Morgunblaðið - 17.11.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992
19
Doktorspróf í
jarðeðlisfræði
FREYSTEINN Sigmundsson
lauk doktorsprófi frá Univers-
ity of Colorado í ágúst sl. Rit-
gerðin ber heitið „Crustal De-
formation Studies in Subaerial
Parts of the World Oceanic Rift
System: Iceland and Afar“.
Verkið sem var unnið undir leið-
sögn dr. Rogers Bilhams fjallar
um mælingar og túlkun á jarð-
skorpuhreyfingum á svæðum
þar sem úthafshryggjakerfi
jarðar er ofansjávar, á Islandi
og á Afar svæðum (Eþíópíu og
Djibouti) í Afríku.
Nýrri og öflugri tegund land-
mælinga, svokölluðum GPS-land-
mælingum, var beitt til að mæla
jarðskorpuhreyfingar sem urðu í
Heklugosinu 1991. Túlkun á þeim
mælingum sýnir að kvikan sem
upp kom í eldgosinu kom úr grann-
stæðu kvikuhólfí jarðskorpunni
undir Heklu. GPS-landmælingum
var jafnframt beitt til að koma
upp nákvæmu landmælinganeti til
að fýlgjast með breytingum á land-
hæð í kringum Vatnajökul. Líkan-
reikningar sýna að þynning jökuls-
ins á þessari öld hefur létt svo
miklu fargi af jarðskorpunni að
landið undir- jöklinum leitar nú í
nýja og hærri jafnvægisstöðu.
Mælingar á þessum hæðarbreyt-
ingum munu gefa góðar upplýs-
ingar um þykkt og styrkleika jarð-
skorpunnar undir Vatnajökli. I rit-
gerðinni setur Freysteinn einnig
fram hugmyndir til að útskýra
jarðskjálfta á Afar svæðinu í Afr-
íku en þar er jarðskjálftabelti af
svipaðri gerð og á Suðurlandsund-
irlendi íslands. Ritgerð Freysteins
hefur að mestu verið birt sem þrjár
greinar í tímaritinu „Geophysical
Research Letters“.
Freysteinn fæddist árið 1966
og lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð 1985.
Hann lauk BS-prófi 1988 og MS-
milljarða og á þessu ári munu
skuldirnar aukast enn um fimm
milljarða vegna nýrra fjárfestinga,
þrátt fyrir samdrátt í afla að und-
anförnu! Launþegar hafa ekki ver-
ið spurðir álits á þessum miklu
fjárfestingum þó nú sé krafíst að
þeir komi til hjálpar og borgi brús-
ann! Hér er auðvitað um mikla
offjárfestingu og óstjórn að ræða,
sem fyrr hefði þurft .að taka á og
sporna gegn. Það er hins vegar
ljóst, að ofan af því verður ekki
vafið á augabragði. Það liggur
einnig fyrir, að ef ekki kemur til
aðstoð við sum þessara fyrirtækja,
mun það leiða til lokunar þeirra
og enn meira atvinnuleysi en nú
er orðið. Það ber að forðast með
öllum tiltækum ráðum. Forystu-
menn í sjávarútvegi verða hins
vegar að átta sig á þeirri stað-
reynd, að ekki er hægt að réttlæta
það, að fyrirtæki séu árum saman
rekin með bullandi tapi og alltaf
treyst á að það opinbera og laun-
þegar komi til bjargar þegar allt
er komið í óefni, slíkt hefur við-
gengist allt of lengi hér á landi.
Mikilvægt er að sem breiðust
samstaða náist um þær aðgerðir
sem gripið verður til. Forsenda
þess hlýtur þó að vera, að hjálpin
fari fyrst og fremst til þeirra fyrir-
tækja og atvinnugreina, sem í
raun þurfa á aðstoð að halda, en
aðstoðin verið ekki eyðilögð með
því að láta hana ganga jafnt til
þeirra, sem ekki þurfa á henni að
halda. Það væri svipað og að láta
hjálp, sem ætluð væri vanþróuðum
þjóðum, ganga til allra þjóða
heims, burtséð frá afkomu þeirra.
Höfundur er forseti
borgarstjómar Reykjavíkur.
prófi 1990 í jarðeðlisfræði frá
Háskóla íslands. Freysteinn er
sonur Sigmundar Freysteinssonar
verkfræðings, og Sigríðar Jóns-
dóttur. Hann er kvæntur Astþrúði
Sif Sveinsdóttur bókasafnsfræð-
ingi og eiga þau eina dóttur, Eddu
Sigríði. Freysteinn starfar nú við
Norrænu eldfjallastöðina við rann-
sóknir á jarðskorpuhreyfíngum í
tengslum við eldvirkni.
Félag Þingeyinga
í Reykjavík 50 ára
Dr. Freysteinn Sigmundsson
UM ÞESSAR mundir á Félag Þin-
geyinga í Reykjavík hálfrar aldar
afmæli. Félagið var stofnað 24.
nóvember 1942 af burtfluttum
Þingeyingum í þeim tilgangi að
auka tengsl þeirra á milli og efla
þingeyska menningu.
Félagið hélt lengi uppi fjölbreyttu
og öflugu félagsstarfi og stuðlaði að
ýmiss konar menningarstarfsemi,
stóð m.a. að baki útgáfu á ritun Indr-
iða Indriðasonar, Ættir Þingeyinga,
sem komin eru út í fjórum bindum.
Allt fram á síðustu ár hefur félagið
haldið veglegar árshátíðir, svokölluð
Þingeyingamót, sem hafa verið vin-
sæl og fjölsótt bæði af Þingeyingum
sem búa sunnan heiða og þeim sem
búa í Þingeyjarsýslu.
Félagið hyggst halda upp á þessi
tímamót með Þingeyingamóti í
Súlnasal, Hótel Sögu, föstudaginn
20. nóvember, þar sem Þingeyingar
og gestir þeirra munu snæða saman
hádegiskvöldverð, hlusta á skemmti-
atriði heiman úr héraði og dansa síð-
an fram eftir nóttu. Núverandi for-
maður félagsins er Björn Hróarsson.
kaup
Þeir sem kaupa nota&an bil i Bilaþingi Heklu
gera undantekningarlaust hagstæb kaup. Allir
notabir bílar Heklu eru yfirfarnir af fagmönnum
og á nýjum vetrardekkjum, verbiö er gott og
greibsluskilmálar afar sveigjanlegir.
í nóvember bjóbast einum bílakaupanda í
Bílaþingi Heklu sérstök vildarkjör sem ekki eiga
sinn líka: Hann fær bílinn frítt og skiptir verb
hans engu máli!
1. desember verbur dregib úr nöfnum
kaupenda nóvembermánabar, hinn heppni fær
greitt til baka þab sem hann hefur borgab í
bílnum og hann bebinn um ab gleyma
eftirstöbvunum!
OPIÐ ALLAP HELGAP
í NÓVEMBER
Laugardaga 10 -16
Sunnudaga 12 -16
Virka daga 9-18
BÍLAÞINGfflEKLU
NOTAÐIR BÍLAR
Okeypis vetrardekk
fylgja öllum bílum!
Bílaþing Heklu • Laugavegi 174» Sími 69 56 60 • Fax 69 56 62