Morgunblaðið - 27.11.1992, Síða 37
seei aaaMavoM .rs HUOAQUT8oa geiq/uIsviuohom ________ oo
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1992 37
Skólakerfi á villigötum?
Er aðeíns tíl ein mælistika
fyrir hagkvænmi skóla?
eftir Albert
Einarsson
Skólar eru eins og aðrar stofn-
anir og fyrirtæki settar undir hag-
kvæmnimælistiku. Fundið er út
viðmið sem tákna á hagkvæmt
fyrirkomulag hv,að stærð og gerð
skóla snertir. Almennt viðmið er
að litlir skólar séu óhagkvæmari
en stórir skólar og verknámsskólar
séu dýrari en bóknámsskólar. Vel
má vera að fyrir þessu sé fótur
ef rekstrardæmi skólanna er skoð-
að einangrað, en ekki er þetta þó
einhlítt.
Sami grautur í sömu skál
Lengst af hefur aðalviðmið við
fjárhagsáætlanir framhaldsskóla
verið nemendafjöldi. Áætlaður
nemendafjöldi ákvarðar stöðugildi
kennara og rekstrarumfang. Hver
verknámsnemandi hefur þó meira
vægi en bóknámsnemandi vegna
eðlis verkkennslunnar. í minna
mæli er tekið tillit til verkefna
skólanna að öðru leyti og nánast
ekkert til staðsetningar þeirra og
þjónustusvæða.
í aðalatriðum eru skólamir með-
höndlaðir eins og þeir væru sami
grautur í sömu skál. En svo er
alls ekki. Starfsmunstur skólanna
er afskaplega mismunandi og þjón-
ustusvæðin eru líka mjög mismun-
andi. Starfsmunstrið markast bæði
af almennum markmiðum viðkom-
andi skóla og ekki síst af því starfi
sem þróast hefur í skólastofnun-
inni og tekur eðlilega mið af ytri
aðstæðum skólans, þ.e. umhverfí
hans.
Vissulega er rétt að nota nem-
endafjölda sem viðmið við fjár-
hagsáætlun, en önnur viðmið þurfa
að fá aukið vægi vegna þess að
þau skipta oftar en ekki miklu
máli í rekstri og viðgangi skólans.
Fagleg samskipti
Starfsemi skóla byggist á fag-
legri vinnu sem er annarsvegar
fólgin í kennslu og hinsvegar
stjómun stofnunar.
Kennsla er sérhæft starf sem
stendur á tveim fótum. Annarsveg-
ar kennslufræðinni og hinsvegar
faggreininni sem verið er að kenna.
Án annars verður kennslan völt
og lítils virði.
Stjómun skóla byggist á skiln-
ingi á eðli starfseminnar og sam-
hengi hennar við umhverfí skól-
ans. Án þess dagar skólinn uppi
eins og nátttröll í samfélagi sem
er í stöðugri þróun. Hlutverk
stjómenda er að leiða þróun stofn-
unarinnar.
Fagleg samskipti kennara og
stjómenda út fyrir skólastofnunina
eru nauðsynleg til þess að stuðla
að eðlilegri þróun hennar og ný-
sköpun, sem verður að vera fastur
liður í starfi skóla. Málum er líka
þannig farið að fáar starfsstéttir
eru eins iðnar við hin faglegu sam-
skipti og kennarar og þeim rennur
því blóðið til skyldunnar.
Möguleikar til faglegra sam-
skipta era aftur á móti misjafnir
eftir því hvar á landinu skólinn
starfar. Eðlilega er framboð mest
þar sem flestir starfa og kostnaður
minni en í dreifbýlinu. Það er af
3M
Disklingar
og frá að þörfum kennara og
stjórnenda skóla til faglegra sam-
skipta sé mætt með eðlilegum
skilningi þegar fjármunum er út-
hlutað til skólanna. í aðalatriðum
er áætlaður kostnaður við fagleg
samskipti sama hlutfall í rekstri
allra skóla, óháð því hvar þeir
starfa eða í hverju starfsemin er
fólgin. Kostnaður stjómenda Verk-
menntaskóla Austurlands vegna
stjórnendafunda í Reykjavík er
áætlaður svipaður og stjómenda
framhaldsskóla í Reykjavík, enda
þótt þeir sæki fund í sínum eðlilega
vinnutíma, en raunveralegur
kostnaður stjómenda að austan sé
flugfargjald og oft gisting. Um
launagreiðslu vegna fjarveru er
ekki að ræða. Sama gildir um nám-
skeið og önnur fagleg samskipti
kennara, Þessi ráðstöfun setur
skólum veralegar skorður við að
stuðla að faglegum samskiptum
og þar með skólaþróun. Það er
einfaldlega hugsað út frá Reylq'a-
víkurþörfum, kostnaður umfram
þær skerðir almennan rekstur
landsbyggðarskólanna.
Það þarf svo ekki að taka það
fram að það heyrir til undantekn-
inga ef fundir stjómenda í fram-
haldsskólum eru skipulagðir utan
Stór-Reykjavíkur, þ.e. utan þess
hrings að fólk komist heim á
„kristilegum tíma“, eins og stund-
um segir í fundarboðum.
Litlir skólar og stórir skólar
Því er oft haldið fram að stórir
skólar séu hagkvæmari en litlir.
Þetta er rétt, en ekki er allt sem
sýnist. Áfangakerfíð felur í sér
möguleika sem litlir skólar geta
nýtt sér til hagræðingar, jafnvel
betur en stórir skólar, þannig að
það dregur úr hagkvæmnimismun-
inum. Orannsökuð, en líkleg, er sú
fullyrðing að litlir skólar séu al-
mennt betri uppeldisstofnanir en
stórir skólar og skili frá sér heil-
steyptari einstaklingum og er það
væntanlega einhvers virði, líka í
hagkvæmnimati.
Flestir litlu framhaldsskólanna
starfa á landsbyggðinni. Væra
þeir ekki til staðar og sami nem-
endafjöldi og þar er nú þyrfti að
sækja skóla fjarri heimabyggð yrði
skólasóknarkostnaður óheyrilegur.
Nú sækja t.d. 300-400 nemendur
af Austurlandi nám út fyrir fjórð-
unginn. Ef úthaldskostnaður
vegna eins nemanda er áætlaður
500 þúsund kr. á ári, sem er vægt
áætlað, má gera ráð fyrir að 300
nemendur flytji með sér 150 millj-
ónir úr fjórðungnum á ári. Veru-
legur hluti þessarar upphæðar
kæmi fram sem spamaður heimil-
„Sjálfstæði skóla er
nauðsynleg forsenda til
þess að þeir geti notið
sérstöðu sinnar og
skipulagt starfsemi
sína í lifandi tengslum
við umhverfið. Sjálf-
stæði skóla hvetur einn-
ig til aukinnar ábyrgð-
ar og væntanlega metn-
aðarfyllra starfs.“
anna ef nemendur stunduðu nám
sitt í heimabyggð. Þennan verulega
hluta verður að taka með í reikn-
inginn þegar hagkvæmni stórra
skóla og lítilla landsbyggðarskóla
er metin. Litlu landsbyggðarskól-
amir bjóða altént upp á þessa hag-
kvæmni, enda þótt hún sé ekki
reiknuð inn í rekstrardæmi skól-
anna sjálfra. Það er því þess virði
að standa vel að baki framhalds-
skólum á landsbyggðinni.
Mismunandi þjónustuhlutverk
Skólar gegna mismunandi þjón-
ustuhlutverki í umhverfí sínu og
þjónustusvæðin era afskaplega
ólík bæði að stærð og gerð. Þjón-
ustuhlutverk Verkmenntaskóla
Austurlands er t.d. allt annað en
Menntaskólans í Reykjavík og
svæði það sem Verkmenntaskólinn
þjónar er gjörólíkt. Bara vegna
þessara þátta er óeðlilegt að bera
t.d. þessa skóla saman eða setja
þá undir sömu hagkvæmnimæli-
stiku. Ég er viss um að í þessum
skólum báðum gera menn sér góða
grein fyrir hlutverki sínu og um-
hverfi, en ég er ekki viss um að
sá skilningur nái inn í raðir þeirra
sem fjalla um fjárhagsdæmið á
æðra plani.
Þjónustusvæði Verkmennta-
skólans er allt Austurland. Þjón-
ustuhlutverk Verkmenntaskólans
felst fyrst og fremst í starfsmennt-
un hverskonar. Eðlilega miðar
Verkmenntaskólinn starf sitt öðra
fremur við að þjóna austfirsku at-
vinnulífí og samfélagi. Tengsl skól-
ans þurfa því að ná út fyrir byggð-
arlagið sem skólinn er staðsettur
í og gera verður þá kröfu til stjóm-
enda að þeir þekki mæta vel til í
atvinnulífí fjórðungsins eða þjón-
ustusvæðis viðkomandi skóla. Slíkt
er forsenda þess að skólinn geti
gegnt þjónustuhlutverki sínu. Að
öðram kosti verður þjónustuhlut-
verkið tilviljunarkennt og í besta
falli almennt gildandi án mark-
vissrar þátttöku í þróun atvinnu-
lísfíns.
Skóli sem hefur almennu þjón-
ustuhlutverki að gegna, svo sem
almennum undirbúningi undir
frekara nám á háskólastigi, setur
starfi sínu auðvitað aðrar forsend-
ur.
Það má því færa rök að því að
meta þurfí þjónustuhlutverk skóla
þegar rætt er um rekstrarkostnað
skóla. Vissulega er það vandkvæð-
um bundið að meta gildi þjón-
ustunnar til umfangs eða verð-
mæta, einkum þegar skólum er
vart gert kleift að sinna þjónustu-
hlutverkinu, þar sem ekki er gert
ráð fyrir atvinnulífstengslum í
stöðuheimildum eða fjárveitingum.
Staða atvinnulífstengils ætti að
vera sjálfsagt mál í öllum starfs-
menntaskólum.
Skólar eru mismunandi
stofnanir sem ættu að
vera sjálfstæðar
Það er rangt að meðhöndla alla
skóla því sem næst eins í rekstrar-
legu tilliti. Þarfír þeirra era mis-
munandi allt eftir því samhengi
sem þeir starfa í. Leitin að hag-
kvæmasta rekstrarviðmiðinu verð-
ur endalaus leit og þar ræður
hvorki stærð skóla né skólagerð,
Albert Einarsson
heldur koma til miklu fleiri þættir.
Taka verður fullt tillit til annarra
efnahagsstærða í mati á hag-
kvæmni, svo sem þeim mikla
spamaði sem heimilin njóta með
því að nemendur geti stundað nám
í eða sem næst heimabyggð og
þess byggðapólitíska ávinningi
sem í því felst.
Sjálfstæði skóla er nauðsynleg
forsenda til þess að þeir geti notið
sérstöðu sinnar og skipulagt starf-
semi sína í lifandi tengslum við
umhverfið. Sjálfstæði skóla hvetur
einnig til aukinnar ábyrgðar og
væntanlega metnaðarfyllra starfs.
Höfundur er skólameistari
Verkmenntaskóla Austurlands.
SnyrtifrœÖingur húðgreinir
og kynnir LANCASTER
snyrtivörur í dag kl. 13-18
Libia
Laugavegi 35.