Morgunblaðið - 13.01.1994, Side 48

Morgunblaðið - 13.01.1994, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 Minning Hinrik Guðmunds son skipsljóri Fæddur 27. febrúar 1897 Dáinn 30. desember 1993 Föðurland vort hálft er hafið, helgað þúsund feðra dáð. Þangað lífsbjörg þjóðin sótti þar mun verða stríðið háð. Yfir lop og banabylgju bjarmi skín af Drottins náð. Föðurland vort hálft er hafið, hetjulífi og dauða skráð. (J. Magnússon) Löng æviferð aldins skipstjóra er á enda. Jarðarför Hinriks Guð- mundssonar fór fram frá Kapellu ísafjarðar hinn 8. janúar síðastlið- inn. Athöfnin var fjölmenn og virðu- leg. Hinrik dó á^sínu 97. aldursári, feginn hvíld og friði- hjá Guði eftir strangan, starfsaman og langan ævidag, farinn að kröftum. Fráfall góðs vinar og samferðamanns yfir rúma hálfa öld veidur söknuði í hjarta mínu, en börnin fæðast og gamalt fólk deyr. Það er eðlilegt og gangur lífsins. í þessu tilfelli farsæll endir á athafnasamri ævi og góðu og farsælu mannlífi. Á slíkri stundu eru öllum efstar í huga þakkir fyrir góðar og bjartar minn- ingar, virðing og þökk fyrir allar samverustundirnar. Hinrik var fæddur á ísafirði hinn 27. febrúar 1897. Hann var yngstur þriggja barna hjónanna Þórunnar Eiríksdóttur og Guðmundar Jens- sonar. Eldri bróðir Hinriks, Eiríkur, var sjómaður og skipstjóri á vél- bátnum Leifi heppna sem var í eigu Magnúsar Thorberg útgerðar- manns á ísafírði. Hann fórst með skipi sínu og áhöfn hinn 14. desem- ber 1924 í ofsavetrarveðri, frost- hörku og hríðarbyl. í þeim stormi fórst einnig mb. Njörður, bátur frá sama útgerðarmanni með allri áhöfn. Skipstjóri þar var Jónatan Björnsson, móðurbróðir minn. Þá voru döpur jól á ísafirði og mikil sorg kveðin að litlu bæjarfélagi. Sigríður systir Hinriks tók þá í fóstur næstyngsta barn Eiríks bróð- ur síns, Sigríði litlu nöfnu sína, en hún dó 12 ára gömul á Sjúkrahúsi ísafjarðar. Ekkja Eiríks, Marsibil hafði hjá sér hin börnin, Þórunni og Eirík litla. Hún giftist síðar til Flateyrar. ísafjörður átti við upphaf þessar- ar aldar marga dugmikla og fram- sýna athafna- og bjartsýnismenn og var vaxandi bær. I athafnalífinu var að sjálfsögðu stærsti vaxtar- broddurinn í sjávarútvegi. Mótor- bátar af ýmsum stærðum voru að halda innreið sína, og ýmsar aðrar breytingar í atvinnuháttum og tækni voru á næsta leiti. Þá sannað- ist á ísafirði sá sannleikur, að mik- ill er máttur hins jákvæða hugar og góðs vilja, með trú á markmið sín og framtíð, ef gert það, sem gera þarf, af áhuga, einlægni og fremstu getu og láta svo Guði eftir árangurinn og ávöxtunina. Ungir menn horfðu þá björtum augum til framtíðarinnar, þó lífið væri ekki margþættara en bátar, veiðarfæri og fiskur. Afkoma manna byggist enn á aflabrögðum og átökum dugmikilla sjómanna, vélarafli, stærð skipanna, tækni- búnaði og markaði. Sumarið eftir fermingu fór Hin- rik til sjós hjá bróður sínum Eiríki. Þrátt fyrir fráfall bróðurins síðar og skipstapanna veturinn 1924 ger- ir Hinrik samt sjómennskuna að lífsstarfi sínu. Hugur hans var alla tíð síðan bundinn hafinu, bátunum og því hvemig fiskaðist, afli verkað- ist og seldist. Þegar litið er yfir æviferil Hinriks Guðmundssonar verður ekki annað sagt en að hann hafi verið farsæll, gætinn og giftusamur skipstjórnar- maður sem ávallt kom skipi sínu og áhöfn í höfn. Forsjónin hélt hlífi- skildi yfir honum alla tíð. Hann lenti aldrei í sjávarnauð eða slysum á skipum né mönnum og náði ávallt heilu og höldnu í höfn. Slíkt er mikil blessun í áhættusömu, löngu og erfiðu sjómannslífi. Þar vil ég ekki vanmeta hjálp og vernd Guðs á stórviðrasamasta svæði norður- hjara. Hinrik fékk sín skipstjórnar- réttindi árið 1920, en þar áður hafði hann verið til sjós í áratug. Þá var hann með báta fyrir vestan og á togurum fyrir sunnan. Hann var mikill netamaður og talinn góður og harðduglegur sjómaður. Þjóðhá- tíðarárið 1930 fór hann utan til Svíþjóðar að sækja vélbátinn Auð- björn ÍS 17 fyrir Samvinnufélag Isfirðinga sem hann síðan var með sem skipstjóri allt til ársins 1944. Þegar Samvinnubátarnir voru keyptir var efnahagskreppa í öllum hinum vestræna heimi. Þó það væru erfiðir tímar misstu menn á ísafirði ekki kjarkinn, heldur stofnuðu Samvinnufélag um útgerð af mikl- um stórhug. Hinrik var einn af stofnendunum. Útgerðarfélagið keypti til landsins sjö 40 tonna vél- báta á þessum árum og þóttu bát- arnir bera af fyrir formfegurð og snyrtimennsku. Af þessu framtaki má segja að hafi hlotist bylting í atvinnulífi bæjarins og breyting á öllum viðhorfum manna og upp- hófst blómaskeið í atvinnumálum. Þarna var fremstur í flokki Finnur Jónsson alþingismaður. Á bátana völdust ágætis sjósóknarar og skip- stjórar. Stundaðar voru útilegur undir jökli eftir áramót og fiskað í salt. Á sumrum var síldin veidd og saltað á plani Samvinnufélagsins á Siglufirði. Á vorin og haustin-.var róið frá ísafirði. Þetta mikla blóma- skeið í atvinnu og afkomu fólks og uppbyggingu Ísaíjarðar er tími sem maður minnist með gleði og lítur með aðdáun til þeirrar kynslóðar sem þarna var að verki. Hinrik Guðmundsson var einn af þeim. Það var dugur, kjarkur, þrek og framtak í þessum mönnum. Ég var háseti hjá Hinrik á síld- veiðum á Auðbirni í fjögur sumur og þekkti því vel bæði lagni hans við veiðar, útsjónarsemi, hagsýni og stjórnsemi. Áðgætni hans gagn- vart veiðarfærum, skipi og mann- skap byggðist á árvekni, ákveðnum vilja og dugnaði. Hinrik var einnig mikill gæfu- maður í einkalífi sínu. Lífsförunaut sinn fann hann í Bolungarvík, tví- tuga yndislega stúlku Elísabetu Háldánardóttur, fædda að Hesti í Seyðisfirði vestra. Hún var dóttir Hálfdánar bónda Einarssonar þar og konu hans Daðeyjar Daðadóttir. Þau hjón voru þá nýflutt til Bolung- arvíkur. Þau Hinrik og Elísabet gengu í hjónaband árið 1930 og stofnuðu myndarheimili í Sund- stræti 31 á ísafirði. Elísabet var dugleg kona og myndarleg til allra verka, hlý, nærgætin og mikil hús- móðir. Heimili þeirra var ávallt opið öllum skyldmönnum og sýndu þau mikla gestrisni. Þau Hinrik eignuð- ust Ijóra mannvænlega syni senv allir komust á legg. Þórir skipstjóri er þeirra elstur, kvæntur Árý Hin- riksson, indverskri konu. Hann gerði sjómennsku að sínu ævistarfi og starfaði um tíma á vegum Sam- einuðu þjóðanna á Ceylon. Næstur er Daði sem er vélstjóri, kvæntur Berthu Guðmundsdóttur, ættaðri úr Grundarfirði. Þriðji bróðirinn er Arnar Geir lögfræðingur. Yngstur var Siguijón sem gerðist sjómaður. Hann lést fyrir nokkrum árum. Auk þess að ala upp fjóra syni, ólu þau hjónin upp Kristínu dóttur Þóris og er hún gift Vincent Newman og eru þau búsett á Akureyri. Eftirlifandi synir Hinriks og Elísabetar eru all- ir búsettir á ísafirði. Eftir að drengirnir fóru að stálp- ast, vann Elísabet á sumrin við síld- arsöltun á plani Samvinnufélagsins á Siglufirði til að vera nær manni sínum og_ drýgja tekjur fyrir stórt heimili. Árið 1947 hætti Hinrik skipstjórn hjá Samvinnufélaginu og stofnaði netaverkstæði þar sem hann vann fyrir Togaraútgerðarfé- lagið ísfirðing sem verkstjóri og verkstæðisformaður allt fram á sjö- unda áratuginn að félagið var gert upp. Nú mætti halda að Hinrik hefði farið að taka lífinu með ró og hvílast eftir langan og strangan dag, en því fór nú fjarri Tæplega sjötugur tekur hann bílpróf og ger- ist fiskmatsmaður. Því starfi sinnti hann allt fram á níræðisaldur, en þá var honum farin að daprast sjón. ,Hann var sannarlega aðdáunar- verður maður sem gat og kunni að bjarga sér og sínum og leysti öll störf sín af hendi með samvisku- semi, vandvirkni og dugnaði þótt skólagangan væri ekki löng né próf- in mörg. Hann var gerður heiðurs- félagi Sjómannafélagsins Bylgjunn- ar fyrir störf sín til sjós og lands í þágu sjómanna og félagsmála. Hann naut þess að gleðjast og skemmta sér í góðra vina hópi, var félagshyggjumaður og fylgdist vel með í þjóðmálum. Hann var heilsu- hraustur alla tíð en um nírætt tók ellin að sækja á hann. Þau Elísabet fluttust á Elliheimilið Hlíf á ísafirði árið 1987. Þar hlutu þau góða að- hlynningu og umönnun. Þar naut Hinrik einnig góðs félagsskapar fermingarbróður síns Ingimars Finnbjörnssonar. Þar gátu þeir gömlu skipstjórarnir rabbað saman um hina gömlu góðu daga liðinnar ævi. Löng ferð er nú á enda. Hinrik Guðmundsson hefur hlotið hvíldina og friðinn hjá Guði. Hann andaðist hinn 30. desember síðastliðinn. Guð hefur blessað þennan mann og varðveitt á löngum, viðburðaríkum og giftusömum æviferli með mörg- um vinum og afkomendum. Ég veit að hann lætur Hinrik einnig sjá og njóta hjálpræðis síns, náðar og blessunar að loknu þessu lífi. Drottin gefi dánum ró og breiði blessun sína yfir blóma lífsins og þögla gröf og líkni þeim er lifa. Öllum aðstandendum, börnum, barnabörnum, vinum og samstarfs- mönnum Hinriks Guðmundssonar sendi ég mínar einlægustu samúð- arkveðjur. Björn Ólafsson. Hinn 30. desember sl. lést á Hlíf, íbúðum aldraðra á ísafirði, Hinrik Guðmundsson skipstjóri á 97. ald- ursári. Hann var borinn og barnfæddur ísfirðingur sonur Guðmundar Jens- sonar skósmiðs og Þórunnar Eiríks- dóttur er fædd var í Valþjófsdal í Önundarfirði. t Móðir mín, ANNA ÓLAFÍA ÁRNADÓTTIR, Bergþórugötu 45b, andaðist í Landspítalanum 11. janúar. Grétar Aðalsteinsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR, áður Túngötu 9, Keflavík, lést á dvalarheimilinu Garðvangi, Garði, 11. janúar. Gunnar Páll Guðjónsson, Þórdis Þorbergsdóttir, Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Guðjón Þórarinsson, Inga Áróra Guðjónsdóttir, Vignir Erlendsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður og faðir GEIRJÓNSSON, lést 10. janúar. Elma Hrund Kristjánsdóttir, Kristjári og Elfna Hrund Geirsbörn. Jón L. Geirsson. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGNÝ ÓLADÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 14. janúar kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Höfða, Akranesi. Hóimfriður Geirdal, Þorsteinn Marelsson, Ingólfur Geirdal, Guðrún Guðlaugsdóttir, Hulda Reykjalín, Þorlákur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Frændi minn) ÞÓRIR HRAFN PÁLSSON frá Árkvörn, Fljótshlíð, lést í Landspítalanum mánudaginn 10. janúar, útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 19. janúar kl. 13.30. Árni Guðjónsson. t Bróðir minn, mágur og frændi, ÓSKAR JÓNSSON frá Holtsmúla, Hrafnistu, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Skarðskirkju, Landsveit, laugardaginn 15. janúarkl. 14.00. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12.00. Sigriður Jónsdóttir, Ingvar Loftsson, Elias Ingvarsson, Guðný Margrét Ólafsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓNA HALLDÓRSDÓTTIR frá Saurhóli, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. janúar kl. 10.30. Anna Margrét Guðjónsdóttir, Elínborg Guðjónsdóttir, Jón Ólafsson, Guðmundur Guðjónsson, Selma Guðmundsdóttir, Anna Guðjónsdóttir, Guðlaugur L. Guðmundsson, Halldór Guðjónsson, Oddný Aðalsteinsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. t Elskuleg móðir okkar, SOFFÍA KRISTJÁNSSON, (MARGOT SOFIE OLSEN), dvalarheimilinu Garðvangi, Garði, áður Hólagötu 5, Njarðvik, verður jarðsungin frá Innri Njarðvíkurkirkju föstudaginn 14. janúar kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnþóra Sigfúsdóttir, Kristján Sigfússon, Svanhild Danielsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.