Morgunblaðið - 25.02.1992, Page 1

Morgunblaðið - 25.02.1992, Page 1
64 SIÐUR B 46. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 * Prentsmiðja Morgunblaðsins Skipverjar á Guðbjörgu lijálpa Jóhannesi Arnberg Signrðssyni bátsmanni af Krossnesi inn á þilfar Guðbjargar. Tóku þeir skipbrotsmennina úr gúmmíbjörgunarbátunum tveimur inn um dyrnar á stjórnborðssíðu skipsins. Á myndinni sést út um dyrnar á bak við mennina og út á haf. Flosi Arnórsson skipverji á Guðbjörgu tók myndina. Þriggja manna saknað en níu bjargað er Krossnes SH-308 frá Grundarfirði sökk á Halamiðum: „Þá kom Sléttanesið og ég lenti í ljósgeislanum frá kösturunum“ - segir Garðar Gunnarsson, einn skipbrotsmannanna ÞRIGGJA manna er saknað en níu mönnum var bjargað innan hálfrar klukkustundar eftir að Krossnes SH-308, 296 tonna skuttogari frá Grundarfirði, sökk skyndilega þar sem hann var í hópi um 20 skipa að veiðum á Halamiðum, um 44 sjómílur norð- vestur af Galtarvita, um klukkan átta á sunnudagsmorgun. ítarleg Ieit að mönnum þremur sem saknað er hefur ekki borið árangur. I henni tóku þátt 26 skip og bátar auk Fokker-vélar og þyrlu Landhelgisgæslunnar. í samtali Morgunblaðsins við Hafstein Garðarsson skipstjóra kom fram að vart hafi liðið meira en 3-4 mínútur frá því að skipið lagðist á bakborðshlið í þann mund er byrjað var að hífa inn trollið uns það sökk. Einung- is tveimur skipbrotsmannanna átta sem kom- ust í björgunarbáta gafst ráðrúm til að klæð- ast flotgöllum áður en þeir urðu að stökkva í hafið. Togarinn Guðbjörg ÍS fann björgunar- bátana og kom mönnunum til hjálpar. Níunda skipbrotsmanninum, Garðari Gunnarssyni, föður Hafsteins skipstjóra, bjargaði Bergþór Gunnlaugsson 2. stýrimaður á Sléttanesi ÍS, sem varpaði sér eftir honum í sjóinn með Iíf- taug og Markúsarnet. Garðar Gunnarsson liggur nú á Landa- kotsspítala en hann fótbrotnaði er hann féll frá borði Krossnessins. Aðrir skipbrotsmenn komu í gærkvöldi til Stykkishólms þar sem sjópróf hefjast líklega á morgun, miðvikudag, að sögn Jóns Magnússonar sýslumanns. „Guðbjörgin var búin að fara framhjá mér en þá kom Sléttanesið og það fór aðeins nær þannig að ég lenti í ljósgeislanum frá köstur- unum þeirra,“ sagði Garðar Gunnarsson um aðdraganda þess að menn á Sléttanesi komu auga á endurskinsmerkin á flotgalla hans í sjónum. Allt er á huldu um orsakir þess að skipið sökk. Garðar, sem á að baki áratugaferil sem sjómaður og skipstjórnarmaður, segir að skip- ið hafi sokkið á svo skömmum tíma að hann treysti sér ekki til að áætla hvað valdið hafi. „Þetta gerðist svo hratt, menn trúðu því ekki að þetta gæti gerst,“ sagði Garðar. Hafsteinn Garðarsson skipstjóri kveðst hafa sínar hug- myndir um hvað hafi gerst en hann kveðst ekki vilja greina frá þeim hugmyndum fyrr en við sjóprófin. Hann segir Krossnes hafa verið aflburða vandað sjóskip, en það var smíðað í Englandi árið 1972. „Oft hefur nú Guðbjörgin komið með verð- mætan farm að landi, en aldrei sem nú,“ sagði Guðbjartur Ásgeirsson skipstjóri á Guðbjörgu ÍS-46 í samtali við Morgunblaðið, skömmu eftir að hann kom til hafnar með skipbrotsmennina átta. Ekkert var unnt að leita skipveijanna þriggja sem saknað er úr lofti í gær vegna illviðris vestra en skip svipuðust um á svæð- inu, sem 26 skip, þyrla og flugvél höfðu haf- ist handa um að fínkemba skammri stundu eftir skipsskaðann á sunnudaginn. Leitar- svæðið var um 12 sjómílur á lengd en 4 sjóm- ílur á breidd. Að sögn Gunnars Bergsteinsson- ar forstjóra Landhelgisgæslunnar verður leit- að úr lofti á svæðinu í dag, verði þess ein- hver kostur sökum veðurs. Sjá einnig bls. 22, 23, 26, 27, 51 og baksíðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.