Morgunblaðið - 13.05.1993, Page 42

Morgunblaðið - 13.05.1993, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993 Halldóra Helga- dóttir - Minning Fædd 16. ágúst 1922 Dáin 1. maí 1993 Ó, minning, minning. Lákt og ómur fjarlægra söngva, líkt og ilmur deyjandi blóma berast orð þín að hlustani eyrum mínum. Eins og lifandi verur birtast litir og hljómar hinna liðnu daga, sem hurfu sinn dularfulla veg út í dimmbláan §arskann og komu aldrei aftur. (Steinn Steinarr) Nú er elsku Halldóra frænka okkar dáin og skilur eftir sig tóma- rúm og söknuð hjá okkur öllum. Halldóra var engin venjuleg frænka. Hún var einn af þessum nauðsynlegu föstu punktum í tilver- unni allt frá því að ég man fyrst eftir mér. Það þótti alltaf sjálfsagt að Halldóra væri með í öllu sem við gerðum, hvort sem um var að ræða veislur, barnaafmæli, útilegur eða hvað eina sem við tókum okkur fyrir hendur. Alltaf gaf hún sér tíma til að koma og hafði mikinn áhuga á öllum í fjölskyldunni. Það er ekki langt síðan hún og Fríða frænka mættu í útilegu með ungu fólki „vel útbúnar" og voru hressastar af öllum. Halldóra vann í apóteki svo lengi sem ég man eftir, en var nýhætt vegna aldurs. En hún lét ekki stað- ar numið. Hún fór að sinna sínum áhugamálum af krafti og tók m.a. þátt í sögunámskeiði í HÍ og var byijuð að læra ensku. Á þessu má sjá að hún var mjög áhugasöm um allt og alla og hress fram á síðasta dag. Við eigum lengi eftir að minn- ast Halldóru frænku og sakna henn- ar mikið. Við viljum að lokum senda öllum aðstandendum hennar okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Guðrún Kristinsdóttir og fjöiskylda. Okkur setti hljóð er þau tíðindi bárust föstudagsmorguninn 30. apríl að Dóra hefði veikst alvarlega daginn áður. Næsta dag kom svo andlátsfregnin. Við höfðum síst búist við að Dóra ætti svo stutt eftir þar sem hún var ímynd hraustrar og heilbrigðrar konu og full af lífsorku. Hún lét af störfum hér á Holts apóteki fyrir fimm mánuðum og ætlaði að njóta þess tíma sem framundan væri til að sinna áhugamálum sínum og fjöl- skyldu. Dóra settist á skólabekk eftir áramót og hugðist halda áfram á hausti komanda að bæta við þekk- ingu sína. Hún var víðlesin og unni góðri tónlist, iðkaði útivist, göngur og sund og hafði ánægju af ferða- lögum innan lands sem utan. Henni auðnaðist að fara allmargar ferðir með Fríðu systur sinni og dóttur- inni Fríðu og hennar fjölskyldu. Barnabörnin, Þóra og Helgi, voru Dóru lífsfylling og gleðigjafar frá því að þau fæddust. Fylgdist hún vel með þeim og tók þátt í upp- vexti þeirra og þroska. Dóra hafði starfað í apóteki í meira en fímm áratugi, fyrst í apó- tekinu í Vestmannaeyjum og síðan í Holts apóteki í Reykjavík sl. 25 ár. Hún bjó því yfir mikilli þekkingu og reynslu sem við samstarfsfólkið nutum góðs af. Apótekarastörfín hafa breyst mikið á starfsævi Dóru. Fyrr á árum fór nær öll lyfjaframleiðsla fram í apótekunum sjálfum og má augljóst vera að það krefðist ýtrustu ná- kvæmni og samviskusemi að inna þau störf af hendi. Dóra leysti þau af stakri prýði og var búin að leið- beina æði mörgum nemum um dag- ana, jafnt í lyfjafræði sem lyfja- tækni og gerði hún það af ljúf- mennsku og kostgæfni. Við þökkum Dóru vinkonu okkar samveruna og allt sem hún var okkur og biðjum henni blessunar guðs á nýjum leiðum. Fríðu systur hennar, Fríðu Sigrúnu dóttur henn- ar, tengdasyni og barnabörnunum sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Starfsfólk Holts apóteks. Hvorki fyrir hefð né valdi hopar dauðinn eitt strik, fæst sízt með fögru gjaldi frestur um augnablik, allt hann að einu gildir, þótt illa líki eða vel, bón ei né bræðir mildir hans beiska heiftarþel. (Hallgrimur Pétursson.) Þegar elskuleg frænka, svo sjálf- —sögð í tilveru fjölskyldunnar, er tek- in nær fyrirvaralaust frá okkur, er styrkur okkar fallegar minningar t Maðurinn minn, GUÐMANN ÓLAFSSON bóndi, Skálabrekku, Þingvallasveit, lést 12. maí á Ljósheimum, Selfossi. Regína Sveinbjörnsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓSKAR KETILSSON, Miðbælisbökkum, Austur-Eyjafjöllum, andaðist í Borgarspítalanum 11. maí. Björg Jóhanna Jónsdóttir, Guðrún Maria Óskarsdóttir, Jón Ingvar Óskarsson, Steinar Kristján Óskarsson, tengdabörn og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, VILHJÁLMUR MAGNÚSSON, Brautarhóli, Höfnum, verður jarðsunginn frá Kirkjuvogskirkju í Höfnum föstudaginn 14. maíkl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Minningarsjóð Slysa- varnafélags íslands og björgunarsveitarinnar Eldeyjar í Höfnum. Ketill Vilhjálmsson, Valgerður Sigurgísladóttir, Hildur Vilhjálmsdóttir, Jón Björn Vilhjálmsson, Margrét Elimarsdóttir, Vilhjálmur Nikulásson, Jóhanna Símonardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON, Magnússkógum, Dalasýslu, verður jarðsungirfn frá Hvammskirkju í Dölum laugardaginn 15. maí kl. 14.00. Ferð verður frá Umferðarrniðstöðinni í Reykjavík kl. 9.30 árdegis sama dag. Ólöf Jónasdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Magnús Pálsson, Jónas Guðmundsson, Halldór Guðmundsson, Arndís Guðmundsdóttir, Guðbjörn Guðmundsson, Jensfna Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Helgi Þorvaldsson, Jóhanna Jóhannsdóttir, Andrés Jónsson, og barnabörn. t Sambýliskona mín og móðir okkar, ALICE FOSSÁDAL, Víðihlíð, Grindavík, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 15. maí kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á sjúkradeild Víðihlíðar í Grindavík. RagnarMagnússon, Ragna, Rannvá, Atli, Helgi og Ásla Fossádal. t HALLA JÓNSDÓTTIR frá Bollakoti, Fljótshlið, áður Njálsgötu 32b, verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju, Fljótshlíð, laugardag- inn 15. maí kl. 14.00. Systkinin. t Kæru vinir. Hugheilar þakkir og bestu kveðjur til ykkar allra er vottuðu samúð við andlát AÐALHEIÐAR J.S. HALLDÓRSDÓTTUR, áður Ægisgötu 18. Guð blessi ykkur öll. Ottó Gottfreðsson. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát útför GUÐRÚNAR ÖLDU SIGMUNDSDÓTTUR og ARNGRÍMS SIGURJÓNSSONAR, Hjallavegi 42, Reykjavik. Sigmundur Örn Arngrímsson, Vilborg Þórarinsdóttir, Baldur Már Arngrimsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Haraldur Arngrímsson, Dóra Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. um elskulega og góða konu. Þar ber engan skugga á. Flestar mínar bernskuminningar tengjast á einhvern hátt Haildóru og fjölskyldu hennar. Ég veit ekki hvort skýringin á því að við eldri systkinin kölluðum móður Halldóru ömmu er sú að við áttum ekki ömmu á lífi, eða við hreinlega héld- um að hún væri amma okkar. Oft er erfitt að útskýra það að eiga mömmu Sólvangssystranna sem ömmu, sem eru þó ekki systur hans pabba! En þessi óvenjusterku fjöl- skyldubönd hafa haldist og eru mér og mínum mikils virði. Halldóra var okkur systkinunum eitthvað sem við vorum stolt af og bárum traust til. Allt sem henni viðkom er í hug- anum þægilegt og hreint. Það var einhver ævintýraljómi yfir þessari fallegu hæglátu frænku. Ófáar voru ferðinar niður á Sólvang og alltaf tilhlökkunarefni að fá Halldóru í heimsókn. Reyndist hún mömmu ‘ traust og góð vinkona. Halldóra var dóttir hjónanna Helga B. Jónssonar og Jósefínu Sigurðardóttur sem bæði eru látin. Var Halldóra næstyngst fimm systra. Eftir lifa Guðrún, Kristín, Hólmftíður og Þrúður. .Halldóra fæddist í Reykjavík 16. ágúst 1922, ( en foreldrar hennar fluttust , skömmu síðar til Vestmannaeyja. ' Helgi lést árið 1943 og eftir það : bjó Halldóra með móður sinni; í Vestmannaeyjum til ársins 1968, en síðan í Reykjavík. Eftir að amma dó árið 1971 hélt Halldóra heimili með Fríðu systur sinni. Halldóra átti farsælan starfsfer- il; fyrst í aldarfjórðung í Apóteki , Vestmannaeyja, en síðan í Holts apóteki eftir að þær mæðgur flutt- ust til Reylqavíkur. Dóru í apótek- inu þekktu allir Vestmanneyingar, enda vel liðin og góður starfskraft- ur. Halldóra átti eina dóttur, Fríðu Sigrúnu Haraldsdóttur, sem er gift Sigurbirni Helgasyni, og eiga þau tvö börn, Þóru og Helgu. Eiga þau alla okkar samúð, sem og systurnar. Það sem einkenndi Halldóru var hversu þægileg og ljúf hún var í allri framkomu. Fjölskylda míri minnist hennar með þakklæti og söknuði í huga. Theodóra Kristins. MI-ingar hittast GAMLIR nemendur og kennarar úr Menntaskólanum á Isafirði ætla að hittast laugardagskvöld- ið 15. maí nk. frá klukkan 21 á veitingastaðnum Rauða ljóninu við Eiðistorg. Þetta er í fyrsta skipti sem efnt er til samfagnaðar allra gamalla nemenda MÍ á einum stað. Þarna verður kjörið tækifæri til að rifja upp gamla tíma, endumýja kynni við gömul skólasystkini og kynnast ' öðrum. Ef vel tekst til, er hugmyndin að í framhaldi af þessum samfagnaði verði stofnað nemendasamband Menntaskólans á ísafirði, sem sjái um að viðhalda tengslum MÍ-inga 1 framtlðinni. (Fréttatilkynning) Blóm Skreytingar Gjafavara Kransar Krossar Kistuskreytingar Opið alla daga frá kl. 9-22 Fákafeni 11 s. 68 91 20 Ódýrir iúkar HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.