Morgunblaðið - 14.04.1992, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992
42
Kolrössur fagna öruggum sigri.
• •
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Oruggur stúlknasigur
Fyrsta stúlknasveit í níu ár bar sig-
ur úr býtum í Músíktilraunum
MÚSÍKTILRAUNUM Tónabæjar og Rásar 2 lauk sl. föstudag með
tilheyrandi viðhöfn. Þá kepptu átta bílskúrssveitir um hljóðverstíma
sem gætu gert þeim kleift að komast út úr skúrnum. Úrslitin komu
ekki svo ýkja á óvart, þó ekki hafi endilega verðugustu sveitir lent
á verðlaunapalli frekar en endranær.
Til úrslita kepptu átta sveitir
eins og áður er sagt, Cremation,
Baphomet, Niturbasarnir, Kolrassa
krókríðandi, Inflammatory, Skíta-
mórall, In Memoriam og Clockwork
Diabolus. Sveitimar kepptu um 30
tíma í Sýrlandi í fyrstu verðlaun,
25 tima í Gtjótnámunni í önnur
verðlaun og 20 tíma í Stúdíói Stef
í þriðju verðlaun.
Taugatitringur var all áberandi
hjá flestum sveitanna og léku sum-
ar lakar en í undanúrslitum, á
meðan aðrar hertu sig. Þannig var
með Cremation, sem var fyrsta
hljómsveit á svið, því sveitin var
allmiklu betri en kvöldið áður, þeg-
ar hún komst í úrslit. Næsta sveit,
Baphomet, sem einnig komst í úr-
slit kvöldið áður, var og gríðarlega
góð og reyndar besta dauðarokk-
sveit þessara Músíktilrauna; geysi-
þétt og keyrslan yfirgengileg. Frá-
bær sveit.
Þriðja tilraunasveitin, Niturbas-
arnir, vakti mikla athygli í undan-
úrslitum, en sveitin var ekki eins
sannfærandi nú; nokkuð skorti á
villta pönkkeyrsluna sem fleytti
henni í úrslit Stúlknasveitin Kol-
rassa krókríðandi, sem leysti Nitur-
basana af, var þéttari en í undanúr-
slitum, og ekki að sjá að þær væru
úr hófi taugaóstyrkar. Sveitarmenn
í dauðarokksveitinni Inflammatory
voru hins vegar allir á nálum og
gerðu sig seka um ótrúleg mistök,
sem skrifa má á reynsluleysi, því
þar fór yngsta sveit tilraunanna
að þessu sinni. Sveitin lofar góðu,
þó lítið hafi farið fyrir spilagleði
og tónlistin ófrumleg. Einnig virtist
andinn innan sveitarinnar ekki góð-
ur eins og sannaðist í ótrúlegu
upphlaupi söngvara sveitarinnar.
Næsta sveit, Skítamórall, var vel
þétt og ákveðin, en lagasmíðar eru
ekki til þess fallnar að vekja áhuga,
enda áheyrendur eins og á tann-
læknastofu. Annað var upp á ten-
ingnum hjá In Memoriam, því sveit-
armenn voru gríðarlega öruggir og
samhentir; best spilandi sveit
kvöldsins. Annað og þriðja lag
sveitarinnar voru af hæsta gæða-
flokki og gaman verður að fylgjast
með sveitinni í framtíðinni.
Lokaorðin í Músíktilraunum að
þessu sinni átti Clockwork Diabol-
us, Hið djöfuliega gangvirki, sem
var ékki sannfærandi og iangt frá
sínu besta.
Úrslit Músíktilrauna 1992 gátu
ekki komið mjög á óvart, í það
minnsta ekki tvö efstu sætin, því
Kolrassa krókríðandi sigraði ör-
ugglega og In Memoriam varð í
öðru sæti. I þriðja sæti varð svo
Inflammatory.
Ástæða er til að geta um þátt
starfsmanna Tónæbæjar sem
tryggðu að tilraunirnar færu vel
fram og voru þetta að mörgu leyti
verið best heppnuðu Músíktilraunir
til þessa. Þá er bílskúrssveita um
land allt að hefja undirbúning að
þátttöku næsta ár, og verður þá
harður atgangur, ef marka má
áhugann á þessum tilraunum, en
sérstaklega ættu kvennasveitir að
taka við sér. _
Árni Matthíasson
Inflammatory án spilagleði.
Frábær Baphomet.
Samstaða í Skagafirði
ÆES-samningar í þjóðaratkvæði
Stjórn Samstöðu í Skagafirði
um óháð Island hefur sent frá
sér eftirfarandi ályktun:
„Eins og sagan greinir frá, flýðu
forfeður okkar frá Noregi til íslands
undan ofríki Noregskonunga. Þeir
stofnuðu hér ríki, sem um margt
var á undan sinni samtíð varðandi
stjórnsýslu og skipulag.
Vegna flokkadrátta og valdabar-
áttu stjórnmálamanna þess tíma,
sem leituðu eftir erlendum stuðn-
ingi í valdabaráttu sinni, tapaði ís-
lenska þjóðin sjálfstæði sínu um sjö
^dda skeið. Á þessum tíma lifði þjóð-
in miklar hi rmungar, sem um síðir
kom henni í skilning um að best
mundi að hún réði sjálf sínum mál-
um. Sjálfstæðisbaráttan hófst undir
forustu hæfra manna, sem ekki
spurðu um daglaun að kveldi.
ísland varð sjálfstætt og full-
valda ríki 1944.
Síðan hafa hér orðið einhveijar
stórstígustu framfarir sem um get-
ur og þjóðin unnið hvern sigurinn
á fætur öðrum í baráttu sinni fyrir
sjálfstæði sínu. Kemur þá fyrst í
hugann útfærsla landhelginnar úr
þremur í tvö hundruð mílur. Meg-
inástæða þess að svo vel hefur tek-
ist sem raun ber vitni er vafalítið
sú, að þjóðinni hefur alltaf verið
ljóst að sjálfstæðisbaráttan hefur
verið og verður ævarandi barátta,
sem aldrei má í neinu kvika frá.
Það undrar okkur því mjög að
upp skuli vera vaxnir menn og ald-
ir upp í Háskóla Islands, þessu
óskabami þjóðarinnar, sem nú vilja
skilgreina orðið fullveldi upp á nýtt.
Vísum við þar til blaðaskrifa og
ræðumennsku þeirra félaga; Gunn-
ars Helga Kristinssonar, Jóhanns
Haukssonar og fleiri. Við hefðum
haldið að hlutskipti Háskólans
mætti verða gæfulegra í hi'nni eilífu
frelsisbaráttu þjóðarinnar. Skylt er
þó að geta þess að til eru einnig
menn við Háskóla íslands, sem
skilja orðið fullveldi og einnig hvers
virði það er fyrir hina íslensku þjóð.
Má þar til nefna Sigmund Guð-
bjarnarson, fv. háskólarektor, og
fleiri.
Fullvalda þjóð ræður ein landi
sínu og nýtingu þess. Hún ræður
málum sínum sjálf, setur sér lög
og samskiptareglur. Hún ákveður
sjálf þá þjóðfélagsgerð, sem hún
telur æskilega og þjóðinni til heilla.
FuIIvalda þjóð tekur ekki við erlend-
um lagafyrirmælum eða tilskipun-
um um framvindu mála í eigin landi.
Samningur um EES felur í sér
fullveldisskerðingu á ýmsum svið-
um. Erlend lög verða rétthærri ís-
lenskum lögum og þau ber að með-
taka án þess að Alþingi megi breyta
þar stafkrók. Samningurinn afsalar
Islendingum hagstjórnartækjum og
skuldbindur þjóðina til þess að hlíta
erlendri hagstjórn í mörgum veiga-
miklum atriðum. íbúar EB- og
EFfA-landa fá sama rétt til bú-
setu, starfa og eignarhalds á land-
inu og íslendingar. Öll þessi atriði
skerða fullveldi þjóðarinnar.
Bein aðild að EB felur í sér full-
veldisafsal og íslenskum stjórnmál-
amönnum má aldrei líðast að skerða
eða afsala fullveldi íslands. Þjóðin
verður að hindra slík óhappaverk.
Við skorum því á íslensku þjóðina
að vakna til fullrar vitundar um
tilverurétt sinn, veija dýrkeypt
sjálfstæði lands og þjóðar og krefj-
ast þjóðaratkvæðis um aðild Islands
að evrópsku efnahagssvæði."
Málverkasýn-
ing á Ferstiklu
REBEKKA Gunnarsdóttir opn-
aði málverkasýningu á Fer-
stiklu á Hvalfjarðarströnd laug-
ardaginn 11. apríl sl.
Rebekka hefur verið með í fjór-
um samsýningum og einnig hefur
hún verið með þijár einkasýningar
á Ferstiklu árin 1988 og 1989 og
á Akranesi 1990. Á sýningunni
núna eru 37 vatnslitamyndir og
eru þær allar til sölu. Sýningin
stendur yfir í u.þ.b. 4 vikur.
(Fréttatilkynning)
Rabbfundur um
nýja stöðu í
utanríkismálum
Ólafur Ragnar Grímsson al-
þingismaður verður gestur Birt-
ingarmanna á opnum rabbfundi
um nýja stöðu í utanríkismálum
þriðjudagskvöldið 14. apríl á Torf-
uloftinu og má búast við snörpum
umræðum.
OPIÐ9-18
UU 10-14