Morgunblaðið - 29.02.1992, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRUAR 1992
ÞÚ FÉKKST ARF
eftirRósmund G.
Ingvarsson
Fyrir nokkru barst í póstinum
eftirfarandi ábending. „Þú fékkst
arf. Stóran arf. Ómetanlegan arf.
Við fengum öll þennan arf. ísland
höfum við erft, landið, sögu þess og
menningu. Við fögnum því að eiga
þetta hreina og fallega land. Við
státum af því að vera söguþjóðin og
vegna þess hve menning okkar er
þróttmikil erum við sjálfstæð þjóð
og ein sú ríkasta í heimi. Við erum
lánsöm.“
Allt er þetta rétt. Eða er ekki
svo? Stundum er ekki svo að sjá —
miðað við hvemig við högum okkur
og hvernig við tölum.
Vissulega erum við ekki öll eins,
en of mörg okkar stuðla að gerðum,
sem illa sæma siðuðu óg menntuðu
fólki. — Gerðum, sem illa sæmir lán-
samri þjóð er býr við-allsnægtir. Svo
hættir mönnum til að tala aðallega
og yfirleitt um að þeir, eða þeirra
stétt hafi ekki nógu mikil laun, —
fái ekki nógu stóran skerf af þjóðar-
kökunni. — Jafnvel hálaunahópar
kyrja þann söng. — En, að menn
séu ánægðir yfir að hafa fengið
þennan dýrmæta arf — og búa við
ein bestu lífskjör sem þekkjast, —
það heyrist sjaldan.
Við eium lítil þjóð í stóra landi.
Miðað við byggileg lönd mun vera
rýmra um okkur en flestar aðrar
þjóðir. Svo eigum við mikil og góð
fiskimið. Miðin við landið era gjöful
og nær ómenguð og í því felast
mjög mikil auðæfi.
Varðveitum hinn dýrmæta arf
En hvernig föram við með landið
okkar? Eram við að sofna á verðinum
um sjálfstæði þjóðarinnar og um
menningu hennar?
Spakir menn hafa sagt að meiri
vandi sé að gæta fengins fjár en að
afla þess. Þetta á við um fleira en
peninga.' Það á t.d. við um sjálf-
stæði þjóðarinnar, en því virðast
margir vera búnir að gleyma — hafi
þeir þá nokkurn tíma skilið það.
Þeir menn vinna nú að því að koma
íslendingum í Efnahagsbandalag
Evrópu. Þeir virðast vera reiðubúnir
að fórna sjálfstæði þjóðarinnar að
veralegu leyti, — fyrir þrjátíu silfur-
peninga í formi tollafrelsis fyrir unn-
inn frsk. Fórna miklu fyrir lítið. Og
það þótt þetta skipti okkur litlu
máli, því þeim fríðindum varðandi
fiskinn sem aðild að EB býður upp
á, getum við náð án aðildar og án
EES-samninga. Fiskurinn okkar er
eftirsótt gæðavara, enda eru ann-
arra Evrópuþjóðafiskimið víðast
annaðhvort ofveidd eða menguð
nema hvort tveggja sé.
Nú er verið að fjalla um EES-
samning og kostir hans básúnaðir
fram úr hófí'— einkum niðurfelling
tolla. En svo gæti farið að niðurfell-
ing tolla komi íslendingum að litlu
eða engu gagni því EB-þjóðirnar
hafa næga möguleika til að vemda
sína framleiðslu og sennilega gera
það.
Sá hópur, sem vinnur að inngöngu
íslands í EB er líklega stærri en
flestir ætla. Tillaga um að við
göngum í EB mun hafa komið fram
á þingi ungliða stærsta stjórnmála-
flokksins og er sagt að munað hafi
aðeins örfáum atkvæðum að hún
næði meirihlutasamþykkt. Hvað er
eiginlega að gerast meðal íslensks
æskulýðs — sem þó á að vera upp-
fræddur eins og best gerist meðai
þjóða? Augljóslega er ekki seinna
vænna að snúast til vamar ef bjarga
á lýðveldinu frá tortímingu. Feli
EES-samningurinn í sér slíka tor-
tímingarhættu þó ekki sé nema í
einu atriði, ber skilyrðislaust að
hafna honum.
Skuldin við landið
En hér var ekki ætlunin að fjöl-
yrða um sjálfstæðismál þjóðar vorr-
ar, heldur vildi ég fjalla um: — hvern-
ig við umgöngumst landið okkar.
Gróðurþekja landsins okkar er
viðkvæm enda jarðvegur víða send-
inn og viðkvæmur fyrir uppblæstri.
Þó er ljóst að í fortíð hefur mikill
hluti landsins verið vafinn gróðri. Á
síðari tímum hefur gróðurinn horfið
af stóram svæðum og gjarnan þykkt
moldarlag með. Að einhverju leyti
má rekja þetta til búsetu manna og
tala því gjarnan um skuld þjóðarinn-
ar við landið og að þá skuld þurfi
að greiða með því að græða upp
örfoka land og sanda.
Þótt forfeður okkar eigi hér
eflaust einhvern hlut að máli þá
skyldu menn varast að dæma þá,
enda má mikið vera ef stórfelldasta
gróðureyðingin á sér ekki stað ein-
mitt á okkar tímum. Vilja menn
horfast í augu við staðreyndir?
Mér virðist að menn komi ekki
beint fram að vandamálunum. Það
er að vísu allmiklum peningum varið
til landgræðslu og skógræktar — það
ber að virða. En mér sýnist að við
gefum bara með annarri hendinni
og tökum eins mikið eða meira með
hinni hendinni. Menn tala fjálglega
á hátíðlegum stundum um nauðsyn
og skyldu okkar að heíja stórfelldar
aðgerðir til að stöðva gróðureyðing-
una og klæða hin uppblásnu svæði
gróðurþekju á ný. En á sama tíma
eru þeir að eyða gróðurlendi — og
það í stórum stíl ogjafnvel algerlega
að óþörfu.
Fórn á altari græðginnar
Lítum á nokkur atriði:
1. Ef nefna skal dæmi um illa
meðferð lands nú á tímum, verður
ekki hjá því komist að tíunda kaffær-
ingu heiðalandanna sl. sumar vegna
Blönduvirkjunar, enda er líklega
stórfelldasta gróðureyðing af
mannavöldum fólgin þar. Málið er
máski viðkvæmt sumum mönnum,
en þetta snertir allan almenning.
Fyrir u.þ.b. áratug risu hátt deilur
út af ráðagerðum um virkjun
Blöndu, einkum miðlunarlónunum,
— og hefur enn eigi gróið um heilt
með mönnum eftir þá orrustu. Alltaf
er að koma betur og betur í Ijós að
landverndarmenn höfu rétt fyrir sér
í flestum eða öllum atriðum, en þrátt
fyrif það var valin sú aðferð sem
þeir börðust á móti og mest land-
spjöll fylgja.
Eftir margar frestanir á fram-
kvæmdum er nú svo komið að verið
er að ljúka við virkjunina og setja
hana í gang um þessar mundir.
Virkjanir, sem fyrir vora, framleiða
meira en nóg rafmagn fyrir þann
markað sem við höfum. Orkan frá
Blöndu er öll umfram. Meðan svo
stendur verður Blönduvirkjun ómagi
á þjóðinni og mun ráðgert og ákveð-
ið að vegna þess hækki raforkuverð
til neytenda um 10-15% (í áföng-
Rósmundur G. Ingvarsson
„Svona vinnubrögð
ganga ekki. Þau valda
grisjun og eyðingu
byggða en eru, eins og
fleira, jafnvel neikvæð
gagnvart landinu og
vistkerfinu.“
um).- Þótt ný stóriðja komi til sög-
unnar (hugsanlega) þá notar hún
ekki teljandi rafmagn fyrr en hún
færi í gang, eftir mörg ár. Svo virð-
ist vera ætlan iðnaðarráðherrans að
semja við álfurstana um svo lágt
verð fyrir orkuna, að íslenskir neyt-
endur verði að greiða hana stórlega
niður (semja um 10 mills, en þyrftu
1S).
r
a
morgun
Æskulýðsdagur
þjóðkirkjunnar
ileðður
ÆSKULÝÐSSAMVERA í Breið-
holtskirkju: Samvera í Breiðholts-
kirkju kl. 20.30. Unglingar úr æsku-
lýðsstarfi kirkjunnar og fleiri sýna
leikritið Jafnvel englarnir þorðu ekki
þangað. Ten-Sing hópur Breið-
holtskirkju syngur og Ragnheiður
Sverrisdóttir formaður ÆSKR flytur
hugvekju. Kaffisala eftir samveru
til styrktar æskulýðsstarfi kirkjunn-
ar. Allir velkomnir. ÆSKR.
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
messa kl. 11. Bryndís Malla Elídótt-
ir prédikar. Börn úr 10-12 ára starfi
Áskirkju syngja. Árni Bergur Sigur-
þjömsson. Miðvikudag. Föstu-
messa kl. 20.30. Fimmtudag. Bibl-
íulestur í safnaðarheimilinu kl.
20.30. Guðspjall og önnur rit Jó-
hannesar kynnt. Allir velkomnir.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐARKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Arna, Gunnar og Pálmi.
Æskulýðsguðþjónusta kl. 14. Fjöl-
breytt tónlist. Unglingar aðstoða.
Ávarp flytur Gunnlaugur Jónsson
nemi. Fermingarbörn og foreldrar
þeirra hvött til þátttöku. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Æskulýðsguðs-
þjónusta kl. 11. Unglingar og börn
úr æskulýðsstarfi Dómkirkjunnar
flytja tónlist, söngva, helgileiki og
bænir. Einsöngur Hrönn Hrafns-
dóttir. Umsjón Bára Elíasdóttir og
Sigurður Arnarson. Organisti Mar-
teinri H. Friðriksson. Sr. Jakob Á.
Hjálmarsson. Bænaguðsþjónusta
kl. 17. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Miövikudag kl. 12.10. Hádegisbæn-
ir í kirkjunni. Léttur málsverður á
kirkjuloftinu á eftir og kl. 13.30-
16.30. Samvera aldraðra í safnað-
arheimilinu. Tekið í spil. Kaffiborð,
söngur og helgistund.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Magnús Björnsson.
Miðvikudag: Föstuguðsþjónusta kl.
18:30. María Ágústsdóttir guð-
fræðinemi.
GRENSÁSKIRKJA Fjölskyldumessa
kl. 11. Barnakór Grensáskirkju
syngur, stjórnandi Margrét Pálma-
dóttir. Flautuleikarar: Hanna María
Pálmadóttir og Halldóra Ingimars-
dóttir. Mikill söngur. Lukkulæri-
sveinninn, þrefaldur pottur, afmæl-
isbörn. Æskulýðsguðsþjónusta kl.
14. Barnakórinn ásamt flautuleikur-
um flytja tvö verk. Prédikun verður
helgileikur, sem fermingarbörn
sýna. Þróttmikill og glaðvær söng-
ur. Organisti Árni Arinbjarnar. Sr.
Gylfi Jónsson. Þriðjudag: Kyrrðar-
stund kl. 12.00. Orgelleikur í 10
mínútur. Fyrirbænir, altarisganga
og léttur hádegisverður og kl. 14.00
biblíulestur og kirkjukaffi. Sr. Halld-
ór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Samræður
um trú og lífsskoðanir kl. 10. Sið-
fræði. Halla Jónsdóttir fjallar um
samskipti og tengsl. Barnasam-
koma og messa kl. 11. Altaris-
ganga. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson
Guðspjall dagsins:
Matt. 3:
Skírn Krists.
þjónar fyrir altari. Sr. Jón Ragnars-
son predikar. Kyrrðarstund kl. 17.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum. Miðvikudag.
Föstumessa kl.20. Krossinn og
þjáningar mannanna. Sr. Sigfinnur
Þorleifsson prédikar.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. Barna-
og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Barnakór og æskulýðsfélagar taka
þátt í guðsþjónustunni. Kirkjubíllinn
fer frá Suðurhlíðum um Hlíðarnar
fyrir barnaguðsþjónustuna. Há-
messa kl. 14.00. Sr. Arngrímur
Jónsson. Mánudag: biblíulestur kl.
21.00. Miðvlkudag. Kvöld- og fyrir-
bænir kl. 18.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa í
kapellunni kl. 13. Organisti Birgir
Ás Guðmundsson. Sr. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna kl. 11. Söngur, sögur, fræðsla.
Umsjón sr. Flóki Kristinsson. Guðs-
þjónusta kl. 14. Æskulýðsdagur
þjóðkirkjunnar. Börn úr æskulýðs-
starfinu flytja helgileik. Fermingar-
börn aðstoða,. Nýstofnaður kór
Kórskóla Langholtskirkju kemur
fram í fyrsta sinn. Kór Langholts-
kirkju (hópur V) syngur. Organisti
Jón Stefánsson. Prestur sr. Flóki
Kristinsson. Kaffi að guðsþjónustu
lokinni. Aftansöngur virka daga kl.
18 í umsjá sr. Flóka Kristinssonar.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar.
Ingibjartur Jónsson menntaskóla-
nemi prédikar. Bjöllusveit Laugar-
neskirkju leikur. Sr. Jón D. Hró-
bjartsson. Organisti Ronald V.
Turner. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Þórarins Björnssonar. Æsku-
lýðsfélag Laugarneskirkju hefur á
boðstólum kaffi og vöfflur eftir
guðsþjónustuna.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Guðsþjónusta kl
14. Æskulýðsdagurinn. Unglingar
flytja lestra, bænir og söngva. Sig-
ríður Óladóttir prédikar. Guðmund-
ur Óskar Ólafsson. Miðvikudag.
Föstuguðsþjónusta kl. 20.00. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Æsku-
lýðsguðsþjónusta kl. 11. Yngri kór-
inn syngur undir stjórn Sesselju
Guðmundsdóttur. Börn úr barna-
starfinu, I I l-starfinu og unglingar
úr æskulýðsfélaginu koma fram.
Nemendur úr Biblíuskólanum á Ey-
jólfsstöðum sjá um prédikun og
sýna drama. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Miðvikudag.
Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur hádegis-
verður í safnaðarheimilinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Æskulýðsguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson
prédikar. Skólakór Árbæjarskóla
syngur undir stjórn Áslaugar Berg-
steinsdóttur. Unglingar úr Æsku-
lýðsfélagi Árbæjarkirkju flytja bænir
og lestra. Æskulýðs- og barna-
söngvar. Sveinn Bjarki Tómasson
leikur undir á gítar. Sóknarnefndin.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14. Barnakórinn syngur.
Fermingarbörn aðstoða. Organisti
Þorvaldur Björnsson. Að guðsþjón-
ustu lokinni verður fundur með for-
eldrum fermingarbarna. Kl. 20.30
verður samkoma Æskulýðssam-
bands Reykjavíkurprófastsdæ-
manna. Unglingar flytja leikritið:
„Jafnvel englarnir þorðu ekki þang-
að“, undir stjórn höfundarins Guð-
rúnar Ásmundsdóttur. Ten-Sing
hóþurinn flytur tónlistaratriði. Hug-
vekja. Á eftir verða til sölu veitingar
til styrktar æskulýðsstarfi kirkjunnar
í Reykjavíkurprófastsdæmum.
Bænaguðsþjónusta með altaris-
göngu þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli
Jónasson.
DIGRANESPREST AKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
Æskulýðsdagsins í Kópavogskirkju
kl. 14. Sigfús Ingvason guðfræðing-
ur prédikar. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Æsku-
lýðsguðsþjónusta kl. 11. Börn og
unglingar í starfi kirkjunnar taka
þátt í guðsþjónustunni. Sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Fyrirbænir
í kirkjunni mánudag kl. 18. Guðs-
þjónusta miðvikudag kl. 20.30.
Prestur sr. Hreinn Hjartarson.
Sönghópurinn „Án skilyrða" annast
tónlist. Prestarnir.
GRAFARVOGSSÓKN: Æskulýðs-
dagurinn. Barnamessa kl. 11 í Fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn. Valgerð-
ur, Katrín og Hans Þormar að-
stoða. Organisti Ingimar Pálsson.
Skólabíllinn fer frá Hamrahverfi kl.
10.30 og fer venjulega skólaleið.
Fjölskyldu- og æskulýðsguðsþjón-
usta kl. 14. Unglingar aðstoða.
Æskulýðssöngvar o.fl. Kirkjukórinn
syngur. Organisti Sigurbjörg
Helgadóttir. Vigfús Þór Árnason.
HJALLAPRESTAKALL: Messusal-
ur Hjallasóknar, Digranesskóla.
Æskulýðsguðsþjónusta kl. 11.
Fermingarbörn aðstoða. Organisti
Oddný Þorsteinsdóttir. Kristján
Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Æsku-
lýðsdagurinn 1. mars. Fjölskyldu-
guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl.
11. Kór Kópavogskirkju syngur og
einnig syngur Barnakór Kársnes-
skóla undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur. NemendurúrTónlistarskóla
Kópavogs leika í guðsþjónustunni
á blokkflautur, píanó og ásláttar-
hljóðfæri. Léttir söngvar. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar
í æskulýðsfélaginu lesa ritningar-
lestra. Organisti Kjartan Sigurjóns-
son. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Rvík: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Telma Kristín
Þrastardóttir leikur á blokkflautu.
Gestgjafi í söguhorni Kjartan Bjarg-
mundsson leikari. Kl. 14.00 guðs-
þjónusta. Miðvikudag morgunand-
akt kl. 7.30. Orgelleikari Pavel
Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugard.
messa kl. 14 og ensk messa kl. 20.
Alla aðra rúmhelga daga messa kl.
18.
MARÍUKIRKIA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Laugardag messa kl. 14,
fimmtudaga kl. 19.30 og aðra rúm-
helga daga messa kl. 18.30.
HVITASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður
Hafliði Kristinsson. Barnagæsla.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Biblíutímar
kl. 11, 14 og 17. Lofgerðarsam-
koma kl. 20. Rut og Peter Baronow-
sky, gestir frá Svíþjóð, tala. Major
Daníel Óskarsson stjórnar.
KFUM/KFUK: Almenn samkoma í
kristniboðssalnum Háaleitisbr. kl.