Morgunblaðið - 17.11.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ .ÞRIÐJUDAGUr' 17. NÓVEMBER4992
I8H
37
Heillandi ævintýri
Areitni og ást
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Fríða og dýrið („The Beauty
and the Beast“). Teiknimynd
sýnd í Sambíóunum. Leikstjór-
ar: Gary Trousdale og Kirk
Wisé. Tónlist: Howard Ashman
og Alan Menken. Raddir: Paige
O’Hara, Robby Benson, Angela
Lansbury, Jerry Orbach. Disn-
ey. 1991.
Teiknimyndadeild Disneyfyrir-
tækisins blómstrar sem aldrei fyrr
eins og sést glögglega á hinni
frábæru teiknimynd þess Fríða
og dýrið, sem Sambíóin frum-
sýndu um síðustu helgi. Hún var
fyrsta teiknimyndin í sögunni sem
útnefnd var til óskarsins í flokki
bestu mynda í ár og það að hún
vann ekki sýnir aðeins íhaldsem-
ina í óskarsakademíunni því Fríða
og dýrið er sannkallaður gullmoli
og fer léttilega með að vera ein
af bestu myndunum sem sýndar
hafa verið hér á landi þetta árið.
Eins og Disney-hefðin býður
er byggt á sígildu ævintýri í þetta
sinn um stelpuna sem fómar sér
fyrir föður sinn í hendur ógurlegr-
ar skepnu sem býr í myrkum
kastala og er í raun prins í álög-
um. Ef hann ekki fínnur ein-
hveija leið til að láta hana elska
sig áður en hin ellefta stund renn-
ur upp mun dýrshamurinn aldrei
hverfa.
Hin innri fegurð verður að sigra
ljótieikann áður en tíminn er úti
og úr þeim eltingarleik við álögin
hafa litameistarar Disneys búið
til ómótstæðilega mynd og töfr-
andi þar sem tónlist og myndir
renna saman í teiknisinfóníu sem
er allt í senn falleg og fyndin,
sérstaklega fjörug og rómantísk,
ógnvænleg og spennandi. Hún er
gerð í hinni sterku hefð Walt Dis-
neys; frá henni glóir ljósleiðari
aftur til meistaraverka eins og
Gosa og Mjallhvítar.
Ekki þó þannig að Disney fylg-
ist ekki með nútímanum. Olíkt
Mjallhvíti mundi Fríða t.d. kjósa
Kvennalistann. Hún er ekki hin
óvirka „bara húsmóðir" dverg-
anna sem Mjallhvít var þegar
heimilisstörfín léku í höndum
hennar (skúra, skrúbba, bóna,
tralla lalla la). Nú er blásið meira
lífí í kvenpersónuna. Fríða kann
ekkert betur að meta en bækur
og hana dreymir um eitthvað
meira og fyllra en viðburðalausa
„heimahjúkrun" í hjónabandi með
aðalgosa þorpsins. Hún vill fijáls-
ræði og jafnrétti jafnvel þótt hin
barnslega fegurð hafí ekkert
breyst: Fríða er eins og sambland
af Mjallhvíti og Elisabeth Taylor
á yngri árum.
Mótleikari hennar, dýrið, er ein
af voldugustu persónum Disney-
myndanna, ógnvænleg mjög og
hræðileg útlits með risavaxnar
vígtennur og hættulegt skapferli
Disneyhefðin; úr teiknimynd-
inni Fríða og dýrið.
en innundir hamnum býr harm-
þrungin sál.
Tónlistaratriðin eru með því
besta sem maður hefur séð í
teiknimyndum og má ekki síst
þakka það tveimur lagahöfund-
um, Howard Ashman og Alan
Menken. Sum atriðin eru stór-
fenglegar sýningar sem aðeins
gætu fundið líf í ævintýrum sem
þessum líkt og þegar kviknar líf
í öllum borðbúnaði kastalans og
hann tekur að dansa innan um
góðgætið. Reyndar fá ótrúlegustu
hlutir líf því þijár stærstu auka-
persónur myndarinnar eru fransk-
ættaður kertastjaki, Lumiere að
nafni, sérstaklega herralegur, sí-
fellt áhyggjufull klukka og gam-
all teketill sem Angela Lansbury
talar fyrir.
Fríða og dýrið er ekki aðeins
teiknimynd fyrir böm, allir aldurs-
hópar sem enn telja ævintýrin
einhvers virði geta skemmt sér
konunglega á þessari eftirminni-
legu Disneymynd.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó:
Forboðin ást - Ju Dou Leik-
stjóri: Zhang Yimou. Handrit:
Yimou, Liu Heng, byggt á skáld-
sögu þess síðarnefnda. Aðalleik-
endur: Gong Li, Li Wei, Li Baot-
ian. Kínversk-japönsk. 1989.
Umtalaðasta kvikmynd sem Kín-
veijar hafa gert síðari árin og jafn-
framt eina þarlenda myndin sem
tilnefnd hefur verið til óskarsverð-
launanna er nú loks komin á tjald-
ið, betra er seint en aldrei. Forboð-
in ást er afar tregafull ástarsaga
sem gerist á þriðja áratugnum.
Ung og fögur stúlka er gegn vilja
sínum gefín öldruðum og efnuðum
verksmiðjueiganda sem misþyrmir
henni á alla lund. Húskarl hans og
frændi fylgist nauðugur viljugur
með og ekki líður á löngu uns hann
og stúlkan fella hugi saman. Þau
eiga erfítt með að njóta hinnar
forboðnu ástar uns sá aldraði verð-
ur fyrir slysi og lamast. Þá gefa
þau sig tilfínningunum á vald og
fara ekki í felur með þær frammi
fyrir sjúklingnum. Konan vill hann
feigan en telur þau ná fram enn
sætari hefndum með þvi að halda
honum lifandi. Hún eignast son og
leynir því ekki fyrir karlinum að
frændinn sé faðirinn.
Drengurinn verður keppikefli
þessa ástarþríhyrnings og hefur sá
gamli best og tekst að vinna hann
á sitt band um sinn. En hjá upp-
gjöri verður ekki komist og því
blóðugu.
Kínversk kvikmyndagerð er um
margt ólík þeirri sem við búum
við, ekki síst frásagnarmátinn.
Hann er einfaldari, byggist meira
á táknum og hádramatískum
vendipunktum en við eigum að
venjast og virkar stundum næsta
bamalegur á Vesturlandabúann.
En jafnskjótt og við höfum aðlag-
ast áhrifum hinnar framandi
sagnalistar og myndmáls upplýkst
fyrir okkur magnþrungin og átak-
anleg örlagasaga og kemur ekki á
óvart þó hún hafí farið fyrir bijóst-
ið á ráðamönnum í Kína sem hafa
ekki leyft sýningar á Forboðinni
ást til þessa dags. Því það er auð-
velt að lesa útúr myndinni hvassa
ádeilu á gamalmennin sem stjóma
þar í landi og þeim aðferðum sem
ráðamenn, komnir að fótum fram,
hafa löngum beitt til að halda þjóð-
inni undirokaðri. Óvenjuleg
grimmd og miskunnarleysi ráða
ríkjum, þau em hin ríkjandi öfl en
ást og mannkærleikur fá lítið skjól
til að dafna og þroskast. Og að
lokum em bmnarústimar einar
eftir. Nú skal byggt að nýju.
Yimou er einn kunnasti leikstjóri
Kínveija, við kynntumst Red Sorg-
hum, öðra ágætisverki eftir hann
á kvikmyndahátíð. Hér málar hann
í sterkum litum ástandið í heima-
landi sínu og ástarsagan er magn-
þmngin og sorgleg. Myndmálið lit-
ríkt og fagurt og leikaranir vel við
hæfí, hin undurfagra Liu Heng ber
þó af í aðalhlutverkinu. Myndir sem
þessar fara sem ferskur vindblær
um huga kvikmyndaunnenda og
minna okkur á að listin þekkir eng-
in landamæri ef hún er sönn.
Námskeið í
stjörnuspeki
GUNNLAUGUR Guðmundsson
heldur námskeið í stjörnuspeki
25. nóvember til 12. desember.
Fjallað verður um stjörnumerk-
in, pláneturnar, húsin og afstöð-
urnar.
Þátttakendur læra gerð stjömu-
korts, úrlestur úr eigin korti og
að finna tímabil í lífí sínu. Innifal-
ið auk námskeiðsins era tveir
einkatímar, kennslubók og tvö
stjömukort. Nánari upplýsingar
má fá hjá Stjörnuspekistöðinni.
(Fréttatilkynning)
Pantaðu tíma - encpin bið!
SÓLNING Smiðjuvegi 34, sími: 44880 og 43988
skólar/námskeið
fjármál
■ Einföld uppskrift að skipulegri
uppbyggingu eigna.
Einstakt 2ja daga kvöldnámskeið Veró-
bréfamarkaðs Islandsbanka, VÍB, um
fjármál einstaklinga. Lögð er áhersla á
hnitmiðaða leiðsögn við hámörkun eigna.
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Sveinsdóttir hjá VÍB f
síma 91-681530.
handavSnna [
■ Ódýr saumanámskeið
Aðeins 5 nemendur í hóp. Faglærður
kennari. Upplýsingar f síma 17356.
starfsmenntun
■ Réttritunarnámskeið
Við kennum allar stafsetningarreglur og
þjálfum notkun þeirra. Námskeiðið hent-
ar öllum aldurshópum. Lengd 20 stund-
ir. Verð 5.500 kr. Reyndir kennarar.
Innritun og uppl. í síma 15103 og
17860 eftir kl. 16.00.
myndmennt
■ Bréfaskólanámskeið:
Teikning, litameðferð, listmálun með
myndbandi, bamanámskeið, skraut-
skrift, hýbýlafræði, innanhússarkitektúr,
garöhusagerð og hæfileikapróf.
Nýtt námskeið: Húsasótt.
Fáðu sendar upplýsingar um skól-
ann með því að hringja f síma
627644 allan sólarhringinn.
stjórnun
■ Breyttu áhyggjum
í uppbyggjandi orkul
Félagsmálaskóli - ITC-námskeið.
- Markviss málflutningur.
- Áhrifarík fundarstjórn.
- Aðlögum námskeið fyrir hópa/félög.
Símar: Guðrún 46751, Kristín
34159 og Vilhjálmur 78996.
tölvur
■ Word fyrir Windows. 15 klst. nám-
skeið 30. nóv.-4. des. kl. 13-16.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
s. 688090.
■ Word fyrir Macintosh. 15 klst.
námskeið 30. nóv.-4. des. kl. 13-16.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
s. 688090.
■ Excel 4.0 fyrir Windows. 15 klst.
námskeið 23.-27. nóvember kl. 16-19.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
s. 688090.
■ Excel 4.0 fyrir Macintosh. 15 klst.
námskeið 23.-27. nóv. kl. 16-19.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
s. 688090.
■ Quark Xpress. 15 klst. námskeið
haldið 30. nóv.-4. des. kl. 16-19.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
s. 688090.
■ PageMaker fyrir Macintosh og
PC. 15 klst. námskeiö haldið 30.
nóv.-4. des. kl. 16-19.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
s. 688090.
■ Öll tölvunámskeið á PC
og Macintosh
Fáðu senda námsskrá.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16, s. 688090.
■ Macintosh fyrir byrjendur.
15 klst. um stýrikerfi, ritvinnslu, gagna-
söfnun og töflureikni. 180 bls. handbók
fylgir. 7.-11. desember kl. 16-19.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
s. 688090.
■ Windows og PC grunnur. 9 klst.
um Windows og gmnnatriði PC notkun-
ar. 7.-11. desember kl. 16-19.
■ Works fyrir Windows. 15 klst. um
Windows og fjölverkakerfið Works.
7.-11. desember kl. 16-19.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
s. 688090.
■ Tölvunámskeið
PageMaker fyrir Windows og
Macintosh, 14 klst.
Turbo Pascal, 20 klst.
ýmislegt
NÁMSAÐSTOÐ
■ Námsaðstoð við grunn-, framhalds-
og háskólanema. Flestar námsgreinar.
Einkatímar - hópar.
Reyndir réttindakennarar.
Innritun í síma 79233 kl. 14.30-18.30.
Nemendoþjónustan sf.
■ Tungumál - raungreinar
Kennsla fyrir þig.
Skóli sf.|
Hallveigarstíg 8,
simi 18520.