Morgunblaðið - 14.04.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992
Akranes:
Heitavatnslögnin
sprakk í sinueldum
Ottast aö eldur komi upp á ný
Heitavatnslögn til Akraness
sprakk á 70-80 metra kafla á
Lambhaganesi vegna sinuelda
síðdegis í gær með þeim afleið-
ingum að heitavatnslaust var á
Drengur sag-
aði í tvo fingur
DRENGUR á níunda ári sagaði
í tvo fingur þegar hann fór ásamt
félögum sínum í óleyfi inn á
byggingarsvæði í Grafarvogi um
klukkan sjö á föstudagskvöld og
setti í gang vélsög.
Drengirnir fóru inn á byggingar-
svæði við væntanlegt íþróttahús
Fjölnis í Grafavogi, sem var hálf
afgirt, að sögn lögreglu.
Straumur var á vélsög, sem einn
drengjanna gangsetti og fór við svo
búið að saga spýtur. Þá festist
peysa hans í sagarblaðinu með fyrr-
greindum afleiðingum. Drengurinn
var fluttur á slysadeild og lögregla
lét slá út rafmagni á vinnusvæðinu.
Akranesi í nótt. Viðgerð tók
lengri tíma en áætlað var vegna
erfiðra aðstæðna, en lögnin ligg-
ur langt frá þjóðveginum á mýra-
svæði þar sem erfitt er að koma
við vinnutækjum.
í fyrstu var talið að lögnin hefði
sprungið á 40 metra kafla en síðar
kom í ljós að hún var sprungin á
70-80 metra kafla. Verkstjóri hita-
veitunnar á Akranesi taldi í gær-
kvöldi ekki útséð með að viðgerð
tækist í nótt, einkum vegna erfiðra
aðstæðna. Lögnin er úr asbesti og
var hún klædd með mold og torfí
þegar hún var lögð. Moldin hefur
með tíð og tíma orðið að mó og
mjög erfiðlega gengur að slökkva
glóðina í honum. Jafnvel var búist
við að eldur kæmi upp aftur í þurr-
um jarðveginum, að sögn starfs-
manns slökkviliðsins á Akranesi.
Lögreglan á Akranesi telur
ástæðu til að brýna það fyrir fólki
að kveikja ekki sinuelda. Jörð er
víða mjög þurr og þarf ekki mikið
að bera út af til að stórtjón hljótist
af leik með eld.
43 ökumenn kærðir
fyrir of mikinn hraða
LÖGREGLAN kærði 43 ökumenn
fyrir hraðakstur um helgina. Um
miðnætti aðfaranótt mánudags-
ins var bifhjólamaður sviptur
ökuleyfi eftir að hafa verið
mældur á 130 kílómetra hraða á
Miklubraut við Rauðagerði. Þá
játaði ökumaður sem lenti í
árekstri á Hverfisgötu við
Frakkastíg að hafa ekið á 80-90
km hraða.
Á laugardagskvöld var maður
staðinn að því að aka á 117 km
hraða á Breiðholtsbrdut og annar
var mældur á 110 km hraða á
Mjólkurfræðingar:
Fundað hjá rík-
issáttasemjara
BÚIST er við að boðaður verði
fundur í kjaradeilu mjólkurfræð-
inga og viðsemjenda þeirra hjá
ríkissáttasemjara í dag, en yfir-
vinnubann mjólkurfræðinga
hófst á föstudaginn var.
Ékki er gert ráð fyrir öðrum
fundarhöldum um kjarasamninga
fyrir eða um hátíðarnar en reiknað
er með að strax eftir páskana verði
farið yfir stöðu samningamála á
vettvangi Alþýðusambands íslands.
Sæbraut við Holtaveg.
16 ára piltur sem var stöðvaður
fyrir að aka á 112 km hraða á
Vesturlandsvegi var grunaður um
ölvun við akstur. Tveir bifhjólamenn
mældust aka áTlOl kílómetra hraða
við Hekluhúsið á Laugavegi á laug-
ardagskvöld.
♦ ♦ ♦
Eddufell:
Rekstrarleyfi
hafnað fyrir
leiktækjasal
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að hafna beiðni um að leiktækja-
salur verði rekinn í Eddufelli 6
í Breiðholti.
í umsögn félagsmálastjóra til
borgarráðs er vísað til bréfa skóla-
stjóra og starfsmanna Fellaskóla
og starfsmanna Lögreglustöðvar-
innar við Drafnarfell, en þar er lagst
gegn leiktækjasal í húsnæðinu. Þá
var lagt fram bréf frá stjórn for-
eldrafélags Fellaskóla, þar sem
einnig er lagst gegn leyfi fyrir slíkri
starfsemi. Hún hafi óæskileg áhrif
á þroska barna og unglinga. Jafn-
framt er þess vænst að slík leyfi
verði ekki veitt í framtíðinni.
Morgunblaðið/Emilía
Markús Örn Antonsson borgarsljóri í skrifstofu sinni í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Borgarskrifstofurnar
eru íluttar í Ráðhúsið
Formleg opnun hússins verður í dag
STARFSMENN á borgarskrifstofunum unnu við flutninga í nýjar
skrifstofur í Ráðhúsinu um helgina. í gær voru starfsmennirnir
75 að koma sér fyrir og átta sig á aðstæðum. Síðasti fundur
borgarráðs í gamla húsnæðinu við Pósthússtræti verður á hádegi
í dag en klukkan 15 hefst sérstök athöfn þegar húsið verður
formlega tekið í notkun. Klukkustund síðar verður fyrsti fundur
borgarstjórnar settur í nýja borgarsljórnarsalnum að viðstöddum
gestum.
„Mér Iíst mjög vel á húsið en
það tekur tíma að venjast nýjum
aðstæðum," sagði Markús Örn
Antonsson borgarstjóri. „Þó ýms-
ir komi til með að sakna gömlu
skrifstofanna svona í fyrstu þá
líður það fljótt hjá. Þetta hús er
mun opnara og skrifstofurnar
þannig staðsettar að samgangur
starfsfólks verður mun meiri en
áður. Ég er sannfærður um að
fólk á eftir að átta sig og kunna
að meta húsið og það sem það
býður upp á,“ sagði borgarstjóri.
í dag er móttaka fyrir boðs-
gesti á vegum borgarstjóra og
borgarstjórnar. Á miðvikudag
verður móttaka fyrir iðnaðar-
menn og verktaka sem unnið
hafa að byggingu hússins. Skír-
dag, laugardag fyrir páska og
annan dag páska verður allt hús-
ið opið fyrir almenning að skoða
frá klukkan 12 til 18. Gefst fólki
þá tækifæri til að líta inn á skrif-
stofurnar og skoða allar aðstæð-
ur.
Sjá einnig grein í miðopnu.
Samningurinn um EES staðfestur í dag:
Forsætisnefnd fjallar
um þinghald í sumar
EKKI hefur verið tekin ákvörðun um hvort Alþingi komi saman í
sumar til að fjalla um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, sagði að verið væri að und-
irbúa hvernig standa eigi að umfjöllun Alþingis um máiið. Fundur
verður í forsætisnefnd í dag, en Salome sagði að nefndinni ætti eft-
ir að berast ítarlegri upplýsingar um tæknileg atriði málsins og
umfang þess.
formenn þingflokkanna á það í
gærmorgun að þetta mál þyrfti að
ræða í góðu tómi. Hún átti hins
vegar ekki von á því að ákvörðun
lægi fyrir um þinghald í sumar fyrr
en um næstu mánaðamót.
Samningur Evrópubandalagsins
og Fríverslunarbandalags Evrópu
um Evrópska efnahagssvæðið verð-
ur staðfestur af aðalsamninga-
Fræðsluefni frá Afengis-
varnarráði stolið úr bíl
FRÆÐSLUEFNI frá Áfengisvarnarráði, sjónvarpstæki, hljóm-
flutningstæki og radarvarar voru meðal þess sem stolið var í níu
innbrotum í bíla um helgina. Innbrot í bíla hafa aukist undanfar-
ið, að sögn lögreglu. Nokkur dæmi eru um það að bíllyklum
hafi verið stolið með öðrum verðmætum úr fatnaði í útiklefum
við sundlaugar í borginni. Síðan eru lyklarnir notaðir til að opna
bíla á bílastæðum fyrir utan laugarnar og stela úr þeim.
Brotist var inn í bíl fyrir utan
hús í Hólahverfi um kvöidmatar-
leytið á föstudagskvöid og stolið
þaðan skjalatösku með bókum og
ýmsu fræðsluefni frá Áfengi-
svarnarráði. Ekki er vitað hver
var að verki.
Brotist var inn í tvo bíla við
Lindargötu og úr öðrum þeirra
var meðal annars stoiið sjónvarpi.
Annars voru innbrot þessi framið
víðs vegar um borgina. Að sögn
Ómars Smára Ármannssonar, að-
stoðaryfirlögregluþjóns, hafa inn-
brot í bíla færst í vöxt undanfarið
og skirrast þjófar ekki við að
brjóta rúður í bílum eða skemma
læsingar til að koma höndum yfir
radarvara, hljómflutningstæki
eða töskur sem blasa við.
Ekki var brotist inn í bíla við
sundlaugar nú um helgina en stol-
ið var úr fatnaði tveggja sund-
laugargesta. Frá öðrum þeirra var
tekið tékkhefti og armbandsúr frá
hinum.
mönnum bandalaganna í Brussel í
dag. Hins vegar munu ráðherrar
væntanlega staðfesta samninginn í
maí. Sá samningahópur, sem farið
hefur með samningamál og dóm-
stóla í samningaviðræðunum, kom
saman í gær í Brussel, þar sem
gengið var frá nauðsynlegum breyt-
ingum á samningnum til að koma
til móts við álit Evrópudómstólsins
frá því á laugardag. Hannes Haf-
stein, aðalsamningamaður íslands
í Brussel, sagði í gær að hann teldi
að samningurinn væri endanlega í
höfn.
Salome sagði að málið væri á
algjöru byijunarstigi, forsætis-
nefndin ætti eftir að heyra álit ríkis-
stjórnarinnar og of snemmt væri
að spá fyrir um hve lengi hugsan-
legt sumarþing standi yfir. Viðræð-
ur við þingflokka væru einnig nauð-
synlegar áður en málið kæmist á
ákvörðunarstig.
Hún kvaðst telja að einhver
áherslumunur væri á milli þing-
manna um hvernig standa ætti að
umfjöllun málsins. Þetta hefði hins
vegar ekki verið rætt formlega inn-
an þingsins. Hún kvaðst hafa minnt
9 sækja um
stöðu flug-
málastjóra
*
NIU menn sóttu um stöðu flug-
málastjóra. Starfið var auglýst
10. mars síðastliðinn og rann
umsóknarfrestur út þann 10.
apríl.
Eftirtaldir sóttu um stöðuna:
Erling Aspelund starfsmannastjóri
SÍS, Grétar H. Óskarsson fram-
kvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn,
Guðmundur Matthíasson fram-
kvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn,
Haukur Hauksson varaflugmála-
stjóri, Hörður Hafsteinsson, flug-
maður, Þórður Óskarsson flugum-
sjónarmaður, Þórður Örn Sigurðs-
son framkvæmdastjóri hjá Flug-
málastjóm, Þorgeir Pálsson pró-
fessor og Þorsteinn Þorsteinsson
verkfræðingur.