Morgunblaðið - 05.08.1992, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C
174. tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tíminn er
að renna út
Gorbatsjov um aðgerðir Jeltsíns;
Láta harðlínumenn sverfa til stáls?
Moskvu. Daily Telegraph. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, fyrrver-
andi forseti Sovétríkjanna, segir
að efnahagsástandið í Rússlandi
fari hríðversnandi og hann óttist
að með sama áframhaldi muni
hættuleg öfgaöfl notfæra sér
ástandið og reyna að hrifsa til
sín völdin. Borís Jeltsín Rúss-
landsforseti segir hins vegar að
hvergi verði hvikað frá stefnu
stjórnarinnar um efnahagsum-
bætur og stjórnin standi styrkum
fótum.
í viðtali við Gorbatsjov, sem birt-
ist í blaðinu Komsomolskaja Pravda
um helgina, sagði hann að tími
Jeltsíns væri á þrotum og efnahags-
stefna stjórnvalda hefði brugðist.
Almenningur tryði ekki á róttækar
efnahagsumbætur forsetans enda
færi framleiðsla minnkandi, fátækt
ykist og ríkið gæti ekki lengur
greitt* út laun eða lífeyri vegna pen-
ingaskorts. „Ef ástandið mun enn
breytast til hins verra er ég hrædd-
ur um að hættuleg pólitísk öfl sjái
Góðvinir
Grænfriðunga
Ósló. Frá Morten Röd, fréttaritara Morg-
unbladsins.
FULLTRÚAR norskra hvalveiði-
manna afhentu Grænfriðungum
þakkarskjal fyrir árangursríka
markaðssetningu á hrefnukjöti
þegar efnt var til umræðufundar
um veiðarnar í Noregi.
Fundurinn var skipulagður af
hvalveiðisinnum og haldinn
skömmu áður en skip Grænfrið-
unga, Solo, hætti aðgerðum við
norðurströnd Noregs og sneri áleið-
is til Englands. Norðmenn telja
mótmælin gegn hrefnuveiðum end-
anlega farin út um þúfur.
Sjá einnig frétt á bls. 28.
sér leik á borði og reyni að ná tök-
um á framvindu mála,“ sagði Gorb-
atsjov. Flestir hafa túlkað ummæli
hins fyrrverandi forseta á þann veg
að hann sé að vara við hugsanlegu
valdaráni harðlínumanna en þeir
reyndu að ræna völdum í ágúst sl.
Jeltsín hét því í gær, þar sem
hann var staddur í opinberri heim-
sókn í Búlgaríu, að halda fast við
efnahagsstefnu sína enda væri ekki
um aðra kosti að ræða. Þá greindi
/nterfax-fréttastofan frá því í gær
að Jeltsín hygðist ekki dvelja í
Moskvu í ágústmánuði eins og hann
hefði þó áður gefið yfírlýsingar um.
Sjá ennfremur frétt á bls. 29.
Reuter
Sprengjuárás á syrgjendur
Fréttamenn og syrgjendur bera særða konu í skjól eftir að sprengjum var varpað á grafreit í Sarajevo þar sem
verið var að jarða tvö börn er serbneskir skæruliðar myrtu. Særða konan á myndinni er amma eins bamsins.
Gagnkvæmar ásakanir um einangrunarbúðir og fjöldamorð í Bosníu:
Múslimar segja Serba
reka 105 fangabúðir
Washington, Sarajevo, Belgrnd, Salzburg. Reuter.
BANDARÍSK yfirvöld sögðu í gær að þau væru að rannsaka ásakan-
ir múslima og Króata um að Serbar starfræktu 105 fanga- og ein-
angrunarbúðir í Bosníu og Svartfjallalandi og öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna krafðist þess í gærkvöldi að fulltrúar hjálparstofnana
fengju að skoða allar fangabúðir í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu.
Serbar hafa sakað múslima og Króata um að halda 20.000 Serbum í
22 fangabúðum og segja 6.000 manns hafa verið drepna þar. Utanrík-
isráðherra Austurríkis, Alois Mock, skoraði í gær á SÞ að aflýsa
vopnasölubanni á Bosníu-Herzegovínu svo ríkið gæti varið sig gegn
árásum Serba.
Mannréttindasamtök hafa látið í
ljós áhyggjur um að múslimar og
Króatar í haldi Serba séu myrtir í
Heræfingar í Kúveit
Reuter
Bandarískir landgönguliðar gengu á land í Kúveit í gær en landtakan
er liður í umfangsmiklum sameiginlegum heræfingum Bandarílqamanna
og Kúveita. Spenna eykst nú við Persaflóa vegna nýlegra yfirlýsinga
íraka um að þeir geri kröfu til Kúveits og framkomu þeirra gagnvart
eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna, sem brýtur í bága við vopnahlés-
skilmálana í Persaflóastríðinu. Meira en fimm þúsund bandarískir her-
menn taka þátt í heræfíngunum en auk þess hafa Bandaríkjamenn flutt
Patriot-gagneldflaugar og ýmsan annan vopnabúnað til Kúveits.
fangabúðum, en bandarísk yfirvöld
viðurkenndu í gær að sannanir
vantaði þar sem enginn fengi að-
gang að stöðunum. Bandaríska
blaðið New York Newsday hefur
eftir tveimur fyrrverandi föngum
að þúsundir manna séu í haldi í
búðum í Omarska og Brcko í norð-
urhluta Bosníu og að margir þar
hafi verið sveltir og drepnir. Annar
þeirra sagði að yfir 1.000 óbreyttum
borgurum væri haldið í málmbúrum
í Omarska án hreinlætisaðstöðu eða
nægs matar. Evrópubandalagið
krafðist þess í gær að starfsmenn
Rauða krossins fengju aðgang að
Omarska-búðunum.
Fréttastofa Serba í Bosníu,
SRNA, tiltók meinta staðsetningu
sex fangabúða á vegum Bosníu-
stjórnar í Sarajevo og sagði að Serb-
ar væru teknir af lífí á brú einni
yfír Miljacka-ána í borginni og
hefðu 27 manns verið myrtir þar
eina nóttina. SRNA nefndi einnig
fleiri borgir þar sem hún sagði að
Serbum væri haldið þúsundum sam-
an í verksmiðjum og á íþróttaleik-
vöngum.
Bandaríkin og bandamenn þeirra
undirbúa nú samþykkt, sem leggja
á fyrir öryggisráð SÞ, sem myndi
leyfa beitingu hervalds við flutning
hjálpargagna í fyrrum lýðveldum
Júgóslavíu. Ákveðið var um nón-
leytið í gær að stöðva allt hjálpar-
flug í 72 stundir til og frá Sarajevo-
flugvelli vegna stanslausra
sprengjuárása. Bardagar virtust
færast í aukana í Bosníu og boðaði
leiðtogi Serba í Bosníu til allmenns
herútboðs til að veijast „allsherjar-
sókn“ sveita múslima og Króata.
Útvarp Króatíu sagði frá því í gær
að sveitir Króata hefðu skotið niður
hei-flugvél frá júgóslavneska sam-
bandshemum yfír Norður-Bosníu.
Sjá einnig fréttir á bls. 28.
Milljónir lögðu niður vinnu í S-Afríku:
Blóðsúthellingar
meðal blökkufólks
Jóhannesarborg. Reuter.
AFRÍSKA þjóðarráðid (ANC) sagðist hrósa áfangasigri á leið til lýð-
ræðislegra stjórnarhátta í Suður-Afríku í gær eftir að milljónir
blökkumanna höfðu tekið þátt í tveggja daga verkfalli í landinu.
Um 30 manns hafa látið lífið í innbyrðis átökum hópa svartra Suður-
Afrikubúa það sem af er vikunni.
Nelson Mandela
leiðtogi ANC fer
í dag fyrir göngu
í Pretoríu,
höfuðstöðvum
stjórnar hvíta
minnihlutans, til
að leggja áherslu
á kröfur um
blandaða stjórn
svartra og hvítra þar til lýðræðis-
legar kosningar fara fram. ANC
segir að fjórar milljónir blökku-
manna, 90% vinnufærra, hafí lagt
niður störf í gær og fyrradag. Versl-
Mandela
unarráð landsins segir tvær milljón-
ir hafa tekið þátt í verkfallinu.
Yfír 6.000 blökkumenn hafa lát-
ist í innbyrðis átökum í Suður-Afr-
íku síðan banni var létt af stjóm-
málastarfi svartra fyrir nokkrum
ámm. í blóðugustu atburðum síð-
ustu daga var skotið á átta menn
í Alexöndru, úthverfi Jóhannesar-
borgar og þeir biytjaðir niður af
liðsmönnum Inkatha-frelsisflokks
zúlúmanna. 1 flokknum em helstu
andstæðingar Mandela og hans
manna sem em flestir af þjóðemi
xhosa.