Morgunblaðið - 29.02.1992, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
lllwgtinHbifrffe
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Uppgjör í Suður-
Afríku
Botndýralíf í íslenskri efnahagslögsögu:
Sex ára rannsóknarve
hleypt af stokkunum í
Blaðamannafundur í umhverfismálaráðuneytinu. Lengst til hægri er E
en til vinstri dr,. Arne Nurrevang verkefnastjóri BIOFAR í Færeyjum.
Forseti Suður-Afríku, F. W. de
Klerk, hefur afráðið að boða
til þjóðaratkvæðagreiðslu meðal
hvítra íbúa landsins um umbætur
þær sem ríkisstjórn hans hefur
beitt sér fyrir á undanförnum
misserum. I atkvæðagreiðslunni,
sem er eins konar pólitískt neyðar-
úrræði forsetans og flokks hans,
munu hvítir íbúar Suður-Afríku
þurfa að taka afstöðu til afnáms
kynþáttaaðskilnaðarstefnunnar
og þar mun jafnframt koma fram,
hvort hvítir eru tilbúnir til að deila
völdunum með blökkumönnum í
landinu. Þjóðaratkvæðagreiðslan
mun því skipta sköpum í Suður-
Afríku; annaðhvort fær de Klerk
umboð þjóðarinnar 'til að halda
áfram þeirri umbótastefnu sem
hann hefur mótað eða við blasir
að Suður-Afríka mun enn á ný
einangrast á alþjóðavettvangi.
Verði kynþáttaaðskilnaðarlögin
innleidd á ný má fullyrða að við-
brögð blökkumanna í landinu og
heimsbyggðarinnar allrar verða
mjög hörð.
Atburðarásin hefur verið hröð
í Suður-Afríku frá því að forseti
landsins kynnti fimm ára um-
bótaáætlun í júnímánuði 1989.
Með markvissum skrefum hefur
löggjöf sú sem kvað á um aðskiln-
að kynþátta verið afnumin og
hefur þessi viðleitni F. W. de
Klerk notið stuðnings á Vestur-
löndum. Einangrun Suður-Afríku
hefur að mestu verið rofin, ekki
síst eftir að Nelson Mandela, leið-
toga Afríska þjóðarráðsins (ANC),
var sleppt úr fangelsi í febrúar-
mánuði 1990. Þótti sá atburður
táknrænn fyrir þau umskipti sem
í vændum væru í Suður-Afríku.
Blökkumönnum, hefur hins vegar
ekki tekist að binda enda á inn-
byrðis átök fylkinga og ættbálka
og hefur það orðið til þess að
grafa undan trú margra á því að
unnt sé að leysa vanda lands-
manna með friðsamlegum hætti.
Að undanförnu hafa hins vegar
komið fram vísbendingar um að
stuðningur við umbótastefnu for-
setans fari dvínandi. Mótmæli
hvítra Suður-Afríkubúa hafa
gerst stöðugt háværari, ekki síst
eftir að hafnar voru viðræður við
fulltrúa samtaka blökkumanna
um nýja stjórnarskrá, sem grund-
völluð verður á valddreifíngu og
jafnrétti kynþátta. í síðustu viku
beið flokkur forsetans, Þjóðar-
flokkurinn, hraklegan ósigur fyrir
flokki íhaldsmanna í kosningum í
einu af höfuðvígjum sínum. For-
setinn hafði lýst yfir því að úrslit
kosninganna myndu gefa glögga
vísbendingu um stuðning hvítra
við umbótastefnu hans. Er niður-
staðan lá fyrir kunngerði de Klerk
að hann hefði afráðið að boða til
þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram
fer 17. mars. Lét forsetinn þess
og getið að hann myndi segja af
sér höfnuðu kjósendur stefnu rík-
isstjórnarinnar. Viðbrögð blökku-
manna við tíðindum þessum voru
neikvæð. Sögðu leiðtogar þeirra
að' þjóðaratkvæðagreiðsla meðal
hvítra íbúa Suður-Afríku væri til
marks um að kynþáttaaðskilnað-
arstefnan væri enn við lýði.
F. W. de Klerk hefur verið líkt
við Míkhaíl S. Gorbatsjov, fyrrum
forseta Sovétríkjanna, og vissu-
lega á sá samanburður við rök
að styðjast að ýmsu leyti. Líkt og
Gorbatsjov forðum hefur de Klerk
reynt að tryggja að umskipti þau
sem nauðsynleg eru fari fram með
friðsamlegum hætti. Líkt og Gorb-
atsjov stóð de Klerk frammi fyrir
þeirri staðreynd að kynþáttaað-
skilnaðarstefnan var Iíkt og sósíal-
isminn gjaldþrota. Og eins og
Gorbatsjov kom hann fram á sjón-
arsviðið þegar grundvallarbreyt-
ingar voru óumflýjanlegar. For-
seti Suður-Afríku hefur á hinn
bóginn ekki reynt að veija ýmsar
grundvallarkennisetningar kyn-
þáttastefnunnar ólíkt því sem
Gorbatsjov gerði er hann hóf að
veija sósíalismann og Kommún-
istaflokk Sovétríkjanna eftir að
valdarán harðlínumanna fór út um
þúfur í Moskvu í fyrra. Forseti
Suður-Afríku skynjaði kall tímans
en það gerði Míkhaíl S. Gorbatsjov
ekki.
Kynþáttastefnan styðst við
gjaldþrota hugmyndafræði og
hefur réttilega verið fordæmd í
ríkjum hins siðmenntaða heims.
•Hún á enga framtíð fyrir sér,
vandi Suður-Afríku verður hvorki
leystur með útskúfun tiltekinna
þjóðfélagshópa né í krafti vald-
beitingar. Bíði de Klerk ósigur í
þjóðaratkvæðagreiðslunni blasir
allsheijar upplausn við í Suður-
Afríku. Því hefur verið spáð að
borgarastyijöld muni blossa upp
í landinu og engin ástæða er til
að efast um réttmæti fullyrðinga
í þá veru. Því verður tæpast trúað
að meirihluti hvítra Suður-Afr-
íkubúa vilji snúa þróuninni við
eftir að hafa fengið að kynnast
útskúfun og fordæmingu á al-
þjóðavettvangi.
Þótt de Klerk fái umboð til að
halda áfram umbótastefnu sinni
má telja öruggt að andstæðingar
hans leggi ekki árar í bát. Klofn-
ingur í röðum hvítra kann því enn
að magnast. Því er mikilvægt að
ráðamenn á Vesturlöndum sýni
stuðning sinn við umbótastefnu
forsetans með enn ótvíræðari
hætti en hingað til, verði stefna
hans ofan á í þjóðaratkvæða-
greiðslunni í næsta mánuði. Sigri
andstæðingar forsetans og hygg-
ist íhaldsmenn innleiða kynþátta-
aðskilnað á ný ber að bregðast
við því með sama hætti og áður
þannig að ráðamenn sjái fram á
algjöra einangrun stjórnvalda í
Suður-Afríku.
EINNI viðamestu rannsókn á
botndýralífi í heiminum verður
hleypt af stokkunum með komíu
norska rannsóknaskipsins Há-
kon Mosby til Islands í júlímán-
uði á þessu ári. Háskólinn í Berg-
en lánar Islendingum skipið 14
daga á ári á meðan á 4 ára sýna-
tökum í efnahagslögsögu lands-
ins stendur. Jörundur Svavars-
son, dósent í Líffræðistofnun
Háskólans, segir að lán á skipinu
megi meta sem 3,5 milljóna
króna árlegan fjárstuðning.
Stofnanir og aðrir aðilar er
tengjast verkefninu hafa þegar
tryggt megnið af 31 millj., sem
þarf til rannsókna fyrsta árið,
en reiknað er með að um 23
milljónir þurfi á ári eftir það.
Flokkunarstöð verður sett á lag-
girnar í Sandgerði í tengslum
við rannsóknina. Þar er gert ráð
fyrir að 4-8 ófaglærðir starfs-
menn vinnu við grófflokkun sýna
í 5 ár. Eftir það taka innlendir
og erlendir sérfræðingar við sýn-
unum. Gert er ráð fyrir að rann-
sóknarverkefnið standi í 6 ár.
Stefnt er að því að það verði
alþjóðlegt.
Eiður Guðnasson, umhverfisráð-
herra, kynnti rannsóknarverkefnið
á blaðamannafundi á föstudag og
sagði að markmið þess væri að
rannsaka hvaða botndýrategundir
lifðu innan íslenskrar efnahagslög-
sögu, skrá útbreiðslu þeirra, magn
og tengsl við aðrar lífverur sjávar.
Slíkar upplýsingar sköpuðu nauð-
synlegan gagnagrunn tii að kanna
ætisskilyrði fískistofna, meta áhrif
mismunandi veiðarfæra á botndýr-
eftir Jón Baldvin
Hannibalsson
„Honum tókst að setja KRON á
hausinn og virðist vilja að sjávarút-
vegurinn á íslandi fari sömu leið.“
(Steingrímur Hermannsson, DV 22.
feb. 1992.)
„Aðstoðarmaður Jóns, Þröstur
Ólafsson, rak hér verslunarkeðju fyr-
ir nokkrum árum undir kjörorðinu
„Mikið fyrir lítið“. Sú verslunarkeðja
fór á hausinn og varð gjaldþrota“.
(Ólafur R. Grímsson, í umræðuþætti
ríkissjónvarpsins Á krossgötum, 22.
okt. 1991.)
„Hann gerði KRON gjaldþrota á fá-
einum mánuðum og drap félagið end-
anlega. Einnig tókst honum í fram-
hjáhlaupi að vinna Samvinnuhreyf-
ingunni slíkt tjón, að vandséð er,
hvenær hún réttir við eða hvort hún
nær nokkurn tímann fyrri styrk.“
(Páll Pétursson, Mbl. 26. feb. sl.)
„Hann heimtar gjaldþrot og stöðvun
fjölda fyrirtækja. Hann mun, ef hans
ráðgjöf verður þegin af ríkisstjórn-
inni, svipta fjölda fólks víða um land
atvinnunni, leggja byggðarlög þess í
rúst og gera eignir þess verðlausar."
(Páll Pétursson, Mbl. 26. feb. sl.)
Þau tíðkast nú mjög hin breiðu
spjótin í áróðursstyijöld stjórnarand-
stöðunnar. Tilvitnanirnar hér að ofan
eru úr ræðu og riti leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar, Steingríms Hermanns-
sonar, fyrrverandi forsætisráðherra
og Ólafs Ragnars. Grímssonar, fyrr-
verandi fjármálaráðherra. Páll Pét-
ursson, óðalsbóndi að Höllustöðum
og þingflokksformaður Framsóknar,
ryðst fram fast á hæla þeim í Morgun-
blaðið og mylur mannorðsníðið úr
lófum leiðtoganna. Það er táknrænt,
að hér höfum við sýnishorn af mál-
alíf við landið, fylgjast með breyt-
ingum á botnlífi í kjölfar breytinga
á ástandi sjávar, vakta og vernda
hafsvæði.
Sérstaða svæðisins
Fulltrúar úr verkefnisstjórn voru
staddir á fundinum. Meðal þeirra
var Jörundur Svavarsson, dósent í
Líffræðistofnun, og vék hann að
sérstöðu hafssvæðisins við Island í
máli sínu. Kom þar fram að tölu-
flutningi þriggja framsóknarmanna
úr tveimur flokkum.
Hatursáróður
Fyrir nokkrum dögum birti Morg-
unblaðið leiðara þar sem það spurði
sjálft sig og lesendur sína furðu lost-
ið, hvað væri á seyði í íslenskri stjórn-
málaumræðu. Tilefnin voru býsna
mörg. Eitt voru vítaverð ummæli for-
manns Alþýðubandalagsins í ræðustól
á Alþingi um meint „skítlegt eðli“
forsætisráðherra. Annað tilefni voru
þau ummæli húsfreyju og frambjóð-
anda 1 Skagafirði, á bændafundi um
GATT, að besta frétt ársins að henn-
ar mati væri að búið væri að hóta
„þessum hrægammi (þ.e. utanríkis-
ráðherra) lífláti“. Sú versta, að ekki
hefur verið staðið við hótunina. Eftir
höfðinu dansa limirnir.
Þegar hugsanlegt GATT-sam-
komulag var til kynningar voru málal-
iðar landbúnaðarkerfisins gerðir út
um allar sveitir til að ala á ótta bænda
og búandliðs um afkomu, atvinnu og
eignir. Það átti „að leggja íslenskan
landbúnað í rúst“, „bændur myndu
flosna upp í hrönnum" og „heilu
byggðarlögin legðust af“. Þetta var
ekki einasta hræðsluáróður heldur
hatursáróður, eins og fram kom með
eftirminnilegum hætti á kynningar-
fundum með bændum. Og þegar rök-
in þraut var hamrað á því að menn
ættu ekki að trúa staðreyndum; upp-
lýsingar frá utanríkisráðuneytinu
væru rangar, af því að Magnús Gunn-
arsson hefði sagt það. Enda væri
utanríkisráðherra hið versta fól.
Þegar að því kemur að ræða flókna
viðskiptasamninga við erlend ríki,
kyijar stjórnarandstaðan tilbrigðin
við sama gamla stefið. „Landsala og
landráð; framsal á fullveldi, förgun á
sjálfstæði,“ o.s.frv.
vert söfnunarátak þyrfti að fram-
kvæma til þess að gera sér heildar-
mynd af rannsóknarsvæðinu vegna
gífurlegrar stærðar þess (758 þús.
ferkílómetrar). Staðsetningin er að
því leyti merkileg að við landið
mætast kaldir hafsstraumar úr
norðri og heitari úr suðuri og leiðir
þessi sérstaða til ólíks dýralífs við
norðan og sunnanvert landið.
Jörundur sagði að stærð hafs-
svæðisins þýddi að taka þyrfti mörg
Óhjákvæmilegar sparnaðaraðgerð-
ir og hagræðing í ríkisrekstri fá svip-
aða umfjöllun: Það er verið að „rústa
velferðarkerfið", „eyðileggja skóla-
kerfið", „níðast á sjúkum, öldruðum,
öryrkjum" og öðrum þeim, sem hjálp-
ar eru þurfi.
Ærumeiðingar
Og nú er að því komið að leiðtogar
stjórnarandstöðunnar láti ljós sitt
skína um nýuppgötvaðan „vanda
sjávarútvegsins“. Og það væri synd
að segja að þessi fríða mær bregði
vana sínum: Þegar annar af tveimur
formönnum sjávarútvegsnefndar
stjómarflokkanna færir rök fyrir
ályktunum sínum af nýbirtum töíum
um sk'uldastöðu sjávarútvegsins og
telur tíma smáskammtalækninga lið-
inn, þá fær slíkur maður heldur betur
að heyra það óþvegið frá leiðtogum
stjórnarandstöðunnar.
Hér duga engin rök, svo mikið virð-
ist liggja við. Það verður að svipta
manninn ærunni í eitt skipti fyrir öll.
Og mannorðsníð er samræmt og end-
urtekið í síbylju: Hann gerði KRON
gjaldþrota, hann kom Samvinnu-
hreyfingunni á kné, nú heimtar hann
gjaldþrot og lokun bágstaddra fyrir-
tækja í sjávarútvegi, hann mun svipta
fjölda fólks víða um land atvinnunni,
leggja byggðarlög þess í rúst og gera
eignir þess verðlausar. Minna má
ekki gagn gera.
Er þessum mönnum ekki lengur
sjálfrátt? Hafa þeir virkilega svo
vondan málstað að veija að þeim sé
fyrirmunað að finna málsefni og rök
fyrir máli sínu, að siðaðra manna
hætti?
Hvers vegna er þessum mönnum
svo mjög í mun að ræna Þröst Ólafs-
son mannorðinu? Það á sér sínar skýr-
ingar. KRON var í upphafi níunda
Gegn rógi og illn