Morgunblaðið - 17.11.1992, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992
10.000 kínverskir námamenn
fórust af slysförum í fyrra
Peking. Reuter.
TÆPLEGA 10.000 kínverskir
námamenn Iétu lífið af völdum
slysa á síðasta ári, eða um 27 á
dag, að því er dagblaðið China
DaUy, sem kemur út á ensku,
sagði i gær.
Hinn 21. apríl í fyrra fórust allir
námamenn kolanámu einnar í
Shanxi í gassprengingu — 147 að
tölu — í mesta námuslysi í 30 ár,
hefur blaðið eftir talsmanni at-
vinnumálaráðuneytisins. Er það í
fyrsta sinn sem ráðuneytið gefur
tölulegar upplýsingar um námaslys,
en það verður gert reglulega eftir
að ný lög um öryggi í námum ganga
í gildi í maímánuði næstkomandi,
að sögn blaðsins.
Zhu Jiazhen, aðstoðaratvinnu-
málaráðherra, sagði, að í fyrra
hefðu 9819 námamenn látið lífið,
10% færri en árið þar áður. í fyrra
slösuðust 9395 námamenn.
Samkvæmt nýju lögunum, sem
leggja áherslu á grundvallarörygg-
isráðstafanir, eiga þeir, sem bera
ábyrgð á dauðaslysum, yfir höfði
sér allt að sjö ára fangelsisvist.
Eftirlit verður aukið til muna.
The European um bókmenntaverðlaun í Frakklandi
Forlögin hafa mikil áhrif
á verðlaunaveitingar
UM þessar mundir er venð að akveða i Frakklandi hverjir skuli
hreppa sex eftirsóttustu bókmenntaverðlaun Iandsmanna.
Franska akademían úthlutaði sínum verðiaunum 22. október og
féllu þau í skaut Franz-Olivier Giesbert fyrir söguna L’Affreux,
háðslega könnun á helstu meinsemdum nútíma Frakklands. Hinum
verðlaununum; Goncourt, Renaudot, Médicis, Fémina og Inter-
allié, er síðan úthlutað í nóvembermánuði. Blaðið The European
segir flesta sammála um að verðlaunaveitingar af þessu tagi séu
engu hentugri til að meta gildi bókmennta en vítaspyrnukeppni
til að úrskurða um leikni í knattspymu. Blaðið segir enn fremur
að áhrif forlaga á úrslitin séu mikil.
Harðir gagnrýnendur bók-
menntaverðlauna hafa sagt að
bókmenntaverðlaun af þessu tagi
gegni fyrst og fremst hlutverki í
skollaleik margra þeirra sem vilja
láta kalla sig bókmenntaunnend-
ur. Þeir sem lesa (eða jafnvel láta
duga að kaupa) nokkrar af verð-
launabókunum þurfa ekki að huga
að öðrum verkum; andlitinu er
bjargað. Útgefendur eru auk þess
harðánægðir með verðlaunaveit-
ingamar sem alltaf eru gott fjöl-
miðlaefni, vekja athygli á vör-
unni. Goncourt-verðlaunabók
selst ekki í færri eintökum en
100.000 og L’Exposition coloniale
fór upp í 800.000 eintök 1988.
Ferill verðlaunaveitinganna
rennir stoðum undir gagnrýni á
gildi þeirra. Goncourt-verðlaunin
eru elst, var fyrst úthlutað 1903.
Tímaritið Lire gerði könnun á
Franz-OIivier Giesbert.
sögu þeirra árið 1987. Niðurstað-
an var sú að aðeins tvö verðlauna-
verk frá stríðslokum hefðu veru-
legt gildi, Le rivage des Syrtes
eftir Julien Gracq (sem hafnaði
verðlaununum) og Le roi des Aul-
nes eftir Michel Tournier.
The European bendir einnig á
að frá 1960 hafi 24 af alls 31
Goncourt-verðlaunabók verið gef-
in út af þrem forlögum þ. e. Gal-
limard, Grasset eða Le Seuil, hlut-
fallið er um 80%. Hlutfallið er
svipað hjá Fémina, Renaudot og
Interallié. Blaðið segir að ástæðan
sé ef til vill sú forlögin þijú séu
langstærst og gefi auk þess út
megnið af gæðabókmenntum
landsins. Hitt sé samt athyglis-
vert að í dómnefnd Goncourt sitji
níu höfundar og sjö þeirra, 80%
nefndarinnar, láti stóru forlögin
þijú um að gefa út bækur sínar.
Bent er á annað dæmi um líkur
á hagsmunaárekstri. Giesbert,
sem hlaut náð fyrir augum aka-
demíunnar, hefur ritað fjölda ævi-
sagna stjómmálamanna, er aðal-
ritstjóri dagblaðsins Le Figaro og
þess vegna vinnuveitandi margra
félaga í akademíunni. „Er ekki
hugsanlegt að þetta hafí komið
honum til góða þegar hann hlaut
14 atkvæði en Frédéric Vitoux,
með verk sitt Charles et Camille,
13 atkvæði?" spyr The European.
Reuter
Díana Bretaprinsessa með krabbameinssjúkum börnum á sjúkrahús-
inu í Lille í Frakklandi. Myndin var tekin á sunnudag en til Frakk-
lands fór Díana á föstudag og var því víðs fjarri þegar maður henn-
ar, Karl prins, hélt upp á 44. afmælisdaginn sinn á laugardag.
Enska léttmetisblaðið Sun
Karl prins vill af-
sala sér ríkiserfðum
London. Reuter.
KARL Bretaprins hefur tjáð móður sinni Elísabetu Bretadrottningu
að hann sé reiðubúinn að afsala sér ríkiserfðum til Villijálms sonar
síns vegna hjónabandserfiðleika sinna og orðróms um náið samband
hans við gifta konu, að þvi er
Sun, sem þykir oft fara heldur
fijálslega með, skýrði frá þessu einn
enskra fjölmiðla í gær og bar fyrir
sig ótilgreindan heimildamann sem
sagður var meðal vina Karls.
Ef rétt reynist gæti hér verið á
ferðinni mesta uppákoman í ensku
konungsfjölskyldunni frá því Ját-
varður áttundi afsalaði sér ríkiserfð-
um til þess að geta átt fráskilda
bandaríska konu, Wallis Simpson.
Við það féll ríkið í skaut hlédrægum
bróður hans Georgi fimmta, afa
Karls.
Andrew Morton, höfundur um-
deildrar bókar um Díönu prinsessu,
hélt því fram um helgina að þau
Karl hefðu gefið upp alla von um
hamingjusamt hjónaband og náð
samkomulagi um óformlegan skiln-
að. Samkvæmt því munu þau ekki
nð Sun hélt fram i gær.
skilja að lögum heldur búa sitt í
hvoru lagi og vera saman einungis
þegar opinber skylda kallar. Munu
þau jafnframt veija sumarleyfi sam-
an með sonum sínum tveimur, Vil-
hjálmi sem er 10 ára og Harry sem
er 8 ára.
Morton sagði að Karl bæri einkum
ábyrgð á því hvernig komið væri
fyrir hjónabandi þeirra Díönu.
Astæðan væri einkum áframhaldandi
vinskapur hans við gamla kærustu,
Camilla Parker-Bowles, sem er
tveggja barna móðir og gift starfs-
manni hirðarinnar. Morton fullyrti
að fyrir þremur árum hefði Díana
lagt til við Karl að þau reyndu að
bjarga hjónabandinu m.a. með því
að eignast þriðja barnið en hann
hefði ekki viljað það.
Annab tilbob í ríkisvíxla
verbur mibvikudaginn
18. nóvember
Næstkomandi miðvikudag fer fram 2. tilboð í
ríkisvíxla. Um er að ræða 2. fl. 1992 í eftirfarandi
verðgildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til 3 mánaða, með gjalddaga
19. febrúar 1993. Þessi flokkur verður skráður á
Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki ríkisvíxlanna.
Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomu-
lagi. Lágmarkstilboð samkvæmt tilteknu tilboðs-
verði er 5 miilj. kr. og lágmarkstilboð í meðalverð
samþykktra tiiboða er 1 millj. kr.
Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum
kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt
tilteknu tilboðsverði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru
hvattir til að hafa samband við framangreinda
aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og
veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim
sjálfum heimilt að bjóða í vegið meðalverð
samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með
fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn
18. nóvember. Tilboðsgögn og allar nánari
upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins /
Þjónustumiöstöö ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.