Morgunblaðið - 30.05.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1991
43
fullri -vitund' um það að lítil von
væri um sigur í því stríði. Við sam-
starfsmenn Elfars heitins fylgdumst
með þessari baráttu hans öll þessi
ár. Því varla verður sagt að hann
hafi slegið slöku við störf sín allan
þennan tíma, nema þau skipti sem
hann lagðist inn á sjúkrahús til
meðferðar og lyfjagjafar með nokk-
uð reglulegu millibili. Elfar var
skemmtilegur og þægilegur sam-
ferðamaður að starfa með. Frá hon-
um streymdu hlýjar hugsanir og
óskir til allra og hann geislaði þess-
um hlýleika af sér þannig að fólk
laðaðist að honum. Oft upplifði ég
það að viðskiptavinir okkar þökkuðu
sérstaklega fyrir lipra og þægilega
þjónustu Elfars þegar hann var að
flytja þeim framleiðslu okkar. Okkur
samstarfsmönnum hans er mikil eft-
irsjá að góðum og skemmtilegum
félaga.
Elfar heitinn var fæddur 19. apríl
1933 hér í Reykjavík. Foreldrar hans
voru þau Haraldur Jón Magnússon
sem látinn er fyrir nokkrum árum
og Guðrún Sch. Lárusdóttir sem lézt
nú fyrir fáeinum dögum, og verða
þau mæðginin jarðsett saman í dag.
Eftirlifandi kona Elfars er Eygló
Ingvarsdóttir, verzlunarmaður, og
eiga þau tvo uppkomna syni, þá
Harald og Gunnar sem báðir starfa
hér í borg. Fyrir hjónaband eignað-
ist Elfar tvær dætur, Kristínu sem
búsett er á ísafirði og Elfu sem býr
hér í Reykjavík.
Við samstarfsmenn Elfars heitins
sendum eiginkonu hans, börnum og
barnabörnum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur á þessari skilnaðar-
stund.
Megi Elfar Haraldsson njóta frið-
ar eftir svo langa baráttu.
Víglundur Þorsteinsson
„Ég lifi’ og ég veit, hve löng er mín bið,
ég lifi’ unz mig farðirinn kallar,
ég lifi’ og ég bið, unz ég leysist í frið,
ég lifi sem farþegi sjóinn við,
unz heyri’ eg, að Herrann mig kallar."
í dag kveðjum við Elfar Schiöth
Haraldsson sem lést aðfaranótt 22.
maí'sl. Með honum er genginn gegn
þjóðfélagsins, en þegar Dúddu var
veittur riddarakross hinnar íslensku
fálkaorðu árið 1981, fyrir störf sín
að líknarmálum.
Árið 1941 giftist Dúdda Jóhanni
J.E. Kúld rithöfundi. Eignuðust þau
eina dóttur, Halldóru, 15. júlí 1946,
en hún dó 12 dögum síðar. Ekki
varð þeim fleiri barna auðið, en ég
minnist þess hversu barngóð þau
voru og geisluðu alltaf af gleði innan
um börn. Tóku þau mikiu ástfóstri
við systurdóttur Dúddu, Aðalbjörgu,
og reyndust hún þeim sem besta
dóttir allt til dánardags. Dætur Aðal-
bjargar og börn þeirra fóru heldur
ekki varhluta af ástúð og væntum-
þykju Dúddu og Jóhanns. Hjónaband
þeirra var alla tíð mjög farsælt og
minnist ég hversu gaman þau höfðu
af að fá fjölskylduna til sín. Einkum
eru mér minnisstæð jólaboðin þeirra
og þá fyrst voru þau í essinu sínu,
þegar þau gátu aldrei nógsamlega
stjanað við okkur og veitt af höfð-
ingsskap. Góðvild þeirra var altöluð
í Litlagerðishverfinu og skipti þá
ekki máli hvort það voru flækings-
kettir eða mannfólkið, allir áttu vísa
gestrisni og góðvild þessara heiðurs-
hjóna. Jóhann dó 7. október 1986
og var Dúdda aldrei söm upp frá
því. Hrakaði heilsu hennar og fluttist
hún á árinu 1989 úr Litlagerðinu í
þjónustuíbúð fyrir aldraða á Afla-
granda í Reykjavík. Tóku flutning-
arnir sinn toll af þreki hennar og það
að hún varð að sjá af öðrum vini,
flækingskettinum Kalla, sem hafði
gert sig heimakominn og breyst í
vinalegan heimiliskött hjá þeim Jó-
hanni.
Vegna tengsla minna við fjöl-
skyldu Dúddu annaðist ég ýmis mál
fyrir hana síðari árin. Meðal annars
vegna þessa heimsótti ég hana í
hverjum mánuði í vinalegu íbúðina
hennar á Aflagranda. Aldrei brást
það að fyrir mig væru bornar krásir
og vissi Dúdda ekki hvernig hún
ætti að snúast nógsamlega í kring
um mig, hversu máttfarin sem hún
var orðin. Og þegar ég dásamaði
veitingarnar og bað hana nú blessaða
að vera ekki að hafa svona mikið
fyrir mér svaraði hún mér með ein-
kunnarorðum sínum: „Æ, fyrirgefðu
hvað þetta er lítið og lélegt hjá mér.“
og góður maður sem við viljum
minnast með nokkrum orðum.
Ég kynntist Elfari þegar hann
gekk að eiga systur mína Eygló,
þann 15. apríl 1961. Var hjónaband
þeirra einstaklega heilsteypt, og
mótaðist af ástríki, gagnkvæmu
trúnaðartrausti og samheldni. Var
rnikið jafnræði með þeim hjónum
og lögðu þau sig fram um að skapa
fagurt samlíf, hlúa að heimilinu og
hafa holl og bætandi uppeldisáhrif
á syni sína sem eru: Harald Sch.
Elfarsson. Sambýliskona hans er
Bergþóra Grétarsdóttir. Eiga þau
tvo syni sem heita Kristinn Elfar
og Grétar Sigurfinnur. Yngri sonur
Elfars og Eyglóar, Gunnar Þ.S.
Elfarsson á einn son, Aron Ola.
Með fyrri konu sinni átti Elfar
tvær dætur: Kristínu Sch. Elfarsd.,
hennar maður er Jóhannes Sigurðs-
son og eru börn þeirra: Iris Rut og
Sigurður Natan. Elfa Sch. Elfarsd.
er gift Jóhanni Þorsteinssyni og
eiga þau 1 dóttur: Taniu Guðrúnu.
Viljum við senda þeim okkar innile-
gustu samúðarkveðjur. Einnig vilj-
um við þakka bróður Elfars, Harry
og Ernu konu hans fyrir hjálp þeirra
við Eygló í gegnum árin, og ekki
síst meðan á veikindatímabilinu
stóð. Þakkir eru einnig færðar vini
Elfars, Hadda, fyrir velvild og gott
samband á liðnum árum. Eigendum
og starfsfólki hjá B.M. Vallá, sem
unnu með Elfari sl. 15 ár, eru færð-
ar kveðjur og þakkir.
Móðir og sonur eru jörðuð saman
í dag, því Guðrún Schiöth Lárus-
dóttir lést sólarhring seinna en son-
ur hennar.
Hún var fædd 9. sept. 1904.
Sendum við aðstandendum hennar
samúðarkveðjur.
Eygló mín, megi góður guð
styrkja ykkur og styðja í sárri sorg,
og blessa lifendur sem látna.
Ég dey og ég veit, nær dauðann að ber,
ég dey, þegar komin er stundin,
ég dey, þegar ábati dauðinn er mér,
ég dey, þegar lausnin mér hentust er
og eilífs lífs uppspretta er fundin.
(Stef. Thor.)
Ingibjörg og Dagbjartur
Voru þessar stundir mjög skemmti-
legar og sagði Dúdda mér margar
sögur af lífi sínu og starfi, sem ég
hef hér vitnað til.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég minnast þessarar höfðingskonu,
sem var stór í sínu lítillæti. Tel ég
mig betri og ríkari mann, að hafa
átt þess kost að kynnast henni.
Dúdda hefur nú fengið langþráðan
frið og hittir nú ástvini sína handan
við móðuna miklu. Við Margrét og
börnin færum ástvinum öllum inni-
legar samúðarkveðjur. Dúdda mun
ávallt verða ofarlega í hugum okkar.
Blessuð sé minning hennar.
Árni Tómasson
Síminn hringir. Langlínusuð, sem
venjulega þýðir ísland. Mamma segir
mér: „Hún Dúdda dó í nótt.“
Mig brestur orð. Það er einkenni-
legt hversu erfitt það er fyrir manns-
sálina að sig undir dauðann. Þegar
hann loks knýr dyra er áfallið sterk-
ara — missirinn, tómleikinn, sorgin,
sorgin yfirgnæfir allt raunsæi.
Hún Dúdda er dáin.... Það er
erfitt til þess að hugsa að aldrei fram-
ar muni ég sjá hana ömmusystur
mína, aldrei framar kyssa hrukkótt-
an vangann eða horfa í broshýr,
barnsleg augu hennar. Hún var mak-
alaus kona, geislandi af lífsgleði og
kímni, en alltaf svo lítillát. Hún var
svo sannarlega ekki að láta hafa
neitt fyrir sér, en alltaf var hún tilbú-
in til að hjálpa öðrum, gera öðrum
lífið léttbærara.
Nú er dauðastríði síðustu mánaða
og þjáningum Dúddu lokið. Elsku
amma, mamma mín og pabbi,
Magga, Árni og fjölskylda. Þó að við
Brad séum fjarri ykkur landfræði-
lega í New York erum við hjá ykkur
í huga og hjarta, Dúddu mun sárt
saknað. Guð blessi elsku ömmusystur
mína. Erla
TZutancv
Hcílsuvörur
nútímafólks
FYRIR DUGLEGA KRAKKA
Frábær reidhjól á verdi sem allir ráða við.
24" 18 gíra fjallahjól með smellugírum
á kr. 24.675.-
20" 3ja gíra fjallahjól á kr. 13.760,-
16" fjallahjól á kr. 10.850.-
14" fjallahjól á kr. 10.630.-
BMX hjól 12", 14", 16" og 20"
frákr. 7.780.- —12.720.-
Verð á fjallahjólum frá kr. 10.630.-
Verð á barnahjólum frá kr. 4.970.-
DINO REIÐHJÓL
FALLEG - VÖNDUÐ - VINSÆL
TÓmSTUnDAHÚSID HF
Laugavegi 164, sími 21901
fltaguaftlfifrifr
Metsölubloð á hverjum degi!
Sportval
VINTERSPORT
ALHEJM8 STYRKTARAÐUJ
ÖÍYMPÍUIEIKANNA1M2
QS&
Nýlega tengdist
Sportval alþjóðlegu
innkaupakeðjunni
Intersport.
Með sameiginlegum
milliliðalausum
innkaupum
hefur náðst mjög
hagstætt verð
á ýmsum vörum.
Dæmi:
Fóðraðir nylon krumpgallar fyrir börn kr. 3.990,-
Fóðraðir nylon krumpgallar fyrir fullorðna kr. 4.990,
Körfuboltar frá kr. 990,-
Svefnpokar -8° kr. 5.890,-
Æfingaskór barna frá kr. 1.645,-
Intersport verslanirnar leggja mikið
upp úr vönduðum vörum á lágu verði.
Sportval VINTERSPORT
Kringlunni 8-12 • Sími 68 95 20