Morgunblaðið - 05.08.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 05.08.1992, Síða 1
88 SIÐUR B/C 174. tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tíminn er að renna út Gorbatsjov um aðgerðir Jeltsíns; Láta harðlínumenn sverfa til stáls? Moskvu. Daily Telegraph. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, fyrrver- andi forseti Sovétríkjanna, segir að efnahagsástandið í Rússlandi fari hríðversnandi og hann óttist að með sama áframhaldi muni hættuleg öfgaöfl notfæra sér ástandið og reyna að hrifsa til sín völdin. Borís Jeltsín Rúss- landsforseti segir hins vegar að hvergi verði hvikað frá stefnu stjórnarinnar um efnahagsum- bætur og stjórnin standi styrkum fótum. í viðtali við Gorbatsjov, sem birt- ist í blaðinu Komsomolskaja Pravda um helgina, sagði hann að tími Jeltsíns væri á þrotum og efnahags- stefna stjórnvalda hefði brugðist. Almenningur tryði ekki á róttækar efnahagsumbætur forsetans enda færi framleiðsla minnkandi, fátækt ykist og ríkið gæti ekki lengur greitt* út laun eða lífeyri vegna pen- ingaskorts. „Ef ástandið mun enn breytast til hins verra er ég hrædd- ur um að hættuleg pólitísk öfl sjái Góðvinir Grænfriðunga Ósló. Frá Morten Röd, fréttaritara Morg- unbladsins. FULLTRÚAR norskra hvalveiði- manna afhentu Grænfriðungum þakkarskjal fyrir árangursríka markaðssetningu á hrefnukjöti þegar efnt var til umræðufundar um veiðarnar í Noregi. Fundurinn var skipulagður af hvalveiðisinnum og haldinn skömmu áður en skip Grænfrið- unga, Solo, hætti aðgerðum við norðurströnd Noregs og sneri áleið- is til Englands. Norðmenn telja mótmælin gegn hrefnuveiðum end- anlega farin út um þúfur. Sjá einnig frétt á bls. 28. sér leik á borði og reyni að ná tök- um á framvindu mála,“ sagði Gorb- atsjov. Flestir hafa túlkað ummæli hins fyrrverandi forseta á þann veg að hann sé að vara við hugsanlegu valdaráni harðlínumanna en þeir reyndu að ræna völdum í ágúst sl. Jeltsín hét því í gær, þar sem hann var staddur í opinberri heim- sókn í Búlgaríu, að halda fast við efnahagsstefnu sína enda væri ekki um aðra kosti að ræða. Þá greindi /nterfax-fréttastofan frá því í gær að Jeltsín hygðist ekki dvelja í Moskvu í ágústmánuði eins og hann hefði þó áður gefið yfírlýsingar um. Sjá ennfremur frétt á bls. 29. Reuter Sprengjuárás á syrgjendur Fréttamenn og syrgjendur bera særða konu í skjól eftir að sprengjum var varpað á grafreit í Sarajevo þar sem verið var að jarða tvö börn er serbneskir skæruliðar myrtu. Særða konan á myndinni er amma eins bamsins. Gagnkvæmar ásakanir um einangrunarbúðir og fjöldamorð í Bosníu: Múslimar segja Serba reka 105 fangabúðir Washington, Sarajevo, Belgrnd, Salzburg. Reuter. BANDARÍSK yfirvöld sögðu í gær að þau væru að rannsaka ásakan- ir múslima og Króata um að Serbar starfræktu 105 fanga- og ein- angrunarbúðir í Bosníu og Svartfjallalandi og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna krafðist þess í gærkvöldi að fulltrúar hjálparstofnana fengju að skoða allar fangabúðir í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. Serbar hafa sakað múslima og Króata um að halda 20.000 Serbum í 22 fangabúðum og segja 6.000 manns hafa verið drepna þar. Utanrík- isráðherra Austurríkis, Alois Mock, skoraði í gær á SÞ að aflýsa vopnasölubanni á Bosníu-Herzegovínu svo ríkið gæti varið sig gegn árásum Serba. Mannréttindasamtök hafa látið í ljós áhyggjur um að múslimar og Króatar í haldi Serba séu myrtir í Heræfingar í Kúveit Reuter Bandarískir landgönguliðar gengu á land í Kúveit í gær en landtakan er liður í umfangsmiklum sameiginlegum heræfingum Bandarílqamanna og Kúveita. Spenna eykst nú við Persaflóa vegna nýlegra yfirlýsinga íraka um að þeir geri kröfu til Kúveits og framkomu þeirra gagnvart eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna, sem brýtur í bága við vopnahlés- skilmálana í Persaflóastríðinu. Meira en fimm þúsund bandarískir her- menn taka þátt í heræfíngunum en auk þess hafa Bandaríkjamenn flutt Patriot-gagneldflaugar og ýmsan annan vopnabúnað til Kúveits. fangabúðum, en bandarísk yfirvöld viðurkenndu í gær að sannanir vantaði þar sem enginn fengi að- gang að stöðunum. Bandaríska blaðið New York Newsday hefur eftir tveimur fyrrverandi föngum að þúsundir manna séu í haldi í búðum í Omarska og Brcko í norð- urhluta Bosníu og að margir þar hafi verið sveltir og drepnir. Annar þeirra sagði að yfir 1.000 óbreyttum borgurum væri haldið í málmbúrum í Omarska án hreinlætisaðstöðu eða nægs matar. Evrópubandalagið krafðist þess í gær að starfsmenn Rauða krossins fengju aðgang að Omarska-búðunum. Fréttastofa Serba í Bosníu, SRNA, tiltók meinta staðsetningu sex fangabúða á vegum Bosníu- stjórnar í Sarajevo og sagði að Serb- ar væru teknir af lífí á brú einni yfír Miljacka-ána í borginni og hefðu 27 manns verið myrtir þar eina nóttina. SRNA nefndi einnig fleiri borgir þar sem hún sagði að Serbum væri haldið þúsundum sam- an í verksmiðjum og á íþróttaleik- vöngum. Bandaríkin og bandamenn þeirra undirbúa nú samþykkt, sem leggja á fyrir öryggisráð SÞ, sem myndi leyfa beitingu hervalds við flutning hjálpargagna í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. Ákveðið var um nón- leytið í gær að stöðva allt hjálpar- flug í 72 stundir til og frá Sarajevo- flugvelli vegna stanslausra sprengjuárása. Bardagar virtust færast í aukana í Bosníu og boðaði leiðtogi Serba í Bosníu til allmenns herútboðs til að veijast „allsherjar- sókn“ sveita múslima og Króata. Útvarp Króatíu sagði frá því í gær að sveitir Króata hefðu skotið niður hei-flugvél frá júgóslavneska sam- bandshemum yfír Norður-Bosníu. Sjá einnig fréttir á bls. 28. Milljónir lögðu niður vinnu í S-Afríku: Blóðsúthellingar meðal blökkufólks Jóhannesarborg. Reuter. AFRÍSKA þjóðarráðid (ANC) sagðist hrósa áfangasigri á leið til lýð- ræðislegra stjórnarhátta í Suður-Afríku í gær eftir að milljónir blökkumanna höfðu tekið þátt í tveggja daga verkfalli í landinu. Um 30 manns hafa látið lífið í innbyrðis átökum hópa svartra Suður- Afrikubúa það sem af er vikunni. Nelson Mandela leiðtogi ANC fer í dag fyrir göngu í Pretoríu, höfuðstöðvum stjórnar hvíta minnihlutans, til að leggja áherslu á kröfur um blandaða stjórn svartra og hvítra þar til lýðræðis- legar kosningar fara fram. ANC segir að fjórar milljónir blökku- manna, 90% vinnufærra, hafí lagt niður störf í gær og fyrradag. Versl- Mandela unarráð landsins segir tvær milljón- ir hafa tekið þátt í verkfallinu. Yfír 6.000 blökkumenn hafa lát- ist í innbyrðis átökum í Suður-Afr- íku síðan banni var létt af stjóm- málastarfi svartra fyrir nokkrum ámm. í blóðugustu atburðum síð- ustu daga var skotið á átta menn í Alexöndru, úthverfi Jóhannesar- borgar og þeir biytjaðir niður af liðsmönnum Inkatha-frelsisflokks zúlúmanna. 1 flokknum em helstu andstæðingar Mandela og hans manna sem em flestir af þjóðemi xhosa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.