Morgunblaðið - 20.04.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
Múslimskir hermenn gefast upp í bosnísku borginni Srebrenica
Serbar neita að flytja
hermenn sína á brott
Sært fólk flutt frá Srebrenica
HERMENN flytja særða konu úr þyrlu í borginni Tuzla í Bosníu.
Konan var flutt frá Srebrenica ásamt 132 öðru særðu fólki á sunnu-
Sarcyevo, Lundúnum, Sameinuðu þjóðunum.
YFIRVÖLD í borginni Sre-
brenica í austurhluta Bosníu
neituðu í gær að heimila Sam-
einuðu þjóðunum að flytja
íbúa hennar á brott. Borgin
féll í hendur Serba um helgina
og kanadískir hermenn
bjuggu sig í gær undir að af-
vopna múslima í borginni sam-
kvæmt vopnahléssamkomu-
lagi hinna stríðandi fylkinga
sem tók gildi á sunnudags-
morgun. Philippe Morillion
hershöfðingi, yfirmaður frið-
argæsluliðs Sameinuðu þjóð-
anna í Bosníu, sagði að serb-
nesku hermennirnir myndu
fara frá borginni um leið og
múslimarnir yrðu afvopnaðir.
Radko Mladic hershöfðingi,
yfirmaður hers Bosníu-Serba,
vísaði því hins vegar á bug
að um þetta hefði verið samið.
Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, hvatti til
þess að utanríkisráðherrar
aðildarríkja öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna kæmu saman
vegna stríðsins í Bosníu og
lagði til að fundur þeirra yrði
haldinn í Srebrenica eða
Sarajevo, höfuðborg landsins.
Þyrlur á vegum Flóttamannahjálp-
dag.
arTSameinuðu þjóðanna fluttu 133
alvarlega særða og sjúka múslima
frá Srebrenica á sunnudag og 10
vörubílar voru síðan sendir þangað
til að ná í hluta af 30.000 múslimsk-
um flóttamönnum sem eru innlyksa
í borginni. Vörubílarnir urðu að snúa
við án flóttamannanna þar sem yfir-
völd í Srebrenica kröfðust þess að
157 alvarlega særðir menn, sem
þurfa að gangast undir aðgerð sem
allra fyrst, yrðu fluttir á brott með
þyrlum áður en flutningamir hæfust
á flóttamönnunum.
Hinar stríðandi fylkingar virtust
virða vopnahléssamkomulagið í Sre-
brenica í gær en til átaka kom á
öðrum svæðum í Bosníu, einkum í
miðhluta landsins. Talsmaður bre-
skra hersveita í Bosníu sagði í gær
að milli 150 og 200 manns hafí beð-
ið bana undanfama fjóra daga í bar-
dögum mill bosnískra Króata og
múslima í grennd við bæinn Vitez í
Mið-Bosníu.
Hertar refsiaðgerðir
Leiðtogar Bosníu-Serba sögðust
um helgina ekki ætla að samþykkja
friðaráætlun Sameipuðu þjóðanna og
Evrópubandalagsins og hótuðu að
hætta viðræðunum um frið í Bosníu.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti á laugardagskvöld hertar
refsiaðgerðir gegn Serbíu og Svart-
fjallalandi sem taka gildi 26. apríl
ef Serbar hafa þá ekki fallist á frið-
aráætlunina. Refsiaðgerðirnar kveða
á um algjört viðskiptabann á Serbíu
og Svartijallaland. Skip sem sigla
um Dóná verða að hafa eftirlitsmann
til að tryggja að þau fari ekki til
Serbíu og siglingabann tekur gildi
við Adríahafsströnd Svartfjallalands.
Þá verða fjármunir landanna erlend-
is frystir.
Owen lávarður, milligöngumaður
Evrópubandalagsins, kvaðst vona að
refsiaðgerðimar yrðu til þess að
binda enda á stríðið í Bosníu en hvatti
þó vestræn stjómvöld til að íhuga
hemaðaríhlutun. Rússar vom tregir
til að samþykkja refsiaðgerðirnar en
beittu þó ekki neitunarvaldi sínu.
Kozyrev, utanríkisráðherra þeirra,
sagði að hemaðaríhlutun væri ekki
í bígerð.
Reuter
ChrisHani
borinn
til grafar
MILLJÓNIR suður-afrískra blökku-
manna syrgðu Chris Hani, formann
kommúnistaflokksins í Suður-Afr-
íku, þegar hann var borinn til grafar
í gær og voru tugþúsundir viðstadd-
ir minningarathöfn um hann á leik-
vangi í Soweto. Var Hani skotinn til
bana fyrr í mánuðinum og er morð-
inginn Janusz Walus, Suður-Afríku-
maður af pólskum ættum. í gær var
Clive Derby-Lewis, einn frammá-
manna íhaldsflokksins, handtekinn
vegna gruns um aðild. 19 blökku-
menn féllu í gær þegar nokkrir
blökkumenn skutu á fólk af handa-
hófí í einni útborg Jóhannesarborgar.
Ró yfir Los Angeles eftir
dóm í Rodney King-málinu
Los Angeles. Frá Benedikt Stefánssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
KVIÐDÓMUR í alríkisrétti í Los Angeles fann á laugardags-
morgun seka tvo fjögurra lögregluþjóna, sem sakaðir voru um
að hafa beitt Rodney Glenn King ofbeldi og brotið borgaraleg
réttindi hans við handtöku fyrir tveimur árum. Þúsundir lög-
regluþjóna, þjóðvarðliða og hermanna voru í viðbragðsstöðu
aðfaranótt laugardags. Óttast var að sýknudómar í málinu
kynnu að leiða til öldu ofbeldis. Niðurstöðunni hefur almennt
verið tekið fagnandi og leið helgin átakalaust.
Lögregluþjónamir voru sýknaðir
af öllum ákærum í fylkisrétti í Iok
apríl í fyrra. I kjölfar þess blossuðu
upp óeirðir í borginni, þar' sem 53
létu lífið og tjón var unnið á eignum
að verðmæti um 60 milljarða króna.
Mikil spenna ríkti í borginni í síðustu
viku.
Stacey C. Koon og Laurence M.
Powell, sem fundnir vom sekir, eiga
yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsis-
vist og sekt að upphæð 15 milljónir
króna. Lögfræðingar beggja hafa
lýst yfír að þeir muni áfrýja dómin-
um. Refsing verður ákvörðuð í byijun
ágúst.
Ákæra byggð á stjórnarskrá
Sakbomingamir fjórir áttu þátt í
því að handtaka King vorið 1991
eftir að hann hafði reynt að flýja
undan lögreglu í bifreið sinni á ofsa-
hraða. King var á skilorði og undir
áhrifum áfengis. Sjónarvottur festi
atburðinn á myndband, sem síðar var
birt í sjónvarpi um allan heim. Þar
sjást kyifuhögg og spörk sakborning-
anna dynja á King, sem liggur í valn-
um.
í kjölfar óeirðanna í Los Angeles
síðastliðið vor fólu yfirvöld í Wash-
ington dómsmálaráðuneytingu að
hefja rannsókn á málinu, til þess að
freista þess að draga lögregluþjón-
ana að nýju fyrir rétt.
I undirrétti voru lögregluþjónamir
ákærðir fyrir að beita King of mik-
illi hörku. Að þessu sinni byggðist
ákæra gegn sakbomingunum fjórum
á stjómarskrá Bandaríkjanna, en
ákæruvaldið taldi að þeir hefðu brot-
ið borgaraleg réttindi Kings. Lög-
fróðir töldu að það yrði þungur róður
að fá lögregluþjónaná dæmda, þar
sem ákæruvaldið þyrfti að sýna fram
á að það hefði verið ásetningur þeirra
að misþyrma honum. Sérfrgeðingur
bar fyrir réttinum að kylfuhögg og
spörk lögregluþjónanna hefðu verið
réttlætanleg samkvæmt reglum lög-
reglunnar, þar sem King hefði veitt
mótspyrnu og virst undir áhrifum
englaryks.
Stjórnmálamenn Iýsa ánægju
sinni
Saksóknarar í málinu voru vígreif-
ir þegar niðurstaðan var Ijós en sautj-
án lögfræðingar unnu að rannsókn
þess í fullu starfí af hálfu ákæm-
valdsins. Janet Reno dómsmálaráð-
herra hélt blaðamannafund í Wash-
ington til þess að lýsa ánægju sinni
með lyktir málsins. „Dómsmálaráðu-
neytið mun halda áfram að sækja
mál til að veija borgaraleg réttindi
allra íbúa Los Angeles og annars
staðar í Bandaríkjunum,“ sagði
Reno. Bill Clinton forseti tók í sama
streng í ræðu skömmu eftir úrskurð-
inn.
Turgut Ozal
Demirel eftir-
maður Ozals?
FRÉTTASKÝRENDUR í Tyrk-
landi töldu í gær líklegast að
Suleyman Demirel, forsætisráð-
herra landsins, bæri sigur úr
býtum í baráttunni um forseta-
embættið eftir andlát Turguts
Ozals á laugardag. Demirel hef-
ur ekki enn staðfest að hann
gefí kost á sér í embættið en
sagði í viðtali við tyrkneskt dag-
blað að vangaveltur um slíkt
væru eðlilegar. Hægt verður að
tilnefna forsetaefni í 10 daga
eftir 27. apríl og þingið hefur
síðan 20 daga til að velja eftir-
mann Ozals.
*
Irakar mót-
mæla banda-
rískri árás
BANDARÍSK herþota, sem var
á eftirlitsflugi á flugbannssvæð-
inu yfír Norður-írak, skaut á
sunnudag flugskeyti á íraskan
loftvarnaskotpall. írakar sögðu
að þrír hermenn hefðu særst og
að stjórn Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta hefði hunsað til-
raunir þeirra til að bæta sam-
skipti ríkjanna. Þeir gætu ekki
tekið slíkum áráSum þegjandi.
Sérfræðingar á végum Samein-
uðu þjóðanna komu í gær til
Bagdad til að undirbúa flutninga
á úranbirgðum úr landinu.
Fiat viður-
kennir tengsl
við spillingar-
mál
GIOVANNI Agnelli, stjórnarfor-
maður Fiat, viðurkenndi í fyrsta
sinn opinberlega á laugardag að
fyrirtækið væri viðriðið spilling-
una sem hefur tröllriðið ítölskum
stjórnmálum. Hann hvatti sak-
sóknara til að hafa hraðan á við
rannsókn málsins svo sannleik-
urinn um Fiat kæmi í ljós. Ces-
are Romiti, framkvæmdastjóri
Fiat, verður yfirheyrður vegna
málsins í næstu viku, en hann
hafði gagnrýnt rannsóknina á
hendur fyrirtækinu.
Mafíuvopn í
sjúkrahúsi
VOPNABÚR sem lögreglan tel-
ur í eigu mafíunnar fannst í lík-
húsi sjúkrahúss í Napólí á
sunnudag. Verkamenn sem voru
að gera við hitalagnir í húsinu
fundu tugi byssa og hundruð
skothylkja, sem einhver úr
starfsliði sjúkrahússins mun
hafa falið þar.
Mikið mann-
fall í Afgan-
istan
RÚMLEGA 200 manns hafa
beðið bana í bardögum í Kanda-
har, héraði í suðurhluta Afgan-
istans, á undanfömum þremur
dögum, að sögn Alþjóðaráðs
Rauða krossins. Hermenn hollir
Burhanuddin Rabbani, forseta
Afganistans, hafa barist við
skæruliðahreyfingar sem gera
tilkall til valda í héraðinu.