðum. O’Neal
og Richardson standa uppúr minni
hlutverkunum. Utlit myndarinnar
er fagmannlegt að vonum og hinn
pólskættaði Bartkowiak er svo
sannarlega kominn í elítu kvik-
myndatökumanna. Ekki gallalaus
en góð afþreying.
Ódrepandi
ópera
Hryllingsóperan — „Rocky Horr-
or Picture Show“
Leikstjóri Jim Sharman. Aðal-
leikendur Tim Curry, Susan Sar-
andon, Meat Loaf, Barry Bost-
wick, Richard O’Brien. Bresk.
20th Century Fox 1975.
Söngleikurinn „dónalegi", Hryll-
ingsóperan, er fyrir löngu orðið sérs-
takt fyrirbrigði í kvikmyndasög-
unni. Sviðsverkið gekk ekkert of vel
og hrundi á Broadway á fyrstu vik-
unum en kvikmyndagerðin virðist
ódrepandi. Hún er ein hinna svoköll-
uðu “cult-mynda“, sem ekki hefur
tekist að snúa á íslensku svo hægt
sé að hafa eftir. En cuit merkir
aðdáendadýrkun í þessu tilfelli.
Framleiðendur kvikmyndagerðar
þessa vafasama söngleiks rak í
rogastans þegar myndin hreinlega
„settist upp“ í kvikmyndahúsum
víða um heim eftir að venjulegri
göngu lauk. Myndin varð e.k. átrún-
aðargoð og eignaðist íjölda fylgis-
manna um Vesturlönd sem sáu
myndina aftur og aftur, einkum um
helgar. Kunnu handritið og textana
og mættu gjarnan í gervum leikar-
anna. Þessi dýrkun hefur nú staðið
í hálfan annan áratug og myndin
löngu sígild.
Það er fyrst og fremst tabúið —
kynferðislega afbrigðilegt efnið og
þrumuhress rokktónlistin sem hefur
kitlað unga áhorfendur öðru frem-
ur. Efnisþráðurinn er fjam því að
teljast stórmerkilegur. Nýgift hjóna-
korn lenda í kastala er bíliinn bilar
í brúðkaupsferðinni. Þar ræður
ríkjum klæðskiptingurinn Curry
sem hefur glöggt auga fyrir holdleg-
um lystisemdum. Kynið skiptir ekki
aðalmáli. Þama lenda sakleysin-
gjarnir f endalausu sukki og mega
hafa sig alla við að ánetjast ekki
um of úrkynjuðum freistingum
hennar veraldar.
Þessi, ein mest endursýnda mynd
sögunnar, er nú að troða upp í fjórða
skipti hérlendis og í rauninni er hún
orðin hafin yfír gagnrýni. Fjöldinn
er búinn að kveða upp þann dóm
sem gildir. Hryliingsóperan er líka
jafn eldhress, storkandi og spillt í
dag og á frumsýningardaginn 1975
og tónlistin hefur lítið elst. Curry
fer á kostum og nú er bara að mæta
í gervi á miðnætti!
I
:
>AUGLYSINGAR
TILBOÐ — ÚTBOÐ
Útboð
Selfossveitur óska eftir tilboðum í smíði 2.
áfanga veituhúss við Austurveg 67, Sel-
fossi. Um er að ræða skrifstofuhúshluta
ásamt dælustöð, samtals um 390 fm auk
95 fm millilofts.
Húsið er að hlúta steinsteypt, en yfirgerð
að mestu úr timbri og stálklæðningu.
Útboðsgögn fást afhent hjá Verkfræðistofu
Suðurlands hf., Eyrarvegi 27, Selfossi, 'sími
98-21776, gegn 20.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
16. apríl nk. kl. 11.00. Veitustjóri.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum eignum fer fram í skrifstofu embættisins, Hörðuvöllum 1:
Þriðjudaginn 2. apríl ’91 kl. 10.00
Kirkjuvegi 33, Selfossi, þingl. eigandi Guðmundur Jóhannsson.
Uppboðsbeiðendur eru Ólafur Axelsson hrl. og Jakob J. Havsteen hdl.
Austurvegi 15, efri hæð, Isafirði, þingl. eign Magnúsar G. Samúels-
sonar, eftir kröfu Kreditkorta hf. Annað og síðara.
Aðalgötu 27, Suðureyri, talinni eign Þorsteins Guðbjörnssonar, eftir
kröfu Sparisjóðs Súgfirðinga. Annað og síðara.
Brekkugötu 10, Þingeyri, þingl. eign Ólafs Gunnarssonar, eftir kröfum
Islandsbanka hf., isafirði, innheimtudéildar ríkisútvarpsins og lífeyris-
sjóðs Vestfirðinga. Annað og síðara.
Grundarstíg 2, Flateyri, þingl. eign Greips Þ. Guðbjartssonar, eftir
kröfu Eftirlánasjóðs Utvegsbanka. Annað og sfðara.
Gylli iS-261, þingl. eign Útgerðarfélags Fiateyrar eftir kröfum Atvinnu-
tryggingasjóðs og Samábyrgðar islands á fiskiskipum. Önnur og
síðasta saia.
Mánagötu 4, isafirði, þingl. eign Bernharðs Hjaltalín, eftir kröfum
Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl., Verðbréfasjóðsins og islands-
banka, Reykjavik. Annað og siðara.
Pólgötu 4, 2. hæð, (safirði, talinni eign Sturlu Halldórssonar, eftir
kröfum Tryggingastofnunar ríkisins, íslandsbanka hf., ísafirði, Bæjar-
sjóðs isafjarðar og Landsbanka íslands, isafirði. Annað og síðara.
Stekkjargötu 11, ísafirði, þingl. eign Bakka hf. eftir kröfu Byggðastofn-
unar.
Þriðja og síðasta nauðungaruppboð
á Sætúni 6, Suðureyri, talinni eign Ágústar Þórðarsonar fer fram
eftir kröfum Lögmannastofunnar sf. og Sparisjóðs Súgfirðinga á eign-
inni sjálfri föstudaginn 5. apríl 1991 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á ísafirði.
Sýslumaðurinn i ísafjarðarsýslu.
Sauðárkrókur
Bæjarmál
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði Sjálfstæðisflokksins þriðju-
daginn 2. apríl kl. 20.30 í.Sæborg.
Fundarefni:
Fjárhagsáætlun bæjarins kynnt.
Önnur mál.
Bæjarmálaráð.
Suðurland
Sjálfstæðismenn á Suðurlandi efna til baráttuhátíðar I Hótel Selfossi
í kvöld, miðvikudagskvöldið 27. mars, kl. 21.00.
Dagskrá:
Þórsteinn Pálsson og Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, flytja stutt ávörp. Gylfi Þ. Gíslason, Kristjana Stefánsdótt-
ir og Ólafur Bachmann syngja. Sigfús Ólafsson leikur á píanó.
Tískusýning. Hljómsveitin Karma leikur fyrir dansi.
Frambjóðendur D-listans verða á staönum.
Allir velunnarar D-listans á Suöurlandi eru hvattir til að mæta.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Grenivík
Svanhildur Árna-
dóttir oq Tómas Ingi
Olrich á almennum jUM ■■■' ~^
fundi í gamla skóla- Wp- $■ húsinu í dag, mið-
mars, kl. 20.30. aÍsL ’
Miðvikudaginn 3. apríl ’91 kl. 10.00
Önnur og síðari sala
Eyrarbraut 13, (Garðsstaðir), Stokkseyri, þingl. eigandi Hrafn
Magnússon.
Uppboðsbeiðendur eru Jóhannes Ásgeirsson hdl., Landsbanki
islands, lögfræðingadeild, Tryggingastofnun ríkisins, Gísli Baldur
Garðarsson hrl. og Jakob J. Havsteen hdl.
Grashaga 5, Selfossi, þingl. eigandi Júlíus Hólm Baldvinsson.
Uppþoðsbeiðendur eru Ólafur Gústafsson hrl. og Jakob J. Havsteen
hdl.
Heiðmörk 24v, Hveragerði, þingl. eigandi Birgir Bjarnason.
Uppboðsbeiðendur eru Innheimtustofnun sveitarfélaga, Bygginga-
sjóður rikisins, innheimtumaður ríkissjóðs og Ingimundur Einarsson
hdl.
Laufhaga 14, Selfossi, þingl. eigandi Kristinn Sigtryggsson.
Uppboðsbeiðendur eru Páll Arnór Pálsson hrl., Byggingasjóður ríkis-
ins, Jón Ólafsson hrl. og Jakob J. Havsteen hdl.
Oddabraut 3, Þorlákshöfn, þingl. eigandi Hjálmar Guðmundsson og
Hafdís Harðardóttir.
Uppboðsbeiðendur eru Jakob J. Havsteen hdl. og Jón Eiríksson hdl.
Starengi 9, Selfossi, þingl. eigandi Lúðvik Per Jónasson.
Uppboðsbeiðendur eru Jón Ólafsson hri. og innheimtumaður ríkis-
sjóðs.
Sumarbústað, Klausturhólum, Grímsnesi, talinn eigandi Jón Grétar
Guðmundsson.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan I Reykjavík.
Sýslumaðurinn í ÁrnesSýslu.
Bæjarfógetinn á Selfossi.
Nauðungaruppboð
Þriðjudaginn 2. apríl 1991
fara fram nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum í dómsal
embættisins, Hafnarstræti 1, isafirði, og hefjast þau kl. 14.00:
Aðalgötu 16, neðri hæð, Suðureyri, þingl. eign Suðurvers hf. eftir
kröfum Suðureyrarhrepps, innheimtumanns ríkissjóðs, Vátrygginga-
félags íslands, Kaffibrennslu Akureyrar, HalldórsJónssonarogÁgæt-
is hf. Annað og sfðara.
SJÁLFSTAEÐISPLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Borgarnes
Egill, FUS-opiðhús
Egill, FUS, stendur fyrir opnu húsi í Sjálfstæðishúsinu, Brákarbraut
1, Borgarnesi, í dag, miðvikudaginn 27. mars, kl. 21.00.
Stjórnin.
Njarðvík
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins verður opnuð þriðjudaginn
2. apríl í Sjálfstæðishúsinu, Njarðvík. Skrifstofan verður fyrst um
sinn opin alla daga frá kl. 17.00-19.00.
Verið velkomin.
Stjórn félaganna.
Garðabær
Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðisfélögin í Garðabæ hafa opnað kosningaskrifstofu í Lyng-
ási 12. Fyrst um sinn verður opið frá kl. 14.00-18.00 alla daga.
Síminn er 54084. Starfsmaður Bjarki Már Karlsson.
Sjálfstæðisfélögin.
Austurland
Almennur félagsfundur I Óðni, félagi ungra sjálfstæðismanna á Aust-
urlandi, verður haldinn í Samkvæmispáfanum, Fellabæ, í dag, mið-
vikudaginn 27. mars, kl. 20.00.
Gestir fundarins verða Arnbjörg Sveinsdóttir, sem mun fjalla um
byggðamál, Jón Helgi Björnsson um umhverfismál, Ágúst Þorbjörns-
son um Evrópumál og Davið Stefánsson, ijallar um SUS starfið.
Óðinn FUS.
Sjálfstæðisfélagið.
rlFIMDAUUK
Kosningar
framundan
Kosningastjórn
Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavík,
heldur fund með
þeim Kjartani Gunn-
arssyni, fram-
kvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins og
Guðmundi Magnús-
syni, sem skipar
tólfta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins I Reykjavík, í dag, mið-
vikudaginn 27. mars, kl. 18.00. Fundurinn verður 1 kjallara Valhallar
og er hann opinn öllum áhugasömum félagsmönnum.
Heimdallur.
Austurlandskjördæmi
Almennir stjórnmálafundir í Austurlandskjördæmi verða haldnir sem
hér segir:
Fáskrúðsfirði í dag, miðvikudag 27. þ.m., kl. 20.30 í Verkalýðshúsinu.
Breiðdalsvík fimmtudaginn 28. þ.m. kl. 14.00 í Staðarborg.
Stöðvarfirði, sama dag, kl. 20.30, i barnaskólanum.
Málshefjendur á fundunum verða Egill Jónsson, Kristinn Pétursson
og Hrafnkell A. Jónsson.
Allir velkomnir.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins, Austurlandi.