Morgunblaðið - 20.04.1993, Qupperneq 49
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993
49
»
Í
VELVAKANDI
HEIÐARLEGUR
FINNANDI
KONAN sem fann tösku í inn-
kaupakerru fyrir utan Hagkaup í
hádeginu sl. föstudag og skilaði
henni í upplýsingarnar í Hagkaup,
er vinsamlega beðin að hafa sam-
band við Noni í síma 35546.
SEINNI
PARTURINN
GUNNLAUG og Stefán spurðust
fyrir um botn við fyrri part í
Morgunblaðinu sl. föstudag.
Lesendur blaðsins tóku fljótt
við sér og tvær konur höfðu sam-
band við Velvakanda, hvor með
sína útgáfu af botni við fyrri part-
inn sem var svohljóðandi:
Hvað er iíkt með korktrekkjara
og kjörnum manni á þing:
Annar botninn er svohljóð-
andi:
Að komast alltaf lengra og lengra
um leið og þeir snúast í hring.
En hinn svona:
Þeir pota sér alltaf lengra og lengra
um leið og þeir snúast í hring.
EINKENNILEGT
PÁSKAGRÍN
MARGRÉT hringdi og sagði frá
atviki sem henti fjölskyldu hennar
um páskana. Bamabarn hennar
er sykursjúkt svo keypt var
páskaegg handa því sem er ætlað
sykursjúkum. í staðinn fyrir sæl-
gæti er sett ýmislegt smálegt
dótarí inní eggin til að gleðja
börnin, en ástæða þess að hún
hringdi til Velvakanda er sú að
inni í egginu sem barnið fékk var
lítil stytta eða fígúra af skratt-
anum, með rauð hom og hala, og
með fylgdi miði sem á stóð „Ég
hugsa um þig“. Margréti og fleír-
um sem hlut áttu að máli fannst
þetta ekkert fyndið og allra síst
af þessu tilefni og hafði samband
við sælgætisgerðina sem fram-
leiðir eggin til að spyija hvernig
á þessu standi. Henni var tjáð af
starfsmanni þar að fólk hefði ein-
faldlega misjafnan húmor.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Úr fannst við Kringluna
KARLMANNS gullúr fannst á
bílastæði við Kringluna fyrir
u.þ.b. mánuði síðan. Eigandi get-
ur haft samband í síma 22697.
Úlpa tapaðist
SVÖRT hettuúlpa tapaðist í
Tunglinu miðvikudaginn 7. þ.m.
Ulpan er sú eina sinnar tegundar
hér á landi og á baki hennar
stendur orðið Stussy. Finnandi
vinsamlega hafi samband í síma
73374. Fundarlaun.
Týndur hringur
STÓR silfurhringur með svörtum
steini tapaðist í miðbænum rétt
fyrir páska. Finnandi vinsamlega
hafi samband í síma 12627.
GÆLUDÝR
Kettlingur fæst gefins
SÍAMSBLENDINGUR, hreinleg-
Ur 11 vikna högni, fæst gefins.
Upplýsingar í síma 91-627814.
Köttur í óskilum
ÞRÍLIT læða, hvít, svört og grá,
með rauða hálsól, fannst í Furu-
grund 50. Upplýsingar í síma
46268.
HEILRÆÐI
LÍTLL BÖRN GETA DRUKKNAÐ
í GRUNNU VATNI.
VERTU VAKANDIFYRIR STÖÐUM ÞAR
SEM VATN GETUR SAFNAST FYRIR í.
Pennavinir
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist, dansi, söng, bréfa-
skriftum of.l.:
Yuki Ando,
Oharayabinkyokudome,
Setagaya-k,
Tokyo,
1546 Japan.
LEIÐRETTING
Staðarnafn
rangt
Baksíðumynd sunnudagsblaðsins
var frá Stykkishólmi, en ekki Ólafs-
vík eins og sagði með texta myndar-
innar. Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessu mishermi.
SLYSAVARNAFELAG ISLANDS
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
,, Kynvillupúkinn ‘4
Frá Lönu Kolbrúnu Eddudóttur:
ÍSLENSKIR hommar og lesbíur bera
nú hönd fyrir höfuð sér síðum Morg-
unblaðsins og það ekki að ástæðu-
lausu. Mér er málið nokkuð skylt og
sé mig knúna til að stinga niður
penna og beina orðum mínum til allra
þeirra sem hlut eiga að skrifum þeim
sem birtast á síðum Morgunblaðsins,
jafnt Agnesar Bragadóttur sem ann-
arra.
Tilefnið er viðtal Agnesar Braga-
dóttur við Evu Evdokimovu sem birt-
ist í Morgunblaðinu sunnudaginn 21.
mars sl. en þar komu fram slíkar
ranghugmyndir um homma, útlit
þeirra og innræti, að þær eru hvorki
greinarhöfundi, viðmælanda hennar
né Morgunblaðinu til nokkurs sóma.
Sama gildir um síendurtekna notkun
orðsins „kynvilla" í umræddri grein.
Hæfileikinn til þess að hrífast af
eigin kyni hefur alltaf verið hluti af
litrófi mannlegrar náttúru. Lesbíur
og hommar eru í öllum stigum, stétt-
um og störfum íslensks þjóðfélags,
þar með talið í starfsliði Morg-
unblaðsins, og Morgunblaðsmenn
ættu að varast að falla í þá gryfju
að nota hið neikvæða og fordóma-
fulla orðskrípi „kynvilla" þegar önn-
ur orð og viðkunnanlegri eru útbreidd
í íslenskri tungu.
Hugtakið „samkynhneigð" er
fræðiheiti yfir hæfileikann til að hríf-
ast af einhveiju sama kyns en þau
hugtök sem oftast eru notuð í dag-
legu tali eru „lesbía“ og „hommi".
Ég mælist til þess að Morgunblaðið
sjái sóma sinn í því að leggja nú
þegar af notkun orðskrípsins „kyn-
villa“ og noti þess í stað „lesbía" eða
„homrni" í allri umfjöllun um fólk
sem elskar eigið kyn og aðhyllist
þann lífsstíl.
Það er varhugavert og ábyrgðar-
hluti að ýta undir fordóma og rang-
hugmyndir um líf og tilveru annarra
og það væri nær hlutverki og stöðu
Morgunblaðsins sem stærsta og út-
breiddasta dagblaðs landsins að færa
lesendum sínum fróðleik byggðan á
fyrsta flokks blaðamennsku.
LANA KOLBRÚN EDDUDÓTTIR,
formaður Samtakanna 78, ^
félags lesbía og homma á íslandi.
Vinnlngstölur
laugardaginn
17. apríl 1993.
1.
2.
3.
FJÖLDI
VINNINGSHAFA
Wl
179
5.702
UPPHÆÐ Á HVHRN
ViNNINGSHAFA
5.943.971
88.906
5.997
439
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
10.142.954 kr.
uppiýsingarsImsvari91 -681511 lukkulIna991002
m m wmuNm
3 ■jj*
HAGSTÆTT VERÐ OG
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
ELFA-LVI
Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir
rafmagnsofnar350 - 2000w.
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
ELFA-OSO
Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir
30- 300 iítra, útvegum aðrarstærðir
frá 400-10.000 lítra.
ELFA-VARMEBARONEN
Hitatúba / rafketill 12kw, 230v.
1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt
að 1200kw.
ELFA-V ORTICE
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndurvið ísienskaraðstæður.
V'TJ'H Einar Farestvelt &Co.hf.
Borgartúni 28 - S 622901 og 622900
Rii
íþri óttgallari
Stæröir 116-176
Verö ki
XS-XXL stærðir
Verð fer, i.29ðs
»hummel',£
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, sími 813555.
oram FUHDUR MEO
DAVfD ODOSSYM, rORSJETtSRÁÐHERRA
Efni fundarins: Stjórnmálaviðhorfið í dag
Fundurinn verður haldinn í Fóstbræðrahéimilinu, Langholts-
vegi 109-111, Reykjavík, þriðjudaginn 20. apríl nk. kl. 20.30.
Allt sjálfstæðisfólk hvatt til að mæta. Kaffi verður á könnunni.
Sjálfstæðisfélögin í Laugarneshverfi og Langholtshverfi.