Morgunblaðið - 05.08.1992, Blaðsíða 51
KÓNGAFÓLK
íMip@J§$S<(M
BrÁGÚST-1992-
BBC tilbúið með
skilnaðarmynd
Haft er fyrir satt, að eftir út-
gáfu tveggja bóka um líf
Díönu prinsessu og hjónabands-
vandamál hennar og Karls Breta-
prins, riðar hjónaband þeirra meira
til falls en nokkru sinni fyrr. Önnur
bókin dregur mjög taum Díönu, en
hin bókin fer bil beggja og virðist
rituð með því leiðarljósi að sjaldan
valdi einn þá tveir deili. Hvað um
það, þá hefur álagið á hið brot-
hætta hjónaband aukist stórlega.
Svo mjög, að breski ljósvakinn BBC
hefur lokið gerð heimildarmyndar
um líf þeirra Karls og Dí saman.
Mynd sem verður umsvifalaust sýnd
þegar og ef tilkynningin um skilnað
kemur frá Buckinghamhöll.
BBC hóf gerð þáttarins þegar í
byrjun júní og var fenginn til starf-
ans einn af helstu fréttahaukum
fyrirtækisins, Anna Ford að nafni,
sem hefur fylgst grannt með gangi
mála síðustu árin. Hún var einn
mánuð að ljúka verkinu og er nú
beðið átekta. Anna Ford hefur í
gegn um tíðina tekið viðtöl við
bæði Díönu og Karl. Hún er mjög
virtur fréttamaður.
Talsmenn BBC neita því reyndar
að gerð myndarinnar sé í neinu
samhengi við trosnað hjónabandið,
en þeir segja jafn framt að sýning-
ardagur hafi ekki verið ákveðinn
og rennir það stoðum undir að hann
verði geymdur þar til að, og ef að,
tilkynning um skilnað verður birt.
Það eina sem talsmenn BBC hafa
viljað segja um myndina er, að hún
spanni samband Karls og Díönu,
byrji á tilhugalífi þeirra, brúðkaup-
inu, fæðingu prinsanna tveggja og
svo framvegis. í upphafi verksins
sagði Anna Ford að hún væri að
vinna að eftirmála hjónabands. Eft-
ir það hefur hún neitað alfarið að
tjá sig um verkefnið.
FJÖLSKYLDUBÖND
Ættleiðir böm
deyjandi systur
Poppsöngfuglinn Mariah Carey
hefur nú ættleitt tvö börn
dauðvona systur sinnar. Bömin eru
5 og 15 ára gömul, en systir henn-
ar, Alison Carey er með alnæmi á
lokastigi. Alison er 31 árs, en Mar-
iah er aðeins 21 árs, eða aðeins sex
árum eldri en eldra barnið.
Börnin eru Sean 15 ára og Mich-
ael 5 ára og hefur Mariah gætt
þeirra allar götur síðan að Alison
gerðist svo veik af alnæminu að
hún gat það ekki lengur sjálf. Auk
þess hefur Mariah látið þúsundir
dollara renna í sjóð sem á að tryggja
örugga framtíð barnanna. Mariah
er með vinsælli poppsöngkonum
samtímans og selur breiðskífur sín-
ar í milljónaupplögum.
Alison Carey smitaðist af HIV-
veirunni er hún fékk blóðgjöf fyrir
fimm árum. Eða þegar hún eignað-
ist Michael litla.
Mariah Carey.
COSPER
Það var fallega gert af þér að bíða. Geturðu lánað mér 5 þúsund
krónur?
Karl og Díana við opinbera athöfn fyrir skömmu.
* ^ TIZKAN
LAUGAVEGI 71 • 2. HÆÐ
SÍMI 1 0770
ÞÚ KEMUR TIL OKKAR
í MÁNAÐARPRÓGRAM
1. Við fitumælum þig og þú færð ítarlega tölvuútskrift
sem segir þér í hversu góðu eða slæmu formi þú ert.
2. Þú fyllir út matardagbók og færð ráðleggingar um
skynsamlegra mataræði.
3. Þú mætir eins oft og þú vilt í leikfimi og/eða
tækjaþjálfun.
ijj 4. Þú færð 10 skipti í sólbekkina - glænýjar perur.
5. Þú kemur svo aftur í fitumælingu að mánuði Iiðnum
og þá sérðu árangurinn svart á hvítu.
Misstu ekki af þessu frábæra stðsumartilboði.
Aðeins kr.
Býðst aðeins hjá: