Morgunblaðið - 17.11.1992, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992
Morgunblaðið/Ámi Sænerg
Fundur miðstjórnar og formanna lands- og svæðasambanda fór fram í aðalstöðvum ASÍ við Grensásveg síðdegis á sunnudag.
Fundur miðstjórnar og lands- og svæðasambanda ASÍ
Umboð veitt til að halda áfram
viðræðum um efnahagsaðgerðir
FUNDUR miðsljórnar og formanna lands- og svæðasambanda
A’þýðusambands íslands sem haldinn var á sunnudag veitti for-
ystu sambandsins umboð til að halda áfram þeim viðræðum um
efnahagsaðgerðir sem staðið hafa yfir undanfarnar vikur. Ekki
var tekin afstaða til einstakra hugmynda sem komið hafa fram
heldur farið yfir málið í heild og komu fram skiptar skoðanir á
einstökum atriðum. Fram kom mikil áhersla á að vaxtalækkanir
þyrftu að tengjast aðgerðunum ef von ætti að vera til að þær
yrðu árangursríkar. Gert er ráð fyrir fundi með Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja í dag og fundi með ríkisstjórninni þar sem
henni verður gerð grein fyrir stöðu mála.
Á fundinum komu fram efa-
semdir um að þær aðgerðir sem
Háskóla-
fyrirlestur
um Völuspá
HERMANN Pálsson prófessor
flytur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands
miðvikudaginn 18. nóvember ld.
17.15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn ber heitið Kring-
um Völuspá og er öllum opinn.
Hermann Pálsson er prófessor eme-
ritus við Edinborgarháskóla og héf-
ur látið frá sér fjölda rita um ís-
lensk fræði. Þess má geta að hann
var kjörinn heiðursdoktor frá heim-
spekideild 1987.
rætt hefur verið um að grípa til
og felast í kostnaðarlækkun at-
vinnufyrirtækja með afnámi að-
stöðugjalds og lækkun tryggingar-
gjalds og afla tekna á móti með
aukinni gjaldtöku og hækkunum
skatta dygðu til að koma sjávarút-
vegsfyrirtækjum á réttan kjöl
nema að einnig kæmi til veruleg
vaxtalækkun og lenging lána í
sjávarútvegi. Var mikil áhersla
lögð á vaxtalækkun til að létta á
skuldabyrði heimila og atvinnufyr-
irtækja og að hún þyrfti að vera
samfara þeim aðgerðum sem grip-
ið yrði til.
I upphafi fundarins lagði Ás-
mundur Stefánsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, til að við-
ræðum um efnahagsaðgerðir yrði
frestað fram að þingi Alþýðusam-
bandsins sem hefst á mánudaginn
kemur á Akureyri, þar sem ekki
væri næg samstaða um þær hug-
myndir um aðgerðir sem hefðu
verið í umræðunni. Eftir að farið
hafði verið yfír málið var það nán-
ast einróma niðurstaða að halda
bæri viðræðum áfram, en ekki var
tekin afstaða til einstakra hug-
mynda.
Ljóst er landssambönd eru með
fyrirvara við einstaka þætti þeirra
hugmynda sem til umræðu eru.
Þannig eru verslunarmenn með
fyrirvara við að aðstöðugjald verði
afnumið í öllum atvinnugreinum
og sjómenn hafa gert fyrirvara við
hátekjuskatt. Ólíklegt er að endan-
Guðmundur sagði að atvinnu-
málanefndin hefði verið orðin nokk-
urs konar efnahagsmálanefnd hjá
ríkisstjórninni og í raun og veru
leg niðurstaða fáist í vikunni áður
en þing ASÍ hefst og ljóst að
málið kemur til kasta þess.
Þá var ákveðið að fjölga í hópi
þeirra sem hafa staðið í viðræðun-
um og bætast í hópinn Ingibjörg
Guðmundsdóttir, formaður Lands-
sambands íslenskra verslunar-
manna, Kári Arnór Kárason, for-
maður Alþýðusambands Norður-
lands, og Sigurður Ingvarsson,
formaður fískvinnsludeildar
Verkamannasambands íslands.
ekki nema hluti af nefndinni. Hann
hefði lengi verið með mikla og
þunga gagnrýni á öll þessi vinnu-
brögð og það hefði fyllt mælinn að
Sagði ekk-
ert sem gaf
ástæðu fyr-
ir formann
Dagsbrúnar
að labba út
- segirÞóra
Hjaltadóttir
ÞÓRA Hjaltadóttir, frá Félagi
verslunar- og skrifstofufólks á
Akureyri, sem situr í miðstjórn
Alþýðusambands íslands, segir að
það sé ekki rétt að hún hafi verið
að agnúast eitthvað sérstaklega
út í verkamannafélagið Dagsbrún
á fundi miðstjórnar ASI og for-
manna lands- og svæðasambanda
á sunnudag, en Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Dags-
brúnar gekk af fundinum vegna
orða sem Þóra lét falla á honum.
„Mér finnst ekki vera rétt að ég
hafi verið að taka Dagsbrún á bein-
ið. Ég vil heldur persónugera það
við Guðmund sjálfan, en mér fannst
ég ekki segja neitt svo alvarlegt að
það væri ástæða fyrir formann Dags-
brúnar að labba út og það af fundi
sem hefði getað skipt sköpum fyrir
launafólk. Það er einhvern veginn
þannig að sumir mega segja allt um
alla, en geta ekki hlustað á neitt um
sjálfa sig,“ sagði Þóra.
Hún sagði að hún hefði gert at-
hugasemdir við að menn væru rífa
niður annarra manna tillögur án þess
að hafa sjálfír einhveijar úrlausnir
fram að færa. Annars sé ekki óeðli-
legt að Guðmundur væri viðkvæmur
fyrir Dagsbrún þar sem hann væri
þar formaður og hljóti að bera tals-
vert mikla ábyrgð á því sem þaðan
kæmi.
Þóra Hjaltadóttir hefði verið með
einhvetja lítilsvirðingu á Dagsbrún.
Guðmundur sagði að sér sýndist
ríkisstjórnin taka ákaflega grunnt
á þessum málum og hann hefði viij-
að fá fijórri og víðtækari tillögur
til úrlausnar á vandamálum íslensks
atvinnulífs. Það væri ákveðinn
vandi sem við stæðum frammi fyrir
vegna minnkandi afla, en með sam-
drætti í kaupi og minnkandi atvinnu
ykist kreppan og minnkaði ekki.
Jafnvel þó þær aðgerðir sem rætt
hefði verið um yrðu að veruleika
fengist ekki sólarsýn og það þyrfti
að kafa miklu dýpra í þessum éfn-
um.
Guðmundur vitnaði til ályktunar
Samtaka fískvinnslustöðva um að
fískvinnslan þyrfti 3 prósentustiga
raunvaxtalækkun til að eiga mögu-
Ieika á að komast af og vaxtalækk-
un sé miklu beinskeyttari aðgerð
til aðstoðar atvinnulífí en þær að-
gerðir sem séu í umræðu. Á sama
tíma og væri verið að ræða um
aukna skattheimtu og gjaldtöku
væri í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar gert ráð fyrir að lækka
telquskatt á fyrirtækjum úr 45% í
33%. Þetta kæmi ekki illa stöddum
fyrirtækjum til góða, heldur þeim
sem væru vel stæð. Það væru 40
fyrirtæki sem greiddu 50% af
tekjujskatti fyrirtækja.
Guðmundur sagði að aðstöðu-
gjaldið væri vandræðaskattur, því
að það legðist með sama þunga á
fyrirtæki hvort sem þau skiluðu
hagnaði eða væru í taprekstri. Hins
vegar dygði ekki eins prósentustigs
hækkun útsvars til að bæta sveitar-
félögum upp tapið, það þyrfti meira
til og sveitarfélögin væru ekki búin
að sætta sig við þetta.
Norskur sjómaður brotnaði á báðum fótum
Var sólarhring
án læknishjálpar
Fjöldi erlendra veiðiskipa er á Dohmbanka
NORSKUR sjómaður slasaðist mikið um borð í norskum rækju-
togara á Jónsmiðum á Dohrnbanka síðastliðinn sunnudags-
morgun. Vír losnaði og slóst í manninn af miklu afli með þeim
afleiðingum að báðir fótleggir hans brotnuðu og annar hand-
leggur. Beiðni um aðstoð var send Landhelgisgæslunni en
TF-SIF, þyrla Gæslunnar, varð frá að snúa er að skipinu var
komið, vegna erfiðra skilyrða. Togarinn sigldi með manninn
til Reykjavíkur og var komið þangað snemma í gærmorgun.
Klukkan 10.40 hafði skipstjóri niðurstaðan af samtali þeirra var
norska rækjutogarans Pero sam-
band við Landhelgisgæsluna og
tilkynnti að skipveiji hefði orðið
fyrir slysi. Vegna veðurskilyrða
og þess hve fjarri landi togarinn
var staddur var ekki unnt að
sækja manninn með þyrlu Land-
helgisgæslunnar. Skipstjóranum
var gefið samband við lækni og
3^1
Sjómaður á norskum
togara slasast á
Dohrn
Kutusuk
sunnudagsmorgun banki
Þyrta landhelgis-
gæslunnar reyndi að
ná hinum slasaða
en án árangurs
sú að sjómaðurinn væri ekki lífs-
hættulega særður. Skipinu var
þegar stefnt í átt ti! Reykjavíkur
og fylgst var með líðan mannsins
allan tímann. Honum voru gefin
deyfílyf, en morfín er um borð í
skipum af þessari stærð.
Um klukkan 15 var reynt að
sækja sjómanninn með þyrlu
Landhelgisgæslunnar, en þá
hafði skipið siglt um 60 sjómílur
nær landi. Flaug þyrlan frá
Reykjavík kl. 15.50 og tók elds-
neyti á Rifí. Flogið var 242 sjóm-
ílur út að togaranum, en flug-
drægi TF-SIF er 300 sjómílur.
Flugið tók um tvo klukkutíma.
Éljagangur var á þessum slóðum
og þungur sjór. Að sögn Land-
helgisgæslunnar voru norsku sjó-
mennirnir óvanir því að taka á
móti þyrlu og mikil hreyfíng var
á skipinu. Ákveðið var að hætta
við að reyna að ná manninum
um borð og þyrlan sneri frá.
Síðastliðinn föstudag flaug
þyrla varnaliðsins 235 sjómílur
frá Keflavík til að sækja 56 ára
gamlan norskan sjómann á skipi
á sömu slóðir sem hafði fengið
hjartaáfall. Lyf handa hjarta-
sjúklingnum um borð í skipinu
voru á þrotum. Hann var fluttur
á Borgarspítalann.
Að sögn Landhelgisgæslunnar
eru margir norskir rækjutogarar
fyrir vestan 200 miðlínu á Do-
hrnbanka, allt upp undir 20 skip
í einu. Einnig er þarna nokkur
fjöldi franskra togara að veiðum.
Ohöpp og veikindi koma alltaf
annað slagið fyrir. Fyrir nokkru
fékk norskur togari á þessum
slóðum drasl í skrúfuna, en ann-
ar togari á svæðinu dró skipið
til Reykjavíkur.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar
Mun ekki taka sæti í at
vinnumálanefnd aftur
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson, formaður verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, segir að hann sé hættur sem fulltrúi í atvinnumála-
nefnd og hann muni ekki taka sæti í nefndinni aftur. Guðmundur
gekk af fundi miðstjórnar og formanna svæða- og landksambanda
Alþýðusambands íslands á sunnudag vegna ummæla sem Þóra Hjalta-
dóttir, frá Félagi verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri lét falla
á fundinum. Fundurinn fjallaði um framhald á viðræðum um efna-
hagsaðgerðir sem staðið hafa yfir að undanförnu.