Morgunblaðið - 29.02.1992, Síða 55
V
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR LAÚGARDAGUR
29. FEBRUAR 1992
55
HANDKNATTLEIKUR
Gísli Felix Bjarnason varði vel fyrir Selfoss í seinni hálfleik.
IMorðmenn sigruðu
Svía örugglega
Frá
Erlingi
Jóhannssyni
i Noregi
Svíar, sem reyndar léku án allra
nema tveggja úr heimsmeist-
araliðinu í handknattleik, mátu þola
fimm marka tap
gegn Norðmönnum
í vináttulandsleik í
Noregi í gærkvöldi.
Norðmenn, sem eru
í sama riðli og íslendingar í B-
keppninni, unnu 23:18 eftir að Svíar
höfðu verið marki yfir í hálfleik,
10:9.
Norsku atvinnumennimir í
Þýskalandi, Öystein Havang, Rune
Erland og Roger Kjendalen voru
allt í öllu hjá Norðmönnum og sér-
staklega var styrkur af Erland, en
hann var ekki með í jafnteflisleikn-
um í fyrrakvöld. Þá var Gunnar
Um helgina
Körfuknattleikur
Japisdeildin:
Sunnudagur
Grindavík UMFG - Haukar.... ..20
Keflavík, IBK-Þór ..20
Stykkish., Snæfell - Skallagr. ..18
Mánudagur
Hafnarfj., Haukar - Þór ..20
1. deild karla:
Laugardagur
Egilsstaðir, Höttur - ÍS ..14
Hagaskóli, Víkveiji - ÍR ..14
Blak
Laugardagur
Hagaskóli, IS - KA (karl.) ..14
Hagaskóli, ÍS -KA (kon.) tb.lb
Sunnudagur
Víkin.Vík.-ÍS(kon.) ..20
Digranes, HK - Þróttur R. (kar.) 16
Sund
Sunddeild KR heldur fjölmennt
sundmót með þátttöku um 500
bama og unglinga í Sundhöll
Reykjavíkur i dag og á morgun.
Golf
Púttmót Golfheima og Ölgerð-
arinnar verður i Golfheimum á
morgun, sunnudag. Allir geta tek-
ið þátt og mætt á tímabilinu 08
til 20.
Forsing mjög góður í markinu.
„Rune sýndi hvað hann er mikil-
vægur fyrir liðið,“ sagði Gunnar
Pettersen, þjálfari Norðmanna.
„Liðið var mun ákveðnara og ég
var þokkalega ánægður með varn-
arleikinn, sérstaklega þegar við lék-
um 3-2-1, en við þurfum að laga
ýmislegt í sóknarleiknum."
Norðmenn tóku Staffan Olsson
úr umferð allan tímann, en hann
var markahæstur hjá Svíum með
þijú mörk. Havang var markahæst-
ur Norðmanna með sex mörk, Er-
land gerði fimm og Kjendalen fjög-
ur.
URSLIT
UMFN - Tindastóll 81:83
fþróttahúsið í Njarðvík, fslandsmótið, í
körfuknattleik, Japisdeildin, föstudaginn
28. febrúar 1992.
Gangur leiksins: 0:2, 3:2, 8:11, 11:19,
15:21, 27:37, 34:39, 42:47, 47:56, 57:57,
64:63, 70:65, 70:70, 79:79, 81:81, 81:83.
Stig UMFN: Rondey Robinson 19, Kristinn
Einarsson 18, Teitur Örlygsson 12, Ástþór
Ingason 11, Friðrik Ragnarsson 10, Sturla
Örlygsson 5, Gunnar Örlygsson 4, Jóhannes
Kristbjörnsson 2.
Stig Tindastóls: Vaiur Ingimundarson 24,
Ivan Jonas 21, Pétur Guðmundsson 17,
Einar Einarsson 11, Haraldur Leifsson 8,
Björn Sigtryggsson 2.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn
Óskarsson.
Áhorfendur: Um 500.
Þór-UMFG 90:107
Akureyri:
Gangur leiksins: 7:0, 13:5, 22:26, 39:34,
52:53, 62:67, 68:82, 76:90, 90:107.
Stigl'órs: Konráð Óskarsson 31, Joe Harge
27, Ámi Þ. Jónsson 10, Guðmundur Bjöms-
son 9, Bjöm Sveinsson 4, Högni Friðriksson
4, Birgir Birgisson 3, Jóhann Sigurðsson 2.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 28, Joe
Lewis Hurst 23, Pálmar Sigurðsson 13,
Hjálmar Hallgrímsson 12, Rúnar Ámason
11, Bergur Hinriksson 11, Marel Guðlaugs-
son 5, Pétur Guðmundsson 4.
Dómarar: Kristján Möller og Einar Þór
Skarphéðinsson.
Áhorfendur: Um 100.
1. deild
ÍA-UBK.......................84:100
Mjaltavélih sigraði
mulningsvélina!
sagði Sigurður Sveinsson eftirtveggja marka sigur
„ÞAÐ var sko mjaltavélin frá Selfossi sem sigraði mulningsvél-
ina,“ sagði Sigurður Sveinsson eftir leikinn við Val í íþróttahús-
inu á Selfossi. Heimamenn náðu góðum sigri á Val, 27:25, í
æsispennandi leik fyrir fullu húsi áhorfenda sem skópu sannkall-
aða Ijónagryfju með öflugri hvatningu til sinna manna.
Selfoss - Valur 27:25
fþróttahúsið Selfossi, fslandsmótið f hand-
knattleik, 1. deild karla, föstudaginn 28.
febrúar 1992.
Gangur leiksins: 6:6, 7:11, 9:14, 12:14,
18:20, 23:22, 27:25.
Mörk Selfoss: Einar Guðmundsson 6, Sig-
urður Sveinsson 5/3, Siguijón Bjamason
4, Einar Gunnar Sigurðsson 4, Gústaf
Bjamason 4, Jón Þórir Jónsson 3, Sverrir
Einarsson 1, Kjartan Gunnarsson 1.
Varin skot: GIsli Felix Bjamason 12/1 (þar
af 3 til mótherja). Einar Þorvarðarson 3
(þar af 1 til móthctja).
Útan vallar: 2 minútur.
Mörk Vals: Valdimar Grimsson 9/3, Dagur
Sigurðsson 5, Óskar Óskarsson 4, Ólafur
Stefánsson 2, Jón Kristjánsson 2, Armann
Sigurfinnsson 2, Valgarð Thoroddsen 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 10
(þar af 6 til mótheija). Ami Þðr Sigurðsson.
Utan vallar: 6 minútur.
Dómarar: Jón Hermannson og Guðmundur
Sigurbjömsson dæmdu illa.
Ahorfendur: 510.
LOKASTAÐAN
SELFOSS- VALUR..............27:25
ÍBV - UBK...................29:18
Fj.leikja u j T Mörk Stig
FH 22 18 2 2 614: 506 38
VÍKINGUR 22 17 2 3 566: 502 36
SELFOSS 22 14 1 7 600: 563 29
KA 22 10 4 8 549: 539 24
ÍBV 22 10 3 9 586: 548 23
HAUKAR 22 9 4 9 554: 540 22
FRAM 22 9 4 9 515: 533 22
STJARNAN 22 10 1 11 537: 516 21
VALUR 22 7 5 10 539: 531 19
GRÓTTA 22 5 4 13 443: 528 14
HK 22 4 2 16 496: 548 10
UBK 22 2 2 18 399: 544 6
Valsmenn mættu til leiks með
þá dagsskipun að vinna Sel-
foss með 11 marka mun. Þeir hófu
leikinn með miklum
krafti og ætluðu sér
greinilega mikið.
Þeir höfðu ávallt yf-
irhöndina i fyrri
hálfleik og voru með fjögurra
marka forskot í hléi, 14:9.
Selfyssingar gerðu tvö fyrstu
Helgi
Sigurðsson
skrifar
mörk síðari hálfleiks og söxuðu
hægt og bítandi á forskot Vals.
Selfoss komst í fyrsta skipti yfir %
leiknum þegar rúmar sjö minútur
voru eftir, 23:22. Við þetta virtust
Valsmenn missa móðinn og Selfoss
jók forskotið í tvö mörk undir lokin.
Einar Guðmundsson var bestur
i annars jöfnu liði Selfoss. Einnig
áttu þeir Siguijón Bjamason ög
Sigurður Sveinsson ágætan leik.
Einar Gunnar Sigurðsson sást lítið
í fyrri hálfleik en reif sig upp í
þeim síðari.
Valdimar Grimsson var yfir-
burðamaður I liði Vals og skoraði
níu mörk.
Úrslitakeppnin:
Tímabili Islands-
meistaranna lokið
Að leik Selfoss og Vals loknum
í gærkvöldi var ljóst að
Valur hafði ekki erindi sem erf-
iði, hafnaði í níunda sæti í deild-
inni og er keppnistímabili íslands-
meist'aranna þar með lokið.
Stjaman slapp með skrekkinn,
hélt áttunda sætinu og mætir
deildarmeisturum FH í úrslita-
keppninni, sem hefst 13. apríl. í
úrslitakeppninni fer það lið áfram,
sem sigrar í tveimur leikjum, en
ávallt verður leikið til þrautar. Það
lið, sem er ofar í töflunni, á fyrst
heimaleik og fær einnig oddaleik-
inn, ef til hans kemur.
Víkingur og Fram mætast í
átta liða úrslitum, Selfoss og
Haukar og loks KA og ÍBV. Sigur-
vegari úr viðureignum FH og
Stjömunnar leikur gegn sigurveg-
ara úr leikjum KA og ÍBV í fjög-
urra liða úrslitum, en hins vegar
leika Vfkingur - Fram/ Selfoss -
Haukar. Sigurvegaramir í fjög-
urra liða úrslitum leika síðan um
íslandsmeistaratitilinn, en það lið
stendur uppi sem sigurvegari, sem
sigrar í þremur leikjum.
KORFUKNATTLEIKUR
Stólamir lögðu meist-
arana í “gryfjunni"
Þetta var ákaflega þýðingamikill
sigur fyrir okkar og nú er
bara að bíða og sjá hvað Njarðvík-
£■■■■■ ingar gera þegar
Bjöm þeir mæta KR-ing-
Blöndal um. Við náðum að
sKn/arfrá leika skynsamlega
allan timann og
tókst um leið að hrinda pressuvörn
Njarðvíkinganna,“ sagð Valur Ingi-
mundarson þjálfari og leikmaður
Stólanna frá Sauðárkróki eftir sigur
gegn íslandsmeisturum Njarðvík-
inga í “Ljónagryfjunni" í Njarðvík
í gærkvöldi. Þetta var fyrsta tap
Njarðvíkinga á heimavelli í vetur
og þar með hafa Stólarnir eitt allra
liða í vetur unnið báða Suðurnesja-
risana, Keflavík og Njarðvík, á
þeirra heimavelli. Lokatölur leiksins
urðu 83:81 og skoraði Valur Ingi-
mundarson tvívegis úr vítaskotum
þegar 6 sekúndur vom til leiksloka
og tryggði þar með Iiði sínu sigur-
inn í leiknum. í hálfleik var staðan
39:34 fyrir Tindastól. Geysilega
fagnaðarlæti brutust út í leikslok
meðal um 200 stuðningsmanna
Stólanna sem komu suður yfír heið-
ar til að styðja við bakið á sínum
mönnum.
Norðanmenn sýndu þegar í upp-
hafi leiksins að þeir voru komnir
til að sækja bæði stigin. Þeir réðu
ferðinni frá upphafi og leyfðu
Njarðvíkingum aldrei að hleypa
leiknum upp í mikinn hraða. Þessi
leikaðferð norðanmanna virtist
einnig fara í skapið á Njarðvíking-
um sem gerðu óvenju mörg glappa-
skot að þessu sinni. Stólarnir tóku
fljótlega forystuna og héldu henni
út fyrri hálfleikinn. I þeim síðari
tóku íslandsmeistararnir á öllu sem
þeir áttu og tókst með mikilli bar-
áttu að jafna metin og komast síðan
5 stigum yfir 70:65 þegar síðari
hálfleikur var liðlega hálfnaður. En
þeim tókst ekki að fylgja forskotinu
eftir og það sem eftir lifði skiptust
liðin á forystunni. Þegar 28 sekúnd-
ur voru til leiksloka tókst Njarðvík-
ingum að jafna tveggja stiga for-
skot Stólanna 81:81 - en þegar 6
sekúndur voru eftir brutu þeir
klaufalega á Val Ingimundarsyni
sem fyrir bragðið fékk vítaskot og
honum brást ekki bogalistin og
tryggði með því liði sínu sigurinn
eins og áður sagði.
“Við erum þreyttir eftir erfiða
leiki að undanförnu fyrst tvo leiki
gegn Keflvíkingum og síðan í gær-
kvöldi gegn Borgnesingum og liðið
er greinilega í einhverri lægð núna,“
sagði Friðrik Rúnarsson þjálfari
Njarðvíkinga. Allir í byijunarliði
Stólanna léku vel, Valur Ingimund-
arson, Pétur Guðmundsson, Ivan
Jonas, Einar Einarsson og Haraldur
Leifsson. Njarðvíkingar náðu aldrei
að sýna tennurnar að þessu sinni
Rondey Robinson lék þó vel í síðari
hálfleik og Kristinn Einarsson átti
einnig ágætan leik.
Valur Ingimundarson