Morgunblaðið - 14.04.1992, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRIL 1992
57
Óhollar drykkjarvörur
of:
Frá Hallgrími Þ. Magnússyni:
í viðskiptablaði Morgunblaðsins
frá 27. febrúar kemur fram að
neysla á Coca-Cola á íslandi er um
370 átta únsu flöskur pr. mann á
ári en er það lang mest, miðað við
þau lönd sem framkvæmdastjóri
Coca-Cola á Norðurlöndum minnist
á í ofannefndu viðtali. Marga aðra
svipaða drykki drekkum við íslend-
Pennavinir
KRIMA NOUR-Eddine er nemandi
í menntaskóla í Alsír og leggur
stund á efnaiðnað. Hún hefur áhuga
á bréfaskiptum á ensku eða frönsku
við íslenska unglinga. Hún hefur
áhuga á ferðalögum, tónlist, íþrótt-
um, bíóferðum og vináttu. Heimilis-
fang hennar er:
Krima Nour-Eddine
18, Rue Palestine
C.P. 0900-Blida
Algerie
LEIÐRÉTTING
Kafli féll niður
I minningargrein í laugardagsblaði
um Sigríði Líndals brenglaðist eftir-
farandi málsgrein í minningargrein
þeirra Guðnýjar, Friðriks og Bjarna.
Hún átti að vera svohljóðandi:
„Sigríður var með afbrigðum
tryggur vinur og fylgdist af lífi og
sál með öllum sem hún kallaði sitt
fólk. Yngri kynslóðin í þeim hópi
fór síst varhluta af örlæti hennar
og umhyggju. Hún var afburða-
kennari, ósink á að miðla þekkingu
og fróðleik og mannrækt var henni
í blóð borin. Það var eftirsóknar-
vert að fá að fylgja henni eftir og
vera með henni í samverki. Ekki
var slegið slöku við lestur á kvæðum
og öðrum fagurbókmenntum þegar
færi gafst og stundum greip Sigríð-
ur gítarinn. Þá var sungið af hjart-
ans list. Oft var hlegið og að öllu
gaman.“
ingar í miklu magni. Þannig að við
eram með mestu neyslu á svona
drykkjum i veröldinni. Hvað eru
þessir drykkir raunverulega? Vatn
sem er kolsýrt og út í það er bætt
alls konar verksmiðjuframleiddum
efnum, en öll verksmiðjuframleidd
efni eru dauð efni. Til þess að við
getum drukkið þessa drykkí verða
þeir síðan að vera ískaldir.
Allra mikilvægasta starfsemi lík-
amans er öndun, við öndum að okk-
ur súrefni úr andrúmsloftinu og við
öndum frá okkur koltvísýringi sem
er eiturefni sem myndast hefur í
líkamanum eftir bruna og við viljum
losna við sem allra fyrst. Með því
að drekka kók og aðra slíka drykki,
þá erum við að vanvirða þessa lík-
amsstarfsemi í okkur vegna þess
að við drekkum þá koltvísýring en
það gengur þvert ofan í þessa
grundvallarstarfsemi líkama okkar
og getur aldrei verið heilsusamlegt
þrátt fyrir að koltvísýringur sé í
litlu magni í þessum drykkjum og
geti sem slíkt kannski ekki talist
hættulegur skammtur, en ég segi,
það sem er ekki gott fyrir okkur
getur ekki verið gott í neinu magni.
Öll önnur efni sem er að finna í
þessum gosdrykkjum íþyngja lík-
ama okkar og sér í lagi lifrinni, þau
nota upp vítamín, steinefni og efna-
hvata okkar, því ekkert af slíkum
nauðsynlegum efnum er að finna í
gosdrykkjum. Þannig að til þess að
hreinsa líkamann af þessari dauðu
efnasúpu þurfum við að nota orku
líkamans en við fáum ekkert í stað-
inn, svo að þegar við lítum ti! lengri
tíma þá getur þetta aldrei orðið
okkur til góðs.
Einnig er vitað að kuldi hefur
neikvæð áhrif á starfsemi líkamans
og sér í lagi lifrarinnar og það er
einn enn punktur í því sem segir
okkur að rangt sé að neyta þessara
gosdrykkja.
En þeir eru jú stöðugt auglýstir
Og er nú svo komið að fólk álítur
nauðsynlegt að láta slíkar gos-
drykkjaflöskur fylgja með í inn-
kaupakörfum sínum, eins og þetta
séu orðnir nauðsynlegir hlutir sem
likaminn megi á engan hátt vera án.
Erum við íslendingar virkilega
orðnir svo heimskir að við höldum
að kók og aðrir slíkir drykkir komi
í staðinn fyrir vatn í líkamanum?
Er ekki kominn tími til að við opn-
um augu okkar? Það getur ekki
verið heilsusamlegt að drekka
steindauðan vökva sem vinnur á
móti því lífi sem er í iíkama okkar.
Er ekki kominn tími til að hætt-
um þessari miklu gosdrykkjaneyslu
og snúum okkur að okkar góða
vatni, en við erum jú að reyna að
selja það erlendis og getur það varla
talist góð sölumennska að sjálf
þjóðin sem segist eiga besta vatn í
heimi sé í toppsæti hvað snertir
neyslu á gosdrykkjum í veröldinni
og að mínu áliti vinnur slík auglýs-
ing mjög mikið á móti þeirri fullyrð-
ingu að við eigum besta vatn í
heimi.
HALLGRÍMUR Þ. MAGNÚSSON,
Hrólfsskálavör 9, Seltjarnarnesi.
Vinningstölur 11. apríl 1992
Ipgr
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 1 2.744.668
Z. 4at5* m 476.916
3. 4af5 88 9.348
4. 3af5 3.458 555
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.963.398 kr.
i
upplýsingar:s!msvari91 -681511 lukkulIna991002
Verktakar, Iðnaðarmenn ! Nú geíió þiö hulclið
utun um launakostnað Jyrir hvert verk jyrir sig.
ERASTUSflytur launuútreikninga inn ú verk ú mjög
einfaldan ogfljötvirkan hútt. 30 daga skilaréttur.
Láunúforritið ERASTUS ‘Einfaldltfia þtzgtfcgTU
M.Flóvent Sími: 91-688933 bg 985-30347
ÞEGAR ÞESSI KRUKKA ER TOM
MUN EINHVER LÍTA BETUR ÚT
Stendhal kynnir með stolti árangur vísindamanna, sem við eigum
að þakka að þessi nýja kremlína varð til.
Þetta er bylting í kremlínu sem styrkir húðina og dregur úr
ótímabcerri öldrun. Og við getum sannað það.
Stendhal
DUGGUVOGI 2
sími 686334
ATAK FYRIR AFRÍKU
MILLJÓNIR SVELTA!
Þessi drengur þarfnast hjálpar þinnar.
Gíróseðlar í bönkum og sparisjóðum.
SE/
HJÁIPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
-rix