Morgunblaðið - 29.02.1992, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRUAR 1992
Mjólkárvirkjun:
Mesta orkufram-
leiðsla frá upphafi
Bíldudal.
FRAMLEIÐSLUMET var sett á síðasta ári hjá Mjólkárvirkjun. Orku-
framleiðsla var 61,2 GW stundir, en árið áður 1990, voru framleidd-
ar 57,8 GW stundir. Þetta er langmesta orkuframleiðsla í virkjun-
inni frá upphafi en virkjunin var tekin í notkun árið 1958.
Helgi Helgason stöðvarstjóri seg-
ir þessu að þakka góð vatnsár og
lítið um bilanir í stöðinni á síðasta
ári. Helgi segir meðaltal mega-
vatnsstunda á dag hafi verið 167
allt árið í fyrra en mest 192 stund-
ir. „Árið í ár er mjög svo óvenju-
legt. Það rigndi mikið í janúar, leys-
ingar hafa verið óvenju miklar á
þessum tíma árs, sem reyndar telst
vera sá erfiðasti á ári hveiju hvað
orkuframleiðslu varðar. En ég held
að það sé of snemmt að segja til
um hvort annað framleiðslumet
verður sett í ár, það verður tíminn
að leiða í ljós,“ sagði Helgi Helga-
son að lokum í samtali við Morgun-
blaðið. - R. Schmidt.
Eitt verka írisar.
Iris Friðriksdóttir sýn-
ir í Gallerí einn einn
ÍRIS Friðriksdóttir opnar sýn-
ingu í Gallerí einn einn að Skóla-
vörðustíg 4a, Reykjavík, í dag,
laugardaginn 29. febrúar kl.
16.00.
Þetta er hennar önnur einkasýn-
ing en hún hélt sýningu í Nýlista-
safninu á síðastliðnu ári. Einnig
hefur hún tekið þátt í mörgum sam-
sýningum m.a. í Svíþjóð, Hollandi
og Þýskalandi. íris stundaði nám í
Textíldeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1980-84 og fram-
haidsnám í Maastricht í Hollandi
1984-86. Hún hefur ætíð notað þau
efni sem hver hugmynd krefst en
ekki einskorðað sig við neitt eitt
efni.
Á sýningunni í Gallerí einn einn
er að finna ný verk verk unnin úr
m.a. járni, hitaplötu, tvinna og
sápu.
Sýningin er opin daglega kl.
14.00-18.00 og henni lýkur 12.
mars.
Morgunblaðið/Grímur
Á myndinni eru stúlkurnar 11 sem þátt taka í keppninni um fegurðardrottningu Vestmannaeyja
1992. Efsta röð til vinstri: Ólöf Viðfjörð Hreiðarsdóttir, 20 ára nemi, Guðrún Guðmundsdóttir, 20
ára nemi, Kristjana Ingólfsdóttir, 18 ára nemi og Anna Lára Guðjónsdóttir, 18 ára nemi. Miðröð
frá vinstri: María Þórsdóttir, 20 ára nemi, Steinunn Jónatansdóttir, 18 ára neini, Hrefna Sigur-
björg Jóhannsdóttir, 19 ára nemi og Ingibjörg Jónsdóttir 18 ára nemi. Neðsta röð frá vinstri:
Hrönn Róbertsdóttir, 18 ára nemi, Brynja Jónsdóttir, 17 ára nemi og Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir
18 ára nemi.
Fegurðardrottning Yest-
mannaeyja krýnd 1 kvöld
Vftstmanneviar.
Vestmanneyjar.
FEGURÐARDROTTNING Vestmannaeyja 1992 verður krýnd á
miðnætti í kvöld í Samkomuhúsinu í Eyjum. 11 Eyjastúlkur taka
þátt í keppninni og hafa þær staðið í ströngu undanfarnar vikur
við undirbúning fyrir keppnina. Tískuvöruverslunin Flott og flipp-
að hefur séð um framkvæmd keppninnar í Eyjum í samvinnu við
Fegurðarsamkeppni íslands og Ragnheiður Borgþórsdóttir hefur
séð um þjálfun stúlknanna.
af Lýð Ægissyni og tileinkað
keppninni í Eyjum. Hljómsveit
Birgis Gunnlaugssonar mun síðan
leika fyrir dansi fram eftir nóttu.
Þátttakendur í fegurðarsam-
keppninni koma fram í síðkjólum
og á sundfötum og verður vinsæl-
asta stúlkan valin úr hópi þeirra.
Á miðnætti verða síðan Ljós-
Ýmislegt verður á dagskrá
keppniskvöldsins í Eyjum. Sam-
komuhúsið opnar kl. 19.00 og þá
verður boðið upp á fordrykk.
Borðhald hefst kl. 20.00 þar sem
borin verður fram þríréttuð mál-
tíð. Arna Þorsteins mun síðan
syngja nokkur lög og frumflutt
verður lagið „Hún“ sem samið er
myndafyrirsæta Vestmannaeyja
og Fegurðardrottning Eyjanna
1992 krýndar.
Dómnéfndin verður skipuð Ól-
afi Laufdal, sem verður formaður,
Esther Finnbogadóttur, Bryndísi
Ólafsdóttur, Ernu Jóhannesdóttur
og Arnfinni Friðrikssyni.
Heiðar Jónsson snyrtir verður
kynnir kvöldsins.
Fegurðardrottning Vestmanna-
eyja hlýtur margvísleg verðlaun.
Utanlandsferð með Flugleiðum,
fataúttekt, skó, máltíð á Holiday
Inn, skartgripi, penna, íþróttavör-
ur og margt fleira. Grímur.
Rússnesk-íslenska verslunarfélagið hf. stofnað:
Ætlunin að greiða fyrir við-
skiptum og veita upplýsingar
Jón Guðjónsson
Jón Guðjóns-
son fyrrver-
andi skip-
stjóri látinn
JÓN Guðjónsson fyrrverandi skip-
stjóri og útgerðarmaður lést á
Vífilsstaðaspítala 25. febrúar síð-
astliðinn á áttugasta aldursári.
Jón fæddist 15. september 1912
á Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, son-
ur Guðjóns Péturs Jónssonar sjó-
manns og Sólveigar Þorleifsdóttur.
Hann fór fyrst til sjós á 12. aldurs-
ári. Hann tók próf í vélstjórn og síð-
ar öðlaðist hann skipstjórnarréttindi
frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík
og stofnaði útgerðarfélagið Stíganda
hf. á Ólafsfirði 1948. Hann rak það
til ársins 1967. Hann lét smíða bát-
ana Stíganda ÓF og Gunnólf ÓF og
var lengst af skipstjóri á Stíganda.
Jón bjó á Óiafsfirði árin 1963 til
1984, er hann fluttist til Reykjavík-
ur. Eiginkona hans var Bára Arn-
grímsdóttir, sem lést áríð 1990. Jón
verður .jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju á þriðjudag klukkan 15.
*
Fyrrverandi yfirmaður APN á Is-
landi stj órnarformaður félagsins
STOFNAÐ hefur verið hlutafélag undir nafninu Rússnesk-íslenska
verslunarfélagið hf. sem er ætlað greiða fyrir viðskiptum við
Rússland og veita upplýsingar um viðskiptastofnanir og fyrirtæki
í lýðveldinu. Stofnendur félagsins eru Vladímír Verbenko, fyrrver-
andi yfirmaður Novosti fréttastofunnar á íslandi (APN), auk nokk-
urra einstaklinga hérlendis. Verbenko er stjórnarformaður félags-
ins en Sverrir Orn Sigurjónsson viðskiptafræðingur framkvæmda-
stjóri. Verbenko hefur að eigin sögn fengið bæði dvalarleyfi og
atvinnuleyfi á Islandi til að sinna störfum sínum fyrir félagið en
hann þurfti að fá endurnýjað landvistarleyfi þegar fréttastofan
var lögð niður í byrjun ársins.
Að sögn Verbenkos standa von-
ir til að félaginu muni takast að
færa út kvíamar í framtíðinni og
koma á viðskiptatengslum við
fleiri ríki samveldisins. „Ég get
fullyrt á grunvelli fimm ára
reynslu minnar af alþjóðlegri frétt-
amennsku að fyrir þá aðila sem
hafa nægilegt hugrekki og við-
skiptavit og eru skjótir til eru
tækifærin til viðskipta við þessi
lönd mjög mikil. Við munum gera
okkar besta til að greiða fyrir
því,“ sagði hann. •
Sverrir sagði að félagið væri
stofnað með það í huga að stuðla
að viðskiptum við Rússland. Hann
segist sjálfur hafa átt lítilsháttar
viðskipti við Rússland en hafi fljót-
lega rekið sig á hindranir vegna
þess hve viðskiptavenjur og stjórn-
kerfi landsins væri ólíkt því sem
íslendingar þekktu. Því hefði verið
valinn sá kostur að fá Verbenko
til samstarfs en hann hefði mikla
þekkingu á viðskiptavenjum og
stjómkerfi Rússlands. Sverrir
sagði að félagið væri komið vel á
veg með nokkur verkefni.
Verbenko sagði að þrátt fyrir
viðskiptasamning íslands og Rúss-
iands lægi framtíðin í beinum við-
skiptum á milli fyrirtækja og
stofnana innan landanna. Sagði
hann að félagið ætti ekki aðeins
að sinna milligöngu um viðskipti
heldur veita upplýsingar á mörg-
um sviðum varðandi markaðs-
Vladímír Verbenko og Sverrir Örn Sigurjónsson.
Morgunblaðið/RAX
færslu, menningarsamskipti og
fleira. „Mín hugmynd er að koma
á fót félagi um norður- austur-
samskipti sem tækju til fleiri landa
en Rússlands og Islands,“ sagði
hann. Kvaðst hann hafa varið
nokkrum vikum í Danmörku þar
sem hann hefði komist að raun
um að frammámenn í viðskiptalíf-
inu teldu skorta hlutlausar upplýs-
ingar um Rússland.
Sverrir sagði að félaginu væri
fyrst í stað einkum ætlað að hafa
milligöngu um viðskipti við Rúss-
land og væri byggt upp með það
í huga að ná að selja vörur til og
frá landinu.
Hann sagði að félaginu stæði
til boða að hefja samstarf við stóra
viðskiptaaðila í Rússlandi og væru
þau mál í athugun. Þá væri í undir-
búningi að hefja kynningu á þjón-
ustu félagsins meðal íslenskra fyr-
irtækja.
Stofnhlutafé félagsins er 600
þúsund kr. og hefur það opnað
skrifstofu í Ármúla 1.