Morgunblaðið - 20.04.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLÁÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
31
Fyrirtæki
Alþjóðleg stórfyrírtæki þátt-
takendur í endurreisn Berlínar
DAIMLER-Benz eitt stærsta iðnfyrirtæki Þýskalands, samþykkti í
síðustu viku að taka þátt í tugmilljarða áætlun um endurreisn Berlín-
ar. Fyrirtækið hyggst veita 2,7 milljörðum þýskra marka eða rúm-
lega hundrað milljörðum íslenskra króna í byggingu nýrra höfuð-
stöðva á hinu sögufræga Potsdamer Platz. Áætlað er að framkvæmd-
ir hefjist í október nk. eftir því sem talsmaður fyrirtækisins sagði
á fréttafundi fyrir helgi.
Fyrirhuguð bygging höfuðstöðva
Daimler-Benz á Potsdamer Platz
er stærsta verkefnið af nokkrum
sem ætluð eru til að vekja aftur
foma frægð torgsins sem fyrir um
þrjátíu árum var skipt í tvennt með
Berlínarmúmum. Áætlað er að
2.500-3.000 starfsmenn verði í nýju
höfuðstöðvunum og að um 5.000
ný störf skapist við byggingu
þeirra. Gert er ráð fyrir að bygging-
in verði tilbúin árið 1998.
Auk Daimler-Benz ætla m.a. jap-
anska rafeindafyrirtækið Sony og
svissnesk-sænska verkfræðifyrir-
tækið ABB Asea Brown Boveri að
byggja á torginu. Þá liggja á borð-
inu teikningar að skrifstofubygg-
ingum, verslunarhúsnæði, bóka-
safni og leikhúsi ásamt neðan-
j arðaij árnbrautarstöðvum.
Sony, sem áætlar að hafa mið-
stöð Evrópustarfsemi sinnar á
Potsdamer Platz, hefur frestað
framkvæmdum fram í febrúar á
næsta ári, en hyggst flytja höfuð-
stöðvamar þangað frá Köln árið
1996. Kostnaðaráætlun byggingar-
innar hljóðar upp á 1,2 milljarð
marka eða sem nemur tæplega 50
milljörðum íslenskra króna. Frestun
framkvæmdanna er vegna deilna
Sony við Evrópubandalagið þar sem
því var haldið fram að fyrirtækið
hefði fengið ólöglegan afslátt af
markaðsverði lóðarinnar á Post-
damer Platz. Sony vann málið eftir
mikið þóf, en á síðasta ári þurfti
Daimler-Benz að kröfu Evrópu-
bandalagsins að greiða 30 milljón-
um marka, eða um .120 milljónum
íslenskra króna, meira fyrir sína lóð
en fyrirtækið hafði upphaflega
greitt. Þessi mál þykja varpa nokkr-
um skugga á áætlanir um endur-
reisn torgsins og hafa menn áhyggj-
ur af því að þau dragi úr áhuga
stærri fjárfesta á fjárfestingum þar.
Erlent
Boeing biðlar
til SAS
BOEING flugvélaframleiðandinn
leggur nú mikla áherslu á að fá
flugfélögin SAS og Finnair til
að skipta út sínum McDonnel
Douglas flugvélum fyrir vélar
frá Boeing.
Þetta kom fram í Wall Street
Journal nýlega þar sem jafnframt
sagði að fyrirtækið ILF, sem leigir
út flugvélar, hafi boðið Finnair að
taka yfir vélar fyrirtækisins ef
Finnair keypti 6 nýjar Boeing 767
og 30 Boeing 737 vélar. Finnair
mun nú þegar hafa skrifað undir
einhvers konar viljafyrirlýsingu
þess efnis en SAS mun ekki hafa
fengið slíkt tilboð.
Mettap hjá Ford
FORD Motor Company var með
tap upp á um 1,7 milljarð króna
á síðastliðnu ári. Þetta er enn
verri afkoma en árið á undan
þegar tapið var um 750 milljónir
króna.
Ekki er búist við því hjá Ford
Motor samsteypunni að miklar
breytingar verði á bílamarkaðnum
á þessu ári. Þvert á móti er búist
við áframhaldandi taprekstri.
Síðasta hálmstrá
Norðmanna?
NORSKA dagblaðið Aftenposten
og samtök norska byggingariðn-
aðarins hafa skipulagt sérstaka
hugmyndasamkeppni til þess að
örva norskt atvinnu- og efna-
hagslíf.
Hugmyndasamkeppnin er opin
öllum, jafnt einstaklingum sem hóp-
um. Þúsundir leiðbeininga hafa ver-
ið sendar út til fólks sem hefur lýst
yfír áhuga á að taka þátt í keppn-
inni og hugmyndir sem þegar eru
komnar inn skipta hundruðum.
Keppt er í tveimur flokkum og nema
fyrstu verðlaun í hvorum flokk um
hálfri milljón íslenskra króna. Þá
verður hugmyndasmiðunum veitt
fagleg aðstoð við að koma þeim
hugmyndunum í framkvæmd, sem
líklegar eru taldar til að gefa eitt-
hvað af sér.
Hvað býður
DR) bílkranar frá Ítalíu.
Ný kynslóð bílkrana frá Effer. Nú er
líran í lágmarkl og gœðln í hámarki.
Pantaðu strax fynr sumarið.
IVECO bátavélar
60 - 600 hestöfl.
IVECO slökkvibílar
Húsavík / Vestmannaeyjar
Snjóbílar
Vörubílspallar.
Vörulyftur
QJEtniragB Skíðalyftur
Um alt land.
cOIOHOIO:*
I*
Á Dalvík, ísafirðl og Egilsstöðum
Belta- og njólagröfur. ^
.. WTf
Llðstýrðar traktorsgröfur.
Hjólaskóflur.
Verkstœöiö okkar.
Hs ii -ií
“i«C^gíE3nö)i.
Sérhannað hús fyrlr stœrstu vélar og lengstu bíla.
Sérhœfing okkar manna er:
Ingi þor Hafsteinsson. Vélfrœðlngur.
Kjartan Guðbjartsson. Vélfrœðlngur.
Iveco bílar oa diselvélar. Effer, Schaeff og Leltner.
Caterplllar bata og vlnnuvélar.
Stálsmíði. Vökvakerfl.
Páll Gíslason. Véltœknifrœðingur.
Hönnun og val búnaðar fyrir vélar og vðrubíla.
Ingimundur Þór Þorstplnsson. Raffrœðlngur.
Aukarafkerfi í farartœki. Islensk hönnun.
og framleiðsla undlr vörumerklnu:
IVECO
3-6 tonn í heildarþunga
Sýnum í dag og nœstu daga
IVECO EuroCargo
Vörubíll ársins 1992 og 1993
í fyrsta sinn í söguni fœr sama fyrirtœkið
þennan eftirsótta titil 2 ár í röö.
Fyrir EuroCargo á síöasta ári og fyrir
EuroTech í ár.
Utlir og stórir sendibílar.
Fyrir kassa, fastan- eða sturtu pall.
8-20 farþega rútur. 4x4 fjallabíll.
IVECO
EuroCargo
6,5 -15 tonn í heildarþunga.
Vörubíll ársins 1992.
IVECO
EuroTech
16-44 tonn í helldarþunga.
_ it-- ili !If- ,_jí; _ j;
Vörubíll árslns 1993.
Smiösbúö 2-210 Garöabœr
Sími 91-656580