Morgunblaðið - 29.02.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
5
BSRB vill
ræða um
aðgerðir
BANDALAG starfsmanna ríkis
og bæja er reiðubúið að ganga
til viðræðna við önnur samtök
launafólks um forsendur fyrir
sameiginlegum aðgerðum til að
knýja fram niðurstöður í kjara-
samningum.
Þetta var samþykkt á banda-
lagsráðstefnu BSRB. „Menn vilja
ræða við önnur samtök um sameig-
inlegar aðgerðir, verkföll, en áður
en farið er út í slíkt vilja menn
vita á hvaða forsendu slíkt yrði
gert,“ sagði Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB, í samtali við
Morgunblaðið.
„Það eru aðildarfélög BSRB sem
hafa samningsréttinn, og enda
þótt bandalagsráðstefnan hafi lýst
vilja til þessa, þá vilja menn sjá
niðurstöður áður en farið er út í
aðgerðir. Við erum að opna dyrnar
fyrir samstarfi við önnur samtök,
en erum ekki að njörva okkur nið-
ur á einhver ákveðin skilyrði. Menn
eru orðnir seinþreyttir á að bíða
eftir því að niðurstöður náist í
samningum, og nú viljum við að
tekið verði af skarið,“ sagði Ög-
mundur.
-----»-♦ ♦---
Búnaðarþing hefst
á mánudaginn:
Breytt rekstr-
arumhverfi
landbúnaðar
stærsta málið
BÚNAÐARÞING verður sett á
mánudaginn, og verður breytt
rekstrarumhverfi landbúnaðar-
ins í ljósi þeirra breytinga sem
nýi búvörusamningurinn felur í
sér væntanlega stærsta mál
þessa þings. Einnig verður fjall-
að um landbúnað og umhverfi á
íslandi, og stöðu kvenna í
ábyrgðarstörfum innan félags-
kerfis landbúnaðarins.
Búnaðarþingið verður sett kl.
10 f.h. á mánudaginn í Súlnasal
Hótels Sögu. Jón Helgason for-
maður Búnaðarfélags íslands setur
þingið, en ávörp flytja Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra og
Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda. Að setn-
ingúnni lokinni kemur þingið aftur
saman kl. 13.30 í Búnaðarþingssal
við hlið Súlnasalar, en það mun
að venju fjalla um þau mál sem
til umfjöllunar eru á Alþingi.
----♦ ♦ ♦---
Umhleypinga-
samt veður
næstu daga
BÚIST er við suðvestanátt sunn-
an- og vestanlands í dag með
allhvössum slydduéljum og síð-
an éljum. Á Norðvesturlandi er
búist við hvassri norðvestanátt
með snjókomu en hægviðri
norðaustanlands. Hiti verður um
frostmark. Norðaustanlands var
hvassviðri í fyrrinótt en þó ekki
eins slæmt veður og búist hafði
verið við.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni verður hiti um og
undir frostmarki yfir helgina en á
mánudag er búist við hlýnandi
veðri og allt upp i tíu stiga hita.
Það mun þó ekki vara lengi því á
þriðjudag er aftur búist við að frost
verði um land allt.
Sala rauða nefsins þetta ár er til styrktar
afreksfólki okkar sem stefnir á þátttöku
í ólympíuleikum fatlaðra í sumar.
Þau unnu stórsigra fyrir hönd íslands í Seoul
-vinnum með þeim núna
kaupum rautt nef af sölufólki og berum það á öskudag.
ÓLYMPÍUNEFND FATLAÐRA
-5
HáiNtAuar;