Morgunblaðið - 25.02.1992, Side 1
64 SIÐUR B
46. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 * Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skipverjar á Guðbjörgu lijálpa Jóhannesi Arnberg Signrðssyni bátsmanni af Krossnesi inn á þilfar Guðbjargar. Tóku þeir skipbrotsmennina úr gúmmíbjörgunarbátunum
tveimur inn um dyrnar á stjórnborðssíðu skipsins. Á myndinni sést út um dyrnar á bak við mennina og út á haf. Flosi Arnórsson skipverji á Guðbjörgu tók myndina.
Þriggja manna saknað en níu bjargað er Krossnes SH-308 frá Grundarfirði sökk á Halamiðum:
„Þá kom Sléttanesið og ég lenti
í ljósgeislanum frá kösturunum“
- segir Garðar Gunnarsson, einn skipbrotsmannanna
ÞRIGGJA manna er saknað en níu mönnum var bjargað innan hálfrar klukkustundar
eftir að Krossnes SH-308, 296 tonna skuttogari frá Grundarfirði, sökk skyndilega
þar sem hann var í hópi um 20 skipa að veiðum á Halamiðum, um 44 sjómílur norð-
vestur af Galtarvita, um klukkan átta á sunnudagsmorgun. ítarleg Ieit að mönnum
þremur sem saknað er hefur ekki borið árangur. I henni tóku þátt 26 skip og bátar
auk Fokker-vélar og þyrlu Landhelgisgæslunnar.
í samtali Morgunblaðsins við Hafstein
Garðarsson skipstjóra kom fram að vart hafi
liðið meira en 3-4 mínútur frá því að skipið
lagðist á bakborðshlið í þann mund er byrjað
var að hífa inn trollið uns það sökk. Einung-
is tveimur skipbrotsmannanna átta sem kom-
ust í björgunarbáta gafst ráðrúm til að klæð-
ast flotgöllum áður en þeir urðu að stökkva
í hafið. Togarinn Guðbjörg ÍS fann björgunar-
bátana og kom mönnunum til hjálpar. Níunda
skipbrotsmanninum, Garðari Gunnarssyni,
föður Hafsteins skipstjóra, bjargaði Bergþór
Gunnlaugsson 2. stýrimaður á Sléttanesi ÍS,
sem varpaði sér eftir honum í sjóinn með Iíf-
taug og Markúsarnet.
Garðar Gunnarsson liggur nú á Landa-
kotsspítala en hann fótbrotnaði er hann féll
frá borði Krossnessins. Aðrir skipbrotsmenn
komu í gærkvöldi til Stykkishólms þar sem
sjópróf hefjast líklega á morgun, miðvikudag,
að sögn Jóns Magnússonar sýslumanns.
„Guðbjörgin var búin að fara framhjá mér
en þá kom Sléttanesið og það fór aðeins nær
þannig að ég lenti í ljósgeislanum frá köstur-
unum þeirra,“ sagði Garðar Gunnarsson um
aðdraganda þess að menn á Sléttanesi komu
auga á endurskinsmerkin á flotgalla hans í
sjónum.
Allt er á huldu um orsakir þess að skipið
sökk. Garðar, sem á að baki áratugaferil sem
sjómaður og skipstjórnarmaður, segir að skip-
ið hafi sokkið á svo skömmum tíma að hann
treysti sér ekki til að áætla hvað valdið hafi.
„Þetta gerðist svo hratt, menn trúðu því ekki
að þetta gæti gerst,“ sagði Garðar. Hafsteinn
Garðarsson skipstjóri kveðst hafa sínar hug-
myndir um hvað hafi gerst en hann kveðst
ekki vilja greina frá þeim hugmyndum fyrr
en við sjóprófin. Hann segir Krossnes hafa
verið aflburða vandað sjóskip, en það var
smíðað í Englandi árið 1972.
„Oft hefur nú Guðbjörgin komið með verð-
mætan farm að landi, en aldrei sem nú,“
sagði Guðbjartur Ásgeirsson skipstjóri á
Guðbjörgu ÍS-46 í samtali við Morgunblaðið,
skömmu eftir að hann kom til hafnar með
skipbrotsmennina átta.
Ekkert var unnt að leita skipveijanna
þriggja sem saknað er úr lofti í gær vegna
illviðris vestra en skip svipuðust um á svæð-
inu, sem 26 skip, þyrla og flugvél höfðu haf-
ist handa um að fínkemba skammri stundu
eftir skipsskaðann á sunnudaginn. Leitar-
svæðið var um 12 sjómílur á lengd en 4 sjóm-
ílur á breidd. Að sögn Gunnars Bergsteinsson-
ar forstjóra Landhelgisgæslunnar verður leit-
að úr lofti á svæðinu í dag, verði þess ein-
hver kostur sökum veðurs.
Sjá einnig bls. 22, 23, 26, 27, 51 og
baksíðu.