Morgunblaðið - 29.02.1992, Qupperneq 21
að vinna heimavinnuna heidur um
hádegisfréttir umræddan þriðjudag.
Ég segir meðal annars: „I hádegis-
fréttum Ríkisútvarpsins síðastliðinn
þriðjudag var ekki greint frá að
Eðvald hefur áður verið borinn
svipuðum sökum.“ Og síðar segir
einnig: „Því miður er frétt Ríkisút-
varpsins í hádeginu sl. þriðjudag
ekki eina merkið um að svo sé.“
Raunar er öll greinin skrifuð með
þeim hærri að Kára Jónassyni ætti
að skiljast um hvað er verið að fjalla.
Útúrsnúningar hans breyta þar engu
um.
Frétt sem átti að birta
Fréttastjórinn heldur áfram: „Óli
Björn Kárason segir að fréttastofa
útvarps sé að saka íslending um
verstu glæpi — landráð. Hvað geng-
ur manninum eiginlega til? Við höf-
um ekki sakað einn eða neinn um
glæpi eða landráð, slíkt er víðs-
fjarri, það sem við gerðum var að
greina íslensku þjóðinni frá
bréfí . ..“ Hér vísar Kári Jónasson
í eftirfarandi: „Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem fréttastofa útvarpsins
hleypur á sig og sakar íslending um
verstu glæpi. Þá var byggt á erlend-
um heimildum sem reyndust rang-
ar.“ Ég skal fyrstur manna viður-
kenna að hér var bæði of fast og
klaufalega að orði komist, og er
Finnur Ingólfsson
lagðist eindregið gegn tekjuteng-
ingu elli- og örorkulífeyris þegar
hann var í stjórnarandstöðu og taldi
það brot á grundvallarstefnu
flokksins. Nú hefur hann hins vegar
samþykkt tekjutengingu elli- og
örorkulífeyris sem lög frá Alþingi
í þeim tilgangi að skattleggja elli-
og örorkulífeyrisþega sérstaklega.
í fyrri ríkisstjórn þar sem Alþýðu-
flokkurinn átti sæti ásamt Fram-
sóknarflokknum þá kom Alþýðu-
flokkurinn í veg fyrir að frumvarp
það sem fyrrverandi heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra Guðmund-
ur Bjarnason lagði fyrir Alþingi
næði fram að ganga. Það gerði ráð
fyrir tekjutengingu elli- og örorku-
lífeyris og hafði það að meginmark-
miði að færa frá þeim sem búa við
góð kjör og góðar aðstæður til
þeirra sem raunverulega þurfa á
aðstoð almannatrygginganna að
halda. Gegn þessu lagðist Alþýðu-
flokkurinn — jafnaðarmannaflokk-
ur Íslands undir því yfirskyni að
hann væri á móti tekjutengingu
elli- og örorkulífeyris. Nú hefur hins
vegar ráðherra Alþýðuflokksins
haft frumkvæði að því, að fá sam-
þykkt sem lög frá Alþingi tekju-
tengingu elli- og örorkulífeyris sem
fela það eitt í sér að skattleggja
elli- og örorkulífeyrisþega sérstak-
lega.
Átylla til skemmdarverks
Af þessum gerðum Alþýðu-
flokksins verður ekki annað ráðið
en það, að flokkurinn hafi notað
tekjutengingu elli- og örorkulífeyris
á sínum tíma sem átyllu fyrir því,
að hann gæti ekki staðið að sam-
þykkt frumvarpsins. Alþýðuflokk-
urinn hefur því í raun verið á móti
öllum þeim réttindabótum sem það
frumvarp gerði ráð fyrir. Með þessu
hátterni sínu kom Alþýðuflokkurinn
í veg fyrir 14% hækkun á örorkulíf-
eyri, 14% hækkun á tekjutryggingu
örorkulífeyrisþega, 10% hækkun á
ellilífeyri hjóna fyrir elli- og örorku-
lífeyri, 55% hækkun á vasapening-
um, 58% hækkun á sjúkradagpen-
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
21
beðist velvirðingar á því. Hitt er svo
annað að fréttastjórinn veit fullvel
við hvað var átt. Því verður ekki
trúað að hann sé Joúinn að gleyma
Tangen-málinu. (Ég skii auðvitað
að starfsmenn útvarpsins vilji lítið
kannast við þá herferð.)
Og svo spyr fréttastjórinn: „Átt-
um við að þegja yfir þessu?“ Með
allri sanngirni getur Kári Jónasson
ekki haldið því fram að ég sé þessar-
ar skoðunar. Ég gagnrýndi frétta-
stofuna aldrei fyrir að birta um-
rædda frétt, heldur þvert á móti,
eins og áður hefur komið fram.
Raunar kvað ég svo fast að orði að
það hafi verið skylda hvers blaða-
manns að greina frá jafn alvarlegu
máli og hér er rætt um. Þetta sjón-
armið kemur tvisvar fram í grein
minni með skýrum hætti. Vilji frétta-
stjóri útvarpsins lesa og skilja grein
mína með öðrum hætti heldur en
þar stóð skýrum stöfum, er ekki við
mig að sakast.
Ég ætla mér ekki að deila við
fréttastjórann frekar. Greinilegt er
að hann er sáttur við sjálfan sig og
sína menn. Hreykinn af vinnubrögð-
unum, sem eru hafin yfir gagnrýni.
Yfirlæti af því tagi breytir í engu
afstöðu minni og fyrri skrifum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Almenna bókafélagsins.
ingum, hækkun barnalífeyris
hækkun ekkju- og ekkilsbóta og
lengingu bótatíma fyrir utan mörg
önnur nýmæli sem frumvarp fyrr-
verandi heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra gerði ráð fyrir.
Ábyrgð Alþýðuflokksins — jafnað-
armannaflokks íslands er því mikil
í þessum efnum.
Raunverulegur jafnaðarmaður
í grein sinni segir Sigbjörn, að
hann geti á engan hátt gert á því
greinarmun hvoii sú skerðing á
elli- og örorkulífeyri sem nú er búið
að framkvæma sé gerð í tengslum
við heildarendurskoðun laga um
almannatryggingar eða með sér-
stökum breytingum. Á þessu er
auðvitað grundvallarmunur og
innst inni veit ég að Sigbjörn veit
að þarna er mikill munur á, því
Sigbjörn er réttsýnn og sanngjarn
og sennilega raunverulegur jafnað-
armaður, líklega sá eini sem enn
finnst í þingflokki Alþýðuflokksins.
Sú heildarendurskoðun sem að
framan eru taldar, en til þess að
hægt væri að standa undir þeim
kostnaðarlega var áætlað að sá
ávinningur sem hlytist af tekjuteng-
ingu lífeyris yrði notaður til þess
að standa undir þessum viðbótarút-
gjöldum.
Að vera sammála en
þora ekki...
Þegar ég fullyrði að Sigbjörn viti
þetta innst inni en telji af pólitískum
ástæðum ekki rétt að tjá sig opin-
berlega um það, þá byggi ég fullyrð-
ingu mína á því sem kemur fram
í niðurlagi greinar hans í Morgun-
blaðinu áðurnefndan dag. Þar segir
hann að hann taki heils hugar und-
ir þá skoðun sem fram kom í áliti
þeirrar nefndar, er ég veitti forstöðu
um endurskoðun almannatrygging-
alaganna að hlutverk almanna-
trygginganna eigi að vera það, að
tryggja ákveðna lágmarksafkomu
þegnanna en ekki að vera bónus á
þokkalegar tekjur. Það var einmitt
það sem nefndin og fyrrverandi
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra höfðu að leiðarljósi þegar
endurskoðun almannatrygginga-
laganna fór fram og frumvarpið var
lagt fram á Alþingi. Þetta sjónar-
mið sem Sigurbjörn Gunnarsson
tekur heils hugar undir er það sjón-
armið sem Framsóknarflokkurinn
hefur haft að leiðarljósi í öllum
vinnubrögðum og í allri umræðu
við undirbúning málsins hvort sem
það var í fyrri ríkisstjórn eða inni
á Alþingi nú í janúar. Framsóknar-
flokkurinn hefur alltaf látið afstöðu
sína til tekjutengingar elli- og ör-
orkulífeyris ráðast af því hvernig
þeim fjármunum sem spöruðust við
tekjutengingu elli- og örorkulífeyris
yrði ráðstafað.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Framsóknnrflokkinn í
Reykja víkurkjördæmi.
Heimsmeistarinn
hyggur á hefndir
___________Skák_____________
Margeir Pétursson
HEIMSMEISTARINN í skák,
Garíj Kasparov, hefur byrjað
vel á stórmótinu í Linares á
Spáni sem hófst fyrir viku.
Kasparov þarf nauðsynlega á
sigri á mótinu að halda, því í
fyrra var áratugar sigurganga
hans stöðvuð þar af Vassilí
Ivantsjúk. Á síðasta móti sínu
í Reggio Emilia á Italíu um
áramótin mátti Kasparov líka
þola það að sjá á bak efsta
sætinu til Indverjans Anands.
Heimsmeistarinn hefur tapað
tveimur síðustu skákum sínum
fyrir Indverjanum, og í fjórðu
umferðinni í Linares missti
hann vænlega stöðu gegn hon-
um niður í jafntefli.
Strax í fyrstu umferðinni náði
Kasparov að hefna fyrir ófarir
sínar gegn Jan Timman í úrslitum
Immopar-atskákmótsins í París í
haust. Það tók heimsmeistarann
aðeins 26 leiki að yfirbuga Tim-
man með svörtu.
Síðan var röðin komin að erki-
óvininum Anatólíj Karpov. Ka-
sparov virðist vera kominn með
heljartak á Karpov, sem á ekki
nægilega traust svar við kóngs-
peðsbyijun heimsmeistarans. I
skák þeirra í Tilburg í haust var
Kasparov snemma kominn með
unnið tafl eftir að hafa beitt
skoska leiknum. í Linares beitti
Karpov hinni traustu Caro-Kann
vörn og kom með nýjung í 10.
leik. En taflmennska hans í fram-
haldinu var fálmkennd, menn
hans náðu aldrei að vinna saman
á þann hátt sem Karpov er svo
frægur fyrir. Hrókur hans á h8
varð t.d. að húka úti í horni alla
skákina. Þessar tvær síðustu tap-
skákir Karpovs fyrir heimsmeist-
aranum eru honum mikill álits-
hnekkir. Enn eitt heimsmeistara-
einvígi þeirra í millum virðist
hreinasti óþarfi.
Staðan eftir fjórar umferðir:
1. Júsupov 3 v. og lakari biðskák.
2. -3. Kasparov og Gelfand 3 v.
4. Beljavskí 2 'h v.
5. -6. Timman og Karpov 2 v.
7. Illescas 1 'h v. og betri biðskák
8. -13. ívantsjúk, Bareev,
Ljubojevic, Anand, Short og Salov
l'/2 v.
14. Speelman 1 v.
Hvítt: Garíj Kasparov
Svart: Anatólí Karpov
Caro—Kann vörn
I. e4 - c6 2. d4 - d5 3. Rc3 -
dxe4 4. Rxe4 — Rd7 5. Rg5 —
Rgf6 6. Bc4 - e6 7. De2 - Rb6
8. Bb3 - h6 9. R5f3 - c5 10.
Bf4 - Bd6!?
Þetta mun vera nýr leikur hjá
Karþov. Á árinu 1988 beitti Speel-
man hér þvívegis leikaðferðinni
10. - Rbd5 11. Be5 - Da5+ 12.
Rd2 — b5, gerði fyrst jafntefli við
þá Nunn og Sax en vann síðan
Nigel Short.
II. Bg3 — De7 12. dxc5 — Bxc5
13. Re5 - Bd7 14. Rgf3 - Rh5
15. 0-0-0 - Rxg3 16. hxg3 -
0-0-0 17. Hh5!
Takið vel eftir þessum hrók.
Hann á eftir að gegna lykilhlut-
verki í skákinni.
17. - Be8 18. Hxd8+ - Kxd8
19. Dd2+ - Bd6 20. Rd3 - Dc7
21. g4 - Kc8 22. g5 - Bf8 23.
Hh4 - Kb8 24. a4 - Be7?
Eftir skákina vildi Kasparov
skella skuldinni á þennan leik.
Nú gerir hvíta a peðið usla í
kóngsstöðu svarts.
25. a5 - Rd5 26. Kbl
Nú hótar hvítur augljóslega að
vinna mann með 27. c4, því ridd-
arinn á d5 á sér þá ekki undan-
komuleið. Svartur hefði nú átt að
svara þeirri hótun með því að leika
26. - Hg8 og ef 27. c4?! þá 27.
— hxg5.
26. - Bd8? 27. a6 - Da5 28.
De2 — Rb6 29. axb7 — Bxg5
30. Rxg5 - Dxg5 31. Hh5! -
Df6 32. Ha5 - Bc6 33. Rc5
Svarti kóngurinn er umkringd-
ur af ofurefli liðs.
33. - Bxb7 34. Rxb7 - Kxb7
35. Da6+ - Kc6 36. Ba4+ -
Kd6 37. Dd3+ - Rd5 38. Dg3+
- De5 39. Da3+ - Kc7 40.
Dc5+ — Kd8 41. Hxa7 og svart-
ur gafst upp.
Skákkeppni stofnana
íslandsbanki sigraði mjög ör-
ugglega í A-flokki í skákkeppni
stofnana og er þetta annað árið
í röð sem bankinn er hlutskarpast-
ur. Áður hafði Búnaðarbankinn
unnið keppnina átta sinnum í röð.
A flokkur:
1. íslandsbanki 25‘/2 v. af 36
mögulegum.
2. Búnaðarbanki íslands 22‘/2 v.
3. Arnarsson og Hjörvar 22 v.
4. Flugleiðir 21 ‘/2 v.
5. -7. Iðnskólinn í Reykjavík,
SKÝRR og Borgarfógetaembætt-
ið í Reykjavík 21 v.
8.-10. Skákprent, Háskóli íslands
og Eimskip 2OV2 v. o.s.frv.
í sigursveit íslandsbanka voru
þeir Björgvin Jónsson, Björn Þor-
steinsson, Þráinn Vigfússon, Jón
G. Briem, og varamenn Gunnar
Gunnarsson og Gunnar Björns-
son.
B-flokkur:
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur 21
v. af 28 mögulegum
2. Verkfræðistofan Línuhönnun
20>/2 v.
3. Strætisvagnar Reykjavíkur
20 '/2 v.
4. Unglingasveit T.R. 20 v.
5. Skattstofan í Reykjavík 19 v.
Línuhönnun hreppti annað sæt-
ið á stigum.
I sigursveit Húsnæðisnefndar
voru þeir Gylfi Magnússon, Jón
Þorleifur Jónsson, Gylfi Gylfason
og Jón Hákonarson, og varamenn
Sigurður Guðjónsson og Ágúst
Jónasson
Skákkeppni
framlialdsskólanna
1. Menntaskólinn við Hamrahlíð
27 v. af 28 mögulegum
2. Menntaskólinn á Akureyri I8V2
v.
3. Fiölbrautaskólinn við Ármúla
17 v.
4. Menntaskólinn í Reykjavík, A
sveit I2V2 v.
5. Fjölbrautaskóli Vesturlands
11‘/2 v.
6. Fjölbrautaskóli Suðurlands 10
v.
7. Verslunarskóli íslands 8 v.
8. Menntaskólinn í Reykjavík, B
sveit 7V2 v.
í sigursveit MH voru þeir Þröst-
ur Árnason, Sigurður Daði Sig-
fússon, Ingi Fjalar Magnússon,
Snorri Karlsson, Ragnar Fjalar
Sævarsson og Egill Brynjólfsson.
GLÆSILEG BMW 5 LÍNA
FYRIR FÓLK SEM GERIR KRÖFUR
Verð frá kr. 1 ,995,000.-
Hvað er það sem gerir BMW bíla áhugaverðari en aðra?
BMW bílar eru kraftmeiri, sportlegri, glæsilegri, þægilegri og öruggari. BMW 5
línan er einn öruggasti bíll heims og hefur það verið staðfest með
árekstrarprófunum stærsta bílatímarits Evrópu "Auto Motor
und Sport" BMW - einn öruggasti bíll heims
o
Engum
líkur
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1-110 Reykjavík-Sími 686633