Morgunblaðið - 28.09.1993, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
39
LIST
Lager
himnasending
Kristni Reyr Péturssyni er ýmislegt til lista lagl. Hann hefur meðal
annars samið gamanleikrit, ljóð og sönglög auk þess sem hann hef-
ur haldið nokkrar málverkasýningar.
Kristinn Reyr Pétursson ljóð-
skáld og lagahöfundur með
meiru hefur víða komið við á ævi-
ferli sínum en hann er fæddur 30.
desember árið 1914. Hann ólst upp
í Grindavík og Keflavík. Lauk prófi
frá Verslunarskóla íslands árið
1935. Var bóksali í Keflavík á árun-
um 1942-65. Hefur unnið að rit-
störfum í Reykjavík síðan 1965.
Kristinn Reyr hefur verið valinn til
trúnaðarstarfa í fjölmörgum og
margvíslegum félagasamtökum.
M.a. var hann varaformaður Rithöf-
undasambandsins 1966-70 og for-
maður Rithöfundafélagsins
1970-71. Hann var formaður Fé-
lags íslenskra dægurlagahöfunda
1967-69. Hann var formaður Tón-
menntasjóðs kirkjunnar 1975-79.
Þess má geta að hann var lengi í
stjórn Félags íslenskra bókaversl-
ana en einnig verður að greina frá
því að hann var í stjórn Sósíalistafé-
lags Keflavíkur.
Fyrsta verk Kristins Reyrs sem
kom fyrir almenningssjónir var
„Ást og vörufölsun". Það var skop-
leikur sem var frumsýndur í Iðnó
árið 1935 en árið 1942 kom fyrsta
ljóðabókin út, „Suður með sjó“. Síð-
an hafa komið út um 12 ljóðabækur
og 9 leikrit. Kristinn Reyr hefur
og haldið nokkrar málverkasýning-
ar bæði hérlendis og í Noregi. Hann
hefur ennfremur gefið út sjö nótna-
hefti með lögum við ljóð bæði eftir
sjálfan sig og aðra. Nú í haust kom
loks út geisladiskur með sjautján
ljóðalögum. Öll lögin eru eftir Krist-
in, sjö ljóðanna eru eftir lagahöfund
en hin níu eru eftir ýmis helstu ljóð-
skáld þjóðarinnar t.d. Davíð Stef-
ánsson, Stein Steinarr og Örn Arn-
arsson.
Erfið flokkun
Morgunblaðið tók hús á Kristni
að heimili hans í Þingholtunum í
Reykjavík. — Ertu frekar maður
orða, tóna eða mynda? „Er þetta
ekki allt náskylt hvað öðru. Mér er
ekki mögulegt að skilgreina mig.
Ef reynt er að vega og meta út frá
einhveijum mælikvarða, t.d. magni,
hvað er ég þá? Rithöfundasamband-
ið tók sig einu sinni til og flokkaði
alla þá sem það hafði innanborðs.
Þá var ég fyrst nefndur leikskáld
og síðan ljóðskáld."
Viðmælandi Mprgunblaðins
sagðist ekki vera neinn tónlistar-
maður þótt hann hefði „föndrað við
þetta öðru hverju." Það hefði verið
orgel á bernskuheimili hans og hann
hefði spilað á það eftir eyranu. Það
hefði ekki orðið fyrr en seinna á
ævinni að hann hefði byijað að
skrifa nótur. Hann leitaði þá til
Carls Billich sem tók að sér að út-
setja nokkur hefti af nótum. Fyrsta
nótnaheftið kom út árið 1967 og
síðan hafa sex bæst við. Lagahöf-
undur sagðist þar hafa notið Carls
Billich og síðar Eyþórs Þorláksson-
ar gítarleikara. Ýmsir þekktir flytj-
endur nýttu sér nótnaheftin. „Þann-
ig komust lögin inn á band eða plöt-
ur. T.d. tók Guðrún Tómasdóttir
upp lag við ljóð Halldórs Laxness,
„Bráðum kemur betri tíð.“ og
Haukur Morthens söng „Amo-
rella“.“
Geisladiskar tímaima tákn
Árið 1983 kom út hljóðsnælda
með verkum Kristins Reyrs „Suður-
nesjaljóð og lög“. Hann sagðist
hafa fylgst með framgangi og út-
breiðslu geisladiskanna en það var
loks í fyrra að hann sannfærðist
um að þeir væru ekki lengur mun-
aðarvara heldur sá miðill sem flest-
ir ættu að hafa efni á. Hann fékk
því Björgvin Þ. Valdimarsson tón-
listarkennara til aðstoðar við val
laga og flytjenda. „Án hans hefði
ég aldrei getað staðið í þessu.“
I hugum Islendinga er nafn
Kristins Reyrs nánast óijúfanlega
tengd ljóðum og leikritum. En jafn-
vel þótt ýmis lög hans hljómi kunn-
uglega í eyrum landsmanna, er það
oft svo að menn leggja ekki hlustir
eftir því hver er lagahöfundur. Nú
hefur hann gert lög við eigin ljóð
- eða kannski ljóð við eigið lag?
Fulltrúi Morgunblaðsins vildi fá að
vita hvort kæmi fyrr í huga höfund-
ar lag eða ljóð, eða e.t.v. samtímis?
„Það hefur ekki farið saman. Maður
getur gengið lengi með ljóð í mag-
anum. Það fer eftir gerð ljóðsins,
hvort það er í knöppu formi eða
hvort eitthvað er teygður lopinn.
Lagið er meiri himnasending. Og
stundum er hrynjandi þannig að ljóð
kallar á lag:
Mjöllin laufgar myrkfælinn skóg
myrkfælinn skóg í hlíð.
Blikar á mánans sigð
og bráðum er vakað nóg
en eitt varð það man
man eg þig alla tíð
Nóttin kyssir nýfallna mjöll
nýfallna mjöll í blund.
Bit er í mánans egg
og bráðum er vakan öll
en eitt var það man
man eg þig hveija stund.
Happdrætti
Hjartaverndar
DRÖGUM 8. OKT.
Þú geturgreitt miðan
þinn með greiðslukorti
(D SÍMI 813947 BD
VÁKORTALISTÍ
Dags.28.9.1993.NR. I4l
5414 8300 0310 5102
5414 8300 0957 6157
5414 8300 2814 8103
5414 8300 3122 1111
5414 8300 3163 0113
5414 8301 0494 0100
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
KVIKMYNDIR
Michelle Pfeiffer
fékk loksins
óskina uppfyllta
Michelle Pfeiffer hafði lengi
borið þá ósk í bijósti að fá
að vinna með leikstjóranum Martin
Scorsese. Hún hafði nokkrum sinn-
um sóst eftir hlutverkum í kvik-
myndum hans, en hann hafði ekki
svo mikið sem samband við hana.
Hún hafði því komist að þeirri nið-
urstöðu að hann vildi ekki leyfa
henni að leika undir sinni stjórn.
Þar af leiðandi hafði hún eiginlega
gefið hann upp á bátinn og taldi
sjálfri sér trú um að fjöldi annarra
leikstjóra vildu starfa með henni.
Símhringingin sem
skipti sköpum
Michelle varð því heldur betur
undrandi þegar rödd í símanum
tjáði henni að Martin Scorsese vildí
fá hana í hlutverk í næstu mynd
sína. „Ég varð ekki bara undrandi,
ég fékk áfall,“ sagði hún. Hér var
um að ræða hlutverk greifynjunnar
Ellen Olenska í myndinni „The Age
of Innocence", sem nýlega var
frumsýnd í Bandaríkjunum.
Michelle fékk frábæra dóma í
The New York Times fyrir túlkun
á hlutverkinu. Samstarf þeirra
Michelle og Scorsese varð líka mjög
gott, því honum líkaði ekki bara
við hana heldur dáðist hann mjög
að Ieik hennar. Hlutverk hennar í
myndinni er ólíkt því sem hún hefur
áður leikið eins og í myndunum
„Love Field“, „Dangerous Liaisons"
og „The Fabulous Baker Boys“.
„Rétta“ hlutverkið
Ástæðan fyrir því að Scorsese
hafði aldrei samband við hana þeg-
ar hún leitaði eftir hlutverki mun
vera sú að hann vildi bíða eftir
Michelle Pfeiffer er sögð túlka
hlutverk Ellen Olensku frábær-
lega í myndinni „The Age og
Innocence".
„réttu“ hlutverki. Hann hafði hrifist
mjög af leik hennar í myndinni
„Married to the Mob“, en þar tókst
henni vel að ná ítölskum-amerísk-
um hreim.
Að sögn þeirra sem til þekkja í
kvikmyndaheiminum hefur myndin
mikla möguleika á að verða tilnefnd
til Óskarsverðlauna og Michelle
einnig sem besta leikkonan í auka-
hlutverki. „Auðvitað finnst mér
mikill heiður að vera tilnefnd, en
ég er alltaf dálítið fegin þegar kem-
ur í ljós að ég hef ekki unnið, því
ég óttast svo mjög að þurfa að
halda ræðu,“ sagði Michelle sem
þrívegis hefur verið útnefnd til Ósk-
arsverðlauna en aldrei hlotið þau.
ORÐIÐÁ
BORGINNI
JttóTIÐ LÍFSINS
ÁBORGINNI
Þuujvellir
Vínkjallarinn
Höfum einkar glæsilega aðstöðu fyrir hópa og einkasamkvæmi þar
sem þjónusta og matur eru sniðin að ykkar þörfum.
Vínkjallarinn, mjög eftirminnilegur salur f kjallara, 8-16 manns.
Pingvellir, kyrrlátur og þægilegur salur á fyrstu hæð, 12-30 manns.
Gyllti salurinn, tilkomumikill og frægur, 40-160 manns.
Pálmasalurinn með Sushi-bar -Opið fyrir almenning.
Nánari upplýsingar veita veitingarstjórar í stma 11247 eða 11440.
Þ A Ð E R A Ð E I N S E I N H Ó T E L B O R G