Morgunblaðið - 27.11.1992, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1992
Hungursneyðin í Sómalíu
Yaldbeiting* til að
aflétta neyðinni?
New York. Reuter.
BOUTROS Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ), undirbýr tillögur sem
búist er við að hann kynni örygg-
isráðinu í dag, um aðgerðir til
að koma megi hjálpargögnum til
bágstaddra í Sómalíu.
Stríðandi fylkingar í Sómalíu
hafa rænt hjálpargögnum að und-
anfömu og reynt að hindra hjálpar-
starf með ýmsum hætti. Áætlað er
að 300.000 óbreyttir borgarar hafi
týnt lífí af völdum stríðsins í land-
inu frá því Mohammed Siad Barre
fyrrum einræðisherra var steypt af
stóli í janúar 1991.
Danmörk;
Samkomu-
lagum
/»• / i •• •
rjarlogin
Kaupmannahöfn. Reuter.
DANSKA stjórnin hefur náð
samkomulagi við stjórnar-
andstöðuflokkana um fjár-
lög næsta árs. Er markmið
þeirra að draga úr halla á
ríkissjóði og um leið örva
atvinnulíf.
Talsmenn flokkanna sögðu
að þrýstingur á dönsku krón-
una eftir gengisfellinguna í
Svíþjóð í lok síðustu viku hefði
valdið því að flokkamir hefðu
náð samkomulagi um fjárlögin
mun hraðar en ella.
Henning Dyremose íjár-
málaráðherra vildi ekki skýra
frá því í hveiju samkomulag
flokkanna var fólgið. Sagði
einungis að frumvarpið, sem
búist er við að verði að lögum
í næsta mánuði, ætti að draga
úr atvinnuleysi og minnka
halla á ríkissjóði.
Á mánudag lét Poul
Schliiter forsætisráðherra í
ljós vonir um að samkomulag
næðist um íjárlagafrumvarpið
í vikunni, það væri nauðsyn-
legt ef íjármagnsmarkaðurinn
ætti að meta stöðuna jákvætt.
Hann sagði jafnframt þá að
stjóm sín hefði ákveðið að
verða við þeim kröfum stjóm-
arandstöðunnar að slaka á
strangri peningastefnu sinni.
Boutros-Ghali hefur að undan-
fömu kannað ýmsa möguleika á
aðgerðum af hálfu SÞ í Sómalíu.
Meðal kosta er valdbeiting og sagði
CAW-sjónvarpsstöðin í gær að
Lawrence Eagieburger utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna hefði farið
til New York í fyrradag og boðið
Boutros-Ghali að Bandaríkjamenn
sendu allt að 30.000 manna herlið
til landsins til þess að tryggja að
hjálpargögn bærust til bágstaddra.
Sameinuðu þjóðimar sendu á sín-
um tíma 500 manna pakistanskt
herlið til höfuðborgarinnar Moga-
dishu til þess að stjóma flutningum
með hjálpargögn. Staðið hefur til
að fjölga þeim um 3.000 en fulltrú-
ar stríðandi fylkinga í landinu hafa
lagst gegn því.
Nicu frjáls maður
Reuter
Nicu Ceausescu, 41 árs gamall sonur rúmenska einræðisherrans Nicolae
Ceausescu, sést hér stíga inn í bfl í Búkarest. Hann var látinn laus úr
fangelsi fyrir nokkrum dögum vegna heilsubrests. Nicu mun vera með
skorpulifur og vart eiga mörg ár ólifuð. Hann nýtti sér óspart aðstöðu sína
á valdatíma föðurins, yar alræmdur svallari og grimmdarseggur.
Umbótasinnar úr stjóm í Rússlandi
Harðlínumenn telja
mannaskíptín yíii’skin
lf_1- D_á._
Moskvu. Reuter.
BORÍS N. Jeltsín, forseti Rússlands, lagði í gær niður stöðu sérstaks
ríkisráðgjafa, sem umbótasinninn Gennadí Búrbúlís hefur gegnt en
hann tekur við nýju embætti yfirmanns helstu ráðgjafanefndar forset-
ans. í fyrradag sagði Míkhaíl Poltoranín upplýsingamálaráðherra af
sér, að eigin sögn til að slá á árásir harðlínumanna á Jeltsín. Tals-
menn afturhalds- og harðlínumanna segja þessar mannabreytingar
eintómt yfirskin. Þeir krefjast gerbreyttrar stefnu, vilja stóraukna
miðstýringu og hægfara umbreytingu frá efnahagskerfi kommúnis-
mans.
Andrej Kozyrev utanríkisráðherra
hefur einnig verið skotspónn aftur-
haldsafla en hann sagðist í gær ekki
myndu segja af sér. Kozyrev fullyrti
að umbótastefnunni yrði haldið til
streitu og í sama streng tók Jegor
Gajdar forsætisráðherra. í fyrradag
var umbótasinnanum Jegor Jakovlev
vikið úr stöðu sjónvarpsstjóra Sam-
veldisins vegna óánægju stjómvalda
með fréttaflutning af þjóðemisátök-
um. Jakovlev, sem ekki mun vera
skyldur helsta hugmyndafræðingi
perestrojku Míkhaíls Gorbatsjovs,
Alexander Jakovlev, lýsti mikilli
óánægju með brottreksturinn en
sagðist þó ekki óttast að allsheijar
ritskoðun væri í aðsigi.
Mikil spenna ríkir í rússneskum
stjómmálum vegna væntanlegs
fundar fulltrúaþingsins, æðstu lög-
gjafarstofnunar Rússa, er hefst í
desember. Þar er gert ráð fyrir hörð-
um átökum milli umbótaafla og
harðlínumanna. Hinir síðamefndu
njóta stuðnings margra miðjumanna
er vilja fara hægar í efnahagsumbæt-
ur í átt til markaðskerfis en Gajdar
og Jeltsín.
Gajdar hvikar ekki
Gajdar sagði í þingræðu að á fjór-
um sviðum gæti hann ekki fallist á
málamiðlun. •
■Ekki yrði horfið á ný til beinnar
miðstýringar á miðlun auðlinda,
mannafla og ijármagns. Borgara-
sambandið krefst þess tekin verði
upp slík stýring á ný í einhveijum
mæli og tímabundið til að efla at-
vinnulífið.
■Gajdar vill ekki að heimiluð verði
„takmarkalaus seðlaprentun" eins og
hann orðar það til að veita stórfyrir-
tækjum lán; forstjórar fyrirtækjanna
segja að með slíkum lánveitingum
verði komið í veg fyrir stóraukið at-
vinnuleysi vegna yfirvofnadi hruns
fyrirtækjanna.
■Forsætisráðherrann er ennfremur
andvígur því að yerðlag og laun verði
fryst.
■Gajdar hafnar tillögum þess efnis
að rúblan verði styrkt og gengi henn-
ar gagnvart Bandaríkjadollar þannig
haldið háu „með handafli" þ.e. án
þess að tekið sé mið af raunverulegu
verðgildi hennar í viðskiptum. í sept-
ember voru um 200 rúblur í dollaran-
um en nú eru þær um 450. Gert er
ráð fyrir að verðbólgan á þessu ári
verði um 2.000% og framieiðsla
minnki um fimmtung.
Gajdar segir að lausnir Borgara-
sambandsins myndu hafa í för með
sér enn hrikalegri óðaverðbólgu
kæmu þær til framkvæmda. Á hinn
sé hann relBubúinn að slaka til í fjár-
málastefnunni til að aðstoða her-
gagnafyrirtæki við að hefja fram-
leiðslu á öðrum vörum, einnig til að
efla endurmenntun starfsmanna.
Margir þingmenn voru stóryrtir í
garð Gajdars og kröfðust atkvæða-
greiðslu um vantraust á stjómina.
Undanfama daga hefur verið orð-
rómur á kreiki um málamiðlun
stjómvalda og Borgarasambandsins
en Arkadí Volskí, aðaltalsmaður
sambandsins, sagði í viðtali við Itar-
TASS-fréttastofuna að í nýrri efna-
hagsáætlun Gajdars, sem rædd var
í þingnefnd, væri ekkert reynt að
koma til móts við tillögur samb'ands-
Borgarstjóm Kaupmannahafnar í vanda
Er sæmandí að braska með fom götuheiti?
ÓVENJULEGT mál er nú komið inn á borð ráðamanna í Kaup-
mannahöfn. Alex Brask Thomsen, danskur auðkýfingur sem búsett-
ur er í Sviss, býðst til að greiða 250 railljónir danskra króna (rúm-
lega 2.500 mil(jónir ÍSK) ef heiti götunnar þar sem hann ólst upp,
Narrebrogade, verði breytt í Alex Brask Thomsens gade. Borgin
skuldar alls sem svarar 100 miHjörðum ÍSK og nú er spurt hvort
hægt sé að verja kaupskap af þessu tagi.
Brask Thomsen er 73 ára gam-
all, landsþekktur fyrir einstakt pen-
ingavit og gengur með silfurhvítt
tagl. Hann er ekki af auðugu fólki
kominn en er nú talinn eiga sem
svarar rúmlega 20 milljörðum ÍSK.
Hann stofnaði á sínum tíma Fin-
ansbanken er varð sjötti stærsti
banki landsins en seldi hann og
stundar nú verðbréfaviðskipti
ásamt bömum sínum.
Norrebrogade er með þekktustu
götum borgarinnar en hefur hrakað
á síðari árum, mikið er um félags-
leg vandamál meðal íbúanna.
Brask Thomsen fluttist þangað
bam að aldri með foreldrum sínum
frá Vesturbrú og forfeður hans
bjuggu margir við Norrebrogade.
Sjálfur var hann lærlingur í teppa-
og málningarvöruverslun við göt-
una og gekk þar skóla. Hann lang-
ar til að sín verði minnst með ótví-
ræðum hætti en segist alveg sætta
sig við að nafnbreytingin vari að-
eins í hundrað ár.
Embættismenn Kaupmanna-
hafnar segjast ekki þekkja dæmi
um að fólk hafi keypt sér (næstum
því) ódauðleika með þessum hætti.
Hefð sé auk þess fyrir því að nefna
ekki götur í höfuðið á lifandi fólki.
Kosið eftir
settum reglum
JOAO Baena Soares, fram-
kvæmdastjóri Samtaka Amer-
íkuríkja, sagði á miðvikudag að
engir alvarlegir gallar hefðu ver-
ið á framkvæmd þingkosning-
anna í Perú sl. sunnudag. Baena
stjómaði starfi 200 eftirlits-
manna á vegum Samtaka Amer-
íkuríkja í kosningunum og sagði
að þær hefðu borið vott um „lýð-
ræðisanda" Perúmanna, sem
virtu að vettugi hótanir vinstri-
sinnaðra skæruliða um að hindra
kosningamar með ofbeldi.
Flokkur Albertos Fujimoris for-
seta fékk meirihluta þingsæta í
kosningunum, samkvæmt
bráðabirgðatölum.
50 milljarðar
gegn spákaup-
mennsku
NORSKI seðlabankinn notaði
tæplega helming gjaldeyrisforða
síns til þess að veija gengi
norsku krónunnar í lok síðustu
viku, að því er skýrt var frá í
gær. Samtals keypti bankinn
norskar krónur á alþjóðlegum
markaði á fímmtudag og föstu-
dag fyrir jafnvirði 49,9 milljarða
norskra króna (rúma 500 millj-
arða ÍSK) í þeirri von að beija
niður spákaupmennsku með
krónuna. Þar af notaði bankinn
gjaldeyri að jafnvirði 36,8 millj-
arða norskra króna á föstudag.
Fyrr í þessum mánuði nam gjald-
eyrisforði Noregs 112 milljörð-
um króna. í byijun þessarar viku
snerist þróunin við og gjaldeyris-
sjóður seðlabankans hækkaði þá
um 13,9 milljarða króna.
Sakaðir um
kjarnorku-
mengun
TALSMENN umhverfisvemdar-
samtaka Grænfriðunga sögðu á
þriðjudag, að rússneski flotinn
varpaði enn kjamorkuúrgangi
af ásettu ráði í hafið, bæði á
Kyrrahafí og annars staðar.
Vitnað var í rússnesk skjöl, sem
samtökin höfðu komist ýfír og
sögðu, að rússneski norðurflot-
inn varpaði árlega í hafið allt
að 10.000 rúmmetmm af geisla-
virkum vökva og allt að 2000
rúmmetmm af geislavirkum úr-
gangi í föstu formi. Bandaríska
sjónvarpsstöðin ABC sagði á
þriðjudag, að hún hefði ná-
kvæmar skrá yfir, hvað sovéski
flotinn fyrrverandi hefði varpað
miklum geislavirkum úrgangi í
hafið og hvar. í skránni vom
nefndir sjö staðir, þar sem yfir
11.000 gámum af kjamorkuúr-
gangi í föstu formi og sjö kjam-
kljúfum hafði verið varpað í sjó-
inn.
Noregur sækir
um EB-aðild
GRO Harlem Bmndtland, for-
sætisráðherra Norges, afhenti á
miðvikudag John Major, forsæt-
isráðherra Breta, sem em í for-
svari fyrir Evrópubandalaginu
(EB) fram að áramótum, um-
sókn um aðild Norðmanna að
bandalaginu. Bretar hafa barist
fyrir því innan EB að bandalag-
ið verði stækkað en auk Norð-
manna hafa Austurríkismenn,
Svisslendingar, Svíar og Norð-
menn nýlega lagt fram umsókn-
ir og margar nýfijálsar þjóðir
Austur- og Mið-Evrópu hyggjast
feta í fótspor þeirra. Skoðana-
kannanir í Noregi gefa til kynna
að andstæðingar aðildar séu
fleiri en stuðningsmenn. Náist
samningar milli fulltrúa banda-
lagsins og norskra embættis-
manna verður aðildin borin und-
ir þjóðaratkvæði.