Morgunblaðið - 27.03.1991, Qupperneq 53
HAM .TS aUDAaUJtrTOlM aiCfAJSM'JOílOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1991
Óskemmtílegt ferðalag
Til Velvakanda
Fyrir skömmu lentum við félag-
arnir í heldur óskemmtilegri
reynslu með . ferðaskrifstofunni
Sólarflugi. Við ætluðum að
skreppa til Thailands í fjórtán
daga ferð og eftir að hafa kannað
verð hjá öllum ferðaskrifstofum
kom í ljós að Sólarflug bauð best.
Skrifstofan sagðist geta boðið
ferðina á 86.000 krónur, flug og
hótel, þannig að við félagarnir
pöntuðum fe.rð hjá henni.
Viku áður en halda átti af stað
fórum við á skrifstofu Sólarflugs
til að ganga frá ferðinni, en þá
sagði eigandinn okkur að ferðin
væri komin upp í 107.000 krönur.
Við vildum vita hveiju þetta sætti
og sagði þá eigandinn að miklar
hækkanir hefðu orðið, m.a. 10.000
krónur á flugmiðanum svo hann
kostaði nú 91.000 krónur. Seinna
fréttum við að ekkert var til í því
vegna þess að á þessum tíma kost-
aði flugið allstaðar annarsstaðar
81.000 krónur.
Við létum slag standa og keypt-
um ferðina hjá Sólarflugi. Aður
en við fórum sagði eigandinn að
hann væri búinn að panta fyrir
okkur sæti í flugvélinni. Það stóðst
hins vegar ekki.
Þegar til Tælands var komið tók
fararstjóri Sólarflugs á móti okkur
og fór með okkur á áfangastað.
Þegar á hótelið var komið, kom í
ljós að Sólarflug var ekki búið að
borga fyrir hótelið eins og um var
samið og við vorum búnir að borga
fyrir heima. Fararstjórinn fór þá
með okkur á annað hótel þar sem
við fengum inni. Hann tjáði okkur
að þetta hótel væri dýrara en hitt
og við þurftum að borga 20.000
krónur aukanlega vegna mismun-
arins.
Meðan á ferðinni stóð var farar-
stjórinn sífellt að tjá okkur að
Sólarflug væri að verða gjaldþrota
og svo gæti farið að við yrðum
að borga allt hótelið, sem sagt að
tvíborga fyrir það. Okkur fannst
þetta ekki sérlega skemmtilegar
fréttir en sem betur fer kom ekki
til þessa.
Síðasta daginn þurftum við svo
að borga 10.000 krónur í viðbót
sem við fengum engar viðhlítandi
skýringar á. Eitthvað var það hins
vegar viðkomandi ferðaskrifstof-
unni.
Annarri eins svikamyllu höfum
við félagarnir ekki kynnst áður
og er víst er að með þessari ferða-
skrifstofu förum við ekki aftur.
Peningana sem við eigum inni hjá
henni fáum við sennilega aldrei
aftur.
Þráinn Stefánsson
og Ketilbjörn Ólafsson
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1980-1 .fl. 15.04.91-15.04.92 kr. 286.016,02
*)lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, mars 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
REYKVIKINGAR!
Ásgeir Hannes Eiríksson,
þingmaóur Borgaraflokksins og
fulltrúi Reykvíkinga í fjárveitinga-
nefnd Alþingis, verður á Kaffi-
Hress í Austurstræti í dag, mió-
vikudaginn 27. marz, kl. 12-14.
Komió og spjallið við eina þing-
mann Reykvíkinga sem er búsettur
í Breiðholti.
NYKOMNIR
KVENSKÓR FRÁ FRANSÍ
M/SLAUFU
Litur: Svartur
Stær&ir: 37-40i/2
Ver&: 6.350,-
Ath. margar tegundir
Skórnir eru úr sérstaklega vönduðu leðri
5% staðgreiðsluafsláttur
Póstsendum samdægurs
SIEMENS
VELTUSUND11
21212
Uppbvottavélar í miklu úrvaííl
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verð frá 57.900,- kr.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 - SÍMI 28300
■
■
II
VIÐ FLYTJUM!
>pna
Kr. Þorvaldsson & Co mun opna
ó nýjum stað 2. apríl 1991
Nýtt heimilisfong verbur
Sundaborg 9
Ný símanúmer:
104 Reykjavík
679830
Myndsendir (fax): 679833
Heildverslun Kr. Þorvaldsson & Co
sérhæfir sig í innflutningi á tilbúnum fatnabi
og er umbobsa&ili fyrir eftirtalin fyrirtæki:
Lee — galla- og sportfatnaður
Wrangler — gaila- og sportfatnaður
Belika — peysur
Pontiac — sportfatnaður
Distance — leðurfatnaður
One 2 One — bómullarfatnaður
Seeland — vaxjakkar, veiði- og sportfatnaður
Party C/ub — jakkar og buxur
N. .