Morgunblaðið - 28.09.1993, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
4
18 þúsund manns
sáu jeppasýninguna
TALIÐ er að hátt í átján þúsund manns hafi sótt sýningu Ferða-
klúbbsins 4x4, Ferðabílar og fagurt land, í Laugardalshöllinni
um síðustu helgi. Tíu þúsund manns greiddu aðgangseyri að
sýningunni.
Friðrik Halldórsson í sýningar-
stjórninni sagði að geysilega mik-
ill áhugi hefði verið fyrir sýning-
unni og sýningargestir lýst yfir
míkilli ánægju með hana. For-
svarsmenn sýningarinnar voru í
gær á Langjökli á fimm bílum
ásamt fimm erlendum bílablaða-
mönnum, þar á meðal blaðamönn-
um frá hinu þekkta jeppatímariti
Four Wheeler. „Við erum að sýna
þeim hvað landið hefur upp á að
bjóða og þeim þykir ótrúiegt hvað
íslendingar eru að gera í þessum
málum,“ sagði Halldór.
Loftfjöðrun
Hann sagði að tilgangur ferð-
arinnar væri að sýna erlendu
blaðamönnunum að bílarnir væru
ekki aðeins tii sýnis heldur væri
ekið á þeim upp á fjöil og jökla.
Halldór sagði að það væri mjög
ör þróun í breytingum á jeppum.
Miklar breytingar hefðu orðið frá
síðustu sýningu fyrir tveimur
árum. Nú væru jeppamenn famir
að setja mikið af gormum undir
bílana og jafnvel loftfjöðrun líkt
og í rútum og vörubílum. Loftp-
úði er þá settur undir bílana í
stað gorma eða fjaðra og ér þá
hægt að stýra úr mælaborði
hversu hár bíllinn er og hve stíf
fjöðrunin er. „Þetta er íslenskt
hugvit og þó Bandaríkjamenn
breyti sínum bílum mjög mikið
þá er það að mestu leyti á yfír-
borðinu. Við breytum bílunum
vegna þess að við þurfum á því
að halda við okkar erfíðu aðstæð-
ur,.“ sagði Halldór.
_- _ • Morgunblaðið/Árni Sæberg
V eitmgamaður mn
BJORN Leifsson veitingamaður í hinum endurbætta Leikhúskjallara í gær. Lengsti bar landsins, Langi-
bar, verður á staðnum, en hann er 10 metra langur.
1DAG kl. 12.00
Heímild: Veðurstofa islands
(Byggt i veðutspá kl. 16.16í gær)
VEÐUR
I/EÐURHORFURIDAG, 28. SEPTEMBER
YFIRLIT: Skammt út af VestfjÖrðum er 986 mb. lægð sem hreyfist lítið
og grynnist.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Vesturdjúpi.
SPÁ: Suðvestlæg átt, víðast gola eða kaldi. Skúrir um vestanvert landið
og austur með suðurströndinni, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti 6-11
stig, hlýjast á Norðausturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Fremur hæg vestan- og norðvestanátt, skúr-
ir vestan- og norðanlands en að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Hiti
4 til 8 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Allhvöss eða hvöss sunnanátt um allt land.
Að messtu.þurrt norðanlands en rigning annars staðar. Hiti 6 til 12 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðvestan- og vestanátt, sums staðar nokkuö
hvöss við suður- og suðausturströndína en hægari annars staðar. Sunn-
an- og vestanlands má búast við skúrum en að mestu þurrt á Norður-
og Austurlandi. Híti 4 til 9 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 18.30,
22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 890600.
v Tmmv
Heiðskírt Léttskýjað
r r r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig..
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
itig..
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Viða
er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabílum, Gæsavatna-
leið fær til austur frá Sprengisandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tfma
hiti voöur
Akureyri 11 skýjað
Reykjavík 8 skúr
Björgvin 12 hálfskýjað
Helsinki 8 alskýjað
Kaupmannahöfn 12 alskýjað
Nuuk 1 frostúði
Ósló 10 skýjað
Stokkhólmur 10 skýjað
Þórshófn 10 rigning
Algarve 22 léttskýjað
Amsterdam 13 rignig
Barcelona 18 skýjað
Berlln 12 alskýjað
Chicago 9 skúr
Feneyjar 18 skýjað
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 12 léttskýjað
Hamborg 11 súld
London 8 rigning
LosAngeles 16 þoka
Lúxemborg vantar
Madríd 19 léttskýjað
Malaga 26 skýjað
Mallorca 22 skýjað
Montreal 14 skýjað
NewYork 21 alskýjað
Orlando 23 skýjað
París 13 skýjað
Madelra 18 skúr
Róm 23 hálfskýjað
Vín 18 léttskýjað
Washington 21 þokumóða
Winnipeg 6 skúr
Leikhúskjallarinn
í upprunalegt horf
Leikhúskjallarinn hefur verið lokaður síðan 1. júlí sl. vegna breyt-
inga á rekstrarfyrirkomulagi og innréttingum. Björn Kr. Leifsson,
eigandi líkamsræktarstöðvarinnar World Class og veitingamaður í
Ingólfscafé, hefur tekið við rekstrinum í samvinnu við Þjóðleikhúsið
og er stefnt á að opna nýjan og breyttan Leikhúskjallara 1. október nk.
Verið er að endurgera Leikhús-
kjallarann í svipuðu formi og hann
var eftir opnun Þjóðleikhússins
1950. Þar geta gestir notið veitinga
öll sýningarkvöld fyrir sýningu, í
hléi og að lokinni sýningu. Um helg-
ar verða haldnir dansieikir að lokn-
um sýningum fyrir leikhúsgesti sem
og aðra þar sem boðið verður upp
á lifandi tónlist og ýmsar uppákom-
ur. Leikhúskjallarinn stefnir að því
að höfða til aldurshóps 25 ára og
eldri.
Veitingastjóri Leikhúskjaliarans
er Guðmundur Alfreð Jóhannsson,
Siguijón Þórðarson.er matreiðslu-
meistari og., yfirþjónn er Kristján
Nói Sæmundsson.
Ellefu fara heðan á
ársfund Alþjóðabanka
ÁRSFUNDUR Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefst í
Washingtonborg í Bandaríkjunum í dag. Að minnsta kosti 11 fulltrúar
íslenskra stjórnvalda og bankakerfisins munu sitja fundinn og fleiri
fundi þeim tengda.
Sameiginlegur ársfundur Alþjóða-
bankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins hefst í dag og stendur fram á
fimmtudag en undirbúningsfundir
hófust um helgina. Fulltrúar allra
helstu banka heimsins verða í Wash-
ington og ræða við fulltrúa aðildar-
landanna um stöðu efnahagsmála,
lántökuáform og fleira. Þá hittast
fjármálaráðherrar Norðurlandanna
og Eystrasaltsríkjanna í Washington.
Fjármálaráðherra íslands mun meðal
annars hitta að máli fulltrúa fjár-
málatímaritsins Euromoney vegna
hugsanlegrar ráðstefnu hér á landi
um fjárfestingu erlendra aðila í öðr-
um löndum. Loks heldur íslensk-
ameríska verslunarráðið ráðstefnu í
Washington á föstudag þar sem ráð-
herrar fjármála, viðskipta og utan-
ríkismála flytja erindi.
Greitt fyrir ráðherra
Sighvatur Björgvinsson viðskipta-
ráðherra er aðalfulltrúi íslands í Al-
þjóðabankannum og Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra er varafulltrúi.
Alþjóðabankinn greiðir ferðir og
uppihald fyrir ráðherrana á meðan
ársfundinum stendur. Þá sitja ráðu-
neytisstjórar fjármálaráðuneytis og
viðskiptaráðuneytis, þeir Magnús
Pétursson og Finnur Sveinbjömsson
fundinn. Einnig tekur Bolli Þór Bolla-
son skrifstofustjóri í fjármálaráðu-
neyti þátt í fundinum en hann situr
í norrænni nefnd um Eystrasalts-
ríkjaáætlunina.
Frá Seðlabankanum fara Jón Sig-
urðsson seðlabankastjóri og Ólafur
ísleifsson hagfræðingur á ársfund-
inn. Þá mun Sigurgeir Jónsson for-
stjóri Lánasýslu ríkisins sitja fund-
inn. Loks senda bankarnir fulltrúa á
fundinn. Þeir eru Björgvin Vilmund-
arson bankastjóri Landsbankans,
Valur Valsson bankastjóri íslands-
banka og Sólon Sigurðsson banka-
stjóri Búnaðarbankans.
Að sögn Magnúsar Péturssonar
ráðuneytisstjóra má búast við að
mikið verði fjailað um endurreisn
Austur-Evrópu og Rússlands á árs-
fundinum. Einnig verður rætt um
endurreisn Palestínu og efnahagsað-
stoð þangað og verður haldinn sér-
stakur fundur um það mál á föstu-
dag eftir að ársfundinúm lýkur.
------» ♦ ♦-----
Akærður fyr-
ir manndráp
AKÆRA Ríkissaksóknara gegn
Þórði Jóhanni Eyþórssyni fyrir að
hafa orðið Ragnari Ólafssyni að
bana af ásetningi aðfaranótt 22.
ágúst sl. var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Gæslu-
varðhald yfir manninum hefur
verið framlengt til 15. desember
næstkomandi en um málið verður
fjallað í Héraðsdómi þann 10.
október.
í Héraðsdómi í gær sagði Þórður
Jóhann atvikum málsins rétt lýst í
ákærunni en honum er þar gefið að
sök að hafa stungið Ragnar Olafsson
með hnífi í hjartastað á heimili Ragn-
ars við Snorrabraut. Ragnar lést á
skurðarborði á Borgarspítalanum um
klukkustund síðar.
Þetta er í annað skipti sem Þórður
Jóhann Eyþórsson er ákærður fyrir
manndráp af ásetningi en hann var
á reynslulausn þegar atvikið átti sér
stað.