Morgunblaðið - 25.02.1992, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRUAR 1992
51
4
4
i
»
»
>
SJOSLYSIÐ A HALAMIÐUM
Það réði úrslitum
að allir gerðu rétt
á þessari stundu
m
- segir Reynir Traustason, fyrsti
stýrimaður á Sléttanesi
ísafirði. Frá Helga Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
„VIÐ voruin nýbúnir að kasta þegar neyðarkallið kom, klukkan 8.
Hann kallaði á togarabylgjunni, ég heyrði strax að eitthvað var að,
sagðist vera kominn á hliðina. Þurfti aðstoð og gaf upp staðsetningu.
Það var um eina sjómílu frá okkur. Það heyrðist ekkert meira frá
honum og við sáum að hann hvarf út af radar rétt á eftir,“ sagði
Reynir Traustason fyrsti stýrimaður á Sléttanesi ÍS 808 á sunnudag
er hann var á vakt í brúnni á sunnudagsmorguninn þegar Krossnesið
fórst á Halamiðum. Annar stýrimaður kastaði sér í sjóinn til að bjarga
Garðari Gunnarssyni af Krossnesinu úr sjónum og fóru þeir með hann
til Bolungarvíkur.
Tilviljun að við vorum
staddir þarna
„Það var röð af tilviljunum sem
varð til þess að við vorum staddir
þama á þessu augnabliki," sagði
Reynir. „Það bilaði aðeins hjá okkur
og ég keyrði í einhveijum hálfkær-
ingi vestur eftir. Svo þegar það
komst í lag miklu fyrr en áætlað var
lét ég mig hafa að kasta þarna. Það
liðu ekki nema um 20 mínútur frá
því trollið var sest að neyðarkallið
kom, klukkan 8. Ég rauk í spilið og
hífði í einum grænum hvelli. Bað
strákana að vera fljótir að afgreiða
þetta því að skip væri að sökkva við
hliðina á okkur. Síðan ræsti ég skip-
stjórann sem tók við stjóminni og
öll áhöfnin var sett á útkikk. Kokkur-
inn settur í að hita kakó samkvæmt
neyðarplani. Þegar búið er að ná
mönnunum upp verður að hita þá
strax upp með öllum ráðum,“ sagði
Reynir.
Vilhelm Annasson skipstjóri á
Sléttanesi taldi að það hefði tekið
þá um tíu mínútur að hífa trollið og
innbyrða veiðarfærin. „Þegar ég
byrjaði að keyra í áttina að slysstaðn-
um sáum við fljótlega neyðarblys frá
tveimur gúmmíbjörgunarbátum. Við
og Guðbjörgin komum þarna nokk-
um veginn samtímis að. Hann lagði
að öðmm bátnum og ég stefndi því
að hinum. í því sáum við glitta í tvo
flotgalla í sjónum. Sá sem við komum
fyrst að var opinn og tómur. Þegar
við komum að hinum sáum við að
maður var í honum. Við kölluðum
en fengum lítil viðbrögð. Hann var
greinilega langt leiddur. Þá henti
stýrimaðurinn sér fyrir borð og náði
honum strax. Það gekk furðu vel að
ná þeim um borð,“ sagði Vilhelm.
Ekkert fum eða fát
I!
klikkaði ekkert. Allir gerðu rétt á
þessu andartaki. Það réði úrslitum
með að þessi maður bjargaðist,"
sagði Reynir. Vilhelm sagði: „Það
var ekkert fum eða fát við þessa
björgun." Það þakkaði hann m.a.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndin er tekin á sunnudagsmorgun inni í Fokker-vél Landhelgisgæslunnar, sem flaug yflr svæðið, en
frá henni var leitin að mönnunum af Krossnesi var skipulögð.
Sléttanesinu til Bolungarvíkur og þar
fór læknirinn um borð og bjó um
hann til flutnings á sjúkrahúsið á
ísafírði. Hann fór síðan með sjúkra-
flugi til Reykjavíkur síðdegis á
sunnudaginn og gekkst undir aðgei'ð
á Landakotsspítalanum.
spurður í gær hefði ég sagt að þeító
gæti ekki gerst," sagði Vilhelm.
Óskiljanlegt
Vilhelm sagði að lítið væri vitað
um hvað hefði gerst. „Mér skilst að
þeir hafí verið byijaðir að hífa og
að maðurinn sem við björguðum hafi
verið að gera sig kláran upp á dekk
þegar skipið fórst og að það hafí
bjargað lífí hans. Ef ég hefði verið
Reynir sagði algerlega óskiljanlegt
hvað gerðist. „Krossnesið var ann-
álað sjóskip. Maðurinn segir að það
hafi skyndilega lagst. Hann er fyrr-
verandi skipstjóri með 25 ára skip-
stjómarreynslu en segist ekkert
skilja í þessu,“ sagði Reynir.
Sléttanesið er 472 brúttólestir að
stærð, gert út af Fáfni hf. á Þing-
eyri. Vilhelm tók við skipinu nýju
árið 1983 og var með það um tíma
en fór þá í annað í nokkur ár en tók
við því að nýju fyrir ári.
Morgunblaðið/Rax
Reynir Traustason stýrimaður á
Sléttanesi ÍS.
Morgunblaðið/Rax
Vilhelm Annasson skipstjóri á
Sléttanesi ÍS.
björgunaræfíngum sem skylda er að
gera einu sinni á ári.
Garðar reyndist fótbrotinn þegar
hann kom um borð. „Skipstjórinn á
Krossnesinu hringdi um borð og
sagði að maðurinn hefði nýlega farið
í hjartaþræðingu. Öll skipin voru
komin á staðinn og við sáum að lítil
þörf var fyrir okkur og ákváðum því
að fara með manninn beint í land,“
sagði Vilhelm.
Björgunarbáturinn Daníel Sig-
mundsson fór með lækni frá ísafírði
til móts við Sléttanesið. Þegar þeir
mætust við utanvert Djúpið var það
slæmt í sjóinn að ekki var talið ráð-
legt að flytja lækninn milli skipanna.
Björgunarbáturinn sigldi því með
Mikið afreksverk
Reynir sagði að maðurinn hafi
greinilega verið hfett kominn og
Bergþór Gunnlaugsson annar stýri-
maður unnið mikið afreksverk með
því að kasta sér fyrir borð til að
bjarga honum. „Hann tók hárrétta
ákvörðun á hárréttu augnabliki og
það held ég að hafi orðið þessum
manni til lífs því ég held að hann
hafí ekki átt nema örfáar mínútur
ólifaðar þegar hann kom hér um
borð. Það var mikill veltingur og
hann setti' sig í stórhættu. Þetta
gerir hann kannski undir því álagi
að nýlega er búið að neita manni um
örorkubætur undir slíkum kringum-
stæðum," sagði Reynir.
Reynir telur að 20 til 25 mínútur
geti hafa liðið frá því hann heyrði
neyðarkallið þar til þeir komu að flot-
búningnum og hugsanlega hafi liðið
um það bil hálftími þar til maðurinn
náðist um borð. Sjórinn er 5 gráðu
heitur. „Mér finnst það ótrúlegt þrek
hjá svona gömlum manni að lifa þetta
af. Við sáum það allir sem tókum
við honum að hann var á mörkum
lífs og dauða þegar hann kom um
borð. Hann var alveg máttlaus; náföl-
ur og við héldum á tímabili að hann
væri farinn," sagði Reynir. Hann
sagðist hafa fært honum þau tíðindi
á sunnudagsmorguninn að skipstjór-
inn hans hefði hringt úr Guðbjörgu
og bæði að heilsa honum. Honum
hefði greinilcga létt við það og sagt
að það væri sonur sinn.
VAMHIÞIN
FJOLSKYLM?
Heildarvinningsupphæðin var:
132.826.428 kr.
8. leikvika - 22.febrúar 1992
Röðin
13 réttir:
12 réttir:
11 réttir:
10 réttir:
111-1XX-1XX-1XX1
22 raðir á
560 raðir á
7.746 raðir á
1.630.140- kr.
40.320 - kr.
3.080 - kr.
770 - kr.
65.047 raðir á
Þrjár raöir komu fram meö 13 réttum hérlendis. Frá
Söluturninum Gerplu á Sólvallargötu 27 (um 2 millj.), frá
Sælgætis- og Videóhöllinni í Garöabæ (um 1,8 millj.) og frá
Söluturninum örnólfi á Snorrabraut 48 (um 1,6 millj.).
Vinningshlutfalliö var 85% hérlendis.
„Rétt er að það komi fram að það
—týrirpiq og þína fJöiskyUu!
HFÍ
Ráðstefna
um framtíð flutninga
á ísiandi
Hagrœðingarfélagið og Aðgerðarannsóknafélagið
efna nú til sinnar fjórðu róðstefiiu um vörustjórnun.
Innanlandsflutningar eru um þessar mundir í
brennidepli og því áhugavert að skoða þróun
þeirra frá faglegu sjónarhorni.
Dagskrá:
13:00 Inngangsorð
• Snjólfur Ólafsson, formaður ARFÍ
13:10 Setning ráðstefnu
• Halldór Blöndal, samgönguráðherra
13:20 Stefna stjórnvalda í samgöngumálum
• Halldór Blöndal, samgönguráðherra
13:40 Framtíðarsýn
• Trausti Valsson, Háskóla íslands
14:10 Umræður og fyrirspurnir
14:30 Kaffihlé
15:00 Fólksflutningar á íslandi
• Kolbeinn Arinbjarnarson, FLugleiðum
15:20 Verkaskipting í flutningum
• Páll Hermannsson, Samskipum
15:40 Staðarval með tilliti til flutninga
• Páll Jensson, Háskóla fslands
16:00 Umræður og fyrirspurnir
16:30 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri verður Thomas Möller hjá Eimskip.
Ráðstefimn er haldin í Höfða, Hótel Loftleiðum
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13:00til 16:30.
Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig í síma 621066
hjá Stjómunarfélaginu. Þátttökugjald er kr. 4000, og er
öllum heimil þátttaka.