Morgunblaðið - 13.05.1993, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
53
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Sá besti fór á kostum
Reuter
Michael Jordan, sem almennt er talinn besti körfuknattleiksmaður heims — og hefur reyndar verið nokkur síðustu ár
— sækir hér að Craig Ehle leikmanni Cleveland í fyrrinótt. Jordan fór á kostum í leiknum eins og svo oft áður; tók af
skarið þegar lið Chicago þurfti á að halda og gerði alls 43 stig.
Kraftur í Phoe-
nix og Chicago
Jordan gerði 43 stig gegn Cleveland
Frá Gunnari
Valgeirssyni í
Bandaríkjunum
PHOENIX Suns sigraði San An-
tonio Spurs, 98:89, í fyrsta leik
annarrar umferðar úrslitakeppni
vesturdeildar NBA-deildarinnar
í körfuknattleik í fyrrinótt. í aust-
urdeild sigruðu meistarar
Chicago Bulls lið Cleveland,
91:84. Viðureign þeirra var einn-
ig sú fyrsta í 2. umferð.
Sigur Phoenix gegn Spurs var
mjög sanngjam og nokkuð ör-
uggur, þó gestimir hafi neitað að
gefast upp og alltaf
tekið sig á aftur er
vonin virtist úti. En
ólíkt leikjunum gegn
Los Angeles Lakers
í fyrstu umferð unnu leikmenn Pho-
enix fyrstu viðureignina að þessu
sinni. Liðið hafði sjö stiga forystu í
leikhléi, 45:38, og lét hana aldrei af
hendi. Hún jókst um miðjan seinni
hálfleik, en er þrjár mín. voru eftir
höfðu gestirnir minnkað muninn í
fimm stig. En Phoenix reyndist
sterkara á endasprettinum og gaf
hvergi eftir.
Kevin Johnson bakvörður Phoenix
skoraði 25 stig og Richard Dumas
gerði 22. Charles Barkley var ekki
í stuði, skoraði bara úr fimm af 21
skoti, en gerði alls 18 stig. Hjá San
Antiono var David Robinson langb-
estur - gerði 32 stig. „Við vorum svo
ánægðir að geta byijað upp á nýtt
eftir erfiðleikana gegn LA [Lakers,
þar sem Phoenix tapaði tveimur
fyrstu leikjunum heima] að við kom-
um mjög afslappaðir til leiks núna,“
sagði Kevin Johnson.
Meistarar Chicago gefa ekkert
eftir í Austurdeild. Olíkt flestum öðr-
um liðum rúlla þeir yfír móthetjann
í hveijum leiknum á fætur öðrum
þessa dagana og lið Cleveland var
fórnarlambið í fyrrinótt. Þessi leikur
var reyndar jafn mest allan tímann,
staðan t.d. 64:63 í upphafi fjórða
leikhluta, en þá tók Michael Jordan
sig til og skoraði tíu stig í röð án
þess að mótherjarnir næðu að svara,
og eftir það var sigurinn aldrei í
hættu.
Jordan var sem fyrr lang stiga-
hæstur hjá Chicago með 43 stig.
Gerald Wilkins var stigahæstur með
19 fyrir Cleveland.
Vamariið ársins
Þjálfarar NBA-liðanna hafa valið
varnarlið ársins, og var það til kynnt
í fyrrinótt. Michaei Jordan er í liðinu
sjötta árið í röð, og hinn bakvörður-
inn er Joe Dumas hjá Detroit. Denis
Rodman, einnig frá Detroit, og
Scottie Pippen, Chicago, eru fram-
verðir og Hakeem Olajuwoon, leik-
maður Houston, er miðheiji.
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Ekki hljómgrunnur
fyrir breytingum
- segirJón Ásgeirsson, formaður HSI, sem ætlarað hætta
Skagamenn sigruðu
í Litlu bikarkeppninni
ÍSLANDSMEISTARAR ÍA í knattspyrnu hófu tímabilið í ár á sama
hátt og þeir luku því síðasta — með titli. Þeir unnu Grindvíkinga 5:0
í úrslitaleik Litlu bikarkeppninnar á sunnudag með /jórum mörkum frá
Þórði Guðjónssyni og einu frá Haraldi Ingólfssyni. Á myndinni er fyrir-
liðinn Luca Kostic, sem öðlaðist íslenskan ríkisborgararétt fyrir helgi,
með sigurlaunin.
Eric Cantona lék brot-
inn síðasta mánuðinn
Franski landsliðsmaðurinn hjá Manchester United, Eric Cantona,
lék síðasta mánuð keppnistímabilsins með brotinn úlnlið og verð-
ur að taka sér tveggja mánaða hvíld til að ná sér.
„Við tókum áhættuna enda er Eric harður af sér,“ sagði Alex
Ferguson framkvæmdastjóri United. „Hann vildi ekki heyra það
nefnt að hvíla og notaði bara léttar umbúðir til að geta leikið. Þetta
lýsir honum vel. Hann lék stórt hlutverk hjá okkur og stóð sig frá-
bærlega,“ sagði Ferguson.
JÓN Ásgeirsson, formaður
HSÍ, gefur ekki kost á sértii
endurkjörs á ársþinginu um
aðra helgi eins og kom fram í
Morgunblaðinu ígær. Hann
sagði ástæðuna fyrst og fremst
vera þá að ekki væri stuðning-
ur innan hreyfingarinnar við
hugmyndir hans og annarra um
skipulagsbreytingar og þvf
hefði hann ekki áhuga á að
halda áfram.
Jón sagðist telja að uppbygging
hreyfingarinnar væri ekki rétt
og hann hefði lagt til ýmsar breyt-
ingar, sem hefðu fallið í grýttan
jarðveg.
„Mér finnst að áherslurnar séu
ekki réttar og þess vegna séum við
ekki á rétti leið. Mínar hugmyndir
ganga út á að leggja af sambands-
stjórnina, sem samanstendur af 21
manni, og fækka síðan í fram-
kvæmdastjórninni. í stað þess að
hafa níu í stjórn verði fimm, en ég
sætti mig við sjö. Formenn nefnda
eiga ekki að vera í framkvæmda-
stjórn eins og nú er, því það er
ekki rétt fyrirkomulag. Síðan vil ég
auka vægi nefnda, þannig að til
dæmis bæði fræðslu- og útbreiðslu-
nefnd virkuðu betur en þær hafa
gert. Ég vil auka sjálfstæði nefnda
þannig að ákvarðanataka verði í
ríkara mæli innan þeirra, svo öll
mál, sem varða hagsmuni einstakra
aðildarfélaga þurfi ekki alltaf að
lenda inni á borði hjá framkvæmda-
stjórninni. Öll mál 'eru mikilvæg
sem slík, en þau eiga ekki endilega
heima hjá framkvæmdastjórninni,
sem með þessu móti gæti í ríkara
mæli sinnt heildarhreyfingunni,
stefnumörkun og því, sem setið
hefur á hakanum. Við höfum átt
mjög mikil alþjóðleg samskipti síð-
Jón Ásgelrsson
an á IHF-þinginu í Barcelona í fyrra
og haldið þeim áfram allt starfs-
tímabilið, þannig að við höfum
breytt ímynd sambandsins talsvert
og treyst þessi samskipti mjög veru-
lega. Þennan byr eigum við að nota,
sérstaklega með tilliti til HM ’95,
til að koma okkar mönnum að í
hinum ýmsu ráðum og nefndum
innan IHF og Evrópusambandsins.
Það sem vakir fyrir mér er að stjórn
heildarsamtakanna sinni þessum
málum, en önnur mál komi til af-
greiðslu annars staðar í kerfinu.
Þetta fær ekki hljómgrunn, menn
eru hræddir við að „slátra“ sam-
bandsstjórninni, því allt byggist
þetta á því að koma sínum mönnum
að. Ef sambandsstjórninni verður
„slátrað" fínnst fulltrúum félaga
utan Reykjavíkur að verið sé að
ganga á þeirra hlut. Rótttækar
breytingar felast í þessu, en ég finn
að þetta hefur ekki þann hljóm-
grunn, sem ég hefði vonast eftir,
svo mér sýnist á öllu að fyrirkomu-
lagið verði áfram svipað og verið
hefur. Á þvi hef ég ekki áhuga.“
Jón, sem var kjörinn formaður
fyrir ári, sagðist hafa sætt gagn-
rýni frá félögunum, hagsmunaaðil-
unum, sem formaður og því teldi
hann rétt að víkja og gefa öðrum
tækifæri, þó hann hefði ekki áhuga
á að hætta öllum afskiptum.
„Ég hef alltaf haft sterkar taug-
ar til handboltans og þetta hefur
vissulega verið lærdómsríkur tími
en erfiður. Ég hef einnig eytt mjög
miklum tíma í þetta og hef ekki
efni á því áfram, en það ræður líka
miklu um þessa ákvörðun mína.“
Þannig vörðu þeir
Markvarslan í síðasta úrslitaleik FH og Vals um íslandsmeistaratitil-
inn í handknattleik karla f fyrrakvöld var með eftirfarandi hætti
(skot aftur til mótheija innan sviga):
Bergsveinn Bergsveinsson, FH, - 16 (5); 7 (2) langskot, 3 (1)
hraðaupphlaup, 2 víti, 2 (1) af línu, 1 eftir gegnumbrot, 1 (1) úr homi.
Sverrir Kristinsson, FH, - 0; kom ekkert inná.
Guðmundur Hrafnkelsson, Val, - 17 (6); 10 (2) langskot, 3 (1)
af línu, 2 (1) víti, 1 (1) úr horni, 1 (1) eftir hraðaupphlaup..
Axel Stefánsson, Val, - 0; kom ekkert inná.
■Vegna mistaka birtust þessar upplýsingar í blaðinu í gær.