Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 60 33 Morgunblaðið/Rúnar Þór Þessi gámur tókst á Ioft og fauk í sjóinn, en starfsmönnum Samskipa í samvinnu við hafnarstarfs- menn tókst að koma honum á þurrt á ný. Vindhraði fór í 82 hnúta: Póstbíll fauk út af vegi við Rauðuvík ÖKUMENN tveggja fólksbíla voru fluttir á slysadeild eftir harð- an árekstur í Spítalavegi í gær, þá slapp ökumaður póstbíls með skrámur eftir að bíll hans fauk út af veginum við Kauðuvík á milli Akureyrar og Dalvíkur. Annríki var hjá lögreglumönnum á Akureyri í gær vegna veðursins og nutu þeir aðstoðar björgunar- sveitarmanna þegar mest var að gera. Vindhraðinn fór upp í 82 hnúta í gær. Tveir fólksbílar rákust saman í Spítalavegi um miðjan dag, en nokkur hálka var. Voru ökumenn fluttir á slysadeild, en að sögn varðstjóra lögreglunnar var álitið að meiðsl þeirra hafi ekki verið teljandi. Bílamir eru hins vegar báðir mikið skemmdir. Póstbíll af gerðinni Mitsubishi L-300 fauk út af veginum við bæinn Rauðuvík í gærdag. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á Dalvík slapp ökumaður ótrúlega vel, eða örlítið skrámaður miðað við ástand bílsins, sem er talinn ónýtur. Mjög hált var á milli Akur- eyrar og Dalvíkur í gær og hvas- sviðri mikið, þannig að mönnum var ráðlagt að vera þar ekki á ferðinni. Lögreglumenn á Akureyri nutu aðstoðar félaga úr Hjálparsveit skáta og Flugbjörgunarsveitinni, enda voru verkefni ærin, mikið var um að fólk væri aðstoðað vegna glugga, hurðir og þakplötur sem voru að losna vegna hvas- sviðris. Þá fuku bílar til á stæðum og tókust sumir á loft. Háskólinn á Akureyri: Heimspekifyrir- lestrar um andatrú ÞORSTEINN Gylfason prófessor í heimspeki við Háskólann ís- lands flytur opinberan fyrirlestur um andatrú á vegum Háskólans á Akureyri fimmtudagskvöldið 27. febrúar kl. 20. I vikunni flytur hann þrjá aðra lestra á vegum einstakra deilda skólans og eru þeir einnig opnir almenningi. Opinberi fyrirlesturinn, sem ber yfírskriftina „Er andinn ódauðleg- ur?“, snýst um þá trú að sál manns eða andi geti lifað eftir að líkam- inn deyr. Kvöldið áður, miðvikudaginn 26. febrúar talar Þorsteinn í boði rekstrardeildar HA um ákvörðun- ar- eða kosningafræði í lestri sem heitir „Á meirihlutinn að ráða?“. Föstudaginn 28. febrúar kl. 8 ár- degis ræðir Þorsteinn um efnis- hyggju- og hughyggjuskýringar á geðveiki á vegum heilbrigðisdeild- ar og kallast sá lestur „Er geð- veiki til?“. Að lokum fjallar Þor- steinn um réttlætiskenningar sam- tímans í fyrirlestri sem fluttur verður á laugardag, 29. febníar kl. 14 á vegum sjávarútvegsdeild- ar en hann ber yfirskriftina „Skiptir réttlæti máli?“ og bregður hann um leið birtu á ýmis úrlausn- arefni samtímans, t.d. þau er varða réttláta stjórn fiskveiða. Fyrirlestramir verða haldnir í húsi Háskólans á Akureyri við Þingvallastræti, nema á sem flutt- ur verður á föstudagsmorgun, sem verður í kennslustofu á 2. hæð Fjórðungssjúkrahússins. Þorsteinn Gylfason nam heim- speki við Harvard- og Oxford- háskóla og í Munchen og hefur flutt íjölda fyrirlestra um fræði sín bæði hérlendis og erlendis. Eftir hann liggur safn greina og bóka, þýddra og frumsaminna og er sumt af því meðal hins þekkt- asta sem ritað hefur verið um heimspeki á íslensku. Allir eru velkomnir á fyrir- lestrana á meðan húsrúm leyfir. (Frcttíitilkynning) Rósa Ingólfsdóttir. Rósa sýnir í Gallerí Allra handa RÓSA Ingólfsdóttir opnaði myndlistarsýningu í Gallerí Allra handa á Akureyri laugardaginn 22. febrúar sl. Um er að ræða 9 grafíkmyndir, silkiprent, er fjalla um iðnað, sjávar- útveg og landnám. Sýningin er styrkt af Menningarsjóði félags- heimila og lýkur henni laugardag- inn 14. mars nk. og eru allar mynd- imar til sölu. Fundur um skólamál: Fjórðungur nemenda getur stund- að nám í fjölmennum bekkjum - segir Magnús Aðalbjörnsson yfirkennari í Gagnfræðaskóla Akureyrar MAGNÚS Aðalbjörnsson yfirkennari við Gagnfræðaskólann á Akureyri telur að spara megi í rekstri grunnskóla með því að hluti nemenda sem til þess er hæfur Ijúki grunnskólanámi á skemmri tíma en nú er. Hann telur að um 25-30% nemenda standi það vel að vígi í bóklegum greinum að þeir geti stundað sitt nám í fjölmennum bekkjardeildum, en þessi hópur gæti lokið grunn- skólanámi í 9. bekk í stað 10. eins og nú er. Á móti þurfi að koma fámennari deildir fyrir þá sem þurfa á meiri kennslu að halda, eða um 20 nemendur í hóp. Miðað er við, að frá 7. bekk grunn- skóla geti nemendur farið yfir námsefnið á mismunandi hraða, eða á svokölluðum hæg-, mið- og hraðferðum. Þetta kom fram í máli Magnús- ar á fjölmennum fundi sem for- eldrafélög grunnskólanna á Akur- eyri efndu til með Ólafi G. Einars- syni menntamálaráðherra á sunnudag. Menntamálaráðherra sagði hugmyndir Magnúsar at- hyglisverðar og myndi hann vilja skoðað þær nánar. Hugmyndina sagði Magnús komna frá Garðaskóla í Garðabæ, en þar væri komið á eins konar áfangakerfi sem fæli í sér töluvert val fyrir nemendur og í nokkrum greinum væri boðið upp á mismun- andi hraða yfirferð. Þeir nemendur sem duglegastir væru t.d. í stærð- fræði geta tekið fyrsta áfanga framhaldsskóla í þeirri grein strax í grunnskóla. Samið hefði verið við Fjölbrautaskóla Garðabæjar um að þeir nemendur sem lokið hafa þessum áfanga geti flýtt för sinni í gegnum framhaldsskólann, þar sem þeir geta valið aðrar greinar í stað þeirra sem þeir hafa lokið í grunnskólanum. Þannig gæti hluti nemenda lokið stúdents- prófi á þremur eða þremur og hálfu ári í stað fjögurra ára. Skortur á samræmingu milli grunn- og framhaldsskólanna væri flöskuhálsinn í þessu máli, þar sem nú væri ekki um það að ræða að nemendur geti flýtt fyrir sér í námi með þessu móti, nema í umræddu tilviki í Garðabæ. „Það væri betra ef hægt væri að út- skrifa hluta nemendanna einu ári fyrr úr grunnskóla þannig að þeir gætu gengið inn í hvaða fram- haldsskóla sem er,“ sagði Magnús. Hann vakti einnig athygli á því að stærð kennslustofa í Gagnfræð- askóla Akureyrar byði ekki upp á fjölmennar bekkjardeildir, stof- urnar væru 38 fermetrar að stærð og þar kæmust ekki með góðu móti fyrir nema 25 nemendur. Til að unnt væri að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd yrðu að vera bæði litlar og stórar stofur í skólunum. „Það er auðvitað slæmt ef ytri umgjörð skólanna mun hefta það að af þessu geti orðið,“ sagði Magnús og bætti því við að ef slíkt kerfí yrði tekið upp í skól- unum yrði það að vera sveiganlegt og þess gætt vandlega að enginn fijósi inni á röngum stað, en vinna yrði markvisst að því, ef hugmynd- in yrði að veruleika, að frá og með 7. bekk gætu þeir nemendur sem getu og vilja hefðu farið inn á hraðferðarbrautimar. VMA-nemar bestir í blaki LIÐ Verkmcnntaskólans á Ak- ureyri sigraði bæði í kvenna- og karlaflokki á framhaldsskóla- móti Blaksambands Islands sem haldið var í Iþróttahöllinni á Akureyri á laugardag. í mótinu tóku þátt 15 lið, 8 karla- lið og 7 kvennalið frá 9 framhalds- skólum á landinu. Úrslit í karlaflokki urðu þau að lið Verkmenntaskólans varð í 1. sæti, lið Menntaskólans á Akureyri varð í 2. sæti og lið Verslunarskóla íslands varð í 3. sæti. í kvenna- flokki varð lið Verkmenntaskólans á Akureyri í 1. sæti, lið Framhalds- skólans á Húsavík í 2. sæti og í 3. sæti varð lið Menntaskólans á Akureyri. Glerárskóli: Fyrirlestur um hreyf- inga- og agaleysi bama ANTON Bjarnason lektor við Kennaraháskóla íslands heldur fyrirlestur á vegum Foreldrafé- lags Glerárskóla í kvöld, þriðju- dagskvöldið 25. febrúar kl. 20.00. Fyrirlesturinn verður fluttur í stofu Í6 og fjallar um hreyfínga- og agaleysi barna. _ Anton hefur á undanförnum misserum vakið athygli á þessu stigvaxandi vandamáli í nútíma- þjóðfélagi, sem hreyfingaleysi barna er orðið og þær slæmu af- leiðingar sem það hefur á náms- getu barna. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.