Morgunblaðið - 27.11.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1992
Verðstríð á eggjamarkaði fyrir jólin
Kílóverðið lækkað
um allt að 200 kr.
á nokkrum dögum
„Markaðurinn er jafn brothættur
og skurnin,“ segir eggjabóndi
KÍLÓVERÐ á eggjum í stórmörkuðum hefur á skömmum tíma lækkað
úr 330-350 krónum niður fyrir 200 krónur og voru ódýrustu eggin seld
í Bónus á 132 kr. kílóið, samkvæmt því sem fram kom er blaðamaður
Morgunblaðsins hringdi í gær í nokkra stórmarkaði. Geir Gunnar
Geirsson, formaður samtaka eggjaframleiðenda, segir að eggjamarkað-
urinn sé jafn brothættur og eggjaskurnin og verðstríð af þessu tagi
bresti oft á fyrir jólin. Hann kveðst telja að verðið sé komið nærri
lágmarki og að þessu sinni muni verðstríðið standa stutt, einkum vegna
þess að verð á fóðri hafi hækkað um 6% strax eftir gengisfellingu.
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins hringdi í nokkra stórmarkaði í
gær að athuga verð á eggjum kom
í ljós auk þess sem fyrr var getið
að Hagkaup og Fjarðarkaup buðu á
sama verð eða 198 kr. fyrir kíló af
eggjum. Mikligarður auglýsti egg á
149 kr. kílóið í Morgunblaðinu í gær.
Morgunblaðið/lngvar
Kona varð fyrir bíl
Ekið var á gangandi vegfaranda í grennd við Kringluna
skömmu eftir hádegið í gærdag. Vegfarandinn, fullorðin kona,
slasaðist töluvert, m.a. axlarbrotnaði og lærbrotnaði. Hún var
flutt á slysadeild og mun líðan hennar eftir atvikum góð.
Dráttarvextir
verða lækkað-
ir um 2-2,25%
SEÐLABANKI íslands mun
væntanlega taka ákvörðun um
2-2,25% lækkun dráttarvaxta eft-
ir að breytingar á vaxtalögum
voru samþykktar með hraði á
alþingi i gær. Þetta mat Jóns
Sigurðssonar viðskiptaráðherra
kom fram í umræðum um laga-
breytingamar á alþingi í gær.
í nýrri verðbólguspá Seðlabank-
ans er spáð 1% hækkun lánskjara-
vísitölu í febrúar, sem er álíka mik-
il hækkun og orðið hefur á vísi-
tölunni undanfama 12 mánuði.
Gangi þessi hækkun eftir mundi
það jafngilda 12,7% hækkun á heilu
ári. Þá er spáð 2,2% hækkun bygg-
ingavísitölu í janúar, einkum vegna
lækkaðrar endurgreiðslu virðis-
aukaskatts af vinnu við íbúðarhús-
næði í 60%.
Stjómarandstaða greiddi leið
vaxtalagafmmvarpsins á alþingi í
gær og þakkaði Geir H. Haarde
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins fyrir það samstarf.
Sjá fréttir á bls. 29 og 31
Hann sagði að eggjaneysla dreifð-
ist nú mun jafnar á árið en verið
hefði fyrr á árum en þó yrði um það
bil 50% söluaukning þær tvær vikur
um þetta leyti árs se'm fólk færi að
huga að jólabakstri. Þá sæju kaup-
menn sér einnig hag í að bjóða egg
á tilboðsverði í því skyni að laða að
fyrirtækjum sínum önnur viðskipti.
birgðír hefðu safnast upp hjá mörg Nyw huffmvndir uhi mðurskurð utgialda til landbunaðarmala
um bændum þar sem of margir hefðu -iíjz-ss-------------------------------------------------------------------------------
endumýjað stofna sína á svipuðum
tímá. Við slíkar aðstæður færu menn
að óttast að geta ekki selt vöru sína
og væru því tilleiðanlegir að lækka
verð þegar eftir væri leitað og þegar
einn léti eftir yrðu aðrir að fylgja í
lqölfarið.
Evrópumótið í skák
Svíar unnu
ÍSLENSKA sveitin tapaði fyr-
ir þéirri sænsku í 6. umferð
Evrópumeistaramótsins í skák
í Ungveijalandi í gær með 2‘/j
vinningum gegn IV2. íslenska
sveitin hefur I2V2 vinning af
24 mögulegum.
Jóhann Hjartarson gerði jafn-
tefli við Andersson, Margeir
gerði jafntefli við Emst og Hann-
es Hlífar Stefánsson gerði jafn-
tefli við Karlsson en Jón L. Arna-
son tapaði fyrir Hellers. Eftir að
hafa hafnað jafntefli lenti Jón í
miklu tímahraki og lék af sér.
Sjá nánar bls. 30-31.
Fé tekið úr verðmiðlunarsj óði
og niðurgreiðslur lækkaðar
HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra kynnti forystumönnum
bænda í gær hugmyndir sínar um lækkun útgjalda ríkisins til land-
búnaðarmála samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar vegna fyrir-
hugaðra efnahagsaðgerða. Fallið hefur verið frá lækkun niður-
greiðslna ullarverðs. í staðinn er, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, rætt um að taka 100 miiyónir kr. úr verðmiðlunarsjóði
mjólkur, að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna svínakjöts
og kjúklinga um 50 milljónir kr. og lækka niðurgreiðslu á geymslu-
og vaxtakostnaði kindakjöts um 50 milljónir.
Hauki Halldórssyni formanni
Stéttarsambandsins að ráðherra
hefði í gær verið gerð grein fyrir
því að ef farið yrði út í einhliða
aðgerðir sem brytu í bága við bú-
vörusámningi myndu bændur
sækja rétt sinn fyrir dómstólum
en talið er að lækkun niður-
greiðslna á vaxta- og geymslugjald
geti gengið gegn ákvæðum samn-
ingsins.
Halldór Blöndal lagði á það
áherslu að tillögumar væru ekki
frágengnar. Rétt væri að sjá
hvemig þær litu út áður en farið
væri að tala um samningsrof.
Sjá Af innlendum vettvangi á
miðopnu.
Með aðgerðunum er fyrirhugað
að lækka útgjöld til landbúnaðar-
mála um 250 milljónir en í gær lá
ekki fyrir hvemig ná ætti þeim 50
milljóna króna spamaði sem vantar
upp á þá tölu.
Eurocard miðar við
desembergengið
GUNNAR Bæringsson forstjóri Kreditkorta hf segir að við næstu
útskrift Eurocard reikninga, 17. desember, verði farið að veiyu og
miðað við gengi þann dag. Vísa ætlar hins vegar að bregða út af
vana og taka á sig gengismismun frá 17. tíl 23. nóvember.
Við gengisfellingu krónunnar í
byijun vikunnar vöknuðu spuming-
ar um hvað gert yrði varðandi er-
lendar úttektir dagana frá uppgjöri
17. nóvember fram að lækkun sex
dögum seinna. Hjá Vísa var ákveð-
ið að miða við eldra gengið þessa
daga við næstu útskrift en Euro-
card ætlar að fara að venju og
reikna með skráðu gengi dollara
við uppgjör í desember. Gunnar
Bæringsson bendir á að dollarinn
hafí nú þegar lækkað í verði um
næstum krónu frá byijun vikunnar.
Stjóm Stéttarsambands bænda
samþykkti á fundi sínum í gær að
háfna nýjum álögum á búvöm-
framleiðsluna og lækkun endur-
greiðslna ríkisins á virðisauka-
skatti. „Bændur hafa með búvöru-
samningum skuldbundið sig til að
lækka búvömverð í trausti þess
að þær aðgerðir skili sér í lækkuðu
vöraverði til neytenda. Óþolandi
er að ríkisvaldið komi með aukinni
skattlagningu í veg fyrir að slík
verðlækkun á inr.lendum búvömm
náist fram. Samkeppnisstaða
eggja-, kjúklinga-, svína- og nau-
takjötsframleiðslu veikist sérstak-
lega í kjölfar fyrrgreindra að-
gerða," segir í samþykktinni.
Jafnframt lýsti stjóm Stéttar-
sambandsins sig tilbúna til við-
ræðna um framkvæmd búvöm-
samnings, meðal annars um fyrir-
komulag á greiðslu vaxta- og
geymslugjalds. Fram kom hjá
Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ
Tel samkomulagið
vera hagstætt fyr-
ir sjávarútveginn
dag
Stór þyrla hefði dugað betur
TF-SIF hefur orðið frá að hverfa
í sjúkraflugi fjórum sinnum í nóv-
ember 20
AÖventan hefst á sunnudag
Upplýsingar um kirkjustaríið í að-
ventunni 34
Foringinn handtekinn____________
Lögregla hefur handsamað foringja
þýskra hryðjuverkamanna 25
Leiöari
Fylgjumst með verðlagi 26
ílí ppfiStaB
Sjálfsvíg ungs fófks Sgífg
rannsökuð á Austurlandi
Fasteignir
Víkingasetur í Hafnarfirði-
íbúðarkaup - Nýtt fasteignamat-
Jámrúm - Skemmdar lagnir-
Mannvirkjaþing
Daglegt líf
► Reynsluakstur á Daihatsu
Applause - Herbergi ungiinga -
Fjallahjólaferð - Ný jóladagatöl -
Um Dyflinni - Ljósmyndamiðstöð
áíslandi
MAGNÚS Gunnarsson, annar
teggja formanna í nefnd þeirri
sem endurskoðað hefur lög um
stjórnun fiskveiða, segist telja
að samkomulag það sem tókst í
nefndinni síðastliðinn mánudag
um stofnun Þróunarsjóðs sjávar-
útvegsins, sem m.a. felur í sér
að ákveðin er gjaldtaka af fiski-
skipum frá og með flskveiðiárinu
1996/97 sé hagstætt fyrir sjávar-
útveginn. „Ég treysti því, þegar
menn hafa kannað það betur
hvað það felur í sér, að menn
verði mér þá sammála," sagði
Magnús í samtali við Morgun-
blaðið I gærkveldi, en hann er
staddur í Brussel.
Aðspurður hvort sú staðreynd að
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, hefur fyrir hönd Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna hafn-
að samkomulaginu, eins og kom
fram hér í Morgunblaðinu í gær,
breytti einhveiju í hans huga, sagði
Magnús: „Ég trúi því að þetta sam-
komulag sé gott fynr sjávarútveg-
inn og afstaða LÍÚ breytir ekki
þeirri skoðun minni. Það hefur ekk-
ert komið fram frá því að við geng-
um frá þessu sem bendir til ein-
hvers annars.“
Magnús kvaðst vissulega geta
fallist á það sem Kristján Ragnars-
son segði að það væri ógeðfellt í
reynd fyrir menn að taka upp
vandamál liðinna tíma inn í þessa
samningagerð, en þegar staða
málsins væri metin í ljósi þeirra
aðstæðna sem við búum við í dag,
þá teldi hann að þegar til lengri
tíma væri litið ætti samkomulagið
þrátt fyrir allt að geta orðið sjávar-
útvegnum til farsældar.
Tjón í elds-
voða hjá
Nord Morue
TALSVERT tjón varð af
völdum eldsvoða i fyrirtæki
SÍF, Nord Morue, I Frakk-
landi í fyrranótt. Miklar
skemmdir urðu á skrifstofu
fyrirtækisins og skemmdust
bókhaldsgögn og tölvubún-
aður, auk þess sem tjón varð
á birgðum.
Tjónið hefur ekki verið met-
ið til fjár en fyrirtækið er
tvyggi, að því er fram kemur
1 frettatilkynningu. Þar segir
einnig að erfítt sé að gera sér
grein fyrir því hve mikið tjón
hljotist af þeirri stöðvun á
framleiðslu sem fylgi í kjölfar-
ið en einnig raskist sölu- 0g
markaðsstarfsemi. Nú er há-
annatími á mörkuðum fyrir-
tækisins, sem hefur 125
starfsmenn.