Morgunblaðið - 17.11.1992, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992
A
Islandsmót í brids
Erla og Kristjana unnu kvennaflokkinn
en Olafur og Steinar unglingaflokkinn
_____________Brids_________________
ArnórG. Ragnarsson
ERLA Siguijónsdóttir og Krist-
jana Steingrímsdóttir urðu ís-
landsmeistarar í kvennaflokki og
bræðurnir Steinar og Ólafur
Jónssynir i flokki yngri spilara
en keppnin um þessa íslands-
meistaratitla fór fram um helg-
ina.
Erla og Kristjana fóru vel af stað
og leiddu mótið lengst af. Helztu
keppinautar þeirra voru Hjördís Ey-
þórsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir
sem fylgdu þeim eins og skugginn.
Lokastaðan:
Erla Siguijónsdóttir - Kristjana Steingrímsd. 227
Hjördís Eyþórsdóttir - Ljósbrá Baldursd. 208
Lovísa Jóhannsdóttir - Erla Sigvaldadóttir 143
Guðlaug Jónsdóttir - Dröfn Guðmundsdóttir 128
Morgunblaðið/Amór
Islandsmeistarar í kvennaflokki 1992, Kristjana Steingrímsdóttir og
Erla Sigurjónsdóttir. Framkvæmdasljóri Bridssambandsins, Elín
Bjamadóttir, afhenti verðlaunin.
Bræðumir Steinar og Ólafur Jónssynir taka við verðlaunum sínum
á Islandsmóti yngri spilara 1992.1
JacquiMcGreal-KristínÞórarinsdóttir 120
Hanna Friðriksdóttir - Ragnheiður Tómasd. 102
Þijátíu og eitt par tók þátt í
keppninni.
I unglingaflokki var sama uppi á
teningnum. Bræðurnir Steinar og
Ólafur náðu fljótt forystunni sem
þeir héldu til loka en lokastaðan
varð þessi:
ÓlafurJónsson-SteinarJónsson 172
lngiAgnarsson-RúnarEinarsson 104
AronÞorfinnsson-Jónlngþórsson 100
Sigurbjöm Þorgeirsson - Skúli Skúlason 98
Jón Hersir Elíasson - Stefán Jóhannsson 83
RagnarJónsson-TryggviIngason 60
Þórarinn Sigurðsson - Böðvar Þórisson 60
Tuttugu og fimm pör spiluðu í
unglingaflokknum. Þar af var ein
stúlka.
Keppnisstjóri og reiknimeistari
var Kristján Hauksson. Svo góður
gangur var í mótinu að því lauk
fyrr en áætlað hafði verið.
A T VINNAIB OÐI
Mikil vinna
Þar sem við hjá Máli og menningu erum að
hleypa af stað farand- og símsöluátaki á
nokkrum af útgáfuverkum okkar, óskum við
að ráða nokkra vana bóksölumenn strax.
Mikil verkefni. Há sölulaun.
Upplýsingar gefur Kristján Baldvinsson í
síma 689519 milli kl 10-12 og 14-16 í dag
og á morgun.
Mál og menning
Siglufjörður
Hjúkrunarfræðingar
óskast til starfa við Sjúkrahús Siglufjarðar
sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
í síma 96-71166.
Sjúkraþjálfari
óskast til starfa sem fyrst eða eftir nánara
samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir sjúkraþjálfari,
Mariska, eða framkvæmdastjóri,
í síma 96-71166.
Hestamannafélagið Fákur
auglýsir:
Vegna mikillar aðsóknar bendum við þeim,
sem ætla að vera með hesta í húsi félags-
ins, á að panta og staðfesta sem fyrst.
Heykaup
Erum að leita eftir úrvalsheyi á góðu verði
fyrir félagið og félagsmenn.
Úpplýsingar á skrifstofu Fáks í síma 672166.
Kveðja, Fákur.
AUGLYSINGAR
TIL SOLU
Góð fjárfesting
Til sölu mjög vel staðsett atvinnuhúsnæði
m. öruggum leigusamningi og góðum leigu-
tekjum Sérlega hagstæð áhv. lán. Hagstæð
útborgun og sveigjanlegir skilmálar. Fjárfest-
ing sem borgar sig upp á skömmum tíma.
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Huginn fasteignamiðlun,
Borgartúni 24, sími 625722.
Utboð
Vatnsúðunar (sprinkler) kerfi
Húsgagnahöllin óskar eftir tilboðum í sprinkl-
er kerfi í 11.600 m2 húsnæði sitt við Bílds-
höfða 20.
Útboðsgögn afhendast hjá Hátækni hf.,
Ármúla 26, gegn kr. 10.000 gjalgli, sem er
óafturkræft.
Tilboðum skal skila fyrir föstudaginn
18. desember 1992, kl. 10.30 f.h., en þá
verða þau opnuð.
ATVINNUHUSNÆÐI
Lager- og
skrifstofuhúsnæði
Til leigu er rúmlega 300 fm skrifstofu- og
lagerhúsnæði í Reykjavík. Húsnæðið er á
jarðhæð með tveimur góðum innkeyrsludyr-
um. Möguleiki er á að leigja húsnæðið í
tvennu lagi.
Nánari upplýsinar gefur Björn í síma 621400
á skrifstofutíma.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Samstarf skóla og heimila
Fimmtudaginn 19. nóvemberverðurfyrirlest-
ur á vegum Foreldrasamtakana. Ólafur Guð-
mundsson, skólastjóri, og Elísabet Svavars-
dóttir, kennari, fjalla um samstarf skóla og
heimila. Fyrirlesturinn verður í Sóknarsalnum
í Skipholti 50a og hefst kl. 20.30.
Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.
A stjórnarandstaða að
stjórna?
Opinn stjórnmálafundur f kvöld klukkan hálf-
níu í Hótel Lind við Rauðarárstíg.
Alþingismennirnir Kristín Ástgeirsdóttir,
Steingrímur Hermannsson og Svavar Gests-
son flytja stuttar framsöguræður og sitja
fyrir svörum.
Fjölmennið.
Alþýðubandalagið í Reykjavík.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins, Bjólfsgötu 7, Seyðis-
firði, föstudaginn 20. nóvember 1992, kl. 10.00 á eigninni:
Baugsvegur 4, Seyðisfirði, þinglýst eign Þorbjörns Þorsteinssonar,
eftir kröfu Sævars Gestssonar.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
16. nóvember 1992.
□ EDDA 5992111719 I 1 Frl.
□ HELGAFELL 5992111719 VI2
I.O.O.F. Rb. 4 = 14211178
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Kvöldvaka Ferðafélagsins
„Línur í landnámi Ingólfs"
Miðvikudaginn 18. nóv.
kl. 20.30.
Fyrsta kvöldvaka vetrarins i
Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Hún ber yfirskriftina „Línur í
Landnámi Ingólfs". Þórarinn
Þórarinsson, arkitekt, mun fjalla
um sérstætt áhugamál sitt, sem
er athugun á hugsanlegum land-
mælingum í tengslum við land-
nám. Það að landnám hafi m.a.
verið helgað með vörðum og að
tímatal og afstaða sólar hafi ráð-
ið staösetningu bústaöa land-
námsmanna og þingstööum.
Tekur dæmi af vörðum á fjöllum
og heiðum t.d. Helgafelli, Ulfars-
felli, Keili, Ásfjalli o.fl. Þórarinn
sýnir skýringarmyndir og lit-
skyggnur máli sínu til stuðnings.
Myndagetraun að lokinni sýn-
ingunni. Mjög áhugavert efni
fyrir alla. Allir velkomnir, félagar
og aðrir. Góðar kaffiveitingar í
hléi. Verð 500,- kr. (kaffi og
meðlæti innifalið).
Mætið tímanlega.
Aðventuferð í Þórsmörk 27.-29.
nóv. JF.I. 65 ára). Nóg sæti laus.
Skemmtileg ferð með sannkall-
aðri aðventustemmningu.
Fararstjóri: Guðmundur Hall-
varðsson.
Gerlst félagar í Ferðafélaginu.
Ferðafélag Islands.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund mið-
vikud. 18. nóvember í Akóges-
salnum, Sigtúni 3, kl. 20.30.
Húsiö verður opnað kl. 19.30.
Miðar seldir við innganginn.
AD KFUK, Holtavegi
Fjölskyidan í nærmynd
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Sr. Þorvaldur Karl Helgason sér
um fundarefnið.
Allar konur velkomnar.