Morgunblaðið - 29.02.1992, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
ÚRSUT
Heimsbikarinn á skíðum
Stórsvig kvenna
Narvík, Noregi:
I Pemilla Wiberg (Svíþjóð).......1:54.55
2. Anita Wachter (Austurríki)......1:54.75
3. Blanca Ochoa (Spáni)............1:55.25
4. Carole Merle (Frakklandi)........1:5.48
5. Diann Roffe (Bandaríkjunum) ....1:55.90
6. Syivia Eder (Austurríki)........1:55.92
, 7. Katja Seizinger (Þýskalandi)...1:56.42
8. Ch. Guignard (Frakklandi)......1.56.49
9. Ingrid Sa!venmoser(Austurríki).l:56.73
10. Traudl Haecher (Þýskalandi)..1:56.80
11. Kristina Andersson (Svíþjóð).1:56.97
12. Christina Meier (Þýskalandi).1:57.07
13. Petra Kronberger (Austurríki)....1:57.08
14. Lara Magoni (Italíu).........1:57.78
15. Michaela Gerg (Þýskalandi)...1:57.80
16. Gabriela Zingre (Sviss)......1:58.90
17. Florence Masnada (Frakklandi)..1:59.03
1&. Petra Bernet (Sviss).........1:59.88
19. Heidi Zurbriggen (Sviss).....1:59.92
Staðan á toppnum:
1. Carole Merle (Frakklandi).........466
2. Vreni Schneid (Sviss).............391
3. Deborah Compagnoni (Ítalíu)........344
4. Diann Roffe (Bandaríkjunum).......321
5. Pernilla Wiberg (Svíþjóð)..........274
6. Eva Twardokens (Bandaríkjunum).... 229
7. Anita Wachter (Austurríki)........225
8. Ulrike Maier (Austurríki).........201
Staðan samaniagt í öllum greinum:
1. Petra Kronberger (Austurríki).....839
2. Caroie Merle (Frakklandi).........764
3. Vreni Schneider (Sviss)...........751
4. Sabine Ginther (Austurríki)........746
5. Katja Seizinger (Þýskaiandi).......665
6. Deborah Compagnoni (Ítalíu)........590
7. Pernilia Wiberg (Svíþjóð)..........589
8. AnitaWachter(Austurríki)...........509
Stökk í norræni tvíkeppni karla
""áH-hti, Finnlandi: Metrar stig
'ÍC. Sulzenbacher (Aust.).. (80.5, 80.0) 218.4
K. Ofner (Austurríki)...(81.0, 83.0) 218.0
Jari Mantila (Finnlandi)... (81.0,83.5) 217.5
Andrea Longo (ítaliu)...(82.0,85.5) 215.5
K. T. Apeiand (Nor.)....(77.0,80.0) 209.4
F. B. Lundberg (Noregi).. (81.0, 76.5) 206.3
G. Riedelsperger (Aust.)...(76.5,80.5) 204.3
T. Dufter (Þýskalandi)..(79.0,79.5) 202.1
■ 15 km gangan verður í dag.
NBA-deiidin
Leikir í fyrrinótt:
Charlotte - Phiiadelphia 76ers..136: 84
Detroit Pistons - Milwaukee Bucks .104: 97
New Jersey Nets - Portland ........98: 96
San Antonio Spurs - Golden State ...124:103
Seáttle SuperSonics - Utah Jazz.130:124
■Eftir framlengingu
Sacramento - New York Knicks....110:109
. .... ■Eftir framlengingu
NHL-deiidm
Leikir í fyrrinótt:
Boston Bruins - Toronto Maple Leafs..4:2
Hartford Whalers - Pittsburgh Penguins 8:4
Chicago - Detroit Red Wings..........4:2
St Louis Blues - Washington Capitals 7:3
Philadelphia Flyers - Calgary Flames.3:0
Los Angeies Kings - Quebec Nordiques... 4:2
SKIÐI / HEMSBIKARINN
Reuter
Pernilla Wiberg frá Svíþjóðsigraði í stórsvigi kvenna í Narvík í Noregi í gær.
Pemilla Wiberg
sigraði í Noregi
Sænska stúlkan Pernilla Wiberg
sigraði í stórsvigi kvenna í
Narvík í Noregi í gær, en keppnin
var liður í heimsbikarnum. Wiberg
var 20 sekúndubrotum á undan
Anitu Wachter frá Austurríki. „Ég
var ekki langt á eftir Pemillu svo
:ég er ánægð með annað sætið, en
:þetta var erfítt efst uppi, br'att og
hált,“ sagði Wachter og bætti við
að hún ætti ekki von á að verða á
meðal þriggja efstu í sviginu í dag.
„Ég kann best við mig í bröttum
brautum, en ekki svona flötum.“
Margar konur keyrðu út úr í
seinni umferð á bratta kaflanum
efst í brautinni, þar á meðal Ulrike
Maier frá Austurríki, sem var í
þriðja sæti eftir fyrri ferðina. Vreni
Schneider frá Sviss sleppti hliði og
féll niður í þriðja sætið í saman-
lögðu. Petra Kronberger frá Aust-
urríki varð í 13. sæti, en er enn efst
í samanlögðu og stefnir á að sigra
í heimsbikarnum þriðja árið í röð.
HEIMSLEIKAR
jr
slenskir fatlaðir íþróttamenn þeirra allra bestu.
hafa sýnt og sannað í mörg- Þrátt fyrir þetta ber IOC hag
um flokkum hinna ýmsu greina allra íþróttamanna fyrir bijósti
að þeir eru á meðal hinna bestu og hún leggur áherslu á að
og oft á tíðum betri en keppi- íþróttamenríJ)var og hvemig
nautar frá öðrum þjóðum. sem þeir eru, sáineinist í einni
Árangur á alþjóða
mótum undanfarin
ár segir sína sögu
og það er eftirtekt-
arvert að sundkonan
Sigrún Huld
Hrafnsdóttir, sem er
sjöfaldur heims-
meistari þroska-
heftra, var sögð
standa fremst allra
þroskaheftra íþróttamanna í ólympíufjölskyldu til að viðhalda
heiminum á síðasta ári. og efla einstaka einingu án allra
Fatlaðir íþróttamenn, sem hindrana. Þess vegna styrkir
vilja ná langt, leggja ekki síður IOC ýmiss alþjóða mót, þar sem
mikið á sig en aðrir íþróttamenn hugsjónir nefndarinnar eru í
og þess em jafnvel dæmi að heiðri hafðar, og heimilar móts-
þeir hafí skákað ófötluðum. í höldurum að nota nafn hreyfing-
því sambandi má nefna að arinnar í auglýsingaskini. En
Murray Halberg frá Nýja-Sjá- skýrt er tekið fram að aðeins
landi sigraði í 5.000 m hlaupi á er um eina Ólympíuleika að
Ólympíuleikunum í Róm 1960, ræða, Ólympíuleikana, sem IOC
en hann var með visinn vinstri hefur yfírstjórn með á fjögurra
handlegg eftir að hafa meiðst ára fresti. Eins er aðeins ein
lífshættulega í rugbyleik. ólympíunefnd hjá hverri þjóð
Alþjóða ólympíunefndin, IOC, innan IOC og hér á landi er það
gengst fyrir Ólympiuleikum Ólympiunefnd íslands.
fjórða hvert ár. Keppendur íþróttasamband fatlaðra á
verða að hafa náð lágmarksár- heiður skilinn fyrir öflugt starf,
angri í grein sinni til að öðlast en það má ekki og getur ekki
þátttökurétt, en lið vinna sér leyft sér að auglýsa undir nafni
sæti með því að ná ákveðnum ólympíunefndar fatlaðra að fatl-
árangri í forkeppni. Draumur aðir taki þátt í Ólympíuleikum
hvers íþróttamanns er að fá að fatlaðra. Óg fréttamönnum ber
taka þátt í Ólympíuleikum, en að fylgja því eftir að rétt sé
færri komast að en vilja. Ein- farið með. Umræddir leikar
kunnarorð nútíma leikanna voru (Paralympics) eru studdir af IOC
á þann veg að aðalatriðið væri og sjálfsagt er að styðja íslenska
ekki að sigra heldur vera með, íþróttamenn á heimsleika
en með aukinni íþróttaiðkun um fatlaðra, en Ólympíuleikar
heim allan hafa kröfurnar aukist fatlaðra og ólympíunefnd fatl-
og IOC hefur talað um að aðra eru rangnefni.
Ólympíuleikar framtíðarinnar Steinþór
verði fyrst og fremst keppni Guðbjartsson
Ólympíuleikar fatlaðra/
ólympíunefnd eru ekki til
SKIÐI
Ámi Grétar sigraði
ólympíumeistarann
í svigi og stórsvigi!
ÁRNI Grétar Árnason, Húsavík,
sló í gegn á fjórðu Andrésar-
Andar leikunum á skíðum, sem
fóru fram á Akureyri 16. til 18.
nhaars 1979. Árni Grétar keppti
í 12 ára flokki og sigraði bæði
í svigi og stórsvigi. Norski
strákurinn Finn Christian
Jagge varð að sætta sig við
annað sætið i báðum greinum,
en hann hefur verið í sviðsljós-
inu í heimsbikarnum í vetur og
kórónaði árangurinn með því
að verða ólympíumeistari í
svigi í Frakklandi á dögunum.
AAndrésar-Andar leikunum fór
Árni Grétar svigið á 88,06
sek., en Jagge varð annar á 88,67
^k. og Rúnar Már Jónatansson,
ísafírði, 92,15 sek. þriðji. 1 stórsvig-
inu fékk Ámi Grétar tímann 99,03,
en Jagge 102,57. í þriðja sæti hafn-
aði Atli Einarsson, ísafírði, á
103,14, en hann er landsliðsmaður
í knattspyrnu og varð Islandsmeist-
ari með Víkingi s.l. haust.
Árni Grétar er 25 ára rafvirki
og skíðaþjálfari á Húsavík, kvæntur
Björk Traustadóttur og eiga þau
eitt bam. Hann hætti að keppa á
skíðum fyrir sjö árum „vegna snjó-
leysis og mikils kostnaðar," eins og
hann sagði við Morgunblaðið, en
hefur fylgst vel með þeim bestu og
ekki síst Jagge.
„Jagge var lengi frá vegna
meiðsla, en hann kom sterkur til
leiks í fyrra og hefur staðið sig vel
í heimsbikarnum í vetur. Það var
mjög gaman að sjá hann taka gull-
ið í sviginu á Ólympíuleikunum.
Hugurinn reikaði þá nokkur ár aft-
ur í tímann og það var ánægjulegt
að rifja upp, þegar ég hafði betur
gegn honum í svigi og stórsvigi á
Andrésar-Andar leikunum í Hlíðar-
fjalli í mars 1979.“
Norðmaðurinn var eini erlendi
keppandinn á leikunum. Að sögn
Ivars Sigmundssonar í Andrésar-
Andar nefndinni bar það þannig til
að Jón Karl Sigurðsson, sem þá var
umdæmisstjóri Flugleiða í Noregi,
kom skipuleggjendum leikanna í
samband við skíðafélagið í Bærum
og var því boðið að senda einn kepp-
anda í mótið. Jagge var þá talinn
einn besti skíðamaður norskra ungl-
inga og varð hann því fyrir valinu.
Ekki fæddir betri
„Ég var í 12 ára flokki og þetta
var síðasta árið mitt á Andrésar-
Andar leikunum. Því var mjög
spennandi að fá tækifæri til að
keppa við þennan dreng, því það
var talað um hann sem stjömu og
vissulega var hann mjög góður,“
sagði Árni Grétar. „Aðstæður í
Hlíðarfjalli voru mjög fínar, færið
gott og grjóthart og sigrarnir sæt-
ir. En úrslitin sýndu að það er
hægt að sigra þessa erlendu kappa.
Þeir eru ekki fæddir betri, en það
er ástundun, aðstæður og þjálfun,
sem skipta máli.“
Sigurvegurum í elsta flokki var
boðið á Andrésar-Andar leikana í
Noregi árið eftir. „þá hitti ég Jagge
aftur og hann mundi vel eftir okk-
ur, en hann var ekki á meðal sigur-
vegara._ Norsku krakkamir tóku
okkur íslendingana samt í nefið,
enda aðstæður aðrar en við áttum
að venjast.“
Þá varð Jagge I 4. sæti í bruni
og Atli Skárdal, annar þekktur
skíðamaður. í 3. sæti, Atli Einars-
Finn Christian Jagge
son í 41. sæti og Árni Grétar í 48.
sæti, en 70 tóku þátt. í stórsviginu
varð Jagge í 6. sæti, Árni Grétar í
41. sæti, en Atli keyrði út úr. 88
skíðamenn voru í 13 ára flokknum.
Verðum að æfa erlendis
Árni Grétar sagði að íslenskir
skíðamenn yrðu að æfa erlendis til
að eiga möguleika á að ná langt.
„Við náum aldrei árangri nema
vera erlendis og æfa þar við bestu
aðstæður. Kristinn Björnsson virð-
ist vera á réttri leið og það verður
gaman að fylgjast með honum eftir
tvö til þijú ár ef heldur sem horfir."
Gísli Kr. Lórensson, sem er í
Andrésar-Andar nefndinni, sagði
að Norðmenn hefðu ávallt lagt mik-
ið upp úr Andrésar-Andar leikunum
og tilfellið væri að bestu skíðamenn
Noregs hefðu tekið þátt í leikunum
sem krakkar. Sama hugsunin lægi
að baki leikunum á Akureyri, þeir
væru liður í uppbyggingunni, en
næstu Andrésar- Andar leikar
verða í Hlíðarfjalli við Akureyri 22.
til 25 apríl.
Árnl Grétar