Morgunblaðið - 25.02.1992, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ vmaapn/fflviNNUiir ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992
31
Ferðamál
Flugleiðir í markaðssam-
starfi við norsk fyrirtæki
Félagið hefur á undanförnum árum tekið þátt í auglýsingaherferðum með Freia, McDonalds og Jordan í Noregi
FLUGLEIÐIR hafa á síðustu árum lagt sérstaka álierslu á að kynna
IU M<í>
S'T'CHf KOHKUItMIIK. K>
tlt ÍAOAOYA IStAS>
NA-Atlantshafsflug sitt í Skandinavíu með þeim árangri að farþegum
frá þessu svæði á leið til Bandaríkjanna hefur farið ört fjölgandi.
Kjölfestan í þessari kynningu hefur verið hinn nýi flugfloti félagsins,
bætt þjónusta og áætlanaleiðin til Baltimore en einnig telja Flugleiða-
menn að nýjar leiðir í auglýsingamálum hafi skilað góðum árangri.
Þannig hefur félagið efnt til markaðssamstarfs við norsk fyrirtæki
sem bæði hefur lækkað allan tilkostnað en einnig tryggt mikla kynn-
ingu vítt og breitt um Noreg. Að undanförnu hefur staðið yfir nyög
umfangsmikil auglýsingaherferð Freia, framleiðanda Marabou sælgæt-
isins, í samstarfi við Flugleiðir og náði hún til um 6 þúsund sölu-
staða. Að þessu sinni lögðu Flugleiðir áherslu á að kynna ísland og
var herferðin m.a. fólgin í getraunasamkeppni þar sem þátttakendur
áttu að svara spurningum um landið. Heppnir þátttakendur fá síðan
„draumaferð" með Flugleiðum til íslands. Þá eiga Flugleiðir svipað
samstarf á hverju ári við McDonalds veitingakeðjuna og einnig hefur
Jordan tannburstafyrirtækið komið við sögu. Það er Símon Pálsson,
forstöðumaður Flugleiða í Skandinavíu sem hefur átt veg og vanda
af því að koma á þessu samstarfi.
„Þegar ég kom hingað árið 1987
var afar lítið um sölu á ferðum með
Flugleiðum til Bandaríkjanna,“ sagði
Símon í viðtali við Morgunblaðið.
„Hins vegar var mikilvægt fyrir fé-
lagið að auka söluna því vegna
smæðar íslands er ekki unnt halda
núverandi ferðatíðni frá Svíþjóð eða
Noregi frá því í nóvember og fram
á vor nema fá aðra farþega en þá
sem eru á leið til íslands. Ég fann
strax að fólk tengdi Flugleiðir og
Flórída ekki saman í huganum. Með
það auglýsingafé sem var fyrir hendi
sá ég fyrir mér að 10 ára verkefni
gæti verið framundan. Á þeim tíma
var McDonalds að opna veitingastaði
hér í Osló og við leituðum eftir við-
ræðum við eigendur fyrirtækisins.
Þá kom sú hugmynd upp að efna til
sameiginlegrar auglýsingaherferðar
á veitingastöðunum og tengja hana
við jólabamamynd ársins. Við fórum
fyrst af stað með teiknimyndasam-
keppni um jólin 1988. Það voru aug-
lýsingar á matarbökkunum, stór
skilti héngu uppi og auglýsingar voru
bírtar í dagblöðum. Strax á fyrsta
árinu fékk Orlandoflugið mikla at-
hygli og við áttum ekki í vandræðum
með að fylla í þær ferðir. Við höfum
verið í þessu samstarfi í fjögur ár
og það er útlit fyrir að framhald
verði á því.“
I
Auglýst á um sex þúsund
stöðum í Noregi
„Upp frá þessu sáum við að það
mætti ná árangri með því að tengj-
ast fyrirtækjum sem hefðu á boðstól-
um eitthvað gott og gleðilegt," segir
Símon ennfremur. „Við höfum þann-
ig jafnframt tekið þátt í auglýsinga-
herferð með Jordan tannburstafyrir-
tækinu þegar það var að hefja mark-
aðssetningu á nýjum barnatann-
burstum.
Síðastliðið haust hófum við sam-
FERÐAKAUPSTEFNA — i lugieiðir kynntu markaðsá-
tak sitt í Noregi á ferðasýningunni Reiseliv ’92 á Sjölyst í Osló í jan-
úar. Á myndinni eru starfsmenn Flugleiða fyrir framan sýningarbás-
inn, f.v. Símon Pálsson, forstöðumaður Flugleiða í Skandinavíu og
Finnlandi, Dóra Óskarsdóttir, sölufulltrúi Randi Berghim, sölufulltrúi
og Pekka Makimen, sölustjóri.
starf við Freia/Marabou sælgætis-
fyrirtækið sem efnir jafnan til mikill-
ar auglýsingaherferðar í janúar og
febrúar. Við leggjum að þessu sinni
áherslu á ísland. Freia hefur augiýst
að undanförnu á sex þúsund stöðum
í Noregi með sérstökum básum í
verslunum þar sem fólki gefst kostur
á að taka þátt f getraun um ísland.
Einnig fylgja þessu auglýsingar í
sjónvarpi. Beinn útlagður kostnaður
fyrir Freia er um 1,5 milljónir nor-
skra króna en á móti leggjum við til
30 draumaferðir til íslands í fjóra
daga. Ég er ekki í nokkrum vafa um
að við eigum að stefna meira að því
að tengja okkur við þekkt vörumerki
á þennan hátt.“
Flugleiðir eru fyrsta fyrirtækið og
hið eina sem hefur átt samstarf við
McDonalds í Noregi á markaðssvið-
inu. Freia hefur hins vegar áður
unnið með SAS og Startours ferða-
skrifstofukeðjunni. „McDonalds er
eitt af þekktustu vönimerkjunum í
hinum vestræna heimi og höfðar til
unga fólksins," segir Símon. „Freia
er að selja eitthvað sem er gott á
bragðið og við tengjum það við
draumaferðina. Við höfum mikinn
ávinning af þessu samstarfi sérstak-
lega þegar tekið er til smæðar ís-
lands og þess fjár sem er til ráðstöf-
unar á hveiju markaðssvæði. Það er
ekki unnt að ná kröftugri ímynd á
markaðnum nema með sterkum
merkjum."
Mikil söluaukning á
Skandinavíumarkaðnum
Símon segir að árið 1991 hafi orð-
ið um 200% aukning á sölu ferða
með Flugleiðum frá Noregi til New
York, 180% aukning til Washington
og 58% aukning til Flórída. Af þess-
um sökum hafí reynst mögulegt að
halda uppi óvanalega mikilli tíðni til
staða eins og Oslóar og Stokkhólms
sem komi fram í aukinni þjónustu
við íslandsmarkaðinn. En að hve
miklu leyti telur Símon að megi rekja
þennan árangur til auglýsingaher-
ferðanna á undanförnum árum?
„Það er erfitt að mæla árangur
auglýsingaherferða því hann skilar
sér á löngum tíma. Við höfum hins
vegar orðið varir við þá sterku kynn-
ingu sem náðst hefur á markaðnum.
Mér er tjáð af sendiherra íslands í
Osló að við höfum sprengt símakerf-
ið í sendiráðinu. Þá hefur fólk verið
að spyijast fyrir um lausnir í get-
raunasamkeppninni.
Ferðaskrifstofufólk hefur sagt
okkur að á árinu 1991 hafi orðið sú
grundvallarbreyting að fólk spyr um
Flugleiðir þegar það er að hefja ferð
til Bandaríkjanna. Við vorum ekki
til á blaði fyrir fjórum eða fímm
árum. Þó má nefna það að Loftleiðir
voru með 50% af Ameríkufluginu frá
Noregi á árunum kringum 1961.“
„Það hefur orðið umbylting
innan fyrirtækisins“
„Það hefur einnig orðið umbylting
innan fyrirtækisins með nýjum flota,
nýrri stefnumörkun og endurmennt-
un starfsfólksins. Það er því allt
annað að selja ferðir með félaginu
núna en áður. Við erum einnig að
fínna fyrir því að viðskiptavinir sem
fóru með okkur til Bandaríkjanna
fyrir nokkrum mánuðum biðja um
okkur aftur. Samkeppnin er hins
vegar gífurleg og óhemjumikið of-
framboð er á sætum frá Skandinav-
íu. Við erum m.a. í samkeppni við
Delta, SAS, British Airways, Amer-
ican Airlines og KLM. Það er þó
merkilegt að af öllum þessum flugfé-
lögum eru Flugleiðir sjálfsagt með
bestu áframhaídstengingamar frá
Washington inn í Bandaríkin eða
samtals 83 tengingar. Þetta má rekja
til mikillar samvinnu við bandaríska
flugfélagið USAir.
Við erum tiltölulega sterkir og
velþekktir í Svíþjóð sem Ameríku-
flugfélag. Núna erum við að athuga
okkar gang þar og í Danmörku með
svipaða markaðsfærslu því hún hefur
gefið gífurlega góða raun hér í Nor-
egi,“ sagði Símon.
Tölvur
IBM kynnir nýjargerðir
af RISC System/6000
IBM kynnti nýlega 5 nýjar gerðir af IBM/RISC System 6000 tölvunni
og nýjum hugbúnaði ásamt ýmsum nýjungum fyrir AJX stýrikerfið.
Fyrirtækið hefur ekki sett jafn margar nýjungar samtimis á markað-
inn fyrir þessa gerð véla síðan í janúar 1990 en yfir 60 vélar liafa
verið seldar til uppsetningar hérlendis frá árinu 1990.
Með þessum nýjungum eru kynnt-
ar bæði minni og stærri IBM RISC
System/6000 og notkunar- og
stækkunar möguleikar auknir til
muna, segir í frétt frá IBM á Is-
landi. Vélarnar nýtast hvort heldur
sem fjölnotenda UNIX vélar, net-
stjórar eða sem grafískar vinnustöðv-
ar. Verð á minnstu gerð þeirra (gerð
220) er frá 500 þús. kr. fyrir disk-
lausa grafísar vinnustöð með 16 MB
minni 19“ svarthvítum skjá
(1280x1024 punkta upplausn) og
stýrikerfi, og um 700 þús. kr. fyrir
gerð 220 með 16 MB minni, 400
MB seguldisk og stýrikerfí. IBM
RISC System/6000 gerð 220 er
fyrsta vélin sem notar nýja útfærslu
á samnefndum gjörva, þar sem 5
mismunandi reikneiningum er komið
fyrir á einum kubb („single chip
RISC processor"), en þessi útfærsla
mun verða notuð m.a. í framtíðarvél-
um frá ÍBM og Apple, eins og fram
kom fyrir nokkrum mánuðum., þegar
fyrirtækin kynntu nýtt samstarf.
Stærsta vél IBM RISC Sy-
stem/6000 línunnar, gerð 560, er
öflugasta RISC vélin á markaðnum
samkvæmt nýjustu mælingum á
SPECmarks (89,3 SPECmarks).
Eins eru afköst vélarinnar í „fleyti-
tölureikningum” þau langmestu sem
mælst hafa samanborið við UNIX
vélar frá DEC, HP og Sun microsy-
stems.
Þá voru nokkrar nýjar og endur-
bættar útgáfur af hugbúnaði fyrir
IBM RISC System/6000 kynntar
þann 21. janúar. Þar má helst nefna:
■Ný útgáfa af AIX stýrikerfinu,
AIX 3.2 sem er staðlað UNIX stýri-
kerfi með ýmsum endurbótum frá
IBM.
■Nýtt kerfi fyrir hönnun á hugbún-
aði (CASE og C + +)
■Novell Netware v3.11 fyrir AIX
stýrikerfíð, þannig að IBM RISC
System/6000 getur unnið sem net-
stjóri fyrir Novell net.
■Nýr hugbúnaður sem gerir notend-
um kleift að bæta við eigin upplýs-
ingum við InfoExplorer handbók-
arkerfið sem fylgir með AIX stýri-
kerfinu.
■Nýjar útgáfur af AIX Windows
gluggakerfmu og nýtt kerfi AIX
Windows Interface Composer/6000
sem einfaldar smíði forrita fyrir AIX
Windows gluggakerfið.
■Endurbættar útgáfur af SNA sam-
skiptabúnaði, IBM 3270 Host
Connection Program, AIX Network
Management/6000 og nýr hugbún-
aður fyrir netstjómun AIX Netvi-
ew/6000.
■Ný útgáfa af PC DOS hermi, AIX
PC simulator/6000 1.2
■Nýr fjarvinnslutengibúnaður fyrir
háhraða tengingar eins og t.d. IBM
Serial Optical Link (200 Mbit/sek),
FDDI tengibúnaður (100 Mbit/sek)
og Block Multiplexer Adapter sem
tengir IBM RISC System/6000 beint
við kanal á IBM stórtölvum.
IBM getur nú boðið allt frá disk-
lausum vinnustöðvum upp í stórar
fjölnotenda UNIX vélar sem geta
þjónað hundruðum notenda. Með
IBM RISC System/6000 og AIX stý-
rikerfínu er unnt að bjóða öflugar
UNIX vélar í ýmsum stærðarflokkum
sem nota má jafnt sem grafískar
vinnustöðvar, netþjóna eða fjölnot-
endavélar. Stækkunarmöguleikar á
minni og seguldiskum og hinn fjöl-
breytti fjarvinnslu og tengibúnaður
sem í boði er gerir jiannig IBM RISC
System/6000 sérstaklega álitlega
lausn fyrir verkefni sem eru bæði
tæknileg og viðskiptalegs eðlis," seg-
ir ennfremur í frétt IBM á íslandi.
4
1917-1992
VERSLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
Morgunverðarfundur miðvikudag 26. febrúar 1992
kl. 08.00 - 09.30 í Átthagasal Hótels Sögu.
EINKAVAÐING
HJÁ REYKJAVÍKURBORG,
ER EITTHVAÐ AÐ
GERAST ?
Framsaga: Markús Örn Antonsson, borgarstjóri.
Alit og hugmyndir: Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi,
Wilhelm Wessman, hótelstjóri, Víglundur Þorsteinsson,
forstjóri og Brynjólfur Bjamason, forstjóri.
Fundarstjóri: Ragnar S. Halldórsson.
Þátttökugjald er 1000 krónur og morgunver&ur
innifalinn.
Fundurinn er öllum opinn en þátttakendur eru
vinsamlegast beðnir að skrá sig hjá Verslunarráðinu
í síma 6766 66.
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS