Morgunblaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
og systur, þeirra missir er mikill.
En við skulum öll þakka Guði fyrir
þær miklu og dýrmætu minningar
sem við eigum um Ernu Jakobsdótt-
ur. Guð blessi minningu hennar.
Pétur Ó. Helgason,
HranastSðum.
Asklok er ekki himinn
Og ég trú því ekki
að kistulok taki við
af himni og heiðum stjömum.
(Matthías Johannessen)
I dag er vinkona mín, Ema Jak-
obsdóttir lyfjafræðingur, borin til
grafar. Fyrir fjórum árum greindist
hún með krabbamein og þó að hún
í bili virtist yfirstíga sjúkdóminn
þá blossaði hann upp á ný fýrir
tveim árum. Þessi síðustu ár urðu
erfið, þó að Erna bæri sjúkleika
sinn af fádæma reisn og æðruleysi
allt til enda.
Ég kynntist Ernu þegar við urð-
um sessunautar á fýrsta ári í
Menntaskólanum á Akureyri og
minnist hjálpsemi hennar við mig
sem var heldur slök í raungreinum.
Þau fög voru henni hins vegar leik-
ur einn, enda fór það svo að hún
var eina stúlkan úr okkar árgangi
sem fór í stærðfræðideild. Sýnir það
vel afburða námshæfileika Emu og
góðar gáfur.
Síðan höfum við haldið vinskap
sem varð meiri eftir því sem árin
liðu, bömin okkar uxu úr grasi og
tómstundum fjölgaði. Við fórum
sanan í ferðalög bæði utan lands
og innan og betri ferðafélaga en
Emu er vart hægt að hugsa sér.
Síðast ferðuðumst við saman til
Irlands fyrir einu og hálfu ári og
voru þá kraftar hennar famir að
minnka, en eljan ótrúleg að skoða
sem mest. Mér er sérstaklega minn-
isstætt þegar við báðumst fyrir við
risastóran kross á stómm grasvelli
í almenningsgarði í Dublin. Hann
hafði verið reistur þegar páfinn
hélt þar útiguðsþjónustu - einfalt
en magnað trúartákn sem manni
fannst auka mátt bænarinnar. Erna
hafði yndi af ferðalögum og hvers
konar útiveru og meðan kraftar
entust fór hún í gönguferðir í
Kjarnaskógi sem voru henni mikils
virði.
Ema var einstaklega áreiðanleg
og samviskusöm í öllu sem hún tók
sér fyrir hendur. Og þó að hún
væri dul og bæri ekki tilfinningar
sínar á torg, þá fundu þeir sem
þekktu hana hlýjuna sem frá henni
streymdi, enda var hún mjög næm
á tilfinningar annarra. Hún var
mikill vinur vina sinna, hélt tryggð
við skólasystkini og var einstaklega
gestrisin og góð heim að sækja.
I meira en tuttugu ár vomm við
í saumaklúbb með skólasystrum úr
MA og öðmm vinkonum. Hennar
verður nú sárt saknað úr hópnum
og eins úr bridsklúbbnum sem við
vorum í ásamt þremur vinkonum,
en Erna hafði mjög gaman af að
spila brids.
Nú er Erna okkar lögð af stað í
ferðina miklu sem fýrir okkur öllum
liggur. Ef til vill er það ævintýra-
ferð svipuð þeim sem við í sauma-
klúbbnum skemmtum okkur við að
fara í huganum - en fömm aldrei
í veraleika. Við vinkonur hennar
óskum henni góðrar ferðar og vitum
að hvar sem hún kann að koma
verður henni vel tekið, slíka mann-
kosti hafði hún til að bera.
Kæra Olla, Margrét, Hrefna og
fjölskylda, við vinkonur Ema send-
um ykkur innilegar samúðarkveðjur
og biðjum ykkur blessunar.
Valgerður Jónsdóttir.
Kveðja frá Zontaklúbbi
Akureyrar
Allt er í heiminum hverfult. Rós-
in, sem ilmaði yndislega í gær er
fölnuð í dag. Erna Jakobsdóttir er
horfín sjónum okkar, en minningin
um hana lifír. Þessi minning er
okkur ómetanleg og við viljum ekki
án hennar vera, þótt við verðum
að sætta okkur við það, að allt líf
þessa heims tekur enda.
Erna var fædd 26. október 1941
á Akureyri. Foreldrar hennar vom
Jakob Ólafur Pétursson, ritstjóri og
skrifstofumaður, sem nú er látinn
og Margrét Agústa Jónsdóttir, hús-
freyja á Akureyri. Erna var sú yngri
af tveim dætmm þeirra hjóna. Eldri
systir hennar heitir Hrefna, gift
Yngva Loftssyni, kaupmanni á Ak-
ureyri og eiga þau hjónin tvær
dætur.
Erna var góðum námsgáfum
gædd og lauk stúdentsprófí úr
stærðfræðideild frá Menntaskólan-
um á Akureyri vorið 1961. Hún hóf
síðan nám í lyfjafræði lyfsala við
Háskóla íslands og lauk prófi, sem
aðstoðarlyfjafræðingur í júní 1964.
Hún starfaði fyrst í Vesturbæjar
Apóteki í Reykjavík , en fluttist til
Akureyrar haustið 1967 og hóf
störf í Stjörnu Apóteki. Þar starfaði
hún óslitið meðan starfsþrek hennar
var óskert.
Erna_ eignaðist eina dóttur, sem
heitir Ólöf Jakobína Þráinsdóttir.
Ólöf lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri vorið 1989.
Erna bjó fyrst með foreldrum sínum
á bemskuheimili sínu í Fjólugötu,
en síðan byggðu þau saman hús í
Kotárgerði. Eftir að faðir Ernu dó
bjuggu þær mæðgurnar þrjár sam-
an. Heimilið er mikið menningar-
heimili og þar hefur alltaf verið
gott að koma. Gestrisni og góður
andi ríkir og gestir fara endumærð-
ir eftir notalegar stundir með
heimafólki.
Leiðir okkar lágu saman í Zonta-
klúbbi Akureyrar og okkur fínnst
það mikil gæfa að hafa fengið að
kynnast Emu og starfa með henni.
Erna var prúð, traust og jafnlynd,
sannur vinur og félagi. Hún var dul
um eigin hagi og flíkaði ekki tilfínn-
ingum sínum.
Þótt hún væri alvömgefin var
hún gædd ríkri kímnigáfu og var
glöð á góðum stundum. Zontasystur
treystu henni fyrir miklu, og það
sýndi sig, að öllum málum var vel
borgið í hennar höndum. Samt var
hún hlédræg og flíkaði ekki hæfí-
leikum sínum og sóttist ekki eftir
metorðum. Ema var vel að sér um
flesta hluti, prýðilega ritfær og átti
það til að kasta fram stöku.
Erna gekk í Zontaklúbb Akur-
eyrar haustið 1972. Hún varð fljót-
lega gjaldkeri í stjórn klúbbsins og
síðan var hún tvívegis formaður frá
1978-1979 og 1986-1987. Ema var
formaður, þegar við héldum flóa-
markað á flötinni fyrir framan
Nonnahús vorið 1979.
Þetta var eftirminnilegur dagur,
einn af örfáum sólardögum þessa
sumars. Klúbburinn styrkti augn-
þjálfa til náms í Þýskalandi og safn-
aði fé til augnþjálfunartækja og
segja má, að Ema hafi stjórnað því
verki.
Þegar klúbburinn réðist í þær
miklu framkvæmdir að innrétta
fundarsal og íbúð í Zontahúsi var
Ema í húsnefndinni, sem sá um þau
mál. Hennar ráð voru holl og góð
og miðuðu vel að settu marki. Hún
gætti þess, að við fæmm ekki of
geyst og minnti á, að kapp er best
með forsjá. Henni gekk alltaf vel
að rata þennan gullna meðalveg og
gat starfað með öllum, þannig að
þeim þótti vænt um hana og kunnu
að meta hana.
Mesta starf Ernu er þó tvímæla-
laust starf hennar í Nonnanefnd,
sem sér um rekstur og viðhald
Nonnahúss. Þar var hún formaður
nokkur ár. Hún hafði einlægan
áhuga á safninu og framgangi þess.
Hún vann mikið starf, þegar við
reistum stein til minningar um
Nonna á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Hún samdi fróðlegt erindi um
Nonna og flutti það við athöfn í
Möðruvallakirkju, þegar steinninn
var afhjúpaður.
Vorið 1989 greindist hjá Emu
sá sjúkdómur, sem að lokum varð
henni að aldurtila. Þegar hún varð
fimmtug áttum við eftirminnilegan
dag á heimili hennar, og við vorum
allar vongóðar um, að henni tækist
að yfírvinna sjúkleikann. Sjálf var
hún lengst af vongóð og lífsviljinn
sterkur og baráttuþrekið mikið. En
enginn má sköpum renna og
snemma á þessu ári fór að halla
verulega undan fæti með heilsu
hennar.
Erna lést í sjúkrahúsinu á Akur-
eyri 6. maí síðastliðinn. Við vottum
einkadóttur hennar, aldraðri móður
og systur hennar innilega samúð
okkar sem og öðmm vandamönn-
um.
Við munum sakna hennar mikið,
en minningin um Ernu mun þó allt-
af hlýja okkur um hjartarætumar
eins og indæll ilmur rósanna.
Blessuð sé minning Emu Jakobs-
dóttur.
Zontasystur.
Á skilnaðarstundu koma margar
minningar fram í hugann. Allt em
það góðar minningar og kærar.
Atvikin höguðu því svo til að fjöl-
skyldur okkar urðu næstu nágrann-
ar í Fjólugötu á Akureyri. Því varð
samgangur milli heimilanna allmik-
ill. Við litum alltaf upp til Emu
frænku. Hún var okkur næstum
eins og stóra systir, fyrirmynd sem
áminnir yngri bræður án orða. Ekki
með yfírlæti, heldur gekk hún fram
með hlýju, glaðlegu viðmóti og ör-
uggu fasi og lét sér annt um okk-
ur. Hún hafði áhuga á fólki og fólki
leið vel í návist hennar.
Ema var líka ættrækin og hin
síðari ár hafði hún safnað í ættar-
skrá nöfnum og upplýsingum um
frændfólk sitt — á fímmta þúsund
manns. Hún hafði líka frumkvæði
að því að allstór hópur ættingja
hittist sl. sumar, þegar tekið var á
móti frænda frá Ameríku.
Vorið er sá árstími, sem flestir
þrá. Þá er að baki kuldi og myrkur
vetrarins og náttúran lifnar við.
Nú á þessum vordögum höfum við
verið minnt á fallvaltleika lífsins
og það hefur haustað í huga okkar.
En minningin um elskulega
frænku okkar lifír.
Þórir og Magni.
3M
Mottur
TZutancb
Hcílsuvörur
nútímafólks
Kripalujóga
Orka sem endist
Kynning í kvöld kl. 20.30.
Teygjur, öndun, slökun.
Allir velkomnir.
Jógastöðin Heimsljós,
Skeifunni I9,2.hæð,
s.679181 (kl. 17-19).
lstrub hú
TUSCANY
3ja sæta sófi
kx. 83.235,- stgr.
2ja sæta sófi
kr. 73.935,- stgr.
□ NÆG BÍLASTÆÐI í NÝJA
BÍLAGEYMSLUHÚSINU
TRAÐARKOTIVIÐ HLIÐINA
Á HABITAT-HÚSINU
IVITAMl
Kr. 125.550,- stgr.
v:
Charbury
habitat
C
Charbury-kommoba m/3 skufrum
Verö ábur kr. 35.245,-
v Sumartilboö á abeins /
kr. 25.970,- stgr.
LAUGAVEGI 13 - SIMI 91) 625870