Morgunblaðið - 13.05.1993, Qupperneq 25
MORQU-NBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ1993
25
„Ekki annað
að gera en að
ausa bátinn“
- segir Reynir Ragnarsson
um björgxm af vélarvaria báti
Vestmannaeyj um.
VARÐSKIPSMENN af Óðni komu með
Elínborgu, 4 tonna trillu sem varð vélar-
vana austur af Eyjum á þriðjudagskvöld,
til Eyja aðfaranótt miðvikudags. Reynir
Ragnarsson, sem var eini bátsveijinn á
Elínborgu, sagði í samtali við Morgunblað-
ið eftir komuna til Eyja að hann hafi
ekki verið í bráðri lífshættu og verið ró-
legur meðan hann rak um vélarvana og
rafmagnslaus í hriplekum bátnum því
hann hafi verið viss um að fljótlega yrði
farið að svipast um eftir honum. „En auð-
vitað var það léttir þegar ég sá varðskip-
ið koma því ég hefði eflaust orðið þreytt-
ur að ausa alla nóttina,“ sagði Reynir.
Reynir lagði af stað frá Vík um hádegi á þriðjudag
áleiðis til Eyja þar sem báturinn átti að fara í skip
sem flytja átti hann vestur á firði. Báturinn lak strax
mikið enda búinn að standa á þurru í langan tíma.
Lensidælan í bátnum hafði fyrst undan en bilaði um
klukkan þrjú og þá varð Reynir að ausa bátinn þar
sem handdælan hafði ekki undan lekanum. Hann
hafði að gera við dæluna en þá var orðinn það mikill
sjór í trillunni að vélin var farin að ausa yfir sig og
það endaði með því að hún hætti að framleiða og
drap síðan á sér.
I basli allan daginn
„Ég var búinn að tilkynna að ég yrði í Eyjum um
klukkan fimm þannig að ég vissi að það yrði svipast
um eftir mér fljótt," sagði Reynir. „Ég var í basli
allan daginn og sóttist ferðin seint þar sem ég var
alltaf að stoppa til að ausa. Ég hafði síðan að lag-
færa lensidæluna um klukkan átta og gat þá þurrkað
bátinn en þá var vélin búin að ausa miklum sjó yfír
sig og það varð til þess að hún hætti að framleiða
rafmagn og drap á sér um klukkan hálf tíu. Þá var
ekki annað að gera en að ausa bátinn. Ég var raf-
Morgunblaðið/Grímur Gíslason
Björgunin
VARÐSKIPSMENN koma með
Elínborgu til hafnar í Eyjum. Á
innfeldu myndinni er Reynir
Ragnarsson, skipverji á Elín-
borgu.
magnslaus og gat ekki kallað í land og varð því bara
að bíða eftir hjálpinni."
Varðskip til leitar
Varðskipið Óðinn var statt í Eyjum og hélt út um
klukkan ellefu til leitar að Elínborgu. Varðskipsmenn
fundu bátinn fljótlega eftir miðnættið og komu Reyni
til hjálpar. „Ég kveikti á neyðarblysi um miðnættið
því ég gerði ráð fyrir að leit væri hafín. Varðskips-
mennirnir sáu blysið og voru fljótir að koma til hjálp-
ar. Mér var funheitt enda varð ég að ausa viðstöðu-
laust. Ég held ég hafi ekki verið í bráðri lífshættu
en auðvitað var það léttir þegar ég sá varðskipið koma
því ég hefði eflaust orðið þreyttur að ausa alla nótt-
ina. Varðskipsmenn voru fljótir að kippa mér um borð
og vil ég koma á framfæri þakklæti til þeirra fyrir
aðstoðina," sagði Reynir.
Varðskipsmenn drógu Elínborgu til hafnar í Eyjum
með léttabát af varðskipinu þar sem hún var strax
tekin á land vegna lekans. Grímur
Óskar eftir fundi í utanríkismálanefnd
Vill ræða skila-
boð Bandaríkja
um hvalveiðar
HJORLEIFUR Guttormsson alþingismaður hefur óskað
eftir fundi í utanríkismálanefnd Alþingis um orðsendingu
þá sem bandarísk sljórnvöld hafa sent íslensku ríkisstjórn-
inni um hvalamál. Ekki er ljóst hvenær af fundinum getur
orðið vegna fjarveru formanns nefndarinnar.
„Ég óska eftir fundi til að ræða
þá stöðu sem komin er upp og fá
upplýsingar um málið og hitta við-
komandi ráðherra til að heyra þeirra
sjónarmið," sagði Hjörleifur við
Morgunblaðið. í orðsendingu Banda-
ríkastjórnar eru íslendingar varaðir
sterklega við að hefja hvalveiðar á
ný í atvinnuskyni því það gæti kall-
að á refsiaðgerðir samkvæmt banda-
rískum lögum og einangrun íslands
á alþjóðavettvangi.
Hjörleifur gagnrýndi að upplýs-
ingar um orðsendingu Bandaríkja-
stjórnar hefðu ekki borist utanríkis-
málanefnd og sjávarútvegsnefnd
Alþingis áður en þingi var slitið um
síðustu helgi. Sjávarútvegsnefnd
hafði í undirbúningi ályktun um
hvalveiðar sem kom þó ekki á dag-
skrá þingins, og sagðist Hjörleifur
viss um að hefðu upplýsingar um
skilaboð Bandaríkjanna legið fyrir
þá, hefði það haft áhrif á afgreiðslu
tillögunnar.
Fréttum ekki veitt athygli
Orðsending Bandaríkjastjórnar
barst sjávarútegsráðherra í síðustu
viku og Morgunblaðið flutti þá ítar-
legar fréttir af innihaldi hennar,
nokkrum dögum áður en þinginu var
slitið. Þegar Hjörleifur var spurður
hvers vegna hann hefði ekki brugð-
ist við þá, meðan þinghald stóð enn
yfir, svaraði hann að þingmenn
hefðu hreinlega ekki veitt þessum
fréttum næga athygli í því annríki
sem var síðustu daga þinghaldsins,
ef til vill vegna þess að þeir hefðu
tengt þær almennum fréttum af árs-
fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins. Auk
þess hefðu þessar fréttir ekki getað
komið í staðinn fyrir það að leggja
málsgögnin fram í viðkomandi
nefndum.
-------» »■■■♦---
Rafstöð fyrir
129,7 millj.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka rúmlega 129,7 milijóna
króna tilboði lægstbjóðanda
Sveinbjörns Sigurðssonar hf., í
byggingu aðveitustöðvar fyrir
Rafmagnsveitu Reylqavíkur við
Elliðaár.
Fimm tilboð bárust í lokuðu út-
boði og er lægsta boð 83,46% -f
kostnaðaráætlun en hún er
145.071.772 krónur. ístak hf., átt
næst lægsta boð, 91,36% af kostn-
aðaráætlun. Þá bauð Álftárós hf.,
93,90% af kostnaðaráætlun,
Byggðaverk hf., bauð 95,01% af
kostnaðaráætlun og Ármannsfell
hf., bauð 108,13% af kostnaðar-
áætlun.
Innbrot í Barna-
skóla Eyrarbakka
Eyrarbakki.
I gærmorgun, þegar skólastjóri mætti til vinnu í Barnaskó-
lanum á Eyrarbakka, kom í ljós að brotist hafði verið inn
um nóttina. Gluggar höfðu verið spenntir upp og þjófarn-
ir þannig komist inn í bókasafn skólans, en þar eru einnig
tölvur skólans.
—ZZZZZZZZZZ^ZZZZZZZZT-! úr þeirri stofu er ekki hægt að
Röng mynd-
birting
í Dagbók Morgunblaðsins í gær
var tilkynning um að Jón Krist-
mannsson verkstjóri, Seljalands-
vegi 36, ísafírði hafi í gær orðið
60 ára og hélt hann upp á af-
mælisdaginn í kaffisal íshúsfé-
lags fsfírðinga hf. Þau mistök
urðu að með tilkynningunni birt-
ist mynd af Theodór Ólafssyni.
Hér birtist myndin af Jóni og
biður Morgunblaðið þá báða af-
sökunar á mistökunum.
komast, nema brjóta hurðina, en
reynt hafði verið að skrúfa læsinguna
sundur og opna þannig, en síðan var
farið inn um annan glugga á gangi
og hurð fyrir kennslueldhúsi hafði
verið tekin af lömum og spennt þann-
ig upp. Opin fög í gluggum skólans
eru ekki það stór, að tölvunum yrði
smeygt þar í gegn og hurðir í útidyr-
um eru læstar með lykli á báða vegu,
þannig að þar varð ekki komist í
gegn nema með því að bijóta hurðir.
Þjófarnir létu sér því nægja að hafa
með sér tengisnúrur við tölvurnar
og prentara, því öðru varð ekki kom-
ið út um þá glugga sem opnaðir
voru. Nokkrar skemmdir urðu á tölv-
unum og hurðinni sem brotin var
upp. Lögreglan á Selfossi rannsakar
málið. -Óskar
----» ♦ ♦---
Gripnir
glóðvolgir
BENSÍNI var stolið af bifreið í
Garðabæ aðfaranótt þriðjudags.
Tveir menn voru gripnir á hlaup-
um skammt frá.
Mennirnir tveir þrættu í fyrstu
ákaft fyrir að eiga nokkurn hlut að
máli. Þeim vafðist hins vegar tunga
um tönn þegar þeir voru inntir eftir
því hvers vegna þeir væru á hlaupum
með slöngu og bensínbrúsa.
Age Management
Á 60 dögum byrja fínu línurnar
og hrukkurnar að hverfa.
Skaðinn sem þú hélst að væri
varanlegur er á bak og burt.
Age Management Serum - á nóttu.
Age Management Cream - að degi.
Age Management Balancer - kvölds
og morgna. 24 tima virkni.
Skyndilega hægir mjög á öldrun
húðar þinnar.
Age Management Series.
Útsölustaöir: Hygea Kringlunni, Hygea Austurstræti.