Morgunblaðið - 17.11.1992, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992
Hafnarfjörður
Heilbrigðiseftirlit kann-
ar mengun í Læknum
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðarsvæðis hefur ákveðið að láta
kanna enn frekar mengxin, sem komið hefur í \jós í Læknum í
Hafnarfirði. Könnun líffræðinemenda í Flensborgarskóla leiddi í
ljós að í Læknum eru yfir 358 saurgerlar í hveijum 100 ml vatns
en leyfilegt hámark með ströndum eru 100 gerlar í hverjum 100 ml.
Að sögn Guðmundar H. Einars- ætlunin að skolp komist í Læk-
sonar framkvæmdastjóra heil-
brigðiseftirlitsins, gæti verið um
leka skolpleiðslu að ræða eða
mengun frá fuglum í og við Læk-
inn. „Ef um skolp er að ræða þá
verður það lagfært því það er ekki
inn,“ sagði hann. „Ef um slíkan
leka er að ræða gæti tekið tíma
að komast fyrir hann en þegar er
farið að kanna með hvaða hætti
er hægt að einangra mengunina."
ÚR DAGBOK
LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK:
Almennt var helgin róleg og tíð-
indalítil í miðbænum föstudags- og
laugardagsnætumar. Aðfaranótt
laugardagsins voru um 2.500
manns í miðbænum þegar mest
var, sem þykir fátt. Eitthvað var
um smápústra manna á milli, en
ekki er vitað um alvarleg átök.
Töluverðu var hellt niður af víni
og er talið að nokkuð hafí verið
af landa í umferð. Aðfaranótt
sunnudagsins var heldur fleira í
miðbænum, eða um 4.000 manns
þegar mest var. Betra veður var
þessa nótt og væntanlega ástæða
mannfjöldans. Órói var í fólki og
þurftu lögreglumenn að skakka
leikinn nokkrum sinnum. Alls
þurfti að handtaka 22 menn um
helgina vegna láta í miðbænum og
færa í fangageymslur. Tveimur
þeirra var boðið að ljúka málum
með greiðslu sekta, en þeir höfðu
verið ölvaðir með óspektir og dóna-
skap við lögreglumenn.
Um helgina þurfti lögregla að
hafa afskipti af um 80 manns
vegna ölvunar. Auk þess voru fimm
manns stöðvaðir vegna ölvunar við
akstur. Nú þyrftu ökumenn að taka
sig á í umferðinni, einkum þegar
færð fer að versna. Um helgina
urðu 19 árekstrar sem lögreglan
hafði afskipti af og sex umferðar-
slys. Meiðsli urðu þó ekki alvarleg.
Að undanfömu hefur staðið yfir
átak í umferðarmálum og lögreglan
hefur einkum veitt athygli hrað-
akstri auk annarra umferðarlaga-
brota. Nú um helgina voru 27 öku-
menn stöðvaðir fyrir of hraðan
akstur. Það er há tala þegar hálka
er á götunum. Einn þeirra öku-
manna sem stöðvaðir voru um helg-
ina var nú stöðvaður í 23. skiptið
fyrir umferðarlagabrot síðan hann
fyrst fékk ökuréttindi 17 ára gam-
all í janúar 1989.
Óskað var aðstoðar lögreglu við
að fjarlægja kött sem gert hafði
sig heimakominn í íbúð í óþökk
húsráðanda og neitaði að fara út.
Kisa er þó löghlýðin og hljóp út
um leið og hún sá til ferða lögregl-
unnar.
Ung stúlka var staðin að verki
við að stela tvennum sokkabuxum
úr Hagkaupum i Kringlunni. Að-
spurð kvaðst hún hafa stolið sokka-
buxum frá Hagkaupum þrisvar
sinnum áður.
Maður nokkur skildi peninga-
veski með 20.000 krónum í eftir
milli framsætanna í bifreið sinni,
meðan hann þurfti að skjótast inn
í hús. Þegar hann kom til baka var
búið að stela frá honum peningun-
um. Það er aldrei of oft brýnt fyr-
ir fólki að skilja ekki verðmæti eft-
ir í bílum þar sem þau eru sjáanleg
óheiðarlegu fólki sem ekki getur
staðist slíkar freistinga.
Rafmagnsverkfærum var einnig
stolið úr bíl sem skilinn hafði verið
eftir á bílastæði við íbúðarhús.
Brotist var inn í veitingahús í mið-
bænum og þaðan stolið hamborgur-
um, sjónvarpi, myndbandstæki og
peningum. Þá var farið inn á vinnu-
stað við Borgartún og stolið pen-
ingaveski úr yfirhöfn starfsmanna.
SAUMAVELAR 0G F0NDURV0RUR
í ÆVINTÝRALEGU ÚRVAL!
VÖLUSTEINN
Faxafen 14, Sími 679505
SJÓÐSBRÉF5
Mjög öruggur sjóður
sem eingöngu fjárfestir
í ríkistryggðum skuldabréfum.
VfB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30.
íslandsmeistararnir í akstursíþróttum tóku við verðlaunum í sérstöku hófi LÍA, en 400 keppendur
voru í akstursíþróttum í sumar.
Titillimi mikil hvatning
- sagði Baldur Jónsson akstursíþróttamaður ársins
og knattspyrnunnar. Rallið er
freistandi en það verður erfítt að
sjá á eftir félagsskapnum í fót-
boltanum, en meistaraflokkurinn
er mjög tímafrekur og getur tæp-
lega gengið saman við rallið. Svo
langar mig að prófa að keppa
erlendis, sé þess nokkur kostur,"
sagði Baldur.
Baldur kemur frá sannkallaðri
rall-fjölskyldu, Jón faðir hans og
Rúnar bróðir hans hafa margsinn-
is orðið íslandsmeistarar, en
bræðurnir Ómar Ragnarsson og
Jón byijuðu einmitt að keppa fyr-
ir hönd fjölskyldunnar, síðan hafa
átta meðlimir hennar prófað rall-
akstur, bæði karl- og kvenkyns.
Ómar hafði þetta um Baldur að
segja: „Ég er ekkert hissa á vel-
gengni Baldurs. Strax þegar hann
var í fótboltanum sem patti hafði
hann mikið keppnisskap og mér
fannst strax ljóst að hann ætti
eftir að ná langt í íþróttum. Hann
er mjög sjálfstæður í hugsun,
opinn, hreinn og beinn og slíkir
persónuleikar ná alltaf langt,“
sagði Ómar.
Fyrir kjörið voru afhentir
meistaratitilar í öllum aksturs-
íþróttum, Siguijón Haraldsson
hlaut tvo titla, fyrir sandspyrnu
og kvartmílu en hann hefur verið
lengi í eldlínunni. í torfæru urðu
meistarar Magnús Bergsson og
Ragnar Skúlason, rallakstri Ás-
geir Sigurðsson og Bragi Guð-
mundsson, bílkrossi Högni Gunn-
arsson, rally cross Kristín Birna
Ga?ðarsdóttir, í teppaflokki Einar
Gíslasson, í kvartmílu urðu meist-
ara í fímm flokkum, á mótorhjól-
um Hlöðver Gunnarsson og Júlíus
Eggertsson, „bracket" Gunnar Ó.
Gunnarsson, götubílum Benedikt
Svavarsson.
Aðrir meistara í sandspyrnu
urðu í jeppaflokki Þorsteinn Ein-
arsson og Árni Kópsson, á mótor-
hjólum Jón Kr. Gunnarsson og
Kristján Viktorsson,_ „standard"
fólksbílum Tryggvi Óli Þorfínns-
son, útbúnum fólksbílum Gunn-
laugur Emilsson og opnum flokki
Benedikt Valtýsson.
„ÞAÐ að vera kjörin akstursíþróttamaður ársins er mikil hvatn-
ing fyrir mig og aðra keppendur sem eru að byrja í akstursíþrótt-
um. Eg hoppaði hæð mína þegar ég heyrði að ég var valinn og
ég og Guðmundur Pálsson, sem keppti með mér, hoppuðum um
af kæti. Það er mikill sigur að fá svona titil á fyrsta ári í keppni.“
sagði Baldur Jónsson sem var kjörinn akstursíþróttamaður ársins
í hófí Landsambands íslenskra akstursíþróttafélaga um leið og
Islandsmeistaratitlar í akstursíþróttum voru afhentir s.l. laugar-
dag. Baldur er aðeins 18 ára gamall og varð bikarmeistari í flokki
óbreyttra bíla í rallakstri á Mazda 323 á sínu fyrsta ári eftir
harða keppni við Óskar Ólafsson á Suzuki GTi. Baldur var valinn
úr hópi 400 keppenda í akstursíþróttum keppnistímabilsins.
Það var tímaritið 3T og meðlim-
ir í Landsambandinu sem stóðu
að kjörinu, en af þeim sem voru
tilnefndir fengu Baldur, Stein-
grímur Ingason, Siguijón Har-
aldsson og Ragnar Skúlasson flest
atkvæði. Baldur tók við nafnbót-
inni af Karli Gunnlaugssyni, en
akstursíþróttamaður ársins var
fyrst kjörinn í fyrra af tímaritinu
3T og var af því tilefni veittur
bikar til minningar um rallöku-
manninn Jón S Halldórsson.
„Mér fínnst gott fyrir íþróttina
að Baldur skuli valinn. Um mitt
árið fannst mér Steingrímur eða
Hlöðver líklegastir til að taka við
titlinum af mér, en undir lok tíma-
bilsins fannst mér Baldur koma
sterkast út. Þetta virkar örugg-
lega hvetjandi fyrir unga stráka
að byija að keppa, en þróunin
hefur verið sú að eldri menn hafa
verið að hirða flesta meistaratitla.
Það er orðið keppikefli að ná 3T
bikamum og mig langar sannar-
lega í hann aftur,“ sagði Karl
Gunnlaugsson sem afhenti Baldri
bikarinn.
Baldur er ekki aðeins í rall-
akstri, hann er nýgenginn í meist-
araflokk ÍR í knattspyrnu, var
kosinn leikmaður árins í 2. flokki
í sumar og varð markakóngur
liðsins í fyrra. Hann náði að sam-
eina knattspymuna og rallakstur-
inn í sumar og náði góðum árangri
sem nýliði, m.a. öðm sæti í sein-
ustu keppni árins. „Þetta var mik-
ill slagur við Óskar Ólafsson um
bikarinn í flokki óbreyttra bíla og
við áttum skemmtilega keppni.
Það var óneitanlega gaman að
vinna jafn færan ökumann og
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Baldur Jónsson(t.h.) ók Mazda
rallbíl ásamt Guðmundi Páls-
syni og þeir unnu flokk
óbreyttra rallbíla á sínu fyrsta
ári í keppni.
hann er, en hann veitti mér oft
stuðning þó við værum andstæð-
ingar,“ sagði Baldur. „Ég stefni
á að kaupa nýjan bíl, en verð fyrst
að borga skuldimar eftir þetta
sumar, árið varð dýrara en ég
ætlaði, því við fómm að keppa
um miklu stærri hluti en við ætl-
uðum í fyrstu. Svo lentum við í
kostnaðarsamri bilun í einni
keppni, þannig að ég verð að
skoða stöðuna vel í vetur. Svo
verð ég að velja á milli rallsins