Morgunblaðið - 27.11.1992, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1992
51
URSLIT
Körfuknattleikur
UMFN - KR 32:59
Njarðvík, íslandsmótið (, 1. deild kvenna,
fimmtudagur 26. nóvember 1992.
Gangur leiksins: 0:6, 2:6, 10:16, 14:25,
19:36. 23:42, 23:57, 36:59.
Stig UMFN: Ólöf Einarsdóttir 10, Lovísa
Guðmundsdóttir 8, Auður Jónsdóttir 6,
Helga Friðriksdóttir 6, Amdfs Sigurðard. 2.
Stig KR: Guðbjörg Norðijörð 12, Hildur
Þorsteinsdóttir 11, Anna Gunnarsdóttir 10,
Kristín Jónsdóttir 6, Alda Valdimarsdóttir
6, Helga Þorvaldsdóttir 6, Sólveig Ragnars-
dóttir 4, Hrund Lárusdóttir 4.
Dómarar: Jón Guðbrandsson og Þorgeir
Júlíusson
Áhorfendur: Um 30.
B„Okkur hefur gengið illa, það eru fára
stúlkur sem æfa og þrátt fyrirr að við höf-
um tapað öllum leikjunum til þessa þá ætl-
um við ekki að gefast upp,“ sagði Sturla
Örlygsson. þjálfari Njarðvíkurstúlknanna
eftir að þær höfðu tapað enn einum leiknum.
KR-stúlkumar náðu fljótt afgerandi
stöðu á leiknum f og afleitur kafli Njarðvfk-
urstúlkna í upphafi sfðari hálfleiks - þar
sem þær skoruðu aðeins 4 stig gegn 21
stig Vesturbæjarliðsins á 13 mfnútum gerði
endanlega út um leikinn. Bjöm Blöndal Bikarkeppni KKÍ ÍA-KR 75:99 NBA-deildin: Úrslit leikja á miðvikudag: Boston Washinoton 150:112
97:101
....110: 93
Orlando — Houston Rockets Philadelphia — Atlanta Hawks.. ....107: 94 ....105:111 78: 99
....112:130
94: 85
....114: 99
Utah Jazz — San Antonio Phoenix — Portland ....102:128 ....121:117
L. A. Lakers — New Jersey Handknattleíkur 98:100
2. DEDLD KARLA: Grótta - Breiðablik Fylkir - Ármann 24:24 14:23
Fiölnir - HNK 22ran
Knattspyrna UEFA-keppnin:
Amheim, Hollandi:
Vitesse Amheim - Real Madrid........0:1
Femando Hierro (72.). 13.000.
KNATTSPYRNA
Cantona til
Man. United
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, snaraði
peningabuddunni á borðið í gærkvöldi
og keypti franska landsliðsmanninn
Eric Cantona á 1,2 millj. sterlings-
punda frá Leeds, en Leeds keypti
Cantona á 900 þús. pund frá franska
félaginu Nimes. Man. Utd. hefur illi-
lega vantað markaskorara.
HANDBOLTI
Báðir leikimir
gegn Búlgaríu
í Reykjavík
Búið er að ákveða að báðir lands-
leikir íslands og Búlgaríu í
Evrópukeppni landsliða í handknatt-
leik fari fram í Reykjavfk, 27. og 28.
desember 1983. Búlgarar koma þá
hingað beint frá Finnlandi, þar sem
þeir leika báða leiki sína gegn Finn-
um. Áður hafði Hvíta-Rússland sam-
þykkt að leika báða leikina á ís-
landi. íslenska landsliðið leikur því
aðeins tvo ieiki á útivöllum - gegpi
Finnlandi og Króatíu.
FRJALSIÞROTTIR
Einar med sjöunda *
besta árangurinn í ár
íslandsmet hans á Laugardalsvellinum, 86,80 m, tryggði honum enn einu sinni sæti á topp tíu listanum
EINAR Vilhjálmsson er enn eitt
árið á heimslista yfir þá tíu
spjótkastara sem hafa náð
lengstu köstum heims á fceppn-
isárinu, en hann hefur verið á
þeim lista átta sinnum á síð-
ustu tíu árum, eða frá 1983.
Hann var ítólfta sæti 1987, en
árið áður féll hann niður í 24
sæti.
Eins og menn muna þá setti Ein-
ar Vilhjálmsson glæsilegt ís-
landsmet á Laugardalsvellinum í
sumar og bætti þá fárra daga gam-
alt met sitt er hann kastaði spjótinu
86,80 m. Þetta kast hefur fært
Einari sjöunda sæti á heimslistan-
Þeirbestuíár
1. Steve Backley, Bretlandi..91.46
2. Jan Zelezny, Tékkóslóvakíu.90.18
3. Seppo Raty, Finnlandi.....90.60
4. Juha Laukkanen, Finnlandi.88.22
5. Tom Petranoff, S-Afriku ..87.26
6. Viktor Zaitsev, Rússlandi.87.20
7. EINAR VILHJÁLMSSON........86.80
■Sigurður Einarsson kastaði spjótinu
lengst 83,32 m, sem gefur honum þrett-
ánda til fjórtánda sæti á listanum.
um í ár.
Bretinn Steve Backley á lengsta
kast ársins, eða 91,46 m og hanlÉ—-
hefur einnig kastað spjóti sem hef-
ur ekki verið samþykkt lengst, eða
94,74 m.
„Ánægulegt“
„Það er alltaf ánægulegt að
frétta að maður er inni á listanum
yfír þá spjótkastara sem hafa náð
lengstu köstunum ár hvert," sagði
Einar Vilhjálmsson, sem er nú byrj-
aður að æfa á fullum krafti eftir
að hafa tekið fímm vikna hvfld eft-
ir síðasta keppnistímabil. Einar hef-
ur átt við þrálát meiðsli að stríða
í hné og var skorinn upp fyrir síð-
asta keppnistímanil. „Þegar ég var
búinn að vera í hvíld í þijár vikur
hurfu allar bólgur úr hnénu og nú
er ég búinn að ná mér .fulikomiega
og ekki á þeim buxunum að fara
að hætta. Það er ástæða til að ætla
að ég geti bætt töluvert við það sem
ég var að gera undir lok keppnis-
tímabilsins er íslandsmetin tvö
komu með stuttu millibili," sagði
Einar Vilhjálmsson í viðtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Einar Vilhjðlmsson enn einu sinni í hópi þeirra bestu.
Pétur keppir ekki í vetur
KJ^étur Guðmundsson, kúluvarpari, sem meiddist á hendi s.l. vor,
• hefur enn ekki náð sér og gerir ráð fyrir að þurfa að taka sér
hvfld frá keppni I vetur.
Pétur hefíir ekkert kastað síðan á Ólympíuleikunum s.l. sumár, en
sagðist hafa æft fjórum sinnum á viku. „Eg hef ekkert hvflt í fimm
eða sex ár, en hvfld virðist vera eina lausnin að þessu sinni,“ sagði
kúluvarparinn, sem hefur verið í stöðugri meðferð lækna og sjúkra-
þjálfara.
Heimsmeistaramótið í frjál9iþróttum innanhúss verður í Montreal í
Kanada í mars og meistaramót íslands í febrúar, en að öllu jöfnu
hefði Pétur tekið þátt í þessum mótum auk fleiri alþjóðlegra móta,
sem verða á dagskrá í vetur.
IÞROTTAKENNSLA /EVROPURAÐIÐ I STRASBOURG
Á undir högg að sækja
Fagfólk í íþróttum, frá yfír tuttugu
þjóðlöndum, sem nýlega sat ráð-
stefnu í Strasbourg á vegum Evróp-
uráðsins, komst að þeirri niðurstöðu
að íþróttakennsla í skólum í Evrópu
eigi undir högg að sækja. í tilkynn-
ingu frá Evrópuráðinu segir að
skyldutímar í íþróttakennslu, 3-4
stundir á viku, séu í hættu vegna
spamaðar, þiýstings frá öðrum
kennslugreinum og annara breytinga.
Kennslustundum verði, eða hafí nú
þegar verið fækkað, í 1-2 stundir.
I tilkynningunni segir: „Þrátt fyrir
þetta er það Iöngu viðurkennt að
heilbrigð sál er f heilbrigðum lfkama,
GETRAUNASPA MORGUNBLAÐSINS
48. 4V&— 1 X 2
vika vL? /fW—
Arsenal - Man. Utd. 1 X 2
Aston Villa - Norwich 1 X
Blackburn -QPR 1 X 2
Ipswich - Everton 1 X
Liverpool - C. Palace 1
Man. City - Tottenham 1 X
Nottm. For. - Southampton 1
Oldham - Middlesbro 1
Sheff. Utd. - Coventry X
Wimbledon -Sheff.Wedn. 2
Bamsley - Charlton 1
Derby - Tranmere X 2
Portsmouth - Millwall 2
Tíu fyrstu leikirnir á
seölinum eru úr ensku
1. deildinni og þrir
síðustu úr 1. deild.
Giskað er á 144 raða
opin seðil, sem kostar
1.440 krónur. Tveir
leikir eru þritryggðir,
fjórir tvítryggðir og sjö
þar af leiðandi fastir -
með einu merki.
Ríkissjónvarpið verður
með beina útsendingu
á morgun frá viðureign
Arsenal og
Manchester United, á
Highbury í London.
og það næst með vel útfærðum lík-
ams- og íþróttaæfíngum. Annað sem
slík íþróttakennsla stuðlar að er betri
einbeitni í öðrum kennslugreinum og
vellíðan á allan hátt innan og utan
skóla. Frekar ætti að auka íþrótta-
kennslu í skólum eins og fulltrúar íra
lögðu til, þannig að nemendur fengju
daglega eina kennslustund í íþróttum,
eins og þegar er sumsstaðar í Ástral-
íu og Bandaríkjunum."
Ennfremur kemur fram að þar sem
foreldrar hafi ekki allir bolmagn til
að kosta böm sfn á æfingar hjá ein-
staka íþróttafélögum, muni þetta
valda ójöfnum aðgangi að íþróttum
og æfingum. Það sé algerlega í trássi
við markmið greinar 1 f sáttmála
Evrópuráðsins um íþróttir, sam-
kvæmt tillögum ráðherranefndarinn-
ar, þar sem segin Ríkisstjómir skulu
tryggja að öll ungmenni fái tækifæri
til þess að iðka íþróttir undir leiðsögn
þannig að þau geti tileinkað sér undir-
stöðufæmi í íþróttum.
Fulltrúar á ráðstefnunni lögðu
fram þá tillögu, að nefnd sem fæst
við þróun fþrótta hjá Evrópuráðinu,
geri þetta mál að forgangsverkefni
sínu.
HANDKNATTLEIKUR
Leikið gegn Frökk-
um á Blönduósi
Einn af þremur landsleikjum
gegn Frökkum á milli jóla
og nýárs verður leikinn í nýju
glæsilegu íþróttahúsi á Blönduósi.
Leikurinn verður 28. desember,
en hinir tveir leikimir fara fram
í Laugardalshöllinni 27. og 29.
desember.
„Þetta var ákveðið til að kynna
unglingum og öðmm á svæðinu
handknattleik með því að gefa
þeim tækifæri til að sjá tvö sterk
landslið, sem léku um þriðja sætið
á Ólympíuleikunum í Barcelona,
leika,“ sagði Gunnar K. Gunnars-
son, framkvæmdastjóri HSÍ.
Gunnar sagði að það væri stutt
síðan að Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari, hafí verið með
námskeið fyrir böm og unglinga
á Blönduósi.„
FOLK
■ STEFÁN Arnaldsson og
Rögnvald Erlingsson, handknatt-
leiksdómarar, hafa fengið það verk-
efni að dæma fyrri leik Saab og
SG Leuterhausen frá Þýskalandi
í 8 liða úrslitum í Evrópukeppni
félagsliða sem fram fer í Linköping
4. - 10. janúar 1993.
■ SÆNSKIR dómarar, Johans-
son og KjeUquist, munu dæma
leik FH og WaUau Massenheim
og Vals gegn TuSEM Essen hér
á landi 16. og 17. janúar 1993.
Belgískir dómarar, Xhonneux og
Convents, munu dæma fyrri Evr-
ópuleikinn hjá FH og Jug og Jeglic
frá Slóveníu fyrri leik Vals.
■ HLYNUR Birgisson, varnar-
maðurinn sterki hjá Þór, hefur ver-
ið útnefndur Knattspymumaður
Akureyrar 1992. Hlynur lék mjög
vel með Þór í súmar og var sem
klettur í vöm liðsins.
■ MARK Duffield, sem lék með
Leiftri frá Ólafsfirði sl. sumar,
hefur æft með Víkingum ■ ÖRN
Viðar Amarson sem leikið hefur
knattspyrnu með KA undanfarin
ár, hefur ákveðið að ganga til liðs
við nágrannana í Þór.
■ ÖRN Viðar, sem áður lék með
Reyni á Árskógsströnd, hefur leikið
á miðjunni og í vöm KA, og á 69
leiki að baki $ 1. deild.