Morgunblaðið - 14.04.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992
25
Hugleiðing á páskum 1992;
Hvaða Jesús?
eftir Alfreð Jolson S.J.
í heiminum okkar 1992 bregður
fyrir á sjónvarpsskerminum andlit-
um þeirra Borísar Jeltsín, George
Bush, Saddams Husseins og Jóhann-
esar Páls II páfa og við sjáum hveij-
ir þeir eru. Okkur finnst jafnvel að
við séum farin að þekkja 'þá.
Einkennilegur er heimurinn! Pyrir
nærfellt 2000 árum kallaði Jesús
lærisveina sína saman og gaf þeim
þessi fyrirmæli:
Farið því og gjörið allar þjóðir að
lærisveinum, og kennið þeim að
halda allt það sem ég hef boðið yður.
Atti hann í raun og veru við allt?
Lítum á heiminn 1992, meirihluti
jarðarbúa hefur varla heyrt getið
um Jesúm frá Nasaret! Stundum
heyrum við nafn hans notað sem
blótsyrði í útvarpinu og sjónvarpinu,
svo ekki sé nú minnst á það sem
við heyrum stundum í einkalífi
manna. Er það ekki furðulegt að
heyra jafnvel ókristna menn hrópa
í reiði eða skelfingu: „Jesús Krist-
ur!“. Það er margt ógert þegar við
hugsum um fyrirmælin sem hann
gaf fyrir 2000 árum! Hver á að gera
það? Einhver ráðgjafinn eða sér-
fræðingurinn? Haldið þið það? Ekki
held ég það.
Frá upphafi var þetta hlutverk
að breiða út hin góðu tíðindi og
færa mönnum fagnaðarerindið, hlut-
verk hvers og eins kristins manns.
í vissum skilningi erum við íslend-
ingar allar trúboðar. Því miður eru
margir okkar ef til vill orðnir tregir,
óttaslegnir og kjarklausir við að
gegna hlutverki trúboðans nú á þess-
um síðasta tug 20. aldarinnar.
Eftir fordæmi kristinna manna í
2000 ár virðist heimurinn í engu
kristnari en hann var fyrir einni öld.
Eða er hann kannske fjær kristninni?
Séð frá rómversk-kaþólsku sjón-
„Þegar við loksins nefn-
um nafn Jesú við þá sem
við umgöngumst förum
við að gera okkur ljósan
þann mátt sem býr í því
nafni og vera fús til að
bregðast rétt við áskor-
un Jesú um að gera allar
þjóðir að lærisveinum.“
arhorni erum við kannske orðin full-
ánægð með sjálf okkur. Hetjulegt
fordæmi séra Baudoins, Gunnars
Einarssonar og margra annarra hef-
ur í rás tímans aflað kaþólskri trú
mikillar virðingar. Lifir eldmóður
þeirra og þrautseigja enn í dag? ís-
land er örlítil eining í hinum kristna
heimi og frábrugðin honum í mörgu
eins og því að hér eru næstum því
allir kristnir og hér lifa menn í friði.
En hversu margir hrópa hin gðu
tíðindi af húsþökunum eða hvísla
þeim jafnvel í kaffihúsunum? Hversu
margir vilja í raun og veru gefa
náunga sínum hlutdeild í hinum góðu
tíðindum? Förum við kristnir menn
og boðum fagnaðarerindið þeim sem
misst hafa ástvini sína fyrir sjálfs-
víg, í sjúkdómum eða slysum?
Þorum við að nefna Jesú við þá
sem við umgöngumst? Ef við aðeins
höfum hugrekki til að lýsa því yfir
hverju við trúum og lifa samkvæmt
því, uppgötvum við að það var ekk-
ert að óttast. Þegar við verðum trú-
verðugir vottar gagnvart fjölskyld-
um okkar og vinum látum við okkur
ekki lengur nægja meðallags kristi-
legt líf og að lifa fyrst og fremst
fyrir okkur sjálf þótt við þykjumst
vea fylgjendur Krists.
Þegar við loksins nefnum nafn
Jesú við þá sem við ume'öne'umst
Alfreð Jolson S.J.
förum við að gera okkur ljósan þann
mátt sem býr í því nafni og vera fús
til að bregðast rétt við áskorun Jesú
um að gera allar þjóðir að lærisvein-
um.
Það er furðulegt að menn skuli
oft gera þá menn að athlægi sem
leitast við að boða Jesúm og vinna
lærisveina fyrir hann, einlægt og
trútt ungt fólk sem ver tveimur árum
af ævi sinni í hlutverki trúboðans,
að boða Jesúm. Enda þótt við aðhyll-
umst ekki þá leið trúarinnar sem
þeir ganga, gætum við dáðst að eld-
móði þeirra, kærleika þeirra og góðu
fordæmi og jafnvel látið leiðast til
að gera slíkt hið sama. Getum við
gert minna en það?
Ég minnist þess að jólamorgun
einn fyrir mörgum árum sá ég tvær
persónur kafa gegnum snjóinn og
ganga hús úr húsi til þess að boða
Jesúm, eins og hann kom þeim fyrir
sjónir. Enda þótt skoðanir mínar
væru ekki hinar sömu og skoðanir
þeirra dáðist ég að eldmóði þeirra
og fórnfýsi. Ég hugleiddi þetta: hvað
mundi gerast éf aðrir kristnir menn
gerðu hið sama, að meðtöldum mér
og kaþólskum bræðrum mínum og
systrum? Áreiðanlega mundi heim-
urinn batna við það. Auðvitað er
okkur ljóst að menn geta gert mi-
stöð og að ofurkapp getur leitt til
ógætni en það afsakar ekki ad menn
sýni slíku fólki lítilsvirðingu eða
hæði það.
Otti við það sem menn kynnu að
segja eða hvernig þeir kynnu að
bregðast við ætti ekki að letja okkur
þess að bera vitni um návist og
mátt Jesú Krists. Þótt ekki nema
smáhópur manna sýndi þann eldmóð
sem sumt af kristna fólkinu okkar
sýnir og eins ungir mormónar, mundi
leysast úr læðingi mikill kraftur til
góðra verka, nú þegar við búum
okkur undir upphaf nýrrar aldar og
hátíðahöld til minningar um þúsund
ára veru kristninnar á íslandi. Þá
kynnu undur, jafnvel kraftaverk að
vinnast í hjörtum og sálum allra ís-
lendinga. Hvílíkur friður Krists
mundi þá gagntaka þjóðina, fólkið
á heimilunum, á götunum, í skólun-
um og verksmiðjunum, í kirkjunum,
í stuttu máli: hvar sem karlar og
konur lifa og vinna saman með þess-
ari ágætu þjóð. Þá yrði auðveldara
að leysa og ráða fram úr þeim efna-
hagslegu, félagslegu og mannlegu
vandamálum sem fyrir hendi eru hér
á landi.
Hvaða Jesús? Jesús ’sem er hér
og lifir í okkur íslendingum.
Höfundur er kaþólskur biskup á
Islandi.
Þegar smámunimir skipta máli!
1.250,- 1.280,- 860,-
r/FDrTACTTAT/T ? "
KERTASTJAKI
messing
ROMANTICO ROMANTICO
blómapottur stærri blómapottur minni
Það þarf ekki að vera stórmál að finna
smámuni fyrir heimilið.
Hjá IKEA finnur þú ótrúlegt úrval húsbúnaðar sem
gefur heimili þínu hlýlegt og persónulegt svipmót.
840,-
HAGTORN
púðar 40x40 6 gerðir
IKEA
■ § ®W> mm SSrmk
engin smá verslun
650,-
SJELLAND
mottur 60x90 4 gerðir
„ 5» t
m. J1'--'
1.550,-
LINNEAN
kökudiskar 4 í pakka
2.450,-
LINNEAN
bollar m/undirskál 4 í pakka.
1.295,-
VIDJA
sængurverasett
GROSS
skrifborðslampi
b.4UU,-
1
>;
CD
1
§
1
KRINGLUNNI 7 SÍMI 91 -Ó86650